Fréttablaðið - 26.02.2014, Síða 20
| 6 26. febrúar 2014 | miðvikudagur
„League of Legends, eða LoL
eins og hann er oft kallaður, er
langstærsti netleikurinn sem
spilaður er í heiminum í dag,
það er að segja PC-leikur,“ segir
Aðalsteinn Óttarsson í samtali
við Markaðinn.
Aðalsteinn er „Senior Deve-
lopement Director“ eða þróun-
arstjóri hjá leikjafyrirtækinu
Riot Games sem gefur út leik-
inn. Um 27 milljónir spilara
spila leikinn á degi hverjum og
67 milljónir á mánuði. Hjá fyrir-
tækinu starfa yfir 1.400 manns
á heimsvísu og yfir 800 eru
starfandi í höfuðstöðvum þess
í Santa Monica í Los Angeles í
Bandaríkjunum.
BYRJAÐI HJÁ OZ
Aðalsteinn starfaði áður sem
forritari og síðar við verkefna-
og framleiðslustjórnun hjá ís-
lenska leikjafyrirtækinu CCP
sem allir þekkja. „Ég var það
heppinn að vera ráðinn inn í fyr-
irtækið OZ seint á tíunda ára-
tugnum sem forritari. Þar hitti
ég mikið af frábæru fólki sem
síðar fór og stofnaði CCP og ég
fór með. Ég var þar að forrita,
en stuttu eftir að góður vinur
minn slóst í hópinn, benti hann
mér á það að ég væri ekkert sér-
lega góður í því og fór að huga
að verkefnastjórnun og innleið-
ingu á aðferðafræðum,“ segir
Aðalsteinn.
Hann kynntist Riot games
skömmu eftir að fyrirtækið gaf
út LoL og var í sambandi við
stjórnendur þess á ráðstefnum
og öðrum viðburðum. Hann
segir fyrirtækið keimlíkt CCP
að því leytinu til, að leikurinn
er gefinn út beint til spilaranna
og notuð er svipuð aðferðafræði
við að skila honum út til þeirra.
STRÍÐ MILLI FYLKINGA
Sögusvið League of Legends er
heimurinn Runeterra þar sem
hinar ýmsu fylkingar háðu hat-
römm stríð sín á milli. Eftir því
sem eyðilegging og ókyrrð vegna
þessara stríða jókst í Runeterra
varð ljóst að nýja lausn þurfti
til þess að útkljá valdabarátt-
una. Galdramenn einnar fylk-
ingarinnar bjuggu því til Rétt-
lætisvöllinn, þar sem stríð eru
háð án þess að stofna almennum
borgurum í hættu. Helstu stríðs-
menn hverrar fylkingar byrjuðu
að keppa um réttinn til þess að
berjast fyrir þjóð sína og hljóta
þann heiður að komast í hóp virt-
ustu stríðsmanna Runeterra.
League of Legends er net-
tengdur fjölspilunarleikur með
10 spilurum í hverjum leik, fimm
í hvoru liði. Hver spilari stjórnar
einni hetju sem hann velur fyrir
leikinn úr hópi 117 hetja. Leikur-
inn byggir á svipuðum lögmálum
og aðrir tölvuleikir, það er, spil-
arinn safnar fjármunum (gulli)
og reynslustigum á meðan á
leiknum stendur. Reynslustigin
fara í að þróa krafta hetjunnar á
meðan gullið fer í að kaupa hluti
sem styrkja hinar ýmsu hliðar
hetjunnar, eins og að auka skaða
hetjunnar eða byggja upp meira
þol gagnvart skaða. Hver leik-
ur endist í um 35 til 45 mínútur
og er markmiðið að eyðileggja
turna og bækistöð óvinaliðsins
og leikurinn vinnst þegar aðal-
bygging óvinarins er eyðilögð.
LEIKURINN EINFALDLEGA GÓÐUR
Hlutverk Aðalsteins í vinnunni
er að leiða teymi sem vinnur
að lóðsun og stjórnun á þróun-
arteymum tölvuleiksins og er
ábyrgur fyrir vinnukerfinu,
sem allir í þessu umhverfi vinna
eftir, og einnig stöðugum endur-
bótum á því.
„Þetta eru um 400 manns
sem vinna í teymum og skila
frá sér tölvuleiknum á tveggja
til þriggja vikna fresti til spil-
ara úti um allan heim. Ég sam-
keyri það sem þessi teymi eru að
gera,“ segir Aðalsteinn, sem seg-
ist einblína á að ganga úr skugga
um að teymin nái eins góðum
árangri og þau mögulega geta.
Hann segir ástæðu velgengn-
innar aðallega vera þá að leik-
urinn sé einfaldlega rosalega
góður. „Svo hefur hann mikið
endurspilunargildi. Það er mikil
dýpt og breidd í leiknum og þó
það sé svolítið flókið að byrja að
spila þá lærir maður fljótt inn á
hann,“ segir Aðalsteinn.
ATVINNUMENN Í LOL
„Leikurinn er spilaður bæði af
nýgræðingum eða áhugamönn-
um úti um allan heim. En það er
líka keppt í þessu sem íþrótta-
grein á heimsvísu. Það er bara
hefðbundið atvinnumannaum-
hverfi.
Aðalsteinn segir muninn á
þeim sem spila leikinn sér til
dundurs og öðrum sem spila á
hæstu stigum og keppa til að
mynda á heimsmeistaramótum
vera gríðarlegan.
„Þetta er atvinnumannaíþrótt,
bæði eru almennt peningaverð-
laun í boði og síðan eru liðin
styrkt af fyrirtækjum um allan
heim,“ segir Aðalsteinn. Sem
dæmi er lið frá Danmörku, Cop-
enhagen Wolves, styrkt af Adi-
das. Þá segir Aðalsteinn þekkja
dæmi um lið sem haldi til í villu
í Beverly Hills þar sem liðsmenn
búa allir saman, æfa alla daga
og gera ekkert annað. „Þá erum
við með vikulegar útsendingar
frá keppnum úti um allan heim.
Það er meira áhorf á þessar
vikulegu útsendingar okkar af
keppnum LoL heldur en útsend-
ingar af hafnabolta, sem er þjóð-
aríþrótt Bandaríkjanna,“ segir
Aðalsteinn.
Leikurinn er ókeypis og hægt
er að spila endalaust án þess að
greiða nokkuð fyrir það. Aðal-
steinn segir þó að tekjumódel-
ið sé traust. „Þetta virkar þann-
ig að við bjóðum upp á yfir 100
hetjur sem hafa hver og ein
ákveðna hæfileika. Í hverri viku
er ókeypis að spila tíu af þess-
um rúmlega 100 hetjum en það
er breytilegt hverjar þær eru.
Fólki finnst oft gaman að spila
eina ákveðna hetju og þá kaup-
ir það hana. Síðan gerir fólk út-
litsbreytingar á sínum hetjum,
til að persónugera þær. Það er
oft mjög flott og fallegt og við
erum með sérstaka hönnuði sem
eru bara í því að gera þessar út-
litsbreytingar,“ segir Aðalsteinn.
MIÐJA TÖLVULEIKJAIÐNAÐARINS
Aðspurður um muninn á því að
vinna í leikjabransanum úti og
heima segir Aðalsteinn léttur
að mesti munurinn felist í lofts-
laginu. „En við leggjum rosa-
lega mikið upp úr því að ráða til
okkar toppfólk og það er tölu-
vert auðveldara í borg eins og
Los Angeles, sem er mikil miðja
tölvuleikja- og skemmtanaiðnað-
arins, að sannfæra fólk um að
flytjast hingað heldur en á eyju
í norðanverðu Atlantshafi.“
Atvinnumenn í internettölvuleik
Aðalsteinn Óttarsson er þróunarstjóri hjá Riot Games sem gefur út nettengda fjölspilunar-tölvuleikinn League of
Legends. Alls spila 67 milljónir leikinn á mánuði og til eru þeir sem hafa það að atvinnu að keppa í leiknum.
RIOT GAMES Aðalsteinn segir fjölda hafa það að atvinnu að keppa í LoL.
FRÉTTABLAÐIÐ/COLIN YOUNG-WOLFF RIOT GAMES
VIÐTAL
Fanney Birna Jónsdóttir | fanney@frettabladid.is
Leikurinn er spil-
aður bæði af
nýgræðingum eða áhuga-
mönnum úti um allan
heim. En það er líka keppt
í þessu sem íþróttagrein á
heimsvísu.
STÓRMÓT Síðasta heimsmeistaramót í LoL var haldið í Staples Center í Los Angeles, á heimavelli körfuboltaliðsins LA Lakers. Þar bar suður-kóreskt lið sigur úr býtum. FRÉTTABLAÐIÐ/JESTER