Fréttablaðið - 26.02.2014, Blaðsíða 42
Gjaldþrot hjá Man. Utd í Grikklandi FÓTBOLTI Man. Utd er í vondum
málum í Meistaradeild Evrópu
eftir tap, 2-0, fyrir gríska liðinu
Olympiakos í fyrri leik liðanna í
sextán liða úrslitum keppninnar.
Sigur Grikkjanna var sanngjarn
enda sýndu leikmenn Man. Utd
ekkert í þessum leik.
Dortmund er svo komið með
annan fótinn í átta liða úrslit eftir
2-4 sigur á Zenit. Liðið skoraði
tvö mörk á fyrstu fimm mínútum
leiksins. - hbg
visir.is
Frekari umfjöllun
um Meistaradeildina.
NÝTT
Nicotinell er samstarfsaðili
Krabbameinsfélagsins
Nicotinell Spearmint 2 mg og 4 mg lyfjatyggigúmmí. Inniheldur nikótín. Ábendingar: Til meðferðar á tóbaksfíkn en lyfið
dregur úr nikótínþörf og fráhvarfseinkennum og það auðveldar þar með reykingarfólki sem vill hætta að reykja, að hætta og
auðveldar þeim sem ekki geta hætt, eða eru tregir til þess, að draga úr reykingum. Skammtar fyrir fullorðna 18 ára og eldri:
Skammta skal ákvarða út frá því hversu háður nikótíni einstaklingurinn er. Mælt er með 4 mg lyfjatyggigúmmíi fyrir
einstaklinga með mikla nikótínþörf og fyrir þá sem ekki hefur tekist að hætta með notkun 2 mg lyfjatyggigúmmís. Ef þú
reykir fleiri en 30 sígarettur/sólarhring má miða við notkun 4 mg, 20-30 sígarettur/sólarhring er miðað við 2 eða 4 mg eftir
þörf en ef reykt er minna en 20 sígarettur á sólarhring er æskilegt að nota 2 mg. Ef þú færð aukaverkanir við notkun stærri
skammtsins (4 mg lyfjatyggigúmmí), skaltu íhuga minni skammt í staðinn. Tyggja skal eitt stk við reykingaþörf þar til finnst
sterkt bragð. Þá skal láta það hvíla milli kinnar og tannholds. Þegar sterka bragðið minnkar skal tyggja aftur. Þetta skal
endurtaka í 30 mín. Venjuleg notkun er 8-12 stk, þó ekki fleiri en 15 stk af 4 mg og 25 stk af 2 mg lyfjatyggigúmmíi á
sólarhring. Meðferðarlengd er einstaklingsbundin en skal í flestum tilfellum standa í a.m.k. 3 mánuði, skal þá draga smám
saman úr notkun lyfjatyggigúmmísins. Meðferð skal hætt þegar neyslan er komin niður í 1-2 lyfjatyggigúmmí á sólarhring.
Venjulega er ekki mælt með notkun lyfsins lengur en í eitt ár. Sumir, sem eru hættir að reykja, gætu þó þurft lengri meðferð
til þess að forðast að byrja aftur að reykja. Geyma skal afgangs lyfjatyggigúmmí þar sem reykingaþörf getur skyndilega
komið upp aftur. Ráðgjöf getur aukið líkurnar á því að reykingafólk hætti að reykja. Nota má lyfið til að lengja reyklaus
tímabil og draga þannig úr reykingum. Ef ekki hefur dregið úr fjölda sígaretta á sólarhring eftir 6 vikur skal leita faglegrar
ráðgjafar. Reykingum skal hætt um leið og einstaklingurinn er reiðubúin til þess, þó ekki síðar en eftir 6 mánaða meðferð.
Leita skal faglegrar ráðgjafar ef ekki hefur tekist að hætta reykingum eftir 9 mánaða meðferð. Frábendingar: Ofnæmi fyrir
nikótíni eða einhverju hjálparefnanna, reykleysi. Ráðfærðu þig við lækni eða lyfjafræðing því ekki er víst að þú megir nota
lyfið ef þú: ert á meðgöngu eða með barn á brjósti, hefur nýlega fengið hjartabilun eða hjartastopp, ert með hjarta- eða
æðasjúkdóm, of háan blóðþrýsting, sykursýki, ofvirkan skjaldkirtil/nýrnahettur, magasár eða verulega skerta nýrna- og/eða
lifrarstarfsemi eða ef þú ert yngri en 18 ára. Einstaklingum með gervitennur og þeim sem eiga í erfiðleikum með að tyggja
tyggigúmmí er ráðlagt að nota önnur lyfjaform nikótínlyfja. Sjúklingar með arfgengt frúktósaóþol skulu ekki nota lyfið.
Athuga ber að lyfið inniheldur natríum og bútýlhýdroxýtólúen (E321). Lesið allan fylgiseðilinn vandlega áður en byrjað
er að nota lyfið. Sjá notkunarleiðbeiningar í fylgiseðli. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá. Jafnvel lítið magn
af nikótíni er hættulegt börnum og getur valdið alvarlegum einkennum eða dauða. Markaðsleyfishafi: Novartis Consumer
Health S.A. Umboð á Íslandi: Artasan ehf., Suðurhrauni 12a, 210 Garðabæ
Loksins
á Íslandi!
Nicotinell með
Spearmint bragði
- auðveldar þér að
hætta reykingum FÓTBOLTI Bjarni Þór Viðarsson
fékk aðeins að spila í 51 mínútu í
samtals fjórum leikjum á öllu síð-
asta ári með liði sínu, Silkeborg
í Danmörku. Þrátt fyrir að hann
eigi enn tvö og hálft ár eftir af
samningi sínum við félagið virð-
ist ólíklegt, eins og sakir standa,
að staða hans innan liðsins muni
breytast mikið á næstunni.
Í sumar verða tíu ár liðin frá því
að Bjarni Þór samdi við enska stór-
liðið Everton. Hann var sextán ára
gamall og var í bítlaborginni þar
til hann samdi við hollenska liðið
Twente árið 2008. Þá sleit hann
krossband í hné og náði af þeim
sökum aldrei að vinna sér sæti í
liðinu.
Því næst hann hélt hann til
Belgíu, fyrst til Roeselare þar
sem Bjarni fékk loks sín fyrstu
almennilegu kynni af því að spila
reglulegan deildarbolta. Eftir eitt
ár þar samdi hann sumarið 2010
við Mechelen en spilaði lítið vegna
meiðsla.
Árið 2012 gekk hann svo í raðir
danska úrvalsdeildarfélagsins
Silkeborg, þar sem hann var byrj-
unarliðsmaður fyrst um sinn. En
um mitt tímabilið missti hann sæti
sitt í liðinu og þó svo að Silkeborg
hafi fallið í B-deildina í vor hefur
staða hans ekkert batnað.
Á þessum tíu árum hefur Bjarni,
sem verður 26 ára í vor, aðeins
spilað 61 deildarleik með þeim
sex félögum sem hann hefur leik-
ið með á ferlinum. Til samanburð-
ar má nefna að Bjarni á að baki 58
leiki með landsliðum Íslands, þar
af einn A-landsleik.
„Það er hægt að ræða um hvað
ég hef verið óheppinn með meiðsli
og þjálfara en það er ekki til
neins,“ segir Bjarni. „Ég á þó að
minnsta kosti nóg inni fyrir næstu
ár á ferlinum,“ bætir hann við í
léttum dúr.
Ég bjóst við meiru
Hann segist vitanlega orðinn
þreyttur á ástandinu og hversu
lítið hann hafi spilað á ferlinum.
„Þetta hefur ekki verið auðvelt.
Ég byrjaði ferilinn í Englandi og
fór svo til Hollands. Ég bjóst því
við meiru,“ viðurkennir hann. „En
ég hef þó enn gaman af fótbolta og
tel það lykilatriði fyrir mig. Svo ég
held ótrauður áfram og hef ekki
gefist upp.“
Hann segir það einnig skipta
máli að þetta sé atvinna hans og
hann vilji standa sig vel í henni.
„Það er hins vegar ekkert gaman
að mæta í vinnuna þegar ég veit að
ég mun ekki fá að spila næsta leik
– sama hvað ég geri.“
Get ekki farið hvert sem er
Í desember síðastliðnum sagðist
Bjarni í samtali við danska fjöl-
miðla vilja losna frá Silkeborg. En
janúar leið án þess að nokkuð gerð-
ist í hans málum.
„Það voru einhverjar þreifing-
ar en ekkert af því gekk upp. Ég
verð því eitthvað áfram hér,“ segir
Bjarni. Til greina kom að fara til
liðs í rússnesku B-deildinni sem og
til Noregs en Bjarni hafnaði því.
„Þó svo að ég sé ekki ánægð-
ur með mína stöðu hjá Silkeborg
get ég ekki stokkið á hvað sem
er. Hlutirnir verða að passa fyrir
mig og mína fjölskyldu,“ útskýrir
Bjarni.
Hann segir einnig að til greina
hafi komið að komast á lánssamn-
ing en til þess þarf viðkomandi
félag að komast að samkomulagi
við Silkeborg um fyrirkomulag
launagreiðslna Bjarna. Það hefur
ekki gengið eftir.
Útiloka ekki neitt
Bjarni er af mikilli FH-fjölskyldu
en faðir hans, Viðar Halldórsson,
er formaður aðalstjórnar félags-
ins. Það hefur þó ekki verið rætt
af neinni alvöru að Bjarni verði
mögulega lánaður til FH í sumar.
„Það yrði aldrei fyrr en í byrj-
un sumarsins en það er ekki gott
að segja. Til þess þyrfti margt að
ganga upp, ekki síst frá fjárhags-
legu hliðinni. En ég mun ekki úti-
loka neitt,“ segir Bjarni. „Ég vona
enn að mín mál muni leysast á
næstu vikum og mánuðum.“
eirikur@frettabladid.is
Hef ekki gefi st upp
Bjarni Þór Viðarsson er enn í kuldanum hjá danska B-deildarliðinu Silkeborg og
ekki útlit fyrir að staða hans batni á næstunni. „Þetta hefur ekki verið auðvelt,“
viðurkennir Bjarni sem bjóst við stærri hlutum af atvinnumannaferli sínum.
FASTAMAÐUR Í YNGRI LANDSLIÐUM Bjarni Þór er hér í leik með U-21 landsliðinu
en hann er einn leikjahæsti leikmaður yngri landsliða Íslands. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
FÓTBOLTI Sextán liða úrslit Meist-
aradeildar Evrópu halda áfram í
kvöld. Þá eru bæði Chelsea og Real
Madrid í eldlínunni. Chelsea sækir
Galatasaray heim á meðan Schalke
tekur á móti Real Madrid.
Blaðamannafundur Chelsea í
gær snerist um allt annað en leik-
inn. Í gær var nefnilega birt upp-
taka af einkasamtali Mourinhos
sem hann hafði ekki hugmynd um
að verið væri að taka upp.
Þar segist Mourinho ekki vera
með neinn framherja í sínu liði.
Hann gefur einnig í skyn að Samu-
el Eto‘o gæti verið 35 ára en ekki
32 ára.
Portúgalinn reyndi ekki að verja
ummæli sín á blaðamannafund-
inum en hann var brjálaður yfir
því að fjölmiðlamenn skyldu birta
samtalið.
„Þið ættuð að skammast ykkar.
Þetta er vinnan ykkar. Frá siðferð-
islegu sjónarmiði getið þið ekki
verið ánægðir með ykkur. Þetta
er algjörlega til skammar,“ sagði
Mourinho reiður.
„Ég er ekki að verja það sem ég
sagði en ég er að ráðast á grunn-
gildin sem þið ættuð að hafa í
heiðri. Ummælin um Eto‘o voru
augljóslega ekki góð og ég myndi
aldrei segja svona í viðtali. Ég ver
mína leikmenn. Eto‘o hefur unnið
Meistaradeildina fjórum sinnum
og ég er að vinna með honum í
annað sinn. Það myndi ég ekki
gera ef ég væri ekki ánægður með
hann.“ - hbg
Þið ættuð að skammast ykkar
Jose Mourinho, stjóri Chelsea, var æfur út í blaðamenn á fundi Chelsea í gær.
SVEKKTUR Mourinho kann ekki við að
vera gripinn í bólinu. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
GENGUR EKKERT UPP Grikkirnir fagna á meðan vonbrigðin leyna sér ekki á andliti
Waynes Rooney. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
SPORT 26. febrúar 2014 MIÐVIKUDAGUR