Fréttablaðið - 26.02.2014, Side 6
26. febrúar 2014 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 6
1. Hversu margir ferðamenn skoðuðu
Dettifoss, Námaskarð og Leirhnjúk í
fyrra?
2. Hver er nýr Íslandsmeistari í sjö-
þraut?
3. Af hvaða íslensku hljómsveit
heillast bílaunnendur í Bandaríkj-
unum?
SVÖR:
Febrúar 2003 - Mikill
stuðningur
Í skoðanakönnun Sam-
taka iðnaðarins (SI) og
Capacent Gallup mældist
stuðningur við aðildar-
viðræður við ESB 64,2
prósent.
Febrúar 2006 - Halldór
spáir Íslandi í ESB
Halldór Ásgrímsson, þá-
verandi forsætisráðherra,
spáði því í ræðu á Við-
skiptaþingi að Ísland yrði
orðið aðili að ESB árið
2015. Þá var stuðningur við
aðild 50,4 prósent.
Ágúst 2008 - Aukinn
stuðningur 58 prósent
hlynnt aðildarviðræðum
í könnun rétt fyrir hrun. Í
október vildu tæplega 70
prósent ganga í ESB.
Febrúar 2009 - Mikill
áhugi á ESB Með nýrri
stjórn Samfylkingar og
Vinstri grænna og sérlega
erfiðu efnahagsástandi
jókst áhuginn á aðildar-
viðræðum enn frekar.
64,2 prósent voru hlynnt
viðræðum.
Júlí 2009 - Ísland sækir um
aðild Ríkisstjórnin ákvað
að hefja aðildarviðræður
við Evrópusambandið.
Jóhanna Sigurðardóttir,
þáverandi forsætisráð-
herra, telur að Ísland gæti
orðið aðili að ESB innan
tveggja til þriggja ára.
Ágúst/september 2009 -
Icesave snýr öllu á hvolf
61,5 prósent sögðust
myndu greiða atkvæði
gegn inngöngu í ESB.
Sinnaskiptin voru rakin til
harðnandi Icesave-deilu.
Janúar 2012 - Stuðningur
eykst Tæp 44 prósent
voru fylgjandi því að
draga umsóknina að ESB
til baka en 43 prósent á
móti. Nýjustu kannanir í
ár segja 42 prósent lands-
manna myndu kjósa með
aðild.
Ísland og stuðningur við aðildarviðræður við ESB - Tímalína
Baldur Þórhallsson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, segir greinilega fylgni á milli
Icesave-samningsins og áhuga Íslands á viðræðum við ESB.
„Strax eftir hrun þá toppaði stuðningurinn en um leið og Icesave kom upp og deilurnar við
Hollendinga og Breta voru í gangi þá dró úr honum,“ segir Baldur. „Mönnum fannst Evrópusam-
bandið standa með þessum ríkjum og tala gegn hagsmunum Íslands. Ég held að margir hafi litið á
það sem svo að við stæðum ein og sér og það kæmi okkur enginn til bjargar, ekki einu sinni Norður-
landaþjóðirnar.“
Baldur segir róðurinn hafa orðið mjög þungan fyrir Evrópusinna eftir að Icesave kom upp. „Það
var í rauninni ómögulegt að selja Evrópusambandsaðild í andrúmslofti Icesave og efnahagskrísunni
í Evrópu.“ - fb
FYLGNI Á MILLI ICESAVE OG ÁHUGA Á ESB
1. 100 þúsund. 2. Einar Daði Lárusson.
3. Kaleo.
ALÞINGI Forsætisnefnd Alþing-
is reyndi í gærkvöldi að ná sam-
komulagi um breytingar á grein-
argerð við þingsályktunartillögur
ríkisstjórnarinnar um að draga
aðildarumsókn Íslands að Evrópu-
sambandinu til baka.
Þingmenn stjórnarandstöðunn-
ar töldu því haldið fram í grein-
argerðinni að nokkrir þingmenn
hefðu ekki greitt atkvæði sam-
kvæmt eigin sannfæringu þegar
ákveðið var að sækja um aðild að
Evrópusambandinu.
Forseta þingsins, Einari K. Guð-
finnssyni, var falið að koma
óánægju stjórnarandstæðinga á
framfæri við utanríkisráðherra.
Steingrímur J. Sigfússon sem sæti á
forsætisnefnd segir að taki utanrík-
isráðherra ekki mark á stjórarand-
stöðunni séu þingstörf í uppnámi.
Í greinargerðinni segir um sam-
þykkt þingsályktunartillögu um
aðildarumsóknina sumarið 2009:
„Má jafnvel leiða að því rök að
ekki hafi í raun verið til staðar
meirihlutavilji fyrir málinu heldur
hafi þetta verið hluti af pólitísku
samkomulagi þáverandi stjórnar-
flokka við myndun ríkisstjórnar og
atkvæðagreiðslan því tæplega lýs-
andi fyrir afstöðu þingmanna.“
Það þykir stjórnarandstöðunni
ásökun um að þingmenn VG sem
greiddu atkvæði með tillögunni,
hafi brotið 48. grein stjórnarskrár
um að alþingismenn séu „eingöngu
bundnir við sannfæringu sína“.
Svandís Svavarsdóttir, þingkona
VG, greiddi atkvæði með tillögunni
á sínum tíma og var ómyrk í máli
varðandi meint brigsl, enda væru
flutningsmenn ekki hverjir sem er.
„Heldur ríkisstjórn Íslands með
fulltingi þingflokka beggja stjórn-
arflokkanna. Það er býsna kröft-
uglega kvittað undir þessa aðför
og mér finnst það hljóta að vera
umhugsunarefni fyrir þingið hvern-
ig tekið er á því.“
Steingrímur J. Sigfússon, fyrr-
verandi formaður VG, sagði að til-
lagan væri „vitnisburður um það
hversu lágt litlir kallar geta lagst í
því að ata andstæðinga sína í stjórn-
málum auri.“
Alls greiddu 33 þingmenn
atkvæði með tillögunni, þar af átta
þingmenn VG. Fimm VG-liðar voru
á móti og einn sat hjá.
Árni Þór Sigurðsson var í þeim
hópi sem samþykkti tillöguna.
Hann segir að orðalag eins og er
í tillögu utanríkisráðherra sé for-
dæmalaust í þingskjali. „Ég var
algerlega sammála þessari máls-
meðferð frá árinu 2009, að þetta
væri svo stórt mál að úr því þyrfti
að skera í þjóðaratkvæðagreiðslu og
besta leiðin til þess væri að leggja
niðurstöðu úr viðræðum fyrir þjóð-
ina. [Að hafa kosið gegn eigin sann-
færingu] á í engu tilfelli við mig og
ég held að það sama gildi um alla
þingmenn VG.“ thorgils@frettabladid.is
Segja aðdróttanir í ESB-tillögunni
Stjórnarandstaðan deildi harkalega á orðalag í greinargerð með þingsályktunartillögu um viðræðuslit þar sem hún segir þingmönnum VG
brigslað um brot á stjórnarskrá, við afgreiðslu umsóknarinnar á sínum tíma. Forseti Alþingis kom óánægjunni á framfæri við ráðherra.
MÓTMÆLI Hópur fólks mótmælti því á Austurvelli í gær, annan daginn í röð, að aðildarumsóknin að ESB verði dregin til baka án
þjóðaratkvæðagreiðslu. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
STJÓRNMÁL „Ég veit að höftin eru
hindrun. Og þá skulum við takast
á við þær hindranir,“ sagði Bjarni
Benediktsson, formaður Sjálfstæð-
isflokksins, á fundi í Valhöll í gær.
Bjarni ítrekaði orð sín um að slíta
eigi aðildarviðræðum við Evrópu-
sambandið, því báðir ríkisstjórn-
arflokkarnir eru andvígir inn-
göngu. Hann gaf lítið fyrir þær
kenningar að ef aðildarviðræðum
sé slitið, verði ekki hægt að ganga
í Evrópusambandið næsta ára-
tuginn. Alþingi ætti ekki að bíða
eftir skýrslu Alþjóðamálastofnun-
ar. Ríkisstjórnin hefði gert samn-
ing við Hagfræðistofnun Háskóla
Íslands sem væri sannarlega hlut-
laus stofnun.
„Við skulum hafa það í huga
hér að enginn getur haldið því
fram með gildum rökum að það
sé ómögulegt að sækja aftur um
inngöngu,“ sagði Bjarni um það ef
þær forsendur skapast að meiri-
hluti verði fylgjandi aðild að Evr-
ópusambandinu.
- kak
Formaður Sjálfstæðisflokksins ítrekaði á fundi með flokkssystkinum að slíta bæri aðildarviðræðunum:
Ekki ómögulegt að sækja aftur um aðild
BJARNI
BENEDIKTSSON
Formaður Sjálf-
stæðisflokksins
ræddi Evrópumál
við flokksfélaga í
gær. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
BALDUR
ÞÓRHALLSSON
VEISTU SVARIÐ?
Hágæða flísalím og fúga
Neytendur athugið! Múrbúðin selur al lar vörur s ínar á lágmarksverði fyr ir a l la , a l l taf . Gerið verð- og gæðasamanburð!
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
Weber.tec 822 Rakakvoða
8 kg kr. 7.890
24 kg kr. 19.990
Weber.xerm.
850 BlueCom-
fort C2TE
kr. 2.790
Weber.xerm.
BlueComfort
852 C2TE S1
kr. 3.990
Reykjavík Kletthálsi 7. Opið má-fö kl. 8-18, laug. 10-16
Reykjanesbær Fuglavík 18. Opið má-fö kl. 8-18
Látið fagmenn vinna verkin!
Weber.xerm.
BlueComfort
CE /TE S1
Xtra Flex
kr. 5.290
Weber.Fug 870
Fúga 1-6 mm
CG1 5 kg
kr. 1.690
Weber.Fug 880
Silicone
EC.1. plus
310 ml.
kr. 1.190
DEITERMANN
TECHNOLOGY INSIDE