Fréttablaðið - 26.02.2014, Page 19
Opin keppni
Oddi, Félag íslenskra teiknara (FÍT) og Listaháskóli Íslands (LHÍ) standa að
opinni hönnunarsamkeppni fyrir matvælaumbúðir úr kartoni, bylgjupappír og/
eða mjúku plasti. Keppnin er framar öllu öðru hugmyndasamkeppni. Hún er
opin öllum, án endurgjalds.
Hvatning: Allir með!
Starfsfólk hjá stórum sem smáum hönnunarfyrirtækjum eða –deildum og
auglýsingastofum er sérstaklega hvatt til að senda inn tillögur, en þó jafnframt
sjálfstætt starfandi hönnuðir og nemendur í faginu.
Matvælaumbúðir
Viðfangsefnið er matvælaumbúðir, hvort heldur fyrir óunnið hráefni eða
fullunna vöru í föstu eða fljótandi formi. Matvara, sælgæti, drykkir – hvaðeina
kemur til greina. Athugið að umbúðirnar mega ekki hafa verið framleiddar áður,
en þær má hins vegar hanna utan um eldri vöru sem nú þegar er á markaði.
Lögð verður áhersla á framleiðsluhæfi og notagildi umbúða, einnig efnisnotkun
og umhverfisvænar lausnir. Öllum tillögum skal fylgja sýnishorn.
Nánari upplýsingar
Beiðni um keppnisgögn skal senda á keppni@oddi.is með upplýsingum um
nöfn, netföng og símanúmer þátttakenda. Í því netfangi eru jafnframt veittar
nánari upplýsingar. Á vefsvæði Odda er enn fremur að finna ítarleg gögn um
keppnina (www.oddi.is).
Hráefni í sýnishorn
Oddi leggur öllum keppendum til pakka með úrvali hráefnis úr kartoni,
bylgjupappír og mjúku plasti. Tillögur skulu miðast við það hráefni að hluta
til eða í heild. Oddi veitir öllum keppendum ákveðna aðstoð við uppbyggingu
sýnishorna.
Lokaskil 17. mars
Lokaskil á tillögum eru mánudaginn 17. mars. Úrslit í keppninni munu
liggja fyrir í lok marsmánaðar og verða tilkynnt í tengslum við sýningu FÍT í
Þjóðmenningarhúsinu á Hönnunarmars, 27.-30. mars 2014.
Dómnefndin
• Elísabet Ýr Sigurðardóttir, umbúðahönnuður hjá Odda
• Hafsteinn Júlíusson, vöruhönnuður hjá HAF
• Halla Helgadóttir, framkvæmdastjóri Hönnunarmiðstöðvar
• Högni Valur Högnason, grafískur hönnuður hjá Íslensku
og formaður Félags íslenskra teiknara (FÍT)
• Lóa Auðunsdóttir, aðjúnkt í vöruhönnun við Listaháskóla Íslands
• Sigurður Oddsson, grafískur hönnuður hjá J&L
• Sindri Páll Sigurðsson, vöruhönnuður hjá Össuri
Ágætis verðlaun
• 100.000 kr. í peningum og 200.000 kr. prentinneign hjá Odda
• 75.000 kr. í peningum og 100.000 kr. prentinneign hjá Odda
• 50.000 kr. í peningum og 50.000 kr. prentinneign hjá Odda
Að auki
Aukaverðlaun, 100.000 kr. prentinneign hjá Odda, verða veitt þeirri tillögu sem
sýnir fram á óvenjulega framsækna og ferska nálgun á notkun umbúða.
Umbúðahönnun 2014
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
O
D
D
6
79
47
0
2/
14