Fréttablaðið - 30.10.2018, Page 41
Þetta er í fyrsta sinn sem hljómsveitin ferðast til Asíu og verða haldnir tónleikar í öllum helstu borgum Japans, m.a. í Tókýó, Kyoto, Sapp oro
og Hamamatsu. Nær uppselt er á alla
tónleika hljómsveitarinnar í Japan.
Stjórnandi í ferðinni er Vladimir
Ashkenazy, aðalheiðursstjórnandi
Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Hann
segir æ meiri áhuga í Japan á Íslandi.
Ashkenazy hefur ótal sinnum komið
fram í Japan, sjálfur segist hann ekki
hafa tölu á því. „Klassísk tónlist er
ekki alls staðar í hávegum höfð en
hefur sterkan sess í Japan,“ segir hann
og hrósar japönskum áheyrendum.
Dásamlegur Þorkell
Á efnisskrá hljómsveitarinnar verða
píanókonsertar nr. 2 eftir Rakh-
manínov og Chopin, og sinfóníur
nr. 2 eftir Sibelius og Rakhmanínov
og Jökulljóð eftir Þorkel Sigurbjörns-
son. „Þar sem hljómsveitin kemur frá
Íslandi fannst mér mikilvægt að flytja
að minnsta kosti eitt verk eftir eitt
dásamlegasta tónskáld sem Íslend-
ingar hafa átt,“ segir Ashken azy.
Þegar blaðamaður spyr hvort hann
haldi að japanskir áheyrendur muni
hrífast af verki Þorkels segist hann
vona það og bætir við: „Ef ég væri
ekki hrifinn af þessu verki myndi ég
ekki stjórna flutningi á því. Ég stjórna
nær aldrei flutningi á verkum sem
mér líka ekki.“
Blaðamaður getur ekki stillt sig um
að spyrja hvaða verk honum líki ekki
og fær svarið: „Ég get ekki svarað því
núna, ég myndi þurfa að hugsa mig
um í tíu mínútur.“
Hann segist trúa því að góð tónlist
geti komist nálægt því að hafa lækn-
ingamátt. „Í hugum sumra er tónlist
Sannfærður um velgengni í Japan
„Ég stjórna nær aldrei flutningi á verkum sem mér líka ekki,“ segir Ashkenazy. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Sinfóníuhljómsveit
Íslands er á leið
í tónleikaferð til
Japans ásamt aðal-
heiðursstjórnanda
sínum, Vladimir
Ashkenazy.
GEISLADISKUR
Víkingur Ólafsson
Verk eftir J.S. Bach
Útgefandi: Deutsche Grammo-
phone
Þegar ég var að læra á píanó í Tónlistarskólanum í Reykja-vík þurfti ég að æfa Bach. Það
átti að vera svo hollt, en ég þoldi
hann ekki. Fjölröddunin í tónlist
hans virkaði eins og þurr stærð-
fræði, laglínurnar virtust geldar,
strúktúrinn andlaus. Það var ekki
fyrr en ég var orðinn rúmlega tví-
tugur að ég rakst á upptökur með
Sviat oslav Richter þar sem hann
spilaði prelúdíurnar og fúgurnar
eftir Bach. Túlkun hans var svo full
af sannfæringar krafti, tignarleika
og heiðríkju að það var eins og að
heyra einhvern andlegan meistara
tala. Ég sá allt í einu Bach í nýju
ljósi, og eftir það hef ég elskað hann.
Mér finnst sennilegt að geisla-
diskurinn með Víkingi Heiðari
Ólafssyni eigi eftir að hafa viðlíka
áhrif á unga hlustendur. Víkingur
leikur þar alls konar tónlist eftir
Bach og túlkun hans er himnesk.
Ólíkt Richter er þetta ekki heildar-
flutningur á einhverri einni tegund
verka, heldur allt mögulegt. Margt
af því eru umritanir á verkum fyrir
önnur hljóðfæri, m.a. gavotte úr
fiðlu partítu nr. 3 sem Rakhman-
ínov snaraði yfir á píanó. Önnur
grípandi umritun er úr smiðju
Busonis, sálmaforleikurinn Nun
komm der Heiden Heiland, þrungin
dásamlegri andakt. Hvert svo sem
viðfangsefnið er þá er leikur Víkings
tær og agaður, en um
leið gæddur ríkulegri
tilfinningu.
Bach skrifaði engar
leiðbeiningar til flytj-
enda í nótnahandritin,
sem hefur haft þær
afleiðingar að fram-
setning tónlistar hans
getur verið mjög ólík
frá einum flytjanda
til annars. Víkingur
nálgast hann af djúpri
tilfinningu, en leikur
hans er samt miklu
agaðri en þegar hann
flutti Bach á tónleikum
í Hörpu fyrir nokkrum
árum. Þá einkenndist
túlkunin af nokkurri
tilfinningasemi sem
fór tónskáldinu ekki sérlega vel.
Gaman er að heyra hve Víkingur
hefur vaxið sem listamaður síðan
þá.
Píanóplötur með tónlist Bachs
eru venjulega helgaðar verkum
sem hann samdi fyrir sembal, for-
föður píanósins. Þau eru vissulega
margbrotin, en Bach var samt mun
víðfeðmari. Kantöturnar hans, svo
ekki sé minnst á messurnar, með
öllum sínum aríum og kórum, eru
stórbrotnar. Þá eru ótalin orgel-
verkin, alvöruþrungin og andaktug.
Víkingi tekst að draga upp miklu
heillegri mynd af Bach en ella
með því að hafa umritanir þess-
ara tónsmíða á geisladiskinum.
Umritanirnar, sem voru í hönd-
unum á ólíkum meisturum, eru
skemmtilega fjölbreyttar. Allt frá
snerpu Rakhmanínovs yfir í draum-
kennda hugleiðingu Silotis, sem er
ein sú magnaðasta. Víkingur sjálfur
hefur líka umritað aríu og gert það
afburðavel, flæðið í henni er óheft,
raddsetningin lokkandi.
Þessi sterka heildarmynd af Bach
á geisladiskinum er aðdáunarverð.
Þarna er einhvern veginn allt sem
hægt er að hugsa sér. Trúarleg
lotning fyrir kosmískum víddum,
en einnig húmor og léttleiki. Á
köflum bregður svo fyrir áður-
nefndri stærðfræðilegri rökfestu;
Bach sem kennari er þá ekki langt
undan. Maður hefur heyrt að hann
hafi verið strangur, jafnvel slegið
á puttana á nemendunum ef þeir
spiluðu illa. Ég get ekki ímyndað
mér hann gera það í tilfelli Víkings.
Jónas Sen
NIÐURSTAÐA: Víkingur spilar meistara-
lega og dregur fram óvanalega heil-
steypta mynd af Bach.
Trúarleg lotning og húmor og léttleiki
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrun@frettabladid.is
bara skemmtun og fyrir öðrum mikil-
væg tilfinningaleg upplifun. Þetta fer
eftir fólki en ég held að í sumum til-
vikum komist hún nálægt því að hafa
lækningamátt.“
Snilldar píanóleikur
Einleikari á tónleikunum í Japan er
japanski píanistinn Nobuyuki Tsujii
(Nobu) sem er einn vinsælasti ein-
leikari þar í landi. Hann er blindur.
„Það eru nokkur dæmi um að blint
fólk nái að þróa hæfileika sína þann-
ig að það nær snilldartökum á hljóð-
færaleik. Nobu er dæmi um það. Við
höfum unnið saman áður og hann er
kær vinur, ákaflega hlýr og greindur
maður. Samvinna er aldrei auðveld
en það er mun auðveldara að vinna
með honum en mörgum öðrum sem
ég gæti nefnt,“ segir Ashkenazy.
Frábær hljómsveit
Hann segir Sinfóníuhljómsveit
Íslands vera frábæra. „Þegar ég kom
fyrst til Íslands fyrir fjörutíu árum
var þetta lítil hljómsveit með nánast
enga reynslu af erlendu samstarfi. Ég
naut þess samt mjög að starfa með
hljómsveitinni og var snortinn vegna
þess hversu vel allt þetta dásamlega
fólk á Íslandi tók á móti mér.
Mér fannst ég tilheyra Íslandi,
konan mín er íslensk og við komum
hingað til lands með reglulegu milli-
bili. Svo kom að því að sinfónían var
efld og þar lagði ríkisstjórnin sitt af
mörkum. Nú er Sinfóníuhljómsveitin
í háum gæðaflokki, eins og unnendur
klassískrar tónlistar um allan heim
vita.
Hljómsveitin er mjög vel undir-
búin fyrir þessa Japansferð og ég er
alveg viss um að henni mun takast
vel upp. Japanar vita ekki við hverju
er að búast af sinfóníuhljómsveit frá
Íslandi en ég er sannfærður um að
þeir eiga eftir að verða stórhrifnir.“
-Að fá
óstöðvandi
hláturs-
kast
3 0 . O K T Ó B E R 2 0 1 8 Þ R I Ð J U D A G U R24 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
MENNING