Fréttablaðið - 26.02.2014, Blaðsíða 41
MIÐVIKUDAGUR 26. febrúar 2014 | LÍFIÐ | 21
„Þetta er í annað sinn sem minn-
ingartónleikar fara fram en minn-
ingarsjóðurinn er sex ára gamall,“
segir Hrefna Björk Sigurðardótt-
ir, móðir Svandísar Þulu, sem lést
árið 2006 í umferðarslysi. Minn-
ingartónleikarnir fara fram í
Norðlingaskóla í kvöld, á afmæl-
isdegi Svandísar Þulu, og hefjast
klukkan 20.00. Bubbi Morthens,
Eyþór Ingi og Atómskáldin, Ari
Eldjárn og poppkórinn Storm-
sveitin koma fram á tónleikunum.
Frítt er inn á tónleikana fyrir börn
fimm ára og yngri en miðaverðið
er þúsund krónur fyrir aðra og
rennur ágóðinn í minningarsjóð-
inn. Hann hefur styrkt ýmis mál-
efni.
„Minningarsjóðurinn hefur
styrkt til dæmis leikskólana Blá-
sali, Rauðhól og Æskukot en einnig
Norðlingaskóla ýmist til bóka- eða
tækjakaupa. Sjóðurinn hefur líka
styrkt ballettdansara til keppnis-
ferða erlendis,“ útskýrir Hrefna.
Svandís Þula var tengd stofnunun-
um því hún var í leikskólanum Blá-
sölum og var að fara flytjast yfir
á leikskólann Rauðhól og svo hefði
hún einnig gengið í Norðlinga-
skóla. Þá æfði hún ballett frá því
hún var þriggja ára gömul.
Í kvöld mun minningarsjóður-
inn færa Norðlingaskóla listaverk
að gjöf.
„Þetta er margföldunartafl-
an merkt á stigann í Norðlinga-
skóla.“ Þá hefur sjóðurinn einnig
styrkt samtökin Á allra vörum og
Sumarbúðir lamaðra og fatlaðra
í Reykjadal. „Eftir tónleikana í
fyrra styrktum við sorgarsamtök-
in Nýja dögun og Sumarbúðir lam-
aðra og fatlaðra. Tónleikar í fyrra
voru vel heppnaðir og mættu um
600 manns á þá,“ segir Hrefna.
- glp
Falleg stund
í Norðlingaskóla
Svandís Þula lést í umferðarslysi árið 2006 og hefði
orðið 13 ára í dag. Í kvöld eru haldnir minningartón-
leikar þar sem Bubbi og Eyþór Ingi koma fram.
VIÐ VERKIÐ Hér er Nóni Sær Ásgeirsson, bróðir Svandísar Þulu, við listaverkið sem
minningarsjóðurinn hefur gefið Norðlingaskóla. Nóni Sær lamaðist fyrir neðan mitti
í sama slysi og systir hans lést í árið 2006. MYND/HELGI RAFN JÓSTEINSSON
Mötley Crüe-trommarinn Tommy
Lee, 51 árs, tilkynnti það á Twitt-
er-síðu sinni á mánudaginn að
hann væri trúlofaður kærustu
sinni Sofiu Toufa, 30 ára.
Tommy og Sofia hafa verið
saman um árabil og sagði hann í
viðtali við tímaritið People árið
2010 að hann héldi að hún væri
hin eina, sanna ást.
Ef verður af brúðkaupinu verð-
ur þetta fjórða hjónaband Tomm-
ys. Fyrrverandi eiginkonur hans
eru Elaine Starchuk, Heather
Locklear og Pamela Anderson. - lkg
Fjórða hjóna-
bandið
ÁSTFANGINN Tommy elskar Sofiu sína.
Lín Design Laugavegi 176 og Glerártorgi www.lindesign.is Sími 533 2220
Börnin fá gefi
ns
Bangsarúmfö
t
!
!
"
!#
$
%&'
$
(
$
$)
(
* (& + ,
$
-
+
+'
')./' )
()
$
0 1'))
+('
1') ( +
+
$)
( +&
' '$.
!123
$
)( 4
! " #
$%&$
'
()#**
!
+, #
(&- ($#**
.
(/#**
(
('
0 (
$
0
$
56
' )
(
'7(
' )
(
+&
+
$)
( 77&'
„Við erum að fara til Kína í annað
sinn og spilum á sjö tónleikum í sjö
borgum,“ segir Barði Jóhannsson,
forsprakki hljómsveitarinnar Bang
Gang, sem heldur af stað í tónleika-
ferðalag til Kína og hefst það þann
7. mars í Peking.
Er sveitin vinsæl í Kína? „Ég
hef ekki hugmynd um það, það var
allavega eftirspurn eftir okkur
þarna og það var fullt á tvennum
tónleikum sem við lékum á
þarna árið 2009,“ segir Barði
glaðbeittur.
Barði tekur með sér
mikla reynslubolta til
Kína, þá Arnar Þór Gísla-
son, trommuleikara úr
Ensími og Pollapönki,
Hrafn Thoroddsen, hljóm-
borðs- og gítarleikara einnig úr
Ensími, Arnar Guðjónsson, gítar-
leikara og söngvara úr Leaves,
og Skúla Gestsson, bassa-
leikara úr Diktu.
„Við spilum ekki á
Íslandi fyrr en í nóvem-
ber geri ég ráð fyrir.
Mig langar að spila eitt-
hvað nýtt þegar við spilum
næst á Íslandi,“ segir Barði,
spurður út í Bang Gang-tón-
leikahald hér á landi. - glp
Bang Gang fer til Kína enn á ný
Hljómsveitin Bang Gang spilar á sjö tónleikum í sjö borgum í Kína í marsmánuði.
BARÐI
JÓHANNSSON