Morgunblaðið - 02.09.2019, Blaðsíða 33
ÍÞRÓTTIR 33
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. SEPTEMBER 2019
NÝTT – Veggklæðning
Rauvisio Crystal
• Mikið úrval lita og áferða
• Auðvelt í uppsetningu og umgegni
• Framleiðum eftir óskum hvers og eins
• Hentar fyrir heimili, vinnustaði og almenningssvæði
Fanntófell hefur sérhæft sig í framleiðslu á borðplötum og sólbekkjum síðan 1987.
Fanntófell ehf. | Gylfaflöt 6-8 | 112 Reykjavík | Sími 587 6688 | fanntofell.is
FÓTBOLTI
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Íslenska kvennalandsliðið í knatt-
spyrnu leikur í kvöld annan leik sinn
í undankeppni EM 2021 þegar það
tekur á móti Slóvökum á Laugar-
dalsvelli. Vegferð liðsins í keppninni
hófst með ágætum 4:1 sigri á Ung-
verjum á fimmtudagskvöldið, en Ís-
land á möguleika á því að komast í
lokakeppni EM í fjórða skiptið í röð.
Allir leikmenn liðsins eru tilbúnir í
slaginn í kvöld eftir því sem best er
vitað. Allar tóku þátt í æfingu liðsins
í gærmorgun, en engin skakkaföll
urðu í leiknum gegn Ungverjalandi.
Leikurinn verður síðasti heima-
leikur íslenska liðsins á árinu en í
október mun liðið leika einn leik til
viðbótar í riðlinum gegn Lettlandi
ytra. Almennt er talið að Ísland sé
næststerkasta liðið í riðlinum á eftir
Svíþjóð, sem vann til bronsverð-
launa á HM í sumar.
Eins og landsliðsþjálfarinn Jón
Þór Hauksson benti á í samtali við
mbl.is eftir leikinn gegn Ungverjum
er algert lykilatriði fyrir Ísland að
vinna heimaleiki sína til að eiga
möguleika á því að komast á EM.
Eftir nokkurt basl í fyrri hálfleik
varð niðurstaðan öruggur sigur í
fyrsta leiknum og er íslenska liðið
mun sigurstranglegra en það slóvak-
íska í kvöld.
Liðin mættust 2017
Slóvakía var í fjórða styrkleika-
flokki þegar dregið var í riðla fyrir
undankeppnina en Ungverjaland í
þriðja styrkleikaflokki. En sú skipt-
ing blekkir svolítið því mjög stutt er
á milli þeirra þjóða á styrkleikalista
FIFA. Slóvakar eru að flestra mati
eitt sterkasta liðið sem hægt var að
fá úr fjórða styrkleikaflokki. Liðið
ætti sem sagt að vera svipað að
styrkleika og það ungverska. Grein-
arhöfundi skilst að lið Slóvakíu verj-
ist þó betur en lið Ungverjalands. Ef
til vill gæti því þurft þolinmæði hjá
íslensku landsliðskonunum ef fyrsta
markið lætur bíða eftir sér. Íslenska
landsliðið hefur oft valtað yfir and-
stæðinga sína á Laugardalsvellinum
síðasta áratuginn eða svo, takist lið-
inu að skora fljótlega og komast í
1:0.
Ungverjaland og Slóvakía mætt-
ust fyrr á þessu ári og vann þá Ung-
verjaland 3:2. Varasamt er þó að
taka of mikið mark á slíkum leikjum,
þar sem alls kyns tilraunastarfsemi
gæti hafa verið í gangi. Einnig er
hægt að horfa til þess að Ísland
mætti Slóvakíu í vináttulandsleik í
apríl 2017. Ísland vann þá 2:0 á úti-
velli með mörkum frá Elínu Mettu
Jensen og Berglindi Björgu Þor-
valdsdóttur. Þær slóvakísku þurfa
væntanlega að hafa áhyggjur í kvöld
af Elínu, sem er á skotskónum í
sumar.
Búa sig undir átök
Í síðustu keppni var Ísland með
Tékklandi í riðli og gerði tvö jafn-
tefli. Tékkar og Slóvakar eru jú
grannþjóðir og deildu áður með sér
Tékkóslóvakíu. Tékkneska liðið spil-
aði af hörku og leikirnir tveir á milli
Íslands og Tékklands urðu miklir
baráttuleikir. Varnarjaxlinn Ingi-
björg Sigurðardóttir tjáði greinar-
höfundi í gær að þær slóvakísku
væru harðar og á köflum grófar í
leik sínum. Þótt lið Tékklands eigi að
vera umtalsvert öflugra en lið Slóv-
akíu býr íslenska liðið sig undir bar-
áttuleik þar sem búast má við að
hart verði tekist á.
Ef til vill mun val á byrjunarliðinu
taka að einhverju leyti mið af þessu.
Verði það raunin mun Jón Þór lík-
lega veðja á líkamlega sterka leik-
menn í mörgum tilfellum. Spurn-
ingin er hvort hann vilji gera
einhverjar breytingar vegna þess að
stutt er á milli leikjanna. Gegn Ung-
verjum tefldi hann fram reyndum
leikmönnum að mestu leyti ef frá er
talin Hlín Eiríksdóttir, sem skoraði
annað mark Íslands í leiknum.
Lykilatriði fyrir Ísland að
vinna heimaleikina
Undankeppnin heldur áfram hjá kvennalandsliðinu í Laugardalnum í kvöld
Morgunblaðið/Eggert
Í Laugardal Líkamlegur styrkur Söru Bjarkar Gunnarsdóttur og Dagnýjar Brynjarsdóttur gæti nýst vel í kvöld.
Gylfi Þór Sigurðsson var mikið
gagnrýndur fyrir frammistöðu sína
í þremur fyrstu leikjum Everton í
ensku úrvalsdeildinni í fótbolta á
leiktíðinni. Gylfi hafði frekar hægt
um sig er Everton náði í fjögur stig
af níu mögulegum í upphafi tíma-
bils og fékk það óþvegið af stuðn-
ingsmönnum félagsins.
Gylfi spilaði ljómandi vel í 3:2-
sigri á Wolves í gær og þaggaði
þannig niður í gagnrýnisrödd-
unum. Lagði hann upp eitt mark og
var sterkur á miðsvæðinu í
skemmtilegum fótboltaleik.
Frammistaðan gefur góð fyrirheit
fyrir landsleikina á næsta leiti.
Í hinum leik gærdagsins gerðu
Arsenal og Tottenham 2:2-jafntefli
í stórskemmtilegum leik á Emir-
ates-vellinum. Tottenham komst í
2:0 í fyrri hálfleik en Arsenal neit-
aði að gefast upp og jafnaði með
marki Pierre-Emerick Aubamey-
ang í seinni hálfleik.
Laugardagurinn minnti mikið á
síðasta tímabil. Liverpool og Man-
chester City unnu örugga sigra.
City vann Brighton 4:0 á heimavelli
og Liverpool vann 3:0-sigur á Burn-
ley á útivelli. Með sigrinum setti
Liverpool nýtt félagsmet, hefur nú
unnið þrettán leiki í röð í efstu
deild. Liverpool er eina liðið með
fullt hús stiga. Jóhann Berg Guð-
mundsson lék ekki með Burnley
vegna meiðsla. Manchester United
missteig sig á móti Southampton og
gerði 1:1-jafntefli á útivelli. Hefur
United aðeins unnið einn af fyrstu
fjórum leikjum sínum, sem er fram-
hald af slöku gengi í lok síðustu
leiktíðar. Lærisveinar Frank Lamp-
ard hjá Chelsea misstu niður
tveggja marka forskot gegn nýlið-
um Sheffield United á heimavelli og
lauk leik með 2:2-jafntefli.
Gylfi þaggaði niður í
gagnrýnisröddunum
AFP
Stoðsending Gylfi Þór Sigurðsson
lagði upp mark hjá Everton.
KNATTSPYRNA
Undankeppni EM kvenna:
Laugardalsvöllur: Ísland – Slóvakía ...18:45
Í KVÖLD!
EHF-bikar karla
1. umferð, fyrri leikur:
Haukar – Talent Plzen.......................20:25
Bocholt – West Wien .........................26:22
Guðmundur Hólmar Helgason skoraði
1 mark fyrir West Wien.
Heimsbikar félagsliða
Úrslitaleikur:
Barcelona – Kiel............................... 34:32
Aron Pálmarsson skoraði 7 mörk fyrir
Barcelona.
Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði ekki
fyrir Kiel.
Þýskaland
Lemgo – Magdeburg........................ 24:32
Bjarki Már Elísson skoraði 6 mörk fyr-
ir Lemgo.
Balingen – Nordhorn....................... 25:23
Oddur Gretarsson skoraði 6 mörk fyrir
Balingen.
Geir Sveinsson þjálfar Nordhorn.
Füsche Berlín – Erlangen ............... 30:23
Aðalsteinn Eyjólfsson þjálfar Erlang-
en.
B-deild:
Hamburg – Dormagen..................... 26:22
Aron Rafn Eðvarðsson varði 9 skot í
marki Hamburg.
Krefeld – Rimpar ............................. 19:20
Arnar Gunnarsson þjálfar Krefeld.
Bikarkeppni kvenna:
Herrenberg – Neckarsulmer ...........25:35
Birna Berg Haraldsdóttir skoraði
5mörk fyrir Neckarsulmer.
Danmörk
A-deild kvenna:
Odense – Esbjerg ............................. 25:28
Rut Jónsdóttir skoraði 2 mörk fyrir
Esbjerg.
Frakkland
Meistarakeppnin:
París SG – Montpellier .................... 34:27
Guðjón Valur Sigurðsson skoraði ekki
fyrir PSG.
A-deild kvenna:
Toulon – Chambray ......................... 23:22
Mariam Eradze skoraði ekki fyrir Tou-
lon.
París 92 – Bourg-de-Péage ............. 28:25
Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir skor-
aði 5 mörk fyrir Bourg-de-Péage.
Ungverjaland
Pick Szeged – Csurgoi..................... 29:21
Stefán Rafn Sigurmannsson lék ekki
með Pick Szeged.