Morgunblaðið - 02.09.2019, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 02.09.2019, Blaðsíða 34
34 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. SEPTEMBER 2019 GÓÐIR FUNDIR OGENNBETRI FUNDARHLÉ Upplýsingar og pantanir í síma 483 4700 | booking@hotelork.is | www.hotelork.is Á Hótel Örk er allt sem þarf fyrir vel heppnaða fundi, sýningar, námskeið og minni ráðstefnur. Hótelið býr yfir fundarsölum af mörgum stærðum búnum nýjustu tækni, fyrsta flokks veitingastað og fjölbreyttri afþreyingu fyrir skemmtilegri fundarhlé. Superior herbergi 157 HERBERGI 7 FUNDARSALIR VEITINGASTAÐUR SUNDLAUGOG HEITIR POTTAR 19. UMFERÐ Pétur Hreinsson Arnar Þór Ingólfsson Guðmundur Hilmarsson Sigþóra Guðmundsdóttir Kristján Jónsson Bjarni Helgason KR-ingar halda sínu striki í Pepsi Max deildinni og unnu Skagamenn 2:0 í 19. umferðinni í gær. Eins og áð- ur er forskot KR sjö stig en nú eru aðeins níu stig í boði fyrir Breiðablik, sem er í öðru sæti. Það væri gaman að sjá svokallað hitakort af leikmönnum Skagamanna fyrstu 65. mínúturnar af leik liðsins gegn KR í gær og sjá hver meðalstað- setning þeirra var. Skagamenn lágu afar aftarlega í leiknum og miðverðir þeirra voru oft og tíðum rétt framan við teig Árna Snæs Ólafssonar í markinu. Sem aftur minnkaði plássið fyrir KR-inga. Það þurfti líka tvö glæsimörk KR til þess að klífa gula múrinn. Fyrst afgreiddi Óskar Örn boltann á fagmannlegan hátt úr auka- spyrnu sem Pálmi Rafn tók stutt. Og svo undir lok leiks er Kristinn Jóns- son smellti boltanum í slá og inn. Fyrir tímabilið var talað um að KR-liðið ætti heima á stofnun hinum megin við Hringbrautina, ekki langt frá Meistaravöllum. Í allt sumar hafa þessir sömu gömlu leikmenn aftur á móti sýnt að þeir hafa gæðin til þess að klára Íslandsmótið í knattspyrnu á toppnum. Og það er akkúrat í leikjum fárra færa þar sem gæðin skipta máli. Tökum ekkert af liði Skagamanna. Upplegg þeirra í leiknum var strang- heiðarlegt og lokaði vel á KR. Eftir að liðið fór í fjögurra manna vörn uppskar það síðan hættuleg færi. Þrátt fyrir úrslitin og aðeins tvo sig- urleiki af síðustu 13 á ÍA enn raun- hæfan möguleika á Evrópusæti fari svo að FH vinni bikarinn. peturhreins@mbl.is Blikar sofnuðu í síðari hálfleik Einn alskemmtilegasti knatt- spyrnuleikur sumarsins fór fram á Kópavogsvelli í gærkvöldi er Breiða- blik tók á móti Fylki. Mörkin urðu sjö talsins áður en yfir lauk og hefðu hæglega getað orðið enn fleiri. Blikar komust 4:0 yfir eftir 47 mín- útna leik og virtust ætla að valta yfir algjörlega bitlausa Árbæinga, en barnalegt rautt spjald Viktors Arnar Margeirssonar, leikmanns Blika, gerði það að verkum að Fylkismenn komust inn í leikinn. Viktor Örn sló eða hrinti snöggt frá sér í teignum á 73. mínútu eftir að Ragnar Bragi Sveinsson, sóknar- maður Fylkis, hljóp á hann. Boltinn var kominn nokkuð frá þeim félögum er atvikið átti sér stað og nokkur tími leið þar til Egill Arnar Sigurþórsson dómari dæmdi víti, sennilega eftir ábendingu aðstoðarmanns eða vara- dómara, og sendi Viktor Örn í sturtu við litla kátinu stuðningsmanna Blika. Dómurinn var þó án efa réttur. Fylkismenn öðluðust aukinn kraft eftir þetta atvik, þrátt fyrir að Gunn- leifur Gunnleifsson hafi varið vítið sem Geoffrey Castillion tók. Castill- ion skoraði tvö góð mörk til viðbótar og á endanum voru Blikarnir stál- heppnir að ganga af velli með bráð- nauðsynleg þrjú stig í farteskinu. Agaleysi Viktors Arnar hefði getað kostað þá sigurinn og þar með töl- fræðilegan mögulega á því að eygja úrslitaleik við KR á Kópavogsvelli í lokaumferð Íslandsmótsins. En hvað um það. Árbæingar áttu sennilega skilið að tapa þessum leik. Þeir appelsínugulu voru hreint átak- anlega slakir í fyrri hálfleik, á meðan allt virtist ganga upp í leik leikmanna Breiðabliks, sem sýndu afar lipra til- burði upp við mark gestanna í fyrri hálfleik. Áhorfendur á Kópavogsvelli fengu nóg fyrir peninginn og þeir sem voru á bandi heimamanna fóru eflaust sáttir í háttinn. athi@mbl.is Kári opnaði markareikninginn í efstu deild hér heima Sprækt og vel spilandi lið Víkings átti ekki í vandræðum með að inn- Staða KR orðin enn vænlegri  Fallið blasir nú við í Grindvík  Góð úrslit fyrir FH í þessari umferð Morgunblaðið/Eggert Í Vesturbæ Kristinn Jónsson skoraði laglegt mark gegn ÍA. 0:1 Elfar Árni Aðalsteinsson 90. (víti) 0:2 Nökkvi Þeyr Þórisson 90.. I Gul spjöldMarinó Axel Helgason, Jossip Zeba, Óscar Conde (Grindavík), Elfar Árni Aðalsteinsson, Almarr Ormars- son (KA) Dómari: Tom Owen (Wales), 3. Áhorfendur: Á að giska 500. GRINDAVÍK – KA 0:2 MM Vladan Djogatovic(Grindavík) Nökkvi Þeyr Þórisson (KA) M Gunnar Þorsteinsson (Grindavík) Elias Tamburini (Grindavík) Almarr Ormarsson (KA) Hallgrímur Mar Steingrímsson (KA) 1:0 Andri Rafn Yeoman 9. 2:0 Höskuldur Gunnlaugsson 10. 3:0 Thomas Mikkelsen 38. 4:0 Alfons Sampsted 47. 4:1 Geoffrey Castillion 63. 4:2 Geoffrey Castillion 75. 4:3 Geoffrey Castillion 90. I Gul spjöldAri Leifsson (Fylki) I Rauð spjöldViktor Örn Margeirsson (Breiðabliki) Dómari: Ívar Orri Kristjánsson (Egill BREIÐABLIK – FYLKIR 4:2 Arnar Sigurþórsson 39.), 8. Áhorfendur: 1068. MM Geoffrey Castillion (Fylki) Andri Rafn Yeoman (Breiðabliki) M Gunnleifur Gunnleifsson (Breiða.) Davíð Ingvarsson (Breiðabliki) Thomas Mikkelsen (Breiðablik) Höskuldur Gunnlaugsson (Breiðabliki.) Brynjólfur D. Willumsson (Breiða.) Alfons Sampsted (Breiðabliki) Hákon Ingi Jónsson (Fylki) Ragnar Bragi Sveinsson (Fylki) Pepsi Max-deild karla Grindavík – KA......................................... 0:2 Stjarnan – FH........................................... 1:3 ÍBV – Valur............................................... 2:1 HK – Víkingur R. ..................................... 1:3 KR – ÍA ..................................................... 2:0 Breiðablik – Fylkir................................... 4:3 Staðan: KR 19 13 4 2 38:20 43 Breiðablik 19 11 3 5 42:27 36 FH 19 9 4 6 29:29 31 Stjarnan 19 7 7 5 32:30 28 Valur 19 7 4 8 34:31 25 HK 19 7 4 8 27:25 25 Víkingur R. 19 6 7 6 29:28 25 ÍA 19 7 4 8 24:25 25 Fylkir 19 7 4 8 32:35 25 KA 19 7 3 9 26:29 24 Grindavík 19 3 9 7 14:22 18 ÍBV 19 2 3 14 16:42 9 Inkasso-deild karla Afturelding – Njarðvík ........................... 2:2 Andri Freyr Jónasson 4., Róbert Orri Þor- kelsson 60. – Ivan Prskalo 25., Stefán Birg- ir Jóhannesson 28. Magni – Grótta......................................... 0:2 Sölvi Björnsson 8., Halldór Kristján Bald- ursson 12. Keflavík – Þór .......................................... 2:0 Adolf Bitegeko 87. (víti), Davíð Snær Jó- hannsson 90. Staðan: Fjölnir 19 11 5 3 41:19 38 Grótta 19 10 7 2 39:25 37 Þór 19 9 6 4 30:20 33 Leiknir R. 19 10 3 6 33:26 33 Keflavík 19 9 4 6 29:23 31 Víkingur Ó. 19 7 7 5 22:16 28 Fram 19 8 3 8 27:29 27 Þróttur R. 19 6 3 10 34:35 21 Afturelding 19 5 4 10 25:36 19 Haukar 19 3 7 9 24:36 16 Magni 19 4 4 11 22:47 16 Njarðvík 19 4 3 12 20:34 15 2. deild karla Dalvík/Reynir – Vestri ........................... 1:2 Viktor Daði Sævaldsson 21. – Pétur Bjarnason 7., 52. Víðir – Fjarðabyggð................................ 4:0 Hólmar Örn Rúnarsson 3., 62., Helgi Þór Jónsson 55., Atli Freyr Ottesen Pálsson 68. Tindastóll – Selfoss ..................................1:4 Benjamín Gunnlaugsson 90. – Hrvoje Tokic 43., 69., Þór Llorens Þórðarson 16., Ingi Rafn Ingibergsson 86. ÍR – Þróttur V. ..........................................1:1 Aleksander Alexander Kostic 2. – Alexand- er Helgason 57. Staðan: Vestri 19 13 0 6 29:22 39 Leiknir F. 19 11 4 4 38:21 37 Selfoss 19 11 2 6 45:24 35 Víðir 19 10 2 7 36:24 32 Þróttur V. 19 8 6 5 35:29 30 Dalvík/Reynir 19 7 6 6 28:29 27 ÍR 19 7 5 7 29:30 26 Fjarðabyggð 19 6 6 7 37:38 24 Kári 19 7 3 9 39:44 24 Völsungur 19 7 3 9 22:27 24 KFG 19 5 0 14 27:46 15 Tindastóll 19 2 3 14 18:49 9  0:1 Kristinn Freyr Sigurðsson 2. 1:1 Gary Martin 11. 2:1 Gary Martin 58. I Gul spjöldSebastian Hedlund og Emil Lyng (Val). I Rauð spjöldEngin ÍBV – VALUR 2:1 Dómari: Guðmundur Ársæll Guð- mundsson, 8. Áhorfendur: 241. MM Gary Martin (ÍBV) M Telmo Castanheira (ÍBV) Tómas Bent Magnússon (ÍBV)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.