Morgunblaðið - 02.09.2019, Page 13
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. SEPTEMBER 2019
VANTAR ÞIG STARFSFÓLK?
Traust og fagleg
starfsmannaveita
sem þjónað hefur íslenskum
fyrirtækjum í áraraðir
Við útvegum hæfa
starfskrafta í flestar
greinar atvinnulífsins
Suðurlandsbraut 6, Rvk | S. 419 9000 info@handafl.is | handafl.is
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Fellibylurinn Dorian náði inn á land
á Bahamaeyjum kl. 12.40 að staðar-
tíma í gær [16.40 GMT]. Um er að
ræða fimmta stigs fellibyl en sam-
kvæmt mælingum frá bandarísku
fellibyljamiðstöðinni varð Dorian öfl-
ugasti fellibylurinn til að fara inn á
land á svæðinu þegar hann náði inn á
Abaco-eyjar, sem eru hluti Bahama-
eyja. Vindhraði Dorian mældist 82
metrar á sekúndu þegar hann fór inn
á land. Samkvæmt fellibyljamiðstöð-
inni er „hamfaraástand“ á Bahama-
eyjum. „Þetta er örugglega sorgleg-
asti og versti dagur lífs míns til þess
að ávarpa bahameysku þjóðina,“
sagði Hubert Minnis, forsætisráð-
herra Bahamaeyja, á blaðamanna-
fundi. „Við erum að kljást við fellibyl
ólíkan öllum öðrum sem við höfum
séð í sögu Bahamaeyja,“ sagði
Minnis, sem brast í grát á blaða-
mannafundinum.
Samkvæmt fréttaveitu AFP hefur
fimm til sjö metra hátt sjávarflóð
valdið því að Abaco-eyjar eru nær
allar undir vatni. Tilkynnt var í
svæðisútvarpi á Bahamaeyjum um
fólk sem óskaði eftir aðstoð eftir að
þak Island Breeze-hótelsins á
Abaco-eyjum fauk af. Fjölmargir
íbúar Abaco-eyja ákváðu að verða
eftir og sitja af sér storminn þrátt
fyrir að yfirvöld á Bahamaeyjum
hvettu fólk til að yfirgefa svæðið.
Haft er eftir Troy Albury, íbúa á eyj-
unum, í dagblaðinu The Nassau
Guardian að um 150 manns hafi orðið
eftir á Guana Cay, sem er fyrir miðju
Abaco-eyja. Allt rafmagn fór af
svæðinu skömmu áður en stormur-
inn fór inn á land.
Leita skjóls á Pelican Bay
Svíinn Magnus Alnebeck, hótel-
stjóri Pelican Bay-hótelsins á Grand
Bahama, er búinn að byrgja alla
glugga og dyr hótelsins, þar sem
hann mun leita skjóls meðan storm-
urinn ríður yfir. „Við höfum það fínt
eins og er. Við erum í svona fjögurra
tíma akstri frá miðju stormsins sem
er að fara yfir Bahamaeyjar. Það eru
svona 80 til 90 kílómetrar í Dorian.
Það er hins vegar mjög mikill vindur
hérna og mikill öldugangur,“ sagði
Alnebeck þegar Morgunblaðið
ræddi við hann í gærkvöldi. Hann
segir að allir ferðamenn hafi verið
sendir heim af eyjunni. „Hér eru
bara heimamenn núna og þeir utan-
aðkomandi einstaklingar sem þurfa
að vera hérna, t.d. vegna þess að þeir
eru með skip í höfninni. Annars hef-
ur eyjunni í raun bara verið lokað.“
Allir starfsmenn Pelican Bay voru
sendir heim en ákveðinn hópur
starfsmanna var beðinn um að vera
eftir til að gæta hótelsins. „Megin-
markmið okkar eftir storminn er
auðvitað að gera hótelið aftur starf-
hæft sem fyrst,“ segir Alnebeck.
Stálplötur fyrir öllum gluggum
Spurður hvernig aðstaðan á hótel-
inu sé segir hann það frekar öruggt.
„Við erum búin að setja upp stál-
plötur fyrir öllum gluggum og erum
með sandpoka fyrir öllum dyrum. Þá
erum við með birgðir fyrir næstu 30
klukkutímana.“
Hann segir að flestir á Bahama-
eyjum séu skiljanlega áhyggjufullir
um þessar mundir, þá sérstaklega
þeir sem eiga veika eða aldraða ætt-
ingja. „Þetta er samt með einhverj-
um hætti hluti af því að búa hérna.
Við búum í paradís megnið af tím-
anum en svo á nokkurra ára fresti
fáum við fellibyl yfir okkur og við
þurfum að sætta okkur við það að lífi
okkar sé snúið á hvolf,“ segir Alne-
beck yfirvegaður.
Ásamt starfsfólkinu og fjölskyld-
um þeirra verða Dunya Alnebeck,
eiginkona Magnusar, og hundarnir
þeirra tveir á hótelinu næsta sólar-
hring. Hann sagðist ekki hafa fengið
fregnir í gærkvöldi frá fréttamiðlum
á Bahamaeyjum um alvarleg slys
eða andlát af völdum fellibylsins enn
sem komið er. „Ég vona bara að allir
hafi hlustað á ráð yfirvalda og haldið
sig innandyra. Því þrátt fyrir að þök
og fleira geti fokið ættu flestir að ná
að sitja af sér fellibylinn ef þeir loka
sig inni á öruggum stöðum,“ segir
Alnebeck.
Hamfarir á Bahamaeyjum
Fellibylurinn Dorian gengur nú yfir Bahamaeyjar Vindhraði yfir 82 m/s
Kröftugasti fellibylur svæðisins sem fer inn á land frá því að mælingar hófust
mbl.is/Lyndah Wells
Höfuðborgin Mikill vindur og sjávarflóð af völdum fellibylsins Dorian hefur fleytt sandi frá ströndum upp á nálæga
vegi í höfuðborginni Nassau. Fellibylurinn heldur áfram að herja á Bahamaeyjar í dag áður en það fer að lægja.
AFP
Pelican Bay-hótelið Stálplötum hefur verið komið fyrir í öllum gluggum
hótelsins. Athugist að myndin er tekin áður en stormurinn náði til lands.
Forseti Þýskalands, Frank-Walter
Steinmeier, bað Pólverja fyrirgefn-
ingar vegna síðari heimsstyrjaldar-
innar við minningarathöfn í Póllandi
í gær. Innrás Þjóðverja í Pólland
markaði upphaf styrjaldarinnar.
„Ég lýt höfði fyrir pólskum fórnar-
lömbum þýsku harðstjórnarinnar.
Og ég bið um fyrirgefningu ykkar,“
sagði Steinmeier á þýsku og pólsku.
Minningarathöfnin fór fram í
bænum Wielun, þar sem loftárásir
Þjóðverja hófust fyrir 80 árum. Talið
er að um 70 til 85 milljónir manna
hafi farist í stríðinu, sem er það
mannskæðasta í sögunni. Um það bil
sex milljónir Pólverja létu lífið í
stríðinu. Um helmingur af þeim sex
milljónum gyðinga sem létu lífið í
stríðinu voru Pólverjar.
Grimmdarverk og stríðsglæpur
Andrzej Druda, forseti Póllands,
sagði árásir nasista í styrjöldinni
grimmdarverk og stríðsglæp.
„Ég er handviss um að þessi minn-
ingarathöfn muni styrkja vinabönd
pólsku og þýsku þjóðarinnar,“ sagði
hann jafnframt og þakkaði Stein-
meier fyrir að vera viðstaddur. Alls
voru 250 þjóðhöfðingjar og ráð-
herrar í Póllandi vegna tímamót-
anna, þ. á m. Guðni Th. Jóhannesson,
forseti Íslands, sem var við fjöl-
menna minningarathöfn í Varsjá.
Pólverjar vilja fá bætur
Þrátt fyrir að um 80 ár séu liðin
frá innrásinni í Pólland eru enn óút-
kljáð mál milli þjóðanna tveggja.
Pólska ríkið telur að Þjóðverjar
skuldi þeim bætur vegna stríðsins.
Þingnefnd í Póllandi vinnur nú að því
að greina heildarkostnað á því tjóni
sem stríðið olli. Á fréttaveitunni
AFP kemur hins vegar fram að yfir-
völd í Þýskalandi telji öllum bóta-
málum vegna heimsstyrjaldarinnar
vera lokið. mhj@mbl.is
Bað Pólverja
fyrirgefningar
80 ár liðin frá upphafi stríðsins
AFP
Stríð Steinmeier (t.v.) og Druda
(t.h.) minnast fornarlamba stríðsins.
Stjórnmálaflokkurinn Alternative
für Deutschland (AfD) bætti við sig
miklu fylgi í sambandslandskosn-
ingum í Þýskalandi í gær. Íbúar í
tveimur austurþýskum sambands-
löndum, Saxlandi og Brandenborg,
gengu til kosninga í gær en AfD
bætti við sig 18,4% í Saxlandi og
12,3% í Brandenborg. Fylgi AfD er
því 27,8% og 23,7% í Brandenborg
eftir kosningarnar í gær.
Stóru flokkarnir tapa fylgi
Í hvorugu sambandslandinu nýt-
ur AfD þó mests fylgis. Í Saxlandi
eru Kristilegir demókratar, CDU,
flokkur Angelu Merkel, með 33,1%
fylgi. Flokkurinn tapaði þó 6,3%
frá síðustu kosningum. Í Branden-
borg eru sósíaldemókratar, SPD,
enn efstir, með 26,6%, en hafa þó
tapað 5,3%. AfD fylgir fast á hæla
þessara flokka með næstmesta
fylgið í báðum sambandslönd-
unum.
„AfD er sigurvegari þessara
kosninga. Dagurinn í dag er sögu-
legur: Flokknum okkar hefur tek-
ist að veikja stoðir höfuðstöðva
kristilegra demókrata í Saxlandi,“
sagði Jörg Urban, leiðtogi AfD í
Saxlandi.
Ólíklega á leið í stjórn
Þrátt fyrir afgerandi fylgisaukn-
ingu er AfD líklega ekki á leiðinni
í stjórn, enda flestir flokkar búnir
að sverja af sér samstarf við flokk-
inn fyrir kosningarnar. Hefð-
bundnu flokkarnir, CDU og SPD,
mynda ríkisstjórn Þýskalands og
hafa gert áratugum saman. Afhroð
í þessum kosningum hefði getað
teflt stjórnarsamstarfinu í tvísýnu.
Flokkarnir héldu þó velli, segir á
fréttavef Bloomberg.
AfD vinnur kosninga-
sigur í Þýskalandi
KOSNINGAR Í ÞÝSKALANDI
Kosið Jörg Urban (f.m.) að fylgjast
með kosninganiðurstöðunni.