Fréttablaðið - 26.02.2014, Blaðsíða 29

Fréttablaðið - 26.02.2014, Blaðsíða 29
 7 | 26. febrúar 2014 | miðvikudagur Veltutölur í tölvuleikjaiðnaði eru gífur- legar og virðist vöxtur í geiranum engan enda ætla að taka ef marka má spár. Greiningarfyrirtækið Gartner gerði undir lok síðasta árs ráð fyrir að stærð tölvuleikjamarkaðarins, þar sem horft er til tölvuleikja af öllu tagi og á hvers kyns tækjum, næmi árið 2013 tæplega 93,3 milljörðum Bandaríkjadala. Upp- hæðin samsvarar rúmum 10.576 millj- örðum íslenskra króna. Fyrirtækið gerir í áætlun sinni ráð fyrir vexti upp á tæp 18,3 prósent á milli 2012 og 2013. Tölvuleikir á fartækjum (snjallsímum, spjaldtölvum og viðlíka tækjum) eru svo sagðir sá geiri þar sem vöxtur er hvað hraðastur í leikjaiðnaði. Fyrirtækið spáir svo áframhaldandi vexti þannig að markaðurinn fari í 101,6 milljarða dala á þessu ári (vaxi um 8,9 prósent í 11.521 milljarð króna) og vaxi svo um önnur 9,3 prósent milli 2014 og 2015. „Tölvuleikir á netinu og í PC-tölvum verða vinsælir áfram en þeim geira eru þó skorður settar í stærð. Gartner býst við að hefðbundnum PC-tölvum verði ekki skipt út fyrir nýjar þegar kemur að endurnýjun hjá heimilum, heldur verði spjaldtölvur fremur fyrir valinu,“ segir í tilkynningu Gartner. Þetta leiði til þess að leikjatölvur og leikir fyrir fartæki nái afgerandi forystu á „hefðbundna“ tölvu- leiki fyrir einkatölvur. Samkvæmt gögnum Superdata Research, sem gefur út margvíslega tölfræði fyrir leikjaiðnaðinn, námu tekjur af stafræn- um leikjum á Vesturlöndum 21,8 millj- örðum dala á síðasta ári og jukust um 12 prósent á milli ára. Í krónum eru tekjurn- ar tæpir 2.472 milljarðar króna. Tölvu- leikjasala í Bandaríkjunum einum hafi numið 18 milljónum dala (2.041 millj- arði króna), en þar af hafi 65,6 prósent farið fram á netinu með stafrænni af- hendingu. Leikirnir sem mest voru sóttir í far- tæki Apple á netinu í fyrra hafi svo verið Candy Crush Saga þegar horft er til ókeypis leikja og Minecraft þegar horft er til leikja sem greiða þarf fyrir. Super- data Research spáir líka hnignun sér- tækra leikjatölva og bendir á að í fyrra hafi 51 prósent leikið sér í einkatölvum, 30 prósent í leikjatölvum, 14 prósent í fartækjum og fimm prósent í smærri leikjatölvum (GameBoy og þess háttar). Í nýrri spá alþjóðlega greiningarfyr- irtækisins IDC er því spáð að tekjur af tölvuleikjum fyrir einkatölvur (PC og Mac) haldi áfram að vaxa í heiminum og fari yfir 24 milljarða dala (yfir 2.721 milljarð króna) árið 2017. Þar ráði miklu aukning í Asíu og á Kyrrahafssvæðinu. Spár fjárfestingarbankans Digi-Capital, þar sem horft er til tölvuleikjamarkað- ar í heild, eru svo enn bjartsýnni. Þar er gert ráð fyrir að leikir á netinu og í fartæki nái yfirhöndinni með 60 pró- senta hlutdeild árið 2017 og að tekjur af stafrænum leikjum fari um leið yfir 100 milljarða dala. Eftir nokkru er að slægj- ast í þessari þróun því í krónum talið er kakan þá orðin tæplega 11.340 milljarð- ar króna að stærð. Hlutur nets og fartækja stækkar Leikir á netinu og í fartæki kynda undir gífurlegan vöxt í leikjaiðnaði. Tekjuspár nálgast stjarnfræðilegar stærðir. SPJALDTÖLVA Í NOTKUN Stúlka drepur tímann í iPad-spjaldtölvu sinni með tölvuleiknum Hay Day frá Supercell. Því er spáð að fartæki og netleikir saxi hratt á hlut einkatölva og leikjatölva á næstu misserum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP SKJÁSKOT Candy Crush er einhver vinsælasti netleikur heims um þessar mundir. Framleiðandinn, King Digital Entertainment, undirbýr hlutafjárútboð þar sem safna á allt að 500 milljónum dala (56,7 milljörðum króna). FRÉTTABLAÐIÐ/AP Netritið GamesIndustry International fjallaði nýverið um tekjuhæstu netleiki síðasta árs. Þar kemur meðal annars fram að League of Legends frá Riot Games hafi verið sá næsttekjuhæsti samkvæmt gögnum SuperData, þrátt fyrir að hafa halað inn yfir 600 milljónir dala. Vinsælastur reyndist vera suður-kóreski leikurinn CrossFire með tæpan milljarð dala í tekjur. Leikur Tekjur 1. CrossFire 957 mUSD (108,5 ma.kr.) 2. League of Legends 624 mUSD (70,7 ma.kr.) 3. Dungeon Fighter Online 426 mUSD (48,3 ma.kr.) 4. World of Tanks 372 mUSD (42,2 ma.kr.) 5. Maplestory 326 mUSD (37,0 ma.kr.) 6. Lineage 257 mUSD (29,1 ma.kr.) 7. World of Warcraft 213 mUSD (24,1 ma.kr.) 8. Star Wars: The Old Republic 139 mUSD (15,8 ma.kr.) 9. Team Fortress 2 139 mUSD (15,8 ma.kr.) 10. CounterStrike Online 121 mUSD (13,7 ma.kr.) TEKJUHÆSTU NETLEIKIR 2013 UPPLÝSINGATÆKNI Óli Kristján Ármannsson | olikr@frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.