Fréttablaðið - 26.02.2014, Síða 30
| 8 26. febrúar 2014 | miðvikudagur
„Síðasta vika var spennandi og það
var mikil ánægja með uppgjörið.
Markaðurinn er greinilega ánægð-
ur með vikuna því gengi bréfanna
þýtur upp,“ segir Guðbjörg Edda
Eggertsdóttir, forstjóri Actavis á
Íslandi.
Actavis plc., móðurfélag Actav-
is á Íslandi, tilkynnti í síðustu viku
um besta ársuppgjör í sögu félags-
ins, en tekjur þess árið 2013 jukust
um 47 prósent á milli ára. Tveimur
dögum áður var tilkynnt um kaup
móðurfélagsins á bandaríska lyfja-
fyrirtækinu Forest Laboratories
fyrir 25 milljarða dala, sem svarar
til rúmlega 2.830 milljarða króna.
Edda tók við starfi forstjóra Act-
avis á Íslandi haustið 2010. Saga
fyrirtækisins nær aftur til árs-
ins 1956 þegar heildsölufyrirtæk-
ið Pharmaco var stofnað, en Guð-
björg hefur starfað hjá fyrirtæk-
inu og forverum þess í 34 ár. Hún
var fyrst ráðin í starf lyfjakynnis
en var síðar gerð að markaðsstjóra
Deltu, dótturfélags Pharmaco.
„Ég hef verið í stjórnunarstöð-
um síðan og er búin að gegna um
tíu mismunandi stöðum innan fyr-
irtækisins. Þó ég hafi ekki beinlín-
is skipt um vinnu þá er svo sem
ekkert sem ég er að gera í dag
líkt því sem ég gerði fyrir þrjá-
tíu árum síðan,“ segir Guðbjörg.
Þegar lyfjaverksmiðja Delta
var opnuð í Hafnarfirði árið 1983
störfuðu þar um tuttugu manns.
Í dag er Guðbjörg yfirmaður á
vinnustað með 720 starfsmönnum.
„Við erum með árshátíð á laugar-
daginn í Íþróttahúsi Breiðabliks í
Kópavogi. Það er hvergi pláss fyrir
árshátíðina í hefðbundnum veislu-
sölum því þetta er þúsund manna
samkoma.“
Edda er gift Eyjólfi Haraldssyni
lækni og þau eiga tvo syni, Eggert
og Harald Svein.
„Við hjónin förum alltaf í nokkra
veiðitúra á sumrin og stundum
fara synir okkar tveir með. Einn-
Hefur gegnt tíu stöðum hjá Actavis
Guðbjörg Edda Eggertsdóttir, forstjóri Actavis á Íslandi frá árinu 2010, hefur starfað hjá fyrirtækinu og forverum
þess í 34 ár. Hún er veiðimaður og golfari og tók í nóvember þátt í að stofna Wagner-vina félag á Kúbu.
SVIPMYND
Haraldur Guðmundsson | haraldur@frettabladid.is
„Edda hefur verið í stjórn Auðar Capital frá 2007 og
hún er frábær stjórnarmaður og alltaf vel undirbúin.
Hún er ótrúlega fljót að greina á milli aðalatriða og
aukaatriða í þeim málum sem koma upp og kemur
með sína miklu reynslu að borðinu, því hún hefur
gengið í gegnum miklar breytingar í sínu fyrirtæki.
Okkur hefur fundist við gæfusöm að fá að njóta hand-
leiðslu hennar. Edda er mjög mikið á ferðalagi og ég
hef stundum sent henni tölvupóst seint um kvöld og
fengið sjálfvirka tölvupóst svarið sem segir að hún sé á ferðalagi í Japan
eða annars staðar langt í burtu með „lítinn aðgang að tölvupósti“, síðan
fæ ég smástund síðar svar við erindinu.“
Tanya Zharov, lögfræðingur Virðingar.
„Ég er búinn að vinna lengi með Eddu, en hún var
minn næsti yfirmaður um töluverðan tíma. Það sem
kannski einkennir Eddu er gríðarleg yfirsýn og hún
býr að mikilli reynslu á sínu sviði og alveg ofboðslegu
jafnaðargeði. Svo má segja að hún hafi alltaf verið
mjög vinnusöm og hún hefur komið víða við. Edda átti
gríðarlega stóran þátt í uppbyggingu Actavis á sínum
tíma og er í þessum hópi sem var mjög framsýnn þegar
verið var að byggja fyrirtækið upp. Ég hef líka notið
þeirrar ánægju að veiða með Eddu og þar er hún í essinu sínu, hún nýtur
sín vel í því umhverfi við árbakkann.“
Valur Ragnarsson, forstjóri Medis.
Vinnusöm og alltaf vel undirbúin
REYNSLUMIKIL Edda er yfirmaður á vinnustað með 720 starfsmönnum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
ig förum við oft í golf, enda búum
við nánast á golfvelli,“ segir Edda
þegar blaðamaður spyr um áhuga-
mál.
Þau Edda og Eyjólfur hafa einn-
ig mikinn áhuga á tónlist og þá sér-
staklega óperum.
„Við höfum ferðast víða til að
sækja slíka viðburði og fórum
síðast í nóvember til Havana og
tókum þátt í að stofna Wagner-
vinafélag á Kúbu. Kúbumenn
eiga myndarlegt þjóðleikhús og
þar sáum við skemmtilega óperu-
sýningu. Húsið er auðvitað ekkert
á við Metro politan í New York en
þetta var mjög gaman,“ segir Guð-
björg og hlær.
„Hægt að gera miklu betur með íslenska krónu heldur en
okkur hefur auðnast að gera hér á undanförnum árum og
áratugum. En það er að sama skapi líka ljóst að hún mun
alltaf bera kostnað, áhættuálag á aðrar myntir. Svarið sem
við þurfum að fá er hvort sá kostnaður er ásættanlegur á
móti þeim fórnum sem þyrfti að færa til þess að ganga inn
í Evrópusambandið til dæmis í málefnum sjávarútvegs.“
„ÞAÐ ER ALVEG SAMA HVAÐA
PENINGAMÁLSTEFNU VIÐ HÖFUM HÉR UPPI,
EF VINNUMARKAÐUR OG RÍKISFJÁRMÁLIN
VINNA EKKI MEÐ HENNI ÞÁ ER HÚN
DAUÐADÆMD.“
ÞORSTEINN VÍGLUNDSSON
Það er ekkert til sem
heitir sjálfstæður
seðlabanki – stundum
Fanney Birna Jónsdóttir
fanney@frettabladid.is
Viðtalið við Þorstein Víglunds-
son er hægt að sjá í þætt-
inum Klinkinu á www.visir.is.
Þorsteinn Víglundsson er gestur Klinksins á Vísir.is í þessari viku.
Þorsteinn er framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Samtök-
in hafa gagnrýnt ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks
fyrir að bíða ekki eftir skýrslu Alþjóðastofnunar Háskóla Íslands um
stöðu Evrópumála sem aðilar vinnumarkaðarins kölluðu eftir, áður en
ákvörðun var tekin um að slíta viðræðum við ESB.
Klinkið ræddi við Þorstein um stöðu viðræðnanna og fyrirhuguð slit
á þeim, peningamálastefnuna og horfurnar fram undan.
Þá ræddi Þorsteinn einnig ástandið í Seðlabanka Íslands og mikil-
vægi sjálfstæðis bankans, ásamt öðru.
„Það gleymist gjarnan í þessu
tali um mikilvægi sjálfstæðrar
myntar og sveigjanleika hennar
– að sveigjanleiki hennar hefur
yfirleitt verið nýttur til að takast
á við heimatilbúinn vanda.“
„Ljóst að Evrópusam-
bandsaðild og evruupptaka
var peningamálastefna fyrri
ríkisstjórnar, það er ekki
peningamálastefna þessarar
ríkisstjórnar, en það liggur
ekki ljóst fyrir hver hún er,
hvernig hún verði fram-
kvæmd með krónu, hver
kostnaður af sjálfstæðum
gjaldmiðli muni verða fram
á veginn og að það muni
gera okkur kleift að stíga
það skref sem er hvað mikil-
vægast fyrir okkur sem er að
aflétta höftum.“
„Sjálfstæður seðlabanki er mjög
mikilvægur þáttur. Það felur það
í sér að seðlabanki ekki aðeins
má, heldur þarf að gagnrýna ríkis-
stjórn ef hann telur stjórnina vera
á rangri leið, sem ekki samrýmist
meginmarkmiðum seðlabankans
um verðlagsstöðugleika.“
„Það er mjög óheppilegt
að hér sé forsætisráðherra
að atyrða seðlabanka og
ég tala nú ekki um í beinu
framhaldi að ákveða að það
sé ekki framlengd ráðning
á seðlabankastjóra. Menn
hljóta að horfa á þetta
tvennt í samhengi og velta
því fyrir sér, er þetta atlaga
gegn sjálfstæði seðlabank-
ans eða ekki. Það þarf þá
æði sterk rök ríkisstjórnar-
innar að svo er ekki.“