Morgunblaðið - 02.09.2019, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 02.09.2019, Blaðsíða 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. SEPTEMBER 2019 ✝ Ragnar S. Hall-dórsson fædd- ist í Reykjavík 1. september 1929. Hann lést á 7. ágúst 2019 á Landspít- alanum í Fossvogi. Foreldrar hans voru Halldór Stef- ánsson alþingis- maður og forstjóri, f. 26. maí 1877, d. 1. apríl 1971, og Hall- dóra Sigfúsdóttir húsfreyja, f. 26. júní 1909, d. 16. apríl 2002. Systir Ragnars er Herborg Hall- dóra, f. 10. september 1933, gift Hreggviði Þorgeirssyni, f. 8. september 1935. Hálfsystkini Ragnars sem Halldór átti með fyrr konu sinni Björgu Halldórs- dóttur, öll látin, voru Ragnhild- ur Björg, f. 1902, Arnbjörg, f. 1903, Stefán, f. 1905, Halldór, f. 1907, og Pétur Stefán, f. 1911. Ragnar giftist eftirlifandi eiginkonu sinni Margréti K. Sigurðardóttur viðskiptafræð- ingi 11. september 1953. For- eldrar hennar voru Sigurður J. Þorsteinsson, f. 10. maí 1901, d. 16. apríl 1946, og Kristín janúar 1991. 3) Sigurður Ragnar byggingaverkfræðingur, f. 10. júní 1965. Eiginkona hans var Kristín Magnúsdóttir viðskipta- fræðingur, f. 12. júní 1963. Börn þeirra eru: a) Bjarki Már, þrí- víddar- og leikjahönnuður, f. 10. nóvember 1996, og b) Margrét Eva, nemi í rekstrarverkfræði, f. 17. október 1999. Þau skildu. Nú- verandi maki Sigurðar er Þórdís Kjartansdóttir læknir, f. 19. júní 1965. Barn þeirra er c) Þórdís Lára, f. 19. nóvember 2013. Börn Þórdísar frá fyrra hjónabandi eru Hjalti markaðsfræðingur, f. 6. júní 1991, og Kjartan, nemi í hagnýtri stærðfræði, f. 13. febr- úar 1996. 4) Margrét Dóra, staf- rænn hönnunarleiðtogi, f. 8. apr- íl 1974. Eiginmaður hennar er Hjálmar Gíslason frumkvöðull, f. 30. janúar 1976. Sonur þeirra er Ómar Hugi, f. 5. júlí 2011. Ragnar ólst upp í Reykjavík. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík ár- ið 1950, fyrrihlutaprófi í bygg- ingaverkfræði frá Háskóla Ís- lands og síðarihlutaprófi frá danska tækniháskólanum í Kaupmannahöfn 1956. Það sama ár hóf hann störf hjá Bandaríkja- her á Keflavíkurflugvelli og var yfirverkfræðingur og síðar framkvæmdastjóri verkfræði- deildar sjóhersins. Árið 1966 fór Ragnar til starfa hjá Alusuisse í Austurríki og Sviss og tók við starfi forstjóra ÍSAL í Straums- vík 1969. Því starfi gegndi Ragn- ar til ársins 1988 en þá tók hann við stjórnarformennsku fyrir- tækisins. Ragnar mótaði og lagði grunn að uppbyggingu og starfs- háttum stóriðju á Íslandi, enda var álverið í Straumsvík hið fyrsta sinnar tegundar á landinu. Um dagana gegndi Ragnar fjöl- mörgum félags- og trúnaðar- störfum. Hann var í stjórn Stjórnunarfélags Íslands og for- maður þess á 8. áratugnum. Hann átti sæti í stjórn Verkfræð- ingafélags Íslands í nokkur ár og var formaður þess um skeið, var lengi í forystusveit Verslunar- ráðs Íslands og formaður þess 1982-1986. Ragnar var einn af stofnendum landsskrifstofu Al- þjóðaviðskiptaráðsins árið 1993 og sat í stjórn þess í áratug. Þá var Ragnar lengi í framkvæmda- stjórn Vinnuveitendasambands Íslands auk þess að sitja í stjórn- um fjölda fyrirtækja og félaga og sem dæmi má nefna Pólar, Rót- arýklúbb Reykjavíkur og Hjarta- vernd. Ragnari var veitt heiðurs- merki Verkfræðingafélags Ís- lands 1998 og var útnefndur heiðursfélagi Verslunarráðs Ís- lands 2012. Útför Ragnars fer fram frá Hallgrímskirkju í dag, 2. septem- ber 2019, og hefst athöfnin klukkan 13. Hannesdóttir, f. 12. júlí 1899, d. 17. maí 1992. Börn Ragnars og Margrétar eru: 1) Kristín Vala jarð- efna- og sjálfbærni- fræðingur, f. 27. mars 1954. Eigin- maður var Bernard J. Wood, f. 10. maí. 1948. Börn þeirra eru: a) Tómas Ragn- ar læknir og lífeðlis- fræðingur, f. 6. september 1984, giftur Elizabeth Nance efnaverk- fræðingi, f. 21. febrúar 1985, og b) Katrín Margrét klínískur sál- fræðingur, f. 28. desember 1986. Þau skildu. Seinni maður Krist- ínar Völu var Harald U. Sverd- rup, f. 31 janúar 1954. Þau skildu. Kristín Vala á átta stjúp- börn og fjögur stjúpbarnabörn. 2) Halldór Páll byggingaverk- fræðingur f. 28. maí 1955, kvænt- ur Jóhönnu Huldu Jónsdóttur efnaverkfræðingi og viðskipta- fræðingi f. 1. nóvember 1957. Synir þeirra eru: a) Matthías Ragnar byggingaverkfræðingur, f. 23. janúar 1989, og b) Stefán Jón samskiptafræðingur f. 21. Það er höggvið stórt skarð í fjölskylduna þegar pabbi fer. Hann var líka stórmenni. Hávax- inn og herðabreiður en líka mikill persónuleiki. Hann hló hátt og barði í borðið til að leggja áherslu á mál sitt. Hann hafði sterkar skoðanir og innilega sannfæringu. Hann hefði orðið níræður í gær, 1. september og var því fjölskyldan sem býr erlendis á leið til landsins til að halda upp á stórafmælið. Í staðinn heiðrum við nú minningu pabba. Pabbi var maður framkvæmda, hann var alltaf á fullu. Við munum eftir honum sem uppteknum föður með lítinn tíma fyrir fjölskylduna. Enda var fjölskyldan yfirráða- svæði mömmu. Þegar hann var ekki að vinna var hann á stjórn- arfundum eða að spila bridds. Af og til gafst þó tími til að spila við okkur og það dró aldrei úr spila- gleði pabba að taka slag og vinna. Jafnvel fram á það allra síðasta. Svo var farið í sunnudagsbíl- túra í Sædýrasafnið eða út í busk- ann, þar sem nær hver brú sem farið var yfir var eins og brúin sem hann teiknaði sem lokaverkefni í verkfræðinni, eða svo sagði hann okkur! Pabbi hafði unun af því að keyra og var mikill bíladellukarl. Ekki var nóg að aka greitt á göt- um bæjarins og nágrennis heldur var fengin frekari útrás í ralli þar sem þeyst var um fjallvegi lands- ins á Austin Mini. Sigurður fékk að fara á eina æfingu og var það næsta sem hann hefur komist himnaríki hingað til. Einnig var keppt í akstri á ís en keppnin fólst í því að spóla í sem flesta hringi með tilþrifum. Þá kom sér vel að eiga kraftmikinn, afturhjóladrifinn BMW á ónegldum dekkjum, en pabbi ók helst ekki um á öðru. Enda vann hann keppnina með yfirburðum. Pabbi var líka einn fárra sem gátu lagt upp við kant með 180 gráðu handbremsu- beygju. Milli bíla. Þegar hann var kominn yfir sjötugt. Ef eitthvað hægði á í kringum hann braust framkvæmdagleðin fram í að hann fann sér alltaf eitt- hvert verkefni. Hvort sem það var að taka til í herbergi Möggu Dóru og losa hana við eitthvert „drasl“ (t.d. lúna uppáhaldsbangsann) eða byggja kassabíla fyrir barna- börnin. Hann var í essinu sínu þegar hann var að leysa eitthvert vandamál. Og hann vildi allt fyrir okkur gera. Þess vegna var ágætt að skilja ekki skólaverkefni eftir á glámbekk. Jafnvel yfirfarin verk- efni sem var búið að gefa einkunn fyrir fékk maður vandlega útkrot- uð með ábendingum um hvað mætti betur fara. Pabbi ætlaðist líka til þess að við stæðum okkur. Þegar Vala kom stolt heim með 9,11 í aðal- einkunn í 11 ára bekk spurði hann hve margir hefðu verið fyrir ofan hana! En hann var ekki ósann- gjarn ef hlutir gengu ekki sem skyldi. Hann vildi hvetja okkur áfram og kenna okkur að taka á áföllum á leiðinni. Halldór minnist þess að hann fékk ýmis heilræði frá pabba, þar á meðal „ef þú ekki trúir á sjálfan þig, hver á þá að gera það?“ Pabbi var stoltur af börnunum sínum og bæði undr- aðist og dáðist á efri árum að því hve vel okkur öllum hefði farnast í lífinu. Hann var einnig montinn af barnabörnum og fylgdist með þeirra árangri í námi og störfum. Að því búum við öll. Pabbi lifir í minningu okkar. Kristín Vala, Halldór, Sigurður og Margrét Dóra. Tengdafaðir minn, Ragnar S. Halldórsson, er látinn. Ragnar var mikill maður, í öllum skilningi þeirra orða. Þegar ég kynntist Ragnari hafði hann að mestu lokið sínum starfsferli sem var langur og merkilegur. Ég held að það sé óhætt að segja að Ragnar hafi verið meðal þeirra manna sem fluttu nútímann til Íslands á síðari hluta seinustu aldar. Auk starf- anna hjá ÍSAL var hann meðal frumkvöðla í verðbréfaviðskipt- um, hvatamaður að stofnun Há- skólans í Reykjavík og kom að stofnun, fjármögnun og stjórnun fjölmargra fyrirtækja, stórra og smárra. Ragnar var boðinn og búinn að hjálpa og laga, ekki síst með aukn- um frítíma. Þegar ég stofnaði mitt fyrsta fyrirtæki og vildi fá þangað nettengingu voru svörin þau að bið eftir slíku væri að lágmarki sex vikur. Ragnar fékk veður af þessu og morguninn eftir sótti hann mig snemma og gekk með mig á fund Þórarins V. sem þá var forstjóri Landssímans. Tauga- trekktur gat unglingurinn ég rétt stamað upp úr mér hvers kyns var. Ragnar og Þórarinn skiptust svo á nokkrum gamansögum og seinna sama dag var komin blúss- andi nettenging í fyrirtækið. Í annað skipti var ég á leiðinni á mikilvægan fund að morgni dags. Ég vakna fyrir allar aldir til að hafa mig til og hef rakstur. Þar sem ég stend yfir vaskinum og renni klippunum í gegnum hárið gefa klippurnar sig. Þarna stend ég með eina rönd rakaða yfir miðj- an skallann og er ekki skemmt, síst miðað við skellihlæjandi Möggu Dóru. Hún skýst í símann og nær á pabba sinn áður en hann fer í morgunsundið. Fimm mínút- um síðar er álskallinn sjálfur mættur inn á baðherbergisgólf heima hjá okkur með allar græjur til að ég geti lokið verkinu og látið taka mig alvarlega, enda eðli málsins samkvæmt vel græjaður til slíkra verka. Á sunnudögum réðum við krossgátuna saman. Ragnar var margfróður og oftar en ekki var svo gripið til ýmissa uppflettirita en af þeim var gnægð á heimili Ragnars og Margrétar. Við Magga Dóra sáum svo um það sem netið gat hjálpað við. Þessi samvinna skilaði góðum árangri. Þau voru ófá símtölin frá Ragnari þar sem á mánudegi hann hringdi sigri hrósandi með orðið sem upp á vantaði og gátuna klára. Ragnar var mikill sögumaður, og átti margar og merkilegar sög- ur. Sagnastíll hans var þannig að yfirleitt voru margar hliðarsögur og útúrdúrar. Oft þurfti að fletta upp í samtíðarmönnum svo að örugglega væri rétt farið með ætt- erni eða ártöl og stundum lauk ekki endilega þeirri sögu sem lagt var upp með. Það kom þó ekki að sök, hún var þá bara börnuð sem hliðarsaga í annarri frásögn síðar. Síðustu árin var heilsu Ragnars farið að hraka. Hugurinn gaf eftir á undan líkamanum og að minnsta kosti einu sinni hélt ég að ég hefði kvatt Ragnar í hinsta sinn, en þessi stóri sterki maður stóð alltaf upp aftur. Smám saman gaf skrokkurinn þó eftir líka og að lokum kom hinsta kallið og hvíldin þá orðin kærkomin. Eftir standa djúp spor, ekki bara meðal fjölskyldu og fjöl- margra vina, heldur í samfélaginu öllu. Vertu sæll Ragnar, í huganum týnist höndin á mér í síðasta sinn í þinni í þéttingsföstu handabandi. Hjálmar Gíslason. Mig langar að minnast Ragn- ars tengdaföður míns fyrrverandi með nokkrum orðum en fyrstu kynni okkar voru þegar ég sem nýútskrifaður stúdent hóf störf hjá Verzlunarráði Íslands þar sem Ragnar var þá formaður. Var mér strax ljóst að þarna var kröftugur maður á ferð og aldrei lognmolla þar sem hann var nálægt. Kynni mín af Ragnari urðu svo af öðrum toga þegar við Siggi fórum að vera saman og ég fór að venja komur mínar á Laugarásveginn á heimili þeirra hjóna en á þessum tíma var Ragnar í krefjandi starfi og mikið fjarverandi. Samverustundirnar urðu svo fleirri þegar árin liðu og börnin okkar Sigga, Bjarki Már og Margrét Eva, voru komin til sögunnar. Sunnudagsmatur á Laugarásveginum var fastur punktur í tilverunni og minnist ég Ragnars sitjandi í stólnum sínum með tónlistina í útvarpinu ómandi um húsið, umvafinn bókum og með sunnudagskrossgátu Morgunblaðsins sem ég var ný- græðingur í og reyndum við oft í sameiningu að finna síðustu orðin í gátuna. Ragnar var mjög góður afi og áhugasamur um að gera hluti með barnabörnunum og hafði þá kannski meiri tíma en raunin var þegar hans eigin börn voru að vaxa úr grasi. Þær voru margar ferðirnar á Þúfu til að heimsækja afa og ömmu í bústað- inn þar sem Ragnar naut sín og alltaf var tekið vel á móti okkur og allt gert til að barnabörnin gætu unað sér þar. Gömlu rólurnar voru fluttar af Laugarásveginum og hann smíðaði flott barnahús sem mikið var leikið í. Það má svo ekki gleyma frábærum kassabíl sem Ragnar smíðaði handa þeim og heilmikil vinna var lögð í og var hann mikið notaður á stóra pall- inum við bústaðinn. Þær voru líka ófáar ferðirnar sem keyrt var með afa í stóru hjólbörunum niður að vatni til að vitja um aflann. Þegar skólinn byrjaði á haustin var fast- ur punktur að Margrét og Bjarki fóru með afa í verslunarleiðangur sem hann var mjög áhugasamur um, til að kaupa inn það sem þurfti fyrir skólann það árið. Ég minnist Ragnars með hlýju en samskipti okkar voru alltaf mjög góð og mér var ávallt vel tekið og fékk bros og þétt faðmlag þegar ég kíkti í heimsókn. Því miður er ég ekki á landinu og get ekki kvatt Ragnar í dag en vil þakka fyrir samveruna í gegnum árin og sendi mínar innilegustu samúðarkveðj- ur til Kittýjar og allrar fjölskyld- unnar. Kristín Magnúsdóttir. Ótal minningar koma í hugann þegar ég minnist Ragnars S. Hall- dórssonar, föðurbróður míns. Ég man þegar ég passaði börn þeirra Ragnars og Kittýjar, þau Kristínu Völu og Halldór Pál, fyrir fimm krónur á dag, sem mér fannst stórfé í þá daga. Þá starfaði Ragn- ar á Keflavíkurflugvelli fyrir bandaríska herinn og stýrði þar framkvæmdum af ýmsum toga. Hann átti amerískan kagga, glæsilega drossíu, og ók daglega milli Reykjavíkur og Keflavíkur, oftast hratt, og stundum mjög hratt. Hann var þessi glæsilegi frændi sem allt kunni og allt gat, og leysti að sjálfsögðu úr hvers manns vanda. Okkur fannst það vera stórmerk tíðindi þegar hann var ráðinn til Alusuisse, sviss- neska fyrirtækisins sem ætlaði að reisa álverksmiðju í Straumsvík og gerðist svo forstjóri álversins þegar það hóf rekstur sinn árið 1969. Á sama tíma reyndust þau Ragnar og Kittý fjölskyldu minni einstaklega vel á sorgartíma inn- an fjölskyldunnar. Ragnar var stór og stæðilegur maður, stór í öllum skilningi þess orðs, greið- vikinn og úrræðagóður og vissu- lega fjallmyndarlegur. Hann stundaði íþróttir á sínum yngri ár- um, spilaði bridge og veiddi lax, og hafði unun af klassískri tónlist. Við deildum áhuga á tónlist, ég var félagi í Karlakórnum Fóst- bræðrum og í samræðum okkar á milli eitt sinn nefndi ég við hann að nú væri ýtt á mig að taka að mér formennsku í kórnum. Ég var eitthvað hikandi í þessu, fannst þetta ekki rétti tíminn, og ég væri kannski ekki alveg tilbúinn í slag- inn. Ragnar hélt nú ekki. Ég ætti bara að kýla á þetta, maður gæti allt sem maður vildi. Og auðvitað tók ég að mér formennskuna. Ragnar var óþolinmóður að eðl- isfari og ef eitthvað þurfti að gera, þá varð að ganga í hlutina þegar í stað. Ég minnist þess að ein- hverju sinni á síðari árum rædd- um við saman sem oftar um tónlist í fjölskylduboði og ég nefndi það m.a. að nú væri skarð fyrir skildi hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands, því Lárus Sveinsson trompetleik- ari var þá nýfallinn frá. Síðan gerðist það nokkrum dögum síðar að Ragnar hringdi í mig og til- kynnti mér að hann væri búinn að finna trompetleikara fyrir sinfón- íuna, einhvern bráðsnjallan tón- listarmann frá Sviss. Mér vafðist að vísu tunga um tönn, það væri kannski ekki í okkar verkahring að hafa uppi á hljóðfæraleikurum fyrir sinfóníuna, og það fór svo að starfsmannamál hennar voru ekki á okkar borði. En svona var Ragn- ar. Hann var vissulega ráðríkur en ráðríkur í besta skilningi þess orðs. Hann vildi leggja sín lóð á vogarskálarnar til þess að koma góðu til leiðar, og það gerði hann svo sannarlega. Ég minnist Ragnars með sökn- uði og þakklæti, minning hans mun lifa um ókomna tíð. Elsku Kittý, Kristín Vala, Halldór Páll, Sigurður Ragnar og Magga Dóra, við Þórunn sendum ykkur inni- legar samúðarkveðjur. Stefán Már Halldórsson. Í dag fer fram útför Ragnars S. Halldórssonar, fyrrverandi for- stjóra og stjórnarformanns ÍSAL, Íslenska álfélagsins hf. Ragnar var einn af mikilvirkustu forystu- mönnum íslensks viðskiptalífs til margra ára. Hann var skeleggur baráttumaður fyrir frjálsum og heilbrigðum viðskiptaháttum og framförum í atvinnulífi þjóðar- innar. Ég kynntist Ragnari fyrst þeg- ar hann kom til forystu í Verzl- unarráði Íslands en ég var þá hag- fræðingur ráðsins. Ragnar varð varaformaður Verzlunarráðsins í febrúar 1978 undir formennsku Hjalta Geirs Kristjánssonar en Hjalti Geir réð mig sem fram- kvæmdastjóra á miðju ári 1979. Samstarf þeirra hélt áfram eftir aðalfundinn 1980 uns Ragnar tók við formennsku á aðalfundi hinn 25. febrúar 1982. Tók þá við náið samstarf okkar Ragnars. Ragnar gegndi formennsku í tvö kjör- tímabil og lét af formennsku á að- alfundi hinn 6. mars 1986. Stjórnartíð Ragnars í Verzl- unarráðinu var merkilegur tími í sögu ráðsins. Á 65 ára afmælisári sínu flutti Verzlunarráðið í nýtt húsnæði á 7. hæð í Húsi versl- unarinnar. Þá var Landsnefnd Al- þjóðaverzlunarráðsins stofnuð í apríl 1983 að frumkvæði Verzl- unarráðsins. Ragnar átti sæti í fyrstu stjórn hennar. Viðskiptaþingið, sem haldið var í febrúar 1983, undir yfirskriftinni Frá orðum til athafna markaði viss vatnaskil í baráttu Verzlunar- ráðsins fyrir stefnumálum sínum. Á næstu árum urðu þannig þær breytingar í átt til frjálsræðis sem í heild sinni ollu straumhvörfum í íslensku atvinnulífi. Þær færðu efnahagslífið frá verulegum ríkis- afskiptum til þess frjálsræðis sem nú er. Frjáls verðmyndun, frjáls- ræði í vaxta- og lánamálum, og varðandi gjaldeyris- og utanríkis- viðskipti, svo og upphaf einkavæð- ingar rekur upphaf sitt til þessa tíma. Það var gott að starfa með Ragnari. Hann hafði víðtæka stjórnunarreynslu og kunni vel skil á milli framkvæmdastjórnar og stjórnarformennsku. Okkur var vel til vina og ég held að virð- ingin hafi verið gagnkvæm. Hann var ráðagóður og víðsýnn en gat einnig verið fljótur til ákvarðana, jafnvel fljótfær. Eftir afmælisfund hjá EFTA í Vín áttum við t.d. laus- an tíma og datt Ragnari þá í hug að skjótast í bíltúr austur fyrir Járntjaldið, til Bratislava í Tékkó- slóvakíu. Okkur vantaði vega- bréfsáritun en tókst að komast í gegnum nokkur landamærahlið áður en okkur var snúið til baka. Mér var ekki orðið sama en Ragn- ar var óhræddur. Og hann hrædd- ist ekki að koma fram með hug- myndir sem hristu upp í viðteknum skoðunum. Áramóta- grein hans um gjaldmiðil okkar, krónuna, sem Morgunblaðið birti í árslok 1985 er e.t.v. skýrasta dæmi þess. Við Ragnar áttum margar góð- ar samverustundir, í ferðalögum erlendis, í störfum fyrir Verzlun- arráðið og á heimili hans og Mar- grétar á Laugarásveginum. Fyrir það ber að þakka. Við Jóhanna sendum Margréti og börnum þeirra innilegar samúðarkveðjur. Árni Árnason. Ragnar S. Halldórsson verk- fræðingur var með okkur í sund- laugunum um árabil. Við minnumst Ragnars sem góðs og ákveðins félaga, sem hafði skoðanir á mönnum og málefnum. Rómsterkur og mikill á velli, af- gerandi í framgöngu og alsköllótt- ur lengi. Ég sem var beðinn um að skrifa nokkrar línur fyrir hönd pott- flokksins á margar góðar minn- ingar um Ragnar Halldórsson. Við kynntumst í stjórn Verkfræðinga- félagsins fyrir margt löngu. Þá var Ragnar forstjóri í stærsta fyrir- tæki landsmanna, ÍSAL, og þjóðin gaf honum fljótt nafnið Álskalli. Það vakti nokkra athygli að Ís- lendingur skyldi veljast í æðstu stöðu í erlendu fyrirtæki. En Ragnar var maður sem sópaði að hvar sem hann kom. Þá ók hann um á sportlegum BMW og lá mik- ið á. Fóru sögur af því að hann væri góðkunningi umferðarlög- reglunnar sem var víst ekki alltaf dús við ökulag kappans þegar hann var að flýta sér sem var æði oft. Ragnar var áberandi í þjóðlíf- inu á og tók þátt í félagsstörfum atvinnurekenda. Hann kom víða við í störfum og öðlaðist margar viðurkenningar fyrir störf sín. Svo reit Halldór H. Jónsson arkitekt um Ragnar fimmtugan: „Áður en Ragnar réðist til ís- lenzka Álfélagsins var hann verk- fræðingur hjá flugher Bandaríkj- anna á Keflavíkurflugvelli árin 1956-59, en þangað réðist hann að afloknu prófi í byggingaverkfræði frá DTH í Kaupmannahöfn. Yfir- verkfræðingur var hann frá 1959 til 1961 og framkvæmdastjóri verkfræðideildar sjóhers Banda- ríkjanna á Keflavíkurflugvelli árin 1961 til 1966... Eftir að hann varð forstjóri ISAL sótti hann nám- skeið í stjórnun í Zürich og Fon- tainebleu... Ragnar var í stjórn Bridgefélags Reykjavíkur ... ...Ragnar er giftur sérstaklega góðri og myndarlegri konu, Mar- gréti Sigurðardóttur, stórkaup- manns í Reykjavík Þorsteinsson- ar. Þau hjónin eiga tvo syni og tvær dætur. Kristínu Völu, jarð- Ragnar S. Halldórsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.