Morgunblaðið - 02.09.2019, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. SEPTEMBER 2019
Reykjavík • Mörkin 3 | Akureyri • Undirhlíð 2
NÝR
BÆKLIN
GUR
Glæsile
gur nýr
Tölvute
k
bæklin
gur kom
in út
stútful
lur af g
ræjum
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
Bæjarstjórn Akraness og sveitar-
stjórn Hvalfjarðasveitar skora á rík-
isstjórnina að endurskoða stefnu
sína í málefnum orkukræfs iðnaðar
og setja Landsvirkjun eigenda-
stefnu án tafar.
Áskorunin var samþykkt á sam-
eiginlegum fundi sveitarstjórnanna í
síðustu viku, en þar kemur fram að
fundurinn hafi verið haldinn vegna
„þeirrar alvarlegu stöðu sem upp er
komin í atvinnumálum á Grundar-
tanga og leitt getur til verulegs sam-
dráttar í starfsemi orkukræfs iðn-
aðar og fækkunar starfa“.
Fram kemur í áskoruninni að
rekstrarumhverfi þessa iðnaðar á Ís-
landi hafi versnað til muna og það
samkeppnisforskot sem hér hafi ver-
ið í orkuverði sé nú algjörlega horfið.
Kjörnir fulltrúar á svæðinu kalli eftir
svörum um hver hafi tekið ákvörðun
um þessa stefnubreytingu og á
hvaða vettvangi hún hafi verið tekin.
Þörf fyrir fyrirsjáanleika
Sævar Freyr Þráinsson, bæjar-
stjóri á Akranesi, segir að sveitar-
stjórnirnar kalli eftir því að ákveðin
atriði verði sett í forgrunninn.
„Þetta snýst um sjálfbærni sveitar-
félaga á landsbyggðinni. Að þau geti
þrifist og að orkan sé til útdeilingar
á landsbyggðinni sömuleiðis, bæði til
nýsköpunar og þeirra viðskiptavina
sem eru þar fyrir,“ segir hann, en
einhugur er um málið á Akranesi og
í Hvalfjarðarsveit. „Þetta var í
fyrsta sinn sem haldinn er sameigin-
legur sveitarstjórnarfundur Hval-
fjarðarsveitar og Akraness. Það sýn-
ir hve mikill einhugur er orðinn um
þetta,“ segir Sævar Freyr, en kallað
er eftir fyrirsjáanleika í stefnu-
mótun að hans sögn.
„Verði ekki einhver fullvissa um
það hvernig er að starfa á Íslandi til
lengri tíma getum við horft upp á
miklu verri stöðu en það að tugir
starfa tapist. Við beinum orðum okk-
ar að ríkisstjórninni, hún setur orku-
stefnuna. Stjórnvöld þurfa hverju
sinni að skapa hér fyrirsjáanleika
um hvað verður svo þessi fyrirtæki
geti tekið ákvörðun um að vera hér í
20-30 ár, en ekki bara nokkur ár í
senn,“ segir hann.
Linda Björk Pálsdóttir, sveitar-
stjóri Hvalfjarðarsveitar, segir
markmiðið með áskoruninni að
brýna ríkisstjórnina til að setja
stefnu til framtíðar svo að uppbygg-
ing á svæðinu haldi áfram. „Það hef-
ur verið samdráttur hjá fyrirtækj-
unum og ef ástandið er svona er
spurning hvað verður. Það verður
allavega ekki uppbygging meðan
menn hafa ekki stefnu til fram-
tíðar,“ segir Linda Björk. „Við vilj-
um að allir viti hverju þeir geti
gengið að í framtíðinni. Það er ekki
nóg að horfa tvö til þrjú ár fram í
tímann og eiginlega ekki tíu heldur.
Það þarf að horfa til næstu 20-40
ára,“ segir hún.
Ríkisstjórnin endurskoði stefnu sína
Krefjast skýrrar stefnu í málefnum orkukræfs iðnaðar Hugsa þurfi áratugi fram í tímann svo vel sé
Sævar Freyr
Þráinsson
Linda Björk
Pálsdóttir
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Níunda þjóðarátak Á allra vörum
hófst í gær og nýtur forvarna- og
fræðsluátakið Eitt líf stuðnings
átaksins í ár. Starfsemi Eins lífs
byggir á því að fræða foreldra,
kennara, börn og ungmenni um þá
hættu sem fylgir neyslu vímuefna
og lyfseðilsskyldra lyfja og er það
stærsta forvarnaverkefni sem ráðist
hefur verið í hér á landi.
Elísabet Sveinsdóttir, einn
þriggja stofnenda Á allra vörum,
segir að óhefðbundin nálgun Eins
lífs á forvarnastarf hafi verið ein
ástæða þess að ákveðið var að
styðja verkefnið.
„Það sem gerði útslagið þegar við
vorum að funda um hvert málefnið
yrði var að þetta er raunverulega
eina alvöru forvarnastarfið sem ver-
ið er að keyra í landinu. Það er
keyrt af frekar veikum mætti en
mjög öflugum mætti samt í hvert
skipti. Við hugsuðum bara, til hvers
erum við alltaf að grípa of seint inn í
málin? Þurfum við ekki að fara af
stað fyrr? Þau hafa vakið mikla at-
hygli í skólum fyrir öðruvísi nálgun
á þessu máli og virðast ná í gegn.
Þannig að við heilluðumst af að-
ferðafræði þeirra líka,“ segir Elísa-
bet. Eitt líf er fyrsta forvarnaverk-
efnið sem Á allra vörum ákveður að
styðja, en átakið safnaði síðast yfir
100 milljónum fyrir Kvennathvarfið
árið 2017.
Ná líka til foreldranna
„Þetta mun algjörlega breyta öllu
fyrir okkur. Við höfum verið með
forvarnafræðslu í grunnskólum og
við höldum áfram í því. Þetta gerir
okkur kleift að helga okkur þessu
algjörlega núna,“ segir Bára
Tómasdóttir, stofnandi Eins lífs.
Hún segir að markmið átaksins sé
að fara í alla grunnskóla landsins.
Þá er einnig unnið að því að ná til
foreldra. „Við höfum náð unga fólk-
inu vel með okkur en okkur finnst
mikilvægt að ná til foreldranna. Við
erum líka með áherslubreytingar
hjá okkur og ætlum að vera með
meiri rafræna fræðslu fyrir foreldr-
ana. Það gengur oft illa að fá for-
eldra á fyrirlestra,“ segir Bára.
Eins og áður mun Á allra vorum
standa fyrir sölu á varasetti, glossi
og varalit saman í pakka. „Þannig
náum við að fjármagna hið góða
starf sem „Eitt líf“ sinnir til næstu
ára með því að efla fræðslu um mál-
efnið í öllum grunnskólum lands-
ins,“ er haft eftir Gróu Ásgeirs-
dóttur, einum af þremur stofn-
efndum Á allra vörum, í frétta-
tilkynningu.
Morgunblaðið/Eggert
Á allra vörum Átakið var kynnt við athöfn í Hallgrímskirkju síðdegis í gær. Menntamálaráðherra Íslands var meðal
gesta. Á myndinni má sjá Elísabetu Sveinsdóttur (t.v.), Gróu Sigurðardóttur (f.m.) og Guðnýju Pálsdóttur (t.h.).
Eitt líf nýtur stuðn-
ings Á allra vörum
„Stærsta forvarnaverk sem ráðist hefur verið í hér á landi“
Minningarsjóður Einars Darra
stendur fyrir þjóðarátakinu Ég
á bara eitt líf, en til þess var
stofnað eftir andlát Einars
Darra. Hann varð bráðkvaddur
á heimili sínu aðeins 18 ára
gamall en fljótlega eftir and-
látið kom í ljós að hann hafði
misnotað lyfseðilsskyld lyf síð-
ustu vikur lífs síns.
Á allra vörum var stofnað
árið 2008 af þeim Elísabetu
Sveinsdóttur, Gróu Ásgeirs-
dóttur og Guðnýju Pálsdóttur.
Hugmyndafræðin að baki Á
allra vörum er að koma þörfum
málefnum á framfæri á kraft-
mikinn og eftirtektarverðan
hátt. Þjóðkirkjan tekur þátt í
átakinu í ár. „Þau ætla að
hringja öllum kirkjuklukkum í
fyrramálið [í morgun] og vekja
þjóðina til umhugsunar,“ segir
Elísabet.
Vekja þjóðina
til umhugsunar
SAMSTARF KIRKJU, EINS
LÍFS OG Á ALLRA VÖRUM
Teitur Gissurarson
Alexander Gunnar Kristjánsson
„Bara að vinna kosningar,“ sagði
Helgi Hrafn Gunnarsson, þing-
maður og einn forystumanna Pírata,
í samtali við Morgunblaðið í gær-
kvöld, spurður hver væru næstu
markmið og skref flokksins. Tilefni
samtalsins var aðalfundur Pírata
sem haldinn var í gær og sagði Helgi
aðspurður að gríðarlega góð stemn-
ing hefði einkennt fundinn. „Það var
ógeðslega gaman á þessum fundi.
Það var rosalega peppaður andi.“
Spurður frekar um fundinn sagði
Helgi að fólk hefði setið við borð og
rætt ýmis mál. Til dæmis hefðu til
umræðu verið hugmyndir um breytt
skipulag flokksins og hvernig hægt
væri að styrkja landsbyggðarfélög.
Sagði hann aðspurður að slík vinna
hefði verið til umræðu um nokkurt
skeið. Þá hefði ný vefsíða flokksins
verið kynnt og sömuleiðis starf
skipulagshóps.
Á fundinum voru einnig veitt háð-
ungarverðlaun, Tréfóturinn svokall-
aði, en að þessu sinni var það siða-
nefnd Alþingis sem hlaut verðlaunin.
Spurður um þetta hló Helgi, sagði
þetta nú bara vera til gamans gert og
útskýrði að Tréfóturinn væri veittur
þeim sem hefði aukið vinsældir Pí-
rata án þess að ætla sér það. Kom
fram á fésbókarsíðu Pírata í gær-
kvöld að siðanefndin hefði átt í
harðri samkeppni við Vigdísi Hauks-
dóttur, borgarfulltrúa Miðflokksins,
og Eyþór Arnalds, borgarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins.
Athygli vakti í vor er siðanefnd Al-
þingis komst að þeirri niðurstöðu að
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þing-
maður Pírata, hefði gerst brotleg við
siðareglur með ummælum um að
rökstuddur grunur væri um að Ás-
mundur Friðriksson, þingmaður
Sjálfstæðisflokks, hefði dregið sér
fé. Í samtali við mbl.is í gærkvöld
sagði Björn Leví Gunnarsson, þing-
maður Pírata, að hann hefði sjálfur
greitt forsætisnefnd sitt atkvæði og
sagði: „Það er enn rökstuddur grun-
ur um að Ásmundur hafi dregið sér
fé.“
Næsta skref að
vinna kosningar
Siðanefnd sæmd Tréfætinum
Morgunblaðið/Eggert
Þingmaðurinn Helgi Hrafn tók til
máls á aðalfundi Pírata í gær.