Fréttablaðið - 26.02.2014, Page 34

Fréttablaðið - 26.02.2014, Page 34
Netfang auglýsingadeildar auglys ing ar@markadurinn.is Veffang visir.is Netfang rit stjorn@markadurinn.is Sími 512 5000 Fax 512 5301 Hin Á dögunum birtist ítarleg greining í Kjarnanum undir yfirskriftinni: Karlar stýra nær öllu fé á Íslandi. Af 88 æðstu stjórnendum í fjármálafyrir- tækjum, lífeyrissjóðum og öðrum fjárfestingaröflum, eru sex konur. Þannig að konur eru tæp 7% af þeim sem stýra fjármagni hér á landi á móti 93% karla. Og hvað skýrir það og hvað er mögulega til ráða. Hvaða stefnur og sjónarmið þarf að hugleiða ef eðlilegra hlutfall kynja á að ná fram að ganga? Breytt fyrirtækjamenning McKinsey hefur til að mynda komist að þeirri niðurstöðu að fyrirtækja- menning (e. corporate culture) er helsti þröskuldur þess að konur komist til áhrifa og er komið inn á það í úttekt Kjarnans. Þar er vitnað í rannsóknarskýrslu sem fyrirtækið gerði í fyrra og ber heitið „Women Matter 2013: Gender diversity in top management: Moving corporate Culture, moving boundaries“. Þar er sýnt fram á að fyrirtæki með fleiri konur í stjórnunarstöðum skili marktækt betri árangri en fyrirtæki með engar konur í slíkum. Þrjú hagnýt skref Kjarninn dregur fram þau skref sem McKinsey setti fram á sínum tíma, skref sem eiga að skapa nýtt vistkerfi (e. ecosystem) innan atvinnulífsins. Talað er um í fyrsta lagi að framkvæmdastjórn fyrirtækja skuldbindi sig til að auka jafnræði kynja í stjórnunarstöðum og að það markmið skuli skilgreint sem forgangsatriði í stefnumörkun fyrir- tækja. Í öðru lagi, að sett verði upp ferli sem hjálpi konum í að þróast í leiðtoga innan fyrirtækja. Og í þriðja lagi að stefnumörkun fyrirtækja leiði það af sér að konur séu kerfisbundið alltaf hafðar með til jafns við karla í öllum ráðningar- og stöðuhækkun- arferlum. Fjárstyrkur eða tengslanet Svo gæti verið áhugavert fyrir áhugafólk um málefnið að kort- leggja þessar upplýsingar Kjarnans enn frekar og sjá hvort ráðið hafi verið í þessar stöður eftir fag- legum ráðningarleiðum – eða hvort tækifærið við að komast að borðinu hafi komið til vegna tengsla. Það er oft talað um að konur þurfi að fara fyrir fé ætli þær sér að komast til áhrifa. Því mætti einnig kortleggja hversu fjársterkir einstaklingar eru á bak við þau 93% karla sem sitja í áhrifastöðum í fjármálafyrirtækjum, lífeyrissjóðum og öðrum fjárfest- ingaröflum. Félagsleg- og menningarleg blindni Í úttektinni umræddu er einnig vitnað í Þórdísi Lóu Þórhallsdóttur, formann FKA, sem segir að það þurfi að taka bæði ráðningar- og framakerfi innan fyrirtækja til gagn- gerrar endurskoðunar. Það rímar við ofantalið. Nýtt vistkerfi HULDA BJARNADÓTTIR, FRAMKVÆMDASTJÓRI FKA hliðin Ábendingahnappinn má finna á www.barnaheill.is GRUNNNÁMSKYNNINGAR Stofa V101 13:00 Frumgreinanám 13:30 Íþróttafræði 14:00 Viðskiptafræði 14:30 Sálfræði 15:00 Hvað á ég að velja - ætti ég að taka áhugasviðspróf? Stofa M101 13:00 Tölvunarfræði og hugbúnaðarverkfræði 13:30 Iðnfræði 14:00 Tæknifræði 14:30 Verkfræði Stofa M103 14:30 Lögfræði MEISTARANÁMSKYNNINGAR Stofa Ú102 12:30 MBA-nám 13:00 13:30 Tölvunarfræðideild 14:00 14:30 15:00 15:30 Verkfræði 16:00 MPM-nám VELKOMIN Á HÁSKÓLADAGINN Í HR laugardaginn 1. mars kl.12-16. Á Háskóladeginum kynna allir háskólar landsins námsframboð sitt. Í HR geta gestir spjallað við nemendur og kennara um allt sem viðkemur grunnnámi, meistaranámi, doktorsnámi, frumgreinanámi og námi við Opna háskólann í HR. Auk þess kynna nemendur margvísleg verkefni og boðið er upp á skemmtidagskrá fyrir alla fjölskylduna. Jafnframt kynnir Háskólinn á Bifröst námsframboð sitt í húsakynnum HR. DAGSKRÁ: 13:00 Verðlaun afhent í Hugmyndasamkeppni HR, Vísinda- Villi spjallar við forvitna krakka og gerir með þeim tilraun og hljómsveitin Vök flytur tónlist. 14:00 Kór tónlistardeildar LHÍ syngur undir stjórn Sigurðar Árna Jónssonar, nemanda í tónsmíðum. 15:00 CALMUS AUTOMATA. Hugbúnaður sem semur og spilar tónlist í rauntíma með aðstoð gervigreindar. LEGO-námskeið fyrir 6-12 ára börn: Kl. 12:00, 13:30 og 15:00 í stofu V109. Skráning á staðnum. Forritunarnámskeið með SKEMA: Kl. 12:00 (7-10 ára) og 13:00 (11-16 ára) í stofu M107. Skráning á staðnum. NEMENDUR KYNNA VERKEFNI SÍN Í SÓLINNI: • Skemmtileg eðlisfræði: Van der Graaff-kúla, eldorgel, röntgen og segulkraftur • Þrívíddarlíkön og þrívíddarprentari • Forritunarkeppni framhaldsskólanna í HR kynnt - gestir fá að spreyta sig á lausn verkefna • Rannsóknir á tölvuleikjahönnun: Hvernig á að gera tölvuleiki einstaklingsmiðaða? • Verkefni í sýndarheimum • Loftbílar, róbotar og Tommy, sjálfvirkur dótabyssuturn, ásamt sjálfvirkum radarsjónbílum • Mælingar á vöðvaspennu • Lögfræðiþjónusta Lögréttu verður á staðnum /Háskóladagurinn • Háskólinn á Akureyri, Háskólinn á Hólum og Landbúnaðarháskóli Íslands verða með námskynningu á Háskólatorgi í Háskóla Íslands. • Háskóli Íslands kynnir námsframboð sitt í Aðalbyggingu, Háskólatorgi, Öskju og Háskólabíói. • Háskólinn í Reykjavík og Háskólinn á Bifröst kynna námsframboð háskólanna í húsakynnum Háskólans í Reykjavík í Nauthólsvík. • Listaháskóli Íslands verður með kynningu á námsbrautum sínum í Þverholti 11. KOMDU Á HÁSKÓLADAGINN 2014 1. MARS KL.12-16 #hdagurinn USD 113,39 GBP 189,27 DKK 20,89 EUR 155,88 NOK 18,83 SEK 17,46 CHF 127,8 JPY 1,11 Gengi gjaldmiðla

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.