Morgunblaðið - 02.09.2019, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 02.09.2019, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. SEPTEMBER 2019 Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is Endahnútur verður bundinn á þriðja orkupakkann á Alþingi í dag þegar atkvæði verða greidd um þriðja orkupakkann, sem í vor varð það þingmál sem lengst hefur verið rætt um á þingi. Umræða um málið hefur staðið yfir í meira en 150 klukkustundir. Þingfundur hefst klukkan hálf ellefu og á dagskrá eru fjögur mál í tengslum við orku- pakkann. Á miðvikudag í síðustu viku lauk umræðu um þingsályktun Guðlaugs Þórs Þórðarsonar utanríkisráð- herra um samþykkt þriðja orku- pakkans með afléttingu stjórn- skipulegs fyrirvara af honum og á fimmtudag voru tengd mál rædd í þingsal. Formenn þingflokka segja flestir hverjir að línur séu skýrar í afstöðu þingmanna til málsins. Sumir þeirra búast við því að atkvæða- greiðslan muni taka nokkurn tíma. Mótmæla á þingpöllum í dag Boðað hefur verið til „þjóðlegs samstöðufundar“ gegn þriðja orku- pakkanum á Austurvelli í dag. Í gærkvöldi höfðu 77 boðað komu sína á Facebook og 181 lýst yfir áhuga. Ætlunin er að mótmæla á þingpöllum klukkan hálf ellefu og fyrir framan Alþingishúsið milli klukkan tólf og eitt eftir hádegið. Fólk er hvatt til þess að hafa með- ferðis litla og stóra íslenska fána. Frosti Sigurjónsson, einn tals- manna Orkunnar okkar, segir að eflaust muni margir úr þeim hópi mæta á Austurvöll, en félagið stendur þó ekki að mótmælunum. Fulltrúar Orkunnar okkar eiga aftur á móti fund við þingforseta snemma í morgun þar sem afhent- ar verða undirskriftir við áskorun til þingmanna um að hafna þriðja orkupakkanum. Orkupakkinn á síðustu metrunum  Atkvæði verða greidd um þriðja orkupakkann á þingi í dag  Boða mótmæli á Austurvelli  Þingmönnum afhent áskorun Morgunblaðið/Eggert Alþingi Umræður um orkupakkann fóru fram í síðustu viku á þinginu og í dag verða atkvæði greidd um málið. Birgir Ármannsson, þingflokksformaður Sjálfstæðis- flokks, segir ekkert hafa komið fram undanfarið sem gefi tilefni til annars en að málið verði samþykkt eins og stefnt hafi verið að. Birgir telur að umræða um stefnu- mótun í orkumálum haldi áfram í framhaldinu. „Mörg af þeim atriðum sem andstæðingar orkupakkans hafa hald- ið á lofti tengjast annarri stefnumótun en þeirri sem felst í þriðja orkupakkanum sjálfum,“ segir hann og nefnir að þar sé t.d. ekki fjallað um eignarhald á orku- auðlindum og -fyrirtækjum og ekki um lagningu sæ- strengs. Umræðan um stefnumótun haldi áfram „Það verður eflaust mikið um atkvæðaskýringar og slíkt en það er ekkert óeðlilegt miðað við þá umræðu sem málið hefur fengið,“ segir Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, þing- flokksformaður VG. Hún segir sum mál krefjast langra umræðna. „En þessi umræða er einstök í þingsögunni, að einn flokkur hafi talað eins mikið og Miðflokkurinn hefur gert. Ekkert kom fram í umræðunni núna sem ekki kom fram í vor. Það er sem gamlar ræður hafi verið teknar upp og sumarrykið dustað af þeim. Að því leyti má segja að umræðan hafi verið óþarflega löng.“ Umræðan einstök í þingsögunni Flokkur fólksins leggur fram breytingartillögu um að málinu verði vísað í þjóðaratkvæðagreiðslu að sögn Guð- mundar Inga Kristinssonar, þingflokksformanns Flokks fólksins. „Með þessu værum við búin að tryggja þetta eins vel og hægt er. Ég vona að þetta verði samþykkt, það er það eina rétta. Þing getur ákveðið eitthvað þótt það sé ekki meirihluti fyrir því hjá þjóðinni. Þetta er það stórt mál að þjóðin á að fá að ráða þessu,“ segir Guð- mundur, sem telur málið útrætt. „Meiri umræður myndu ekki skila neinu,“ segir hann. Vilja málið í þjóðaratkvæðagreiðslu „Það er tímabært að setja punkt aftan við þessa umræðu alla,“ segir Hanna Katrín Friðriksson, þingflokks- formaður Viðreisnar. „Það hefur ekkert komið fram sem breytir þeirri skoðun okkar að þetta sé hið ágætasta mál,“ segir Hanna Katrín, sem segir möguleika á því að atkvæðagreiðsla taki nokkurn tíma. „Ég hef ekki tilfinn- ingu fyrir því. Efnislega er umræðan löngu tæmd en það eru miklar tilfinningar í spilinu þannig að þetta gæti tekið einhvern tíma,“ segir Hanna Katrín, sem segir óhætt að fullyrða að meirihluti sé á þingi fyrir málinu. Umræðan tæmd en tilfinningar í spilinu „Ég held að umræðan á miðvikudag og fimmtudag hafi sýnt að það liggur ljóst fyrir hvernig þetta mun leggjast. Ég á ekki von á neinum óvæntum uppákomum,“ segir Oddný G. Harðardóttir, þingflokksformaður Samfylk- ingar, en nefnir að atkvæðagreiðslan gæti tekið tíma. „En það hefur ekkert nýtt komið fram. Það er alveg dag- ljóst,“ segir hún. „Málið er löngu útrætt,“ segir Oddný, sem býst við því að þingmenn flokksins kjósi með. Hún nefnir þó að taka gæti þurft afstöðu til breytingatillagna á þingflokksfundi í dag. Á ekki von á neinum óvæntum uppákomum „Ég held að því miður hafi stuðningsþingmenn og -flokk- ar þessa leiðindamáls ekki hlustað á [...] þá sem hafa var- að við þessu,“ segir Gunnar Bragi Sveinsson, þingflokks- formaður Miðflokks. Hann segir þingmenn Miðflokks munu hafna orkupakkanum í dag. Hann segir nýjar upp- lýsingar hafa komið fram í málinu í sumar, meðal annars varðandi málsókn ESB gegn Belgíu og fjórða orku- pakkann. „Hefði fólk nýtt sumarið myndi það stilla sér upp á sama stað og við og vera á móti þessu,“ segir Gunnar Bragi. Því miður hafi stuðningsmenn ekki hlustað „Ég býst alveg við því að fólk láti í sér heyra og segi sína skoðun eins og verið hefur hingað til,“ segir Hall- dóra Mogensen, þingflokksformaður Pírata, en þeir funda um málið í að- draganda atkvæðagreiðslu. „Ég veit að það verða skiptar skoðanir, það eru ekki allir á sama máli,“ segir hún, en málið er útrætt að hennar mati. „Við höfum rætt þetta mál frekar vel,“ segir hún. „Það hefur ekkert nýtt komið fram hingað til. Ég veit bara að það voru skiptar skoð- anir og áhyggjur. Þess vegna höfum við lagt vinnu í að kynna okkur það vel,“ segir hún. „Það eru ekki allir á sama máli“ Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokks, á ekki von á því að miklar breytingar verði í afstöðu þingmanna til málsins miðað við um- ræðurnar um það í síðustu viku. „Síðan hefur legið fyrir frá því í vor að það er víðtækur stuðningur við málið á Alþingi,“ segir hann. Sama staða er uppi á teningnum hjá fram- sóknarmönnum að hans sögn. Hann segir ekkert nýtt fram komið í málinu frá því í vor. „Það hefði verið betra að klára málið þá, en það var ekki hægt. Einn flokkur hélt þinginu í gíslingu og því greiðum við atkvæði á morgun [í dag].“ Framsóknarmenn sammála Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Mikilvægt er að greina kvíðaraskan- ir barna og ungmenna sem allra fyrst. Með því móti er hægt að koma í veg fyrir alvarleg áhrif á borð við brottfall úr námi, vímuefnanotkun og skerta starfsorku. Þetta segir Guðmundur Skarp- héðinsson, dósent við Sálfræðideild Háskóla Íslands, sem nú vinnur að gerð nýs matstækis fyrir kvíðarask- anir hjá börnum. Talsverð umræða hefur verið um kvíðaraskanir barna og hvort íslensk börn séu kvíðnari en jafnaldrar þeirra í öðrum löndum. Guðmundur segir að ekkert bendi til þess. „Ég veit ekki að gerð hafi verið almenni- leg úttekt á algengi kvíðaraskana hér á landi. Þá er heldur ekkert endi- lega víst að þær fari vaxandi, hugsanlega voru þær ekki greindar sem skyldi áður fyrr.“ Matstækið sem Guðmundur vinn- ur að ásamt meistaranemum í sál- fræði er m.a. uppfærð þýðing spurn- ingalista og greiningarviðtal sem þróað er út frá nýjustu útgáfu þess greiningarkerfis sem einna algeng- ast er. Þetta hefur verið prófað á BUGL og Litlu kvíðameðferðarmið- stöðinni og gefist vel. Sjálfur hefur Guðmundur reynslu af notkun þess- ara matstækja frá Noregi, þar sem hann starfaði við rannsóknir og sem klínískur barnasálfræðingur. Margar birtingarmyndir Spurður hverjar birtingarmyndir kvíðaröskunar séu segir Guðmundur þær fjölmargar, enda séu mörg af- brigði af kvíðaröskunum. Sum þeirra séu algengari á tilteknu aldursskeiði. Hann segir að mikilvægt sé að bæta greiningu á kvíðaröskunum. Þær hafi jafnan vanlíðan í för með sér og í sumum tilvikum hætti börn jafnvel í skóla og dragi úr þátttöku í félags- og íþróttastarfi. „Það er því til mikils að vinna,“ segir hann. Mikilvægt að greina kvíða sem fyrst Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson Sálfræðingur Guðmundur Skarphéðinsson er dósent í sálfræði við HÍ.  Vinnur að nýju mati á kvíðaröskunum barna  Sum hætta í skóla og íþróttum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.