Fréttablaðið - 26.02.2014, Blaðsíða 25
KYNNING − AUGLÝSING Háskólar26. FEBRÚAR 2014 MIÐVIKUDAGUR 3
Háskólinn á Akureyri er stór og vaxandi hluti af samfé-laginu og er Akureyri líklega
eini eiginlegi háskólabærinn á Ís-
landi. Kristín Ágústsdóttir er nýlega
tekin við sem forstöðumaður mark-
aðs- og kynningarsviðs Háskólans á
Akureyri og þekkir því af eigin raun
að flytja frá Reykjavík til höfuðstað-
ar norðursins.
„Ég er búin að búa á Akureyri í
nær hálft ár núna og er alltaf að kom-
ast betur og betur að því hversu gott
er að búa hérna. Hér er öll sú þjón-
usta, íþróttalíf, menning, matsölu-
staðir og kaffihús sem ég vil hafa að-
gang að og meira til. Svo finnst mér
algjör lúxus að hafa Hlíðarfjall í seil-
ingarfjarlægð. Skíðin eru bara úti í bíl
svo það er auðvelt að hendast upp í
fjall,“ segir hún.
Kristín telur auðvelt að komast inn
í samfélagið á Akureyri, sérstaklega
þegar maður tilheyrir svo stórum
hluta af því sem Háskólinn á Akur-
eyri er. „Að flytja til Akureyrar og
stunda nám í litríku samfélagi nem-
enda og fræðimanna við góðan há-
skóla er góður kostur,“ segir hún og
mælir með því við alla að prófa nýja
hluti og búa í nýju umhverfi.
Nám sem ekki er kennt í öðrum
háskólum á Íslandi
Háskólinn á Akureyri hefur nokkra
sérstöðu þar sem hann býður upp
á sex námsgreinar sem ekki eru
kenndar í öðrum háskólum lands-
ins. Kristín nefnir þar sjávarútvegs-
fræði, fjölmiðlafræði, líftækni, iðju-
þjálfunarfræði, nútímafræði og
félagsvísindi. „Þá leggur HA áherslu
á kennslu í smærri hópum sem skilar
sér í persónulegum og gagnvirkum
kennsluaðferðum þar sem nemendur
hafa afar gott aðgengi að kennurum.“
Leiðandi í fjarnámi
Nær allt nám sem kennt er við Há-
skólann á Akureyri er hægt að stunda
bæði í staðarnámi og fjarnámi. „HA
hefur kappkostað að bjóða upp á nær
allt sitt nám í fjarnámi. Nám óháð
stund og stað fer enda vaxandi og
hefur HA tekið þau mikilvægu skref
að vera leiðandi í þeirri námsleið á
Íslandi,“ segir Kristín. Þetta hefur
mælst vel fyrir á meðal nemenda
þar sem um helmingur þeirra sem
stunda nám við HA eru í fjarnámi.
HA kynnir nám sitt
á Háskóladeginum
Kristín hvetur alla til að koma á Há-
skóladaginn laugardaginn 1. mars og
kynna sér það nám sem Háskólinn á
Akureyri og aðrir háskólar landsins
hafa upp á að bjóða frá fyrstu hendi.
HA verður á Háskólatorgi í Háskóla
Íslands frá klukkan 12 til 16.
Akureyri er lifandi háskólabær
Háskólinn á Akureyri hefur verið í stöðugri uppbyggingu frá því hann var stofnaður 1987. HA býður upp á námsgreinar sem ekki
eru kenndar í öðrum háskólum á Íslandi og er leiðandi í fjarnámi. HA kynnir nám sitt á Háskóladeginum 1. mars á Háskólatorgi HÍ.
Verklegar
æfingar hjá
nemendum í
líftækni.
Kristín Ágústsdóttir, forstöðumaður
markaðs- og kynningarsviðs HA.
MYND/AUÐUNN NÍELSSON
Nemendur í fjölmiðlafræði vinna að gerð útvarpsefnis.
!
" #
$
!
%
"
" "
%
&#
%
'% "
(
)
%