Morgunblaðið - 02.09.2019, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 02.09.2019, Blaðsíða 37
MENNING 37 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. SEPTEMBER 2019 FALLEG OG VÖNDUÐ LEIKFÖNG úr náttúrulegum efnivið, tré og silki ERUM FLUTT ! á Nýbýlaveg 8 – Portið Nýbýlavegi 8 – Portið, sími 847 1660, www.bambus.is, bambus@bambus.is bambus.is bambus.is • Opið mánudaga og fimmtudaga frá kl. 10-14 Lífið er almennt ekki áfalla-laust og margir eiga viðerfiðleika að stríða, ekkisíst þeir sem búa á jaðri samfélagsins. Annabelle, glæpasaga með sálfræðilegu ívafi, eftir Linu Bengtsdotter, byggist á þessum jarðvegi og tekst höfundi sérlega vel að endur- spegla ömurleik- ann, sem margir neyðast til þess að búa við. Eitt manns- hvarf er einu mannshvarfi of mikið, en í fámennu samfélagi í Svíþjóð, þar sem íbú- arnir eru undir hælnum á einum at- vinnurekanda, fylgir leitarhugur ekki endilega máli. Hver lítur í eig- in barm, ver sitt og sína, þrátt fyrir að saklausustu sálir á yfirborðinu geti verið djöflar í mannsmynd. All- ir virðast hafa sinn djöful að draga og jafnvel rannsóknarlögreglan er ekki við eina fjölina felld. Sú mynd sem höfundur dregur upp af þessu fámenna samfélagi er ískyggileg. Hörmuleg. Börnin fæð- ast inn í heim sem þau ráða ekki við og eitt leiðir af öðru kynslóð fram af kynslóð. Vímuefna er neytt til þess að lina þjáningarnar, jafn- vel frá barnsaldri, lauslæti er al- gengt og auk óreglunnar leggjast sumar konur í vændi, en þegar öllu er á botninn hvolft er þar enga huggun að fá heldur þvert á móti. Annabelle er átakanleg saga. Saklausir leikir verða að alvar- legum málum og þátttakendur sog- ast inn í atburðarás sem þeir ráða engan veginn við. Umhverfið hent- ar ekki persónunum og þær ná ekki að fóta sig í samfélaginu. Það dap- urlegasta er að sagan er ekki að- eins raunsæ heldur sérlega trú- verðug og það er í raun það sem nagar lesandann einna helst inn að beini. Ljósmynd/Gabriel Liljevall Átakanleg „Annabelle er átakanleg saga. Saklausir leikir verða að alvar- legum málum og þátttakendur sogast inn í atburðarás sem þeir ráða engan veginn við,“ segir í rýni um glæpasögu eftir Linu Bengtsdotter. Engin miskunn á jaðrinum Annabelle bbbbn Spennusaga Eftir Linu Bengtsdotter. Brynja Cortes Andrésdóttir íslenskaði. Bjartur 2019. Kilja, 332 bls. STEINÞÓR GUÐBJARTSSON BÆKUR Ljósmynd/Sarah Maria Yasdani Orðaleit Gunnar Smári Jóhannesson í hlutverki sínu sem Ómar orðabelgur. Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is Þjóðleikhúsið frumsýnir Ómar orðabelg eftir Gunnar Smára Jóhannesson í leikstjórn Björns Inga Hilmarssonar á Patreksfirði í dag. „Þetta er fjórða árið í röð sem Þjóðleikhúsið frumsýnir leikrit ætl- að leik- og grunnskólabörn- um úti á landi og fer í framhaldinu með uppfærsluna í sýningarferð um landið,“ segir Björn Ingi og tekur fram að líkt og síðustu ár verði viðkomu- staðirnir um þrjátíu talsins á landinu. „Þetta árið byrjum við á Vestfjörðum og fikrum okkur síðan norður og austur og loks suður áð- ur en við sýnum á Reykjanesi og í Þjóðleikhúsinu í Reykjavík,“ segir Björn Ingi og tekur fram að í Reykjavík sé sýningin sýnd undir merkjum Sögustundar. „Þetta er 11. leikárið sem Þjóð- leikhúsið býður upp á Sögustund,“ segir Björn Ingi og rifjar upp að fyrstu árin hafi aðeins verið boðið upp á sýningar í Þjóðleikhúsinu fyrir börn í elstu deildum leikskóla á höfuðborgarsvæðinu. „En fyrir nokkrum árum var ákveðið að stækka verkefnið og ferðast einnig út á land með sýningu fyrir börn í elstu bekkjum leikskóla og yngstu bekkjum grunnskóla. Allar eru sýn- ingarnar boðssýningar og hluti af því markmiði Þjóðleikhússins að bjóða börnum að upplifa töfra leik- hússins óháð búsetu og efnahag,“ segir Björn Ingi og bendir á að Ómar orðabelgur sé hugsuð sem sýning fyrir börn á aldrinum fjög- urra til átta ára. Munaðarlaus 12 ára gamall „Reyndar langar okkur til að prófa að blanda í áhorfendahópnum saman leik- og grunnskólabörnum annars vegar og eldri borgurum hins vegar. Enda vitum við að framboð menningarviðburða á landsbyggðinni er líka takmarkað fyrir eldri borgara,“ segir Björn Ingi og tekur fram að áformin helgist af innihaldi sýningarinnar sem fjalli að hluta um samband og samskipti þessara tveggja aldurs- hópa. „Höfundur og leikari sýning- arinnar er Gunnar Smári, sem út- skrifaðist úr leiklistardeild Lista- háskóla Íslands á liðnu vori og er hér að þreyta frumraun sína sem höfundur og leikari í Þjóðleikhúsinu með þessari sýningu,“ segir Björn Ingi og bendir á að líkt og hann sjálfur komi Gunnar Smári af landsbyggðinni. „Ég er frá Dalvík og hann frá Tálknafirði, en báðir höfum við mikinn áhuga á því að búa til sýningar fyrir börn á ólíkum aldri úti á landi,“ segir Björn Ingi og rifjar upp að Gunnar Smári hafi fyrr á þessu ári sent umsókn til Þjóðleikhússins þar sem hann tók fram að „helsti tilgangur hans með leiklistarstarfi sé að efla áhuga ungra barna á landsbyggðinni á leiklist“. Þegar ég las þessa um- sókn sá ég strax að þetta væri ein- staklingur sem mig langaði til að vinna með, því mitt helsta hugð- arefni síðustu árin hefur verið að búa til sýningar fyrir börn á ólíkum aldri úti á landi. Verkefni sem mér þykir mjög vænt um.“ Að sögn Björns Inga fór hann í framhaldinu að skoða hvað Gunnar Smári hefði verið að gera í námi sínu og rakst þar meðal annars á einstaklingsverkefni hans sem fjallaði að hluta um ömmu Gunnars og uppvöxt hans. „Hans persónu- lega saga er að mörgu leyti mjög áhugaverð. Tólf ára gamall er hann búinn að missa báða foreldra sína og flytur í framhaldi af því til bróð- ur síns. Amma þeirra flytur síðan til þeirra á Tálknafjörð en deyr nokkrum árum síðar. Mig hefur í nokkurn tíma langað til að vinna sýningu fyrir börn þar sem dauðinn sé meðal viðfangsefna,“ segir Björn Ingi og bendir á að annað leiðarstef í sýningunni sé leikurinn að tungu- málinu. Leikur að orðum og merkingu „Ein af mínum uppáhaldsbókum er Óðhalaringla eftir Þórarin Eld- járn þar sem hann leikur sér með rím eins og honum einum er lagið. Á aldrinum fjögurra til átta ára eru börnin einmitt að byrja að upp- götva tungumálið. Í sýningunni okkar slást áhorfendur í för með Ómari orðabelg í leit að uppruna orðanna, en hann hefur mikinn áhuga á orðum og því hvernig þau verða til. Kveikjan að framvindu verksins er að Ómar finnur bréf sem stílað er á foreldra hans og fjallar um ömmu hans. Í bréfinu rekst hann á orðin „ólæknandi langvinn lungnateppa“ sem hann skilur ekki og leggur því í ákveðinn leiðangur til að reyna að skilja þessi orð og jafnframt að spyrja ömmu sína út í þetta bréf,“ segir Björn Ingi og bendir á að þótt flestir þekki orðið dauði séu mun færri sem viti hvað það raunveru- lega feli í sér. „Gunnar Smári bregður sér í nokkur hlutverk í sýningunni, þeirra á meðal er Bára bókasafns- fræðingur. Ómar er í ónáð á bóka- safninu þar sem hann hefur gleymt að skila yfir 240 bókum sem hann hefur í gegnum tíðina notað til að rannsaka uppruna hinna ýmsu orða með ömmu sinni. Í sýningunni leit- ar hann fanga í ýmsum bókum sem fjalla um allt frá læknisfræði til töfraseyða, enda ætlar hann að fá ömmu sína til að hætta að reykja,“ segir Björn Ingi og tekur fram að undir lok sýningar þurfi Ómar að spyrja Gunnar Smára leikara um það hvað það sé að vera dáinn. „Leikurinn að orðum og tungumál- inu blandast þannig saman við vangaveltur um dauðann.“ Næst sýning fyrir unglinga Björn Ingi hefur síðustu árin starfað sem forstöðumaður barna- og fræðslustarfs Þjóðleikhússins samhliða því sem hann hefur starf- að sem leikstjóri og leikari við hús- ið. Í starfi sínu sem forstöðumaður heldur hann meðal annars utan um leiklistarverkefnið Þjóðleik sem Þjóðleikhúsið hleypti af stokkunum fyrir rúmum áratug. „Frá upphafi hefur markmiðið með Þjóðleik verið að tengja Þjóðleikhúsið á lifandi hátt við ungt fólk, 13-20 ára, á landsbyggðinni og efla þannig bæði áhuga þess og þekkingu á listform- inu,“ segir Björn Ingi, sem þegar er farinn að huga að næsta Þjóðleik sem haldinn er 2020-21, en verk- efnið er alltaf haldið annað hvert ár. „Næsta leikstjórnarverkefni mitt er síðan Vloggað um tilvistina eftir Matthías Tryggva Haraldsson, sem er mjög spennandi höfundur,“ segir Björn Ingi, en um er að ræða sýn- ingu fyrir unglinga sem sýnd verð- ur á höfuðborgarsvæðinu á næsta ári og mögulega á landsbyggðinni leikárið 2020-21. Upplifa töfra leik- hússins óháð búsetu  Þjóðleikhúsið frumsýnir Ómar orðabelg eftir Gunnar Smára Jóhannesson í leikstjórn Björns Inga Hilmarssonar Björn Ingi Hilmarsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.