Morgunblaðið - 02.09.2019, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 02.09.2019, Blaðsíða 16
16 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. SEPTEMBER 2019 Ef einhver heldur í al- vöru, að þessi læti í yfir- völdum ESB út af makr- ílnum sé af því, að þeir ætli í raun, að við séum óábyrg í fiskveiðistjórn- un okkar á þeim sviðum eða þá vegna viðskipta okkar við Rússa, þá er ég hrædd um, að þeim skjátlist hrapallega, því að þetta kemur þeim málum sáralítið við, enda vita þeir betur, ef grannt er skoðað. Yfirmenn ESB fylgjast mjög vel með málum hér á landi, og sérstaklega, hvernig orkupökkunum reiðir af. Þeir sjá, hvaða ólgu og misklíð manna og flokka í milli málið vekur, og sjá sér leik á borði. Ef yfirstjórnin í Brussel veit ekki, hvernig best er hægt að hóta okkur öllu hinu versta, ef þjóðin kokgleypir ekki alla orkupakkana í einum bita, og þeir geta líka fengið sæstreng héðan til sín, þá vita Norð- menn nákvæmlega, hvernig hægt er að fá okkur til þess, Bretar sömuleið- is, enda reynslunni ríkari eftir þorskastríðin. Norðmenn vita líkt og aðrar frændþjóðir okkar á Norður- löndum, hversu mjög fiskur og fisk- veiðar skipta okkur miklu máli, og að allur okkar þjóðarhagur hefur fyrr og síðar byggst á góðri afkomu í fisk- veiðum og sölu fiskafurða. Þó að þeir hafi viðskiptin við Rússa að yfirskini þess, að þeir séu nú að hóta okkur öllu hinu versta varðandi makrílinn, þá eru þeir í rauninni að segja, að ef við hundskumst ekki til að samþykkja og kokgleypa orkupakkana og látum leggja sæstreng frá okkur til þeirra umbúða- og möglunarlaust, þá skul- um við sko fá það ærlega borgað með málaferlum og öðru álíka geðslegu vegna makrílkvótasetningar og -veiða. Hananú, hafið það! Stífnin í þessum afkomendum norskra víkinga hér norður í ballarhafi! Það er ekki að sökum að spyrja. Eða hvað annað gæti legið til grundvallar því, að þetta makrílmál skýtur upp kollinum einmitt núna á þessum tímapunkti, sem allt er á suðupunkti með- al þjóðarinnar út af orku- pakka 3? Ef einhver heldur, að það sé einhver tilviljun, þá fer því fjarri. En að ein helsta frænd- þjóð okkar, Norðmenn, sem hafa vel að merkja þrisvar eða fjórum sinn- um fellt umsókn um aðild að ESB, skuli haga sér svona við okkur, er hins vegar undr- unarefni. Hvers vegna ættum við að vilja tengjast orkumarkaði ESB, þjóð hér langt norður í ballarhafi, þó að við séum að vísu tengd EES-samningn- um? Hvað eru Norðmenn eiginlega að hugsa að skipta sér með svo afgerandi hætti af okkar innanríkismálum, og að beita sér með þessum hætti móti frændþjóðinni í norðri? Ég verð að segja alveg eins og er, að ég skil ekki tilganginn. Mér finnst, að þeir ættu nú manna best að skilja, að við viljum vera óháð þeim markaði, og eigum ekkert erindi á slíkan markað heldur, nema þeir taki því svo, að við séum ennþá umsóknarþjóð um aðild að ESB, og séu þá sömu skoðunar og einhverjir á skrifstofu ESB, þar sem enginn hafði fulla rænu á því í þeim ríkisstjórnum, sem eftir ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur komu, að kveða skýrt og skorinort á um það, að við drægjum umsóknina til baka, og bréfið þess efnis hafi verið túlkað á annan hátt en við ætluðumst til, enda kannski ekki þannig orðað, að tekin væru af öll tvímæli um, að við vildum ekki vera umsóknarþjóð lengur. Hins vegar er það nú svo með komissarana í ESB, að þeir skilja bréf til þeirra slíks efnis, eins og þeim þóknast sjálf- um, viðurkenna jafnvel ekki né taka það gilt, sem kemur frá slíku ríki, enda muni sá dagur koma, að sú rík- isstjórn snúi aftur, sem vill, að Ísland gerist aðili að ESB, og sé því ekkert að taka slík bréf alltof alvarlega og haga sér þvi við okkur í samræmi við það. Mér sýnist margt benda til þess, að svo sé. Yfirvöldin minna mig á gamlan skólastjóra í Hagaskóla forðum, sem hafði alltaf að orðtaki til að undir- strika vald sitt: Hér er það ég, sem ræð. Það er nákvæmlega það, sem ESB er að láta okkur vita, að jafnvel þótt við séum ennþá bara tengd þeim í gegnum EES-samninginn, þá séu það þeir, sem ráði, en okkar sé að bukta okkur og beygja fyrir valdinu og segja já og amen við öllu, sem frá Brussel kemur. Við ættum nú ekki annað eftir, segi ég. Þjóðin hefur sýnt og sannað annað, og þarf ekki annað en minnast á Icesave í þeim efnum. Norðmenn eru varla búnir að gleyma því, að við erum afkomendur norskra víkinga, sem flúðu frekju og yfirgang Haraldar hárfagra forðum tíð og kusu að vera frjálsir bændur hér á Ís- landi. Svo að þessum frændum okkar ferst eða hitt þó, eins og ESB-vald- inu, segi ég nú bara, að hóta okkur öllu hinu versta, ef við samþykkjum ekki ófrelsið og valdaframsalið gegn- um orkupakkana. Þeir ættu að þekkja okkur betur en svo, enda skapferli víkinganna enn í flestum okkar eftir rúm þúsund ár. Þótt ein- hverjar gungur á Alþingi þori ekki að mæla í móti skipunum ESB, sem yf- irvöldin þar eru að reyna að hræða enn meira til fylgni við málefni sín, þá er meginþorri okkar fullvalda þjóðar með víkingablóðið í sér og vill engar skipanir frá yfirvöldum, sem hafa ekkert um okkar innri málefni að segja. Svo einfalt er það mál. Orkupakkana í þjóðaratkvæði – ekki spurning. Komum okkur svo út úr þessari EES-vitleysu sem fyrst, eins og hún er orðin í dag. Annað er óverjandi. Eftir Guðbjörgu Snót Jónsdóttur Guðbjörg Snót Jónsdóttir » Orkupakkana í þjóðaratkvæði – ekki spurning. Höfundur er guðfræðingur, fræðimaður og félagi í Heimssýn. Makríllinn og orkupakkarnir Bæði núverandi og fyrrverandi samgöngu- ráðherra telja æskilegt að hefja framkvæmdir við Sundabraut fyrr en seinna. Rætt hefur ver- ið um veggjöld á Sundabraut og einnig um einkaframkvæmd, eins og Hvalfjarðar- göng á sínum tíma. Eins og kunnugt er hefur meirihluti borgarstjórnar mjög takmarkaðan áhuga á Sunda- braut og hefur á síðustu árum staðið í deilum við ríkisvaldið um legu brautarinnar og tafið þannig fyrir undirbúningi framkvæmda. Nú virð- ist þó vera að rofa til og aðilar farnir að tala saman í alvöru. Full ástæða er til bjartsýni um að samkomulag náist á næstunni. Veggjald á Sundabraut Ætla má að kostnaður við Sunda- braut verði um eða yfir 50 milljarðar kr. Á móti sparast kostnaður við mis- læg gatnamót o.fl. á Vesturlandsvegi milli Víkurvegar og Sundabrautar. Nettókostnaður við Sundabraut yrði því e.t.v. ekki meiri en 30-40 millj- arðar kr. Þetta er þó það há upphæð að ekki er raunhæft að reikna með að framkvæmdir við Sundabraut kom- ist inn á samgönguáætlun á næstu árum nema þær verði fjármagnaðar að mestu eða öllu leyti með veg- gjöldum. Ég tel að þeir sem fengju í staðinn umtalsverða styttingu akst- ursvegalengdar myndu flestir sætta sig við að greiða veggjald. Enginn verður tilneyddur að aka Sunda- braut. Allir hafa þann valkost að aka um Vesturlandsveg í gegnum Mos- fellsbæ. Fjármögnun borgarlínu Ríkisvaldið og sveitarfélögin á höf- uðborgarsvæðinu hafa nýlega sam- þykkt að leggja til 1,5 milljarða til undirbúnings og fyrstu framkvæmda við borgarlínuna. Í gildandi sam- gönguáætlun 2019-2033 er ekki gert ráð fyrir frekari fjárveitingum úr ríkissjóði til framkvæmda við Borg- arlínu. Auk þess eru framkvæmdir við Miklubraut í stokk í Hlíðahverfi og Hafnarfjarðarveg í stokk milli Vífilsstaðavegar og Engidals aðeins að hálfu leyti fjármagnaðar í sam- gönguáætlun. Á næstu mánuðum er von á til- lögum starfshóps um hvernig megi fjármagna það sem á vantar og hvernig kostnaðurinn skiptist milli sveitarfélaganna og ríkissjóðs. Rætt hefur verið um að hluti af framlögum sveitarfélaganna verði innviðagjöld, sem lögð verði á nýjar íbúðir í grennd við samgönguása borgarlín- unnar. Þau gjöld munu hrökkva skammt til að fjármagna rándýra borgarlínu. Ljóst er að innheimta verður ný gjöld af umferð innan höf- uðborgarsvæðisins, annaðhvort í formi veggjalda af tilteknum fram- kvæmdum, svo sem stokkum og brúm, og/eða í formi notkunargjalda, t.d. svokallaðra tafa- og meng- unargjalda sem tekið gætu mið af annatímum, útblæstri ökutækja o.fl. Tafagjöld eru óvinsæl Borgarstjóri sagði í umræðunni um fyrir- huguð veggjöld á höfuðborgarsvæðinu að veggjöld væru algeng í borgum erlendis. Það má til sanns vegar færa, ef átt er við veg- gjöld fyrir akstur um einstök mannvirki í borgum, t.d. dýr veggöng eða vegbrýr. Hins vegar eru tafagjöld (e. congestion charges) sem sett eru í hring(i) um afmarkaða borgarhluta mjög sjaldgæf og í flest- um tilvikum hefur þeim aðeins verið komið á í stórborgum. Tafagjöld eru óvinsæl, einfaldlega vegna þess að þau þurfa að vera há til þess að ná megintilgangi sínum sem er að draga úr bílaumferð á álagstíma. Fyrir nokkrum árum voru í Nor- egi stofnuð samtök sem eru á móti veggjöldum. Þau buðu fram til borg- arstjórnarkosninga í Stavanger og fengu þrjá fulltrúa í borgarstjórn. Þegar veggjöld á Stavangersvæðinu voru hækkuð um 100% á álagstíma umferðar sl. haust, og þar með sett á tafagjöld, þá kallaði það á hávær mótmæli. Skemmdarverk voru unnin á gjaldtökustöðvum. Núna í septem- ber verða kosningar til sveitar- stjórna og fylkja í Noregi og þá verð- ur spennandi að sjá framgang þessara samtaka á móti veggjöldum. Tafagjöld eru óþörf Hin rándýra borgarlína mun kosta a.m.k. 100 milljarða kr. Ég hef áður bent á möguleikann á ódýru hrað- vagnakerfi sem myndi í mesta lagi kosta um 30% af kostnaði við Borgarlínu, en myndi þó gera næst- um sama gagn. Þannig mætti spara a.m.k. 70 milljarða eða 1 stk. nýjan Landspítala. Það er glórulaust að eyða 70+ milljörðum til þess að bíla- umferð verði aðeins um 1% minni en ella. Áætlaður kostnaður við upp- byggingu innviða fyrir Borgarlínu til ársins 2033 er 42 milljarðar. Ef ódýrt hraðvagnakerfi yrði fyrir valinu, þá myndi aðeins vanta um 13 milljarða í fjármögnun borgarlínu til ársins 2033. Það mætti þá auðveldlega fjár- magna ódýra hraðvagnakerfið og ofangreinda vegstokka með annars vegar innviðagjöldum og hins vegar hóflegum veggjöldum á umferð um vegstokkana. Þeir sem ekki myndu vilja greiða gjald fyrir að aka um til- tekinn stokk gætu valið sér aðra leið. Veggjöld á höfuð- borgarsvæðinu? Eftir Þórarin Hjaltason » Tafagjöld eru óvin- sæl, einfaldlega vegna þess að þau þurfa að vera há til þess að ná megintilgangi sínum, sem er að draga úr bíla- umferð á álagstíma. Þórarinn Hjaltason Höfundur er umferðarverkfræðingur og MBA. thjaltason@gmail.com Í samfélagi okkar finnst mörgum það vera sjálfsagt að börn séu áhyggjulaus, geti notið bernskunnar og hlakkað til ýmissa viðburða í líf- inu. Úr miklu er að velja: af mat, fatnaði, leik- föngum eða öðru afþrey- ingarefni. En slíkar alls- nægtir hafa ekki allir. Á Íslandi er fólk, barnafólk sem býr við viðvarandi skort á nauðsynjum, hvað sem öllu tali um góða fjárhagsstöðu samfélags- ins líður og að borgin skili hagnaði. Einhverjir kunna að segja að hrunið heyri sögunni til og kannski er það rétt að einhverju leyti. Engu að síður verður sumt fólk aldrei aftur samt, slík voru slæm áhrif hrunsins á fjölda manns. Framboð húsnæðis er vissulega að aukast en leiga er enn há, jafnvel allt að 80% af tekjum þeirra lægst laun- uðu. Fátækt á sér ýmsar orsakir, samfélagslegar, félagslegar og per- sónulegar. Sumir glíma við fátækt sem rekja má til einskærrar óheppni, hafa hreinlega verið á röngum stað á röngum tíma eða verið fórnarlömb svika eða ranglætis með þeim afleið- ingum að sjálfstraustið bíður skaða og er fótunum þar með kippt undan þeim. Fátækt er þó oftast afleiðing og fylgifiskur ýmiss konar vanda og samspils vandamála t.d. líkamlegra og/eða geðrænna veikinda með eða án fíknivanda eða fjárhagsvanda. Veik- indi spyrja hvorki um stétt né stöðu. Börn sem búa við fátækt finna til, oft á hverjum degi. Þau skynja fjár- hagsáhyggjur foreldra sinna og taka inn á sig vandamál þeirra. Tilhlökkun og eftirvænt- ingu er skipt út fyrir kvíða og ótta. Þau reyna að halda væntingum í lág- marki, þá verða von- brigðin minni. Ekki öll börn hafa greiðan aðgang að skólamat eða frístunda- starfi og aðgengi að fag- fólki er ábótavant. Við vit- um að samtal við aðila sem hlustar, veitir ráðgjöf og handleiðslu getur skipt sköpum í lífi barns. Þjónusta við börn skal í forgang Þorp þarf til að ala upp barn, segir máltækið. Það sama á við um borg. Það þarf borg til að ala upp barn og þjónusta sem borgin veitir á að vera sniðin að þörfum barnanna óháð fjár- hag foreldra eða getu þeirra sjálfra. Það er engin borg án barna. Það er skylda stjórnvalda að skapa samfélag þar sem börnum og ungmennum líður vel, þau geti sótt skóla þar sem styrk- leikar þeirra fái notið sín og þar sem þau finna sig meðal jafningja. Stjórn- völdum ber að tryggja að öll börn hafi greiðan aðgang að félags- og tóm- stundastarfi til að þroska og næra áhugamál sín. Íslenskt samfélag er ríkt af fagfólki og ber okkur að tryggja að börn hafi jafnan aðgang að þeim. Það er erfitt að eiga barn sem glímir við vanlíðan og vandamál sem rekja má til að- stæðna og/eða vitsmuna-, félags- og/ eða tilfinningalegra erfiðleika. Löng bið er eftir að komast að hjá fagaðila hjá ríki eða borg. Hver vika sem barn bíður eftir aðstoð hefur neikvæð áhrif á líðan þess. Börn eiga aldrei að þurfa að bíða eftir aðstoð. Málefni sem snúa að börnum eiga ekki að vera pólitísk. Verndandi þættir Verndarar barna eru fyrst og fremst þeirra nánustu en einnig allir hinir sem umgangast þau. Ættingjar, nágrannar, kennarar og þjálfarar hafa ríkt hlutverk og ábyrgð gagn- vart börnum sem þeir sinna og leið- beina. Tilfinningatengsl barns við einhverja utan heimilis geta skipt sköpum, verið akkeri og haldreipi, styrkur og stuðningur ef vandi ríkir á heimilinu. Okkur ber að vera meðvituð um líðan og aðbúnað, ekki eingöngu okk- ar barna, heldur allra barna sem verða á vegi okkar, barna vina okkar og vina barna okkar, bekkjarfélaga þeirra og jafnvel barna samstarfs- félaga og nágranna okkar. Ef við höf- um áhyggjur af einhverju þessara barna þá þarf að spyrja: „Hvað get ég gert í stöðunni sem gagnast þessu barni?“ Ábyrgð, meðvitund og stund- um þor er það sem þarf til að stíga inn í aðstæður eða atburðarás ef óttast er að hagsmunum barns sé ábótavant eða þær séu ekki boðlegar því. Séu áhyggjur af eða grunur um að barn sé vanrækt eða það beitt ofbeldi af ein- hverju tagi ber okkur skylda til að til- kynna málið til viðkomandi barna- verndarnefndar. Alla vega ef við verðum þess áskynja að barn býr við óviðunandi aðstæður er aðeins eitt sem ekki má gera og það er að gera ekki neitt. Borg elur barn Eftir Kolbrúnu Baldursdóttur Kolbrún Baldursdóttir » Sumir glíma við fá- tækt sem rekja má til einskærrar óheppni, hafa hreinlega verið á röngum stað á röngum tíma eða verið fórnarlömb svika eða ranglætis. Höfundur er sálfræðingur og borgarfulltrúi Flokks fólksins. Þarftu að láta gera við? FINNA.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.