Morgunblaðið - 02.09.2019, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 02.09.2019, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. SEPTEMBER 2019 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Boris John-son, for-sætisráð- herra Bretlands, lét sverfa til stáls í útgöngumáli Breta fyrir helgi þegar hann til- kynnti að núver- andi þingi, sem setið hefur í tvö ár, yrði slitið í upphafi næstu viku og nýtt þing sett um miðjan október með stefnuræðu drottningar. Þar sem skylda er að halda ítar- lega umræðu um þá ræðu, auk nokkurra annarra þing- mála sem stjórnin hyggst leggja fram á sama tíma, er ljóst að nokkrir af þeim dög- um sem þá yrðu til stefnu áð- ur en Bretar eiga að ganga úr Evrópusambandinu 31. októ- ber næstkomandi myndu fara í þær. Frestunin er jafnframt að þessu sinni ögn lengri en vanabundið er og fóru and- stæðingar Johnsons með himinskautum í upphróp- unum um þá meintu lögleysu sem forsætisráðherrann stæði nú fyrir, en sýnt þykir að aðgerð Johnsons mun gera þeim þingmönnum sem vilja koma í veg fyrir útgöngu Breta úr Evrópusambandinu hinn 31. október næstkom- andi erfiðara fyrir að fá frum- varp um slíkt samþykkt í tæka tíð. John Bercow, forseti neðri deildarinnar, fór fremstur í flokki þeirra sem náðu ekki upp í nef sér fyrir bræði. Kallaði hann ákvörðun John- sons „breskt valdarán“ og vanvirðingu við hina óskrif- uðu stjórnarskrá Bretlands. Reiði Bercows var vægast sagt ýkjukennd, og enn óskiljanlegri í ljósi þess að hann sjálfur hefur í gegnum allar útgönguraunirnar teygt, togað og skrumskælt reglur þingsins til þess að gera þeim málum hærra und- ir höfði sem hann er í hjarta sínu samþykkur. Hann hefur enda sætt gagnrýni fyrir að vera ekki sá hlutlausi og sanngjarni leiðtogi sem for- seti þingsins eigi að vera, heldur fyrst og fremst pólit- ískur refur og baráttumaður fyrir því að hunsa vilja þjóðarinnar í Brexit. Bercow leitaði meðal ann- ars eitt sinn í fordæmi frá upphafi 18. aldar til þess að svínbeygja ríkisstjórn Theresu May í málinu. Að- gerð Johnsons hlýtur því að hafa verið óvenjulega sví- virðileg, ef taka á mark á upphlaupi þingforsetans, fyrst að einungis þurfti að leita aftur um tvö ár síðan þingi var síðast frestað á þann veg sem nú stendur til að gera. Yfirlýsingar annarra þing- manna um efnið voru allar á svip- uðum nótum, og sýndu um- fram allt að áfram stendur til að ala á ótta almennings um framtíð Bretlands verði farið að vilja þjóðarinnar. Það er einnig athyglisvert að sjá að flestir þeir þing- menn sem hæst hrópa um það að aðgerð Johnsons sé van- virðing við lýðræðið í Bret- landi eiga það sameiginlegt að þeir vilja koma í veg fyrir útgöngu Breta úr Evrópu- sambandinu, þrátt fyrir að bæði þjóðaratkvæðagreiðslan og skoðanakannanir sýni að meirihluti bresku þjóðar- innar styðji útgönguna. Fyrir sitt leyti sagði John- son á föstudaginn að nauð- synlegt væri að hafa útgöngu án samnings á borðinu sem valmöguleika, enda veit hann sem er að án þeirrar ógnar er engin leið að fá embættis- mannaveldið í Brussel til þess að bakka frá því Ver- salasamkomulagi sem fyrir- rennari hans reyndi í þrígang að fá samþykkt. Aðgerð Johnsons var vissu- lega djörf en hún kemur þó ekki í veg fyrir að þingið reyni að hindra að vilji bresku þjóðarinnar nái fram að ganga í málinu. Mögulega munu nógu margir þingmenn Íhaldsflokksins reyna að fella ríkisstjórnina ef vantraust verður lagt fram að þessu sinni, en um leið þurfa þeir að íhuga hvort andstaða sín við Johnson sé þess virði að leggja lyklana að Downing- stræti 10 í hendur Jeremys Corbyn, leiðtoga Verka- mannaflokksins, en hann virðist búinn fáum þeim kost- um sem prýða þurfa forsætis- ráðherra Bretlands. Ekki kæmi á óvart þó að fram undan væru enn harðari átök í neðri deildinni um framgang Brexit-málsins en þegar hafa sést, og er allt eins líklegt að boða þurfi fljótlega á ný til kosninga, jafnvel strax í næsta mánuði. Verði sú raunin verður for- vitnilegt að sjá hvernig mörg- um af núverandi þingmönn- um á eftir að farnast, þegar þeir þurfa að útskýra fyrir kjósendum sínum hvers vegna þeir reyndu að standa í vegi fyrir því að vilji meiri- hluta þjóðarinnar yrði að veruleika. Þingmenn gætu þurft að mæta þjóð- inni innan skamms. Sumir þeirra hafa ástæðu til að óttast kjósendur} Sorfið til stáls Í sumar var öllum vafa um áhrif þriðja orkupakkans eytt með með því að framkvæmdastjórn Evrópusambands- ins höfðaði mál gegn Belgíu vegna orkupakkans. Stjórnvöld landsins höfðu ætlað sér að hafa eitthvað um fram- kvæmdir í orkumálum að segja. Þau vildu líka eiga síðasta orðið um tengingar landsins við sameiginlegt raforkukerfi Evrópu. Þetta var óásættanlegt að mati ESB, sem vildi að orku- stofnun sambandsins og útibú hennar í Belgíu yrðu allsráðandi. Áður hafði ESB ráðist í mála- ferli gegn 12 ríkjum sambandsins fyrir að bjóða ekki út nýtingarrétt orkuauðlinda, m.a. vatns- aflsvirkjana í ríkiseigu. Fátt varð um svör frá talsmönnum orku- pakkans hér á landi sem höfðu haldið því fram að innleiðingin, sem þeir hafa barist svo hart fyrir, hefði í raun engin áhrif. Einhverjir þeirra sem þannig höfðu talað gripu þá í það hálmstrá að benda á að staða Belgíu væri önnur en Íslands þar sem þar væru þegar raforkutengingar við önnur Evrópulönd, þ.m.t. sæstrengur. Sömu rök hafa verið notuð varðandi Noreg en beiðni þeirra um vald yfir lagningu sæstrengja í eigin land- grunni var hafnað af ESB. Það er kaldhæðnislegt að gripið sé til þessara raka til að skýra muninn á áhrifum orkupakkans á Íslandi og í Belgíu. Evrópusambandið lýsir því skýrt að eitt af meginmark- miðum pakkans sé að tengja ný svæði, ekki hvað síst eyjar, við sameiginlega orkumarkaðinn. Ef sambandið er ekki einu sinni tilbúið að leyfa stjórnvöldum ríkja að taka ákvarðanir um nýjar tengingar við evrópska orkukerfið geta menn rétt ímyndað sér hvort það muni frekar sætta sig við að stjórnvöld komi í veg fyrir nýjar tengingar. Vilji menn raundæmi um hvernig farið er með umsóknir um nýjar sæstrengstengingar er það að finna á Kýpur. Kýpur er eyja eins og Ísland. Landið var ótengt við raforkukerfi Evrópu. Þegar fjárfestar höfðu safnað fjármagni fyrir tengingu Kýpur við raforkukerfi Evrópu í gegn- um Grikkland höfðu þeir samband við orkustofn- anir landanna og yfirstofnunina ACER. Þá tóku orkustofnanirnar við keflinu undir handleiðslu ACER til að tryggja að stjórnvöld í löndunum myndu ekki leggja steina í götu verkefnisins. Fyrir liggur að breskt fyrirtæki telur allt til reiðu til að hefja lagningu sæstrengs til Íslands. Fullyrðingar um að innleiðing þriðja orkupakkans geri lagningu strengs erfiðari en ella eru undar- legar í ljósi markmiða pakkans og þeirrar staðreyndar að helstu talsmenn sæstrengs eru eindregnir stuðningsmenn pakkans. Áhersla á mikilvægi fullveldis á sér langa sögu í stjórnarflokkunum. Ég hvet þingmenn þeirra eindregið til að líta á staðreyndir málsins og taka mið af eigin stefnu og afstöðu yfirgnæfandi meirihluta eigin flokksmanna. Telji menn að með því að samþykkja orkupakkann í dag sé mál- ið frá er það mikill misskilningur. Þá væri það fyrst að byrja fyrir alvöru. Sigmundur Davíð Gunn- laugsson Pistill Byggt á stefnu og staðreyndum Höfundur er formaður Miðflokksins. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen SVIÐSLJÓS Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Auðveldlega má draga úrplastnotkun með hugar-farsbreytingu og örlítilliútsjónarsemi. Þetta segir Heiður Magný Herbertsdóttir, for- maður stjórnar árvekniátaksins Plastlaus september sem hófst í gær og mun standa út mánuðinn. Til- gangurinn er að vekja til umhugs- unar um plastnotkun og -úrgang. Árvekniátakið var fyrst haldið 2017 og segir Heiður mikið hafa breyst síðan þá. „Aðaláherslan þá var að minnka notkun plastpoka. Núna, tveimur árum síðar, hefur dregið mikið úr notkun þeirra og nánast allir eru með fjölnota poka í búðum. Þá sjást plaströr varla leng- ur á veitingastöðum og það virðist aukin meðvitund um að minnka plastumbúðir.“ Undanfarin ár hefur mikil vit- undarvakning orðið hér á landi sem annars staðar um skaðsemi plasts. Nýlega bárust t.d. af því fréttir að Forlagið hygðist hætta að pakka bókum sínum inn í plast og var sú ákvörðun tekin út frá umhverfis- sjónarmiðum. Greint hefur verið frá minni plastnotkun í ýmsum atvinnu- greinum og er verslunum óheimilt frá og með deginum í gær að gefa viðskiptavinum burðarpoka. Frá og með 1. janúar 2021 tekur síðan við algert bann við afhendingu burðar- poka úr plasti. Brúsar og margnota pokar Hún segir að innkaup á mat- vöru séu líklega sá þáttur daglegs lífs þar sem einna erfiðast sé að minnka plastnotkun. „Fáar mat- vöruverslanir selja mat án plast- umbúða eða selja þurrvörur í lausu. Það sem er gert er til fyrirmyndar, en við þurfum meira af slíku.“ Heiður segir að með tiltölulega lítilli fyrirhöfn geti hver og einn minnkað plastnotkun sína í daglegu lífi. „Oft má finna sambærilegar vörur sem eru pakkaðar inn í minna plast eða innihalda minna af því. Að vera með vatnsbrúsa í staðinn fyrir að kaupa drykki í plastflöskum get- ur minnkað plastnotkun heilmikið. Líka að vera alltaf með margnota poka meðferðis og afþakka plast á veitingastöðum. Við þurfum t.d. ekk- ert alltaf lok á drykkjarmál og hægt er að vera með fjölnota hnífapör í staðinn fyrir einnota plasthnífapör. Fá má tannkremstöflur og sjampó- stykki og þannig minnka plastnotk- un og í sumum fisk- og kjötversl- unum og ísbúðum er hægt að koma með eigin ílát fyrir vöruna.“ Koma með eigin ílát í búðir Aron Elí Helgason, verslunar- stjóri í fiskverslun Hafsins í Hlíðar- smára, segir að talsvert sé um að fólk komi með eigin ílát eða jafnvel eldföst mót og potta í verslunina þegar það kaupir fisk. „Okkur finnst þetta alveg frábært og fögnum því að fólk skuli vera svona umhverfis- vænt,“ segir Aron Elí, sem segir að sífellt fjölgi þeim sem þetta geri. Svandís Kristinsdóttir, verslunar- stjóri í ísbúðinni Valdísi, tekur í sama streng. „Þegar ég byrjaði að vinna hérna fyrir fjórum árum gerði enginn þetta, en núna koma fleiri með ílát fyrir ísinn. Við myndum alveg vilja sjá meira af þessu,“ segir Svandís. Er hægt að vera plast- laus? „Stutta svarið er nei!“ svarar Heiður. „Margt gæti ekki verið búið til úr öðru en plasti. En Plastlaus september snýst um að vekja til um- hugsunar og minnka notkun á einnota plastumbúðum og -vörum.“ September verði því sem næst plastlaus „Fjölskyldur geta allar sett sér markmið í því að draga úr plastnotkun,“ segir Þórdís V. Þórhallsdóttir, verkefnisstjóri hjá Landsvirkjun, sem er þátt- takandi í framkvæmdahópi Plastlauss september. „Til dæmis má hætta að nota ein- nota rör, kaupa umbúðalausar vörur eftir því sem hægt er, nota tannkremstöflur, plast- lausa svitalyktareyða, þvotta- skeljar, fjölnota bleyjur og stál- rakvélar með rakvélablaði. Sumir velja jafnvel að kaupa í matinn í verslunum þar sem eru kjöt- og fisk- borð og mæta með eig- in ílát. Plastumbúðir eru yfirþyrmandi og eru oft óþarfar og því um að gera fyrir okkur neytendur að vera vak- andi og beita þeim þrýst- ingi sem í valdi okkar er.“ Neytendur séu vakandi PLASTIÐ ER YFIRÞYRMANDI Þórdís V. Þórhallsdóttir Morgunblaðið/Eggert Plast Heiður segir vitundarvakningu hafa orðið um skaðsemi einnota plasts fyrir umhverfið. Í Plastlausum september er vakin athygli á þessu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.