Morgunblaðið - 02.09.2019, Side 23

Morgunblaðið - 02.09.2019, Side 23
MINNINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. SEPTEMBER 2019 anna á austrænni dulspeki og trúarbrögðum og andlegri ástund- um tengdri þeim en Sigurður Bogi fann í kristinni hefð allt sem and- legir leitendur þörfnuðust að hans dómi og hann lét þau orð ein- hverju sinni falla í gríni að óþarfi væri að fara yfir lækinn til að sækja sér vatn. Á síðari árum varð Sigurður Bogi virkur þátttakandi í starfi kaþólsku kirkjunnar á Ís- landi. Það var undantekningarlaust húsfyllir þegar Sigurður Bogi hélt erindi í Lífspekifélaginu. Þau voru rík að innihaldi en um leið borin fram á aðgengilegan hátt og gjarna krydduð með nokkurri gamansemi. Á kvöldvökum á sum- arsamverum félagsins stytti Sig- urður Bogi gestum gjarna stundir með gamanmálum. Um mikla mannkosti Sigurðar Boga ætla ég ekki að fjölyrða hér, eflaust verða margir til þess en þó vil ég geta þess að hann var ein- stakt ljúfmenni í allri framgöngu. Sigurður Bogi skipar varanlegan sess í hugum og hjörtum þeirra sem áttu því láni að fagna að kynn- ast honum. Við minnumst hans öll af hlýhug. Jón Ellert Benediktsson. Við andlát Sigurðar Boga Stef- ánssonar vinar míns er margt sem leitar á hugann. Við vissum fyrst hvor af öðrum þegar við urðum bekkjarbræður í fjórða bekk í MR. Ég gerði mér fljótt grein fyr- ir að hann var frábær námsmaður og einn af þeim sem voru alltaf með sitt á hreinu. Ég naut fljót- lega góðs af því, en þar sem við vorum síðastir í stafrófinu á bekkjarlistanum vorum við oft saman um tilraunir og skýrslu- gerð vegna þeirra. Þarna sá ég fyrst hvað hann var vandvirkur, hjálpsamur og átti auðvelt með að útskýra flókna hluti á einfaldan hátt. Hann var mjög vel lesinn á mörgum sviðum og hafði til dæmis góða þekkingu á ýmiss konar tón- list, enda hafði hann verið sumar- starfsmaður í einni af hljómplötu- búðum bæjarins. Þegar hluti bekkjarins færðist í náttúrufræðideild í 5. bekk tengd- umst við nýjum félögum. Þar varð til vinahópur sem hefur haldið tengslum alla tíð síðan. Í þessum félagsskap blómstraði Sigurður Bogi. Þar kom fljótlega fram stór- kostlegur húmor hans og einstakir frásagnarhæfileikar, sem við vin- irnir áttum ekki möguleika á að toppa. Menntaskólaferðalagið okkar til Ítalíu er ógleymanlegt fyrir margra hluta sakir og varð Sigurði efni til skemmtilegra frá- sagna. Vinahópurinn stækkaði og hélt vel saman næstu árin, en eftir það skildu leiðir um tíma meðan við tók framhaldsnám margra er- lendis. Þegar Sigurður var kom- inn heim aftur eftir að hafa lokið námi í geðlækningum í Svíþjóð, kom hann oft í heimsókn og sátum við margar kvöldstundirnar á spjalli yfir tebolla. Umræðuefnin voru mörg og ólík, samræðurnar alltaf gefandi, en á þeim tíma sem liðinn var höfðu áhugamál hans breyst. Hann var enn með sama góða húmorinn og sá hlutina í skemmtilegu ljósi, en andleg mál- efni eins og hugleiðsla og trúmál voru nú orðin honum hugleikin. Á seinni hluta ævinnar fannst mér Sigurður láta fremur lítið fyr- ir sér fara og gera sér far um að lifa fábrotnu lífi á veraldlega vísu. Hann var traustur vinur vina sinna og ef eitthvað bjátaði á hjá öðrum var hann fljótlega mættur á staðinn með sitt góðlega viðmót, tilbúinn til að veita liðsinni sitt. Sigurður var heilsuveill eftir að hann gekk í gegn um krabba- meinsmeðferð fyrir nokkrum ár- um. Heilsu hans tók að hraka hratt í sumar og þegar við töluð- um síðast saman á afmælisdegi hans 10. ágúst, var hann orðinn mjög veikur inni á spítala og það- an varð ekki aftur snúið. Í mínum huga var Sigurður Bogi einstakur vinur. Við fráfall hans er mér efst í huga þakklæti fyrir að hafa fengið að eiga vináttu hans öll þessi ár. Ég votta Rögnu systur hans og fjölskyldu hennar innilega samúð. Þorvaldur Bragason. Er þetta sæti laust? – heyrði ég sagt út undan mér og áður en ég hafði litið upp varstu sestur við hliðina á mér. Þetta var í upphafi 3. bekkjar MR og sátum við hlið við hlið það sem eftir var skóla- göngunnar. Við skiptumst ekki á mörgum orðum fyrsta daginn en í þögninni innsigluðum við vináttu sem hefur verið mér dýrmæt og gaf mér styrk til að keppa að og ná settum markmiðum í námi, fyrst í menntaskóla og síðar í læknisfræðinni. Oft vorum við heima hjá þér á Tómasarhagan- um eftir skóla og um helgar og krufðum öll heimsins málefni. Móðir þín bar í okkur bakkelsi og best þótti mér nýbökuð hjóna- bandssælan sem mamma þín vissi að ég gat ekki staðist. Súkku- laðikakan rann einnig ljúflega nið- ur með ómældri mjólk. Faðir þinn var Frímúrari og forvitni okkar vaknaði til að kanna sögu og inn- tak þeirra samtaka. Fór það svo langt að þú varst kominn með eyðublöð til að við, gegnum bréfa- skóla, gætum hafið vegferð í skyldri reglu vestan hafs. Margt var brallað og meðal annars skrif- uðum við grein í De Rerum Nat- ura, blað náttúrufræðifélagsins í MR. Fjallaði greinin um þá lífs- klukku sem tifar í öllum lífverum og stjórnar dagsrytma þeirra. Leiðir skildu á kandídatsári en vináttan hélst og þráðurinn var tekin upp aftur að sérnámi loknu. Þú varst límið í gömlu mennta- skólaklíkunni. Ræktun vinskapar- ins og góðmennska þín hélt hópn- um saman. Með aðstoð óbrigðuls minnis þíns var hægt að rifja upp atvik og sögur frá skólaárunum. Hnyttin tilsvör og hárfínn húmor þinn kryddaði samverustundirn- ar. Tenging okkar hófst þó löngu fyrir fyrsta daginn í menntskóla. Þannig atvikaðist að móðir þín sem hafði séð um ræstingu í breska sendiráðinu hætti því starfi þegar þú fæddist en móðir mín leysti hana af og vann þar áfram til margra ára. Móðir mín hafði alltaf af þér afspurn og stóð í þeirri meiningu að þú hefðir verið það lasburða fyrsta árið að mamma þín hefði þess vegna ekki getað sinnt starfi utan heimilis. Þegar við urðum skólafélagar og þú fórst að koma í heimsóknir á Þorfinnsgötuna spurði mamma mig oft hvort þú værir mikið veik- ur. Ítrekað reyndi ég að koma henni í skilning um að þó að þú værir ekki sterkasti maður í heimi þá amaði ekkert að þér en hún lét aldrei sannfærast. Svo kom á dag- inn að líkamsstyrkur þinn þoldi illa ágjöf. Af æðruleysi tókst þú á móti heilsubrestinum. Þú lýstir líðan þinni og sjúkrasögu án þess að kvarta eða biðja um vorkunn- semi af okkar hálfu. Endirinn kom hratt og óvænt þannig að ekki gafst tækifæri til að kveðjast. Í menntaskóla ræddum við oft andleg málefni. Trú þín á æðri mátt og framhaldslíf var staðföst og óbifanleg. Það er því huggun að vita að þú ert nú að kanna nýtt tilverustig, kominn til bjartari heima þar sem góðar vættir taka á móti þér. Vertu sæll og þakka þér fyrir allt. Minningin lifir um góðan dreng, einstakan vin og frá- bæran félaga. Sigurður Júlíusson. Í dag kveðjum við náinn vin, öð- ling og samferðarmann, Sigurð Boga, sem fékk friðsælt andlát eftir erfið veikindi. Okkar samleið hefur verið löng og farsæl, allt að hálfri öld. Við gengum í sömu skóla, Melaskóla, Hagaskóla, MR og HÍ. Vinátta okkar hófst þegar við innrituðumst í læknadeild 1976. Þar tókst strax góður vin- skapur með okkur og einnig eftir að við Hildur giftum okkur mynd- aðist sterk vinátta milli okkar alla tíð. Eftir útskrift úr læknadeild hófst sameiginlegur starfsvett- vangur á geðdeild Borgarspítal- ans 1983 og vorum við síðan sam- starfsmenn fyrir utan nokkur ár þegar Sigurðar Bogi í var Linköp- ing þar sem hann stundaði fram- haldsnám. Sigurður var sam- viskusamur, ljúfur og vel liðinn. Hann var góður vinur og reglu- fastur og alltaf sendi hann kveðj- ur á afmælis- og hátíðardögum. Við héldum sambandi fyrir utan vinnu og í heimboðum var hann hrókur alls fagnaðar en þar naut húmorísk frásagnargáfa hans sín vel. Einnig var hann bóngóður og í eitt skipti í ferðalagi erlendis passaði hann börn okkar Hildar eina kvöldstund og voru þau þá í öruggum höndum og gefandi fé- lagsskap og minnast börnin ætíð með hlýju þessarar stundar. Nokkrum sinni fórum við í leikhús saman og sáum dýnamísk verk og einnig góða tónleika. Fyrir nokkr- um árum greindist Sigurður Bogi með alvarleg veikindi en aldrei kvartaði hann og tók sínum örlög- um með mikilli reisn og framsýni. Eftir veikindin fyrir nokkrum ár- um sneri hann sér að trúarlegum málefnum og gerðist kaþólskur. Sigurðar Boga verður sárt saknað. Hann var velviljaður, mikið prúðmenni og við þessi tímamót er mikilvægt að rifja upp samskiptin og ræða minningar sem ætíð lifa. Við erum þakklát fyrir að hafa kynnst Sigurði Boga og þökkum honum fyrir notalega samleið á lífsleiðinni sem hefur verið gefandi og skemmtilegt. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (Valdimar Briem) Það er erfitt að kveðja góðan vin í blóma lífsins. Við sendum Rögnu systur hans og fjölskyld- unni, okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Hildur og Halldór. Sigurður Bogi Stefánsson læknir, nánasti vinur minn, er lát- inn. Hann hafði lengi átt við heilsuleysi að stríða. Kynni okkar hófust í 5. bekk í MR þegar við urðum bekkjar- félagar, en þau kynni áttu eftir að styrkjast mikið. Það kom fljótt í ljós að Sigurður hafði lengi kynnt sér andleg málefni og þegar hann varð var við áhuga hjá mér kynnti hann mig fyrir bæði Rósar- krossreglunni og Guðspekifélag- inu þar sem hann var virkur fé- lagi. Þar kynntist ég áhugaverðu starfi og góðu fólki. Sigurður var sérlega vinsæll fyrirlesari í Guð- spekifélaginu. Sigurður stofnaði hugleiðslu- hóp sem hann bauð mér í og einn- ig leshring sem hefur starfað í ein- hverja tugi ára. Fyrstu árin lásum við saman bækur um andleg efni, seinna fékk hver úthlutað sínu kvöldi til að segja frá einhverju áhugaverðu. Þá kom í ljós hversu margt Sigurður hafði stúderað, m.a. kabbalah og Jung og fjallaði ekki eingöngu um andleg mál heldur listir, ferðalög o.m.fl. Það kom mér t.d. á óvart hversu vel að sér hann var í rokktónlist en skýr- ingin kom í ljós. Á menntaskóla- árunum hafði hann unnið í Hljóð- færahúsinu og ekki aðeins að hann kynni lögin heldur kynnti sér vel textana og hafði skoðanir á hvaða höfundar voru alvöruskáld. Einnig benti hann okkur á áhuga- verð listræn plötuumslög frá þessum tíma. Sigurður hafði ótrú- lega gott minni og átti auðvelt með að segja frá og svara spurn- ingum. Alltaf beið ég spenntur eftir að ný Woody Allen mynd kæmi í bíó, því það var hefð hjá okkur að sjá myndir Woodys saman og nutum sálfræðihúmorsins sem sjaldan brást og nærvera Sigurðar jók á upplifunina. Fyrir um sex árum ákvað Sig- urður að ganga í kaþólsku kirkj- una og kom það mér ekki á óvart. Þar var löng hefð fyrir kristinni mystík, áhugamáli Sigurðar. Hann fór í messu á hverjum morgni í Karmelklaustrinu í Hafnarfirði áður en hann fór til vinnu. Síðasta árið var hann for- maður Leikmannareglu Karmel á Íslandi. Vinátturækni Sigurðar var al- veg einstök. Reglulega hringdi hann og stakk upp á að hitta vini, kíkja í heimsókn, minnti á fundi og áhugaverða viðburði. Vinir og kunningjar fengu alltaf upphring- ingar á afmælisdögum. Á hverju sumri sótti hann heim frændfólk sitt í Þingeyjarsýslu og fór reglu- lega til Svíþjóðar að hitta vini og samstarfsfólk. Með Sigurði er farinn heill og góður vinur. Vinur sem leiðbeindi mér á þroskabrautinni og er sárt saknað. Ég sendi Rögnu systur hans og fjölskyldu innilegar samúðar- kveðjur. Ragnar Jóhannesson. Kær og góður vinur er fallinn frá um aldur fram. Við hjónin kynntumst Sigurði Boga fyrst á skólaárum okkar í Melaskóla og Hagaskóla, en fylgdumst svo einnig að í gegnum menntaskóla og háskóla. Á yngri árum voru áhugamál hans ekki endilega þau sömu og annarra jafnaldra. Hann undi sér við lestur góðra bóka og las sakamálasögur og heimsbók- menntir jöfnum höndum. Þeir rit- höfundar sem hann hafði dálæti á voru meðal annars Agatha Christie, Alistair Maclean og Þór- bergur Þórðarson. Ungi lestrar- hesturinn sendi þessum eftir- lætishöfundum sínum hand- skrifuð bréf og fékk yfirleitt svör á móti. Sigurði Bogi var mjög góður námsmaður. Á menntaskólaárun- um áttu náttúruvísindi hug hans allan, en að loknu námi í læknis- fræði urðu geðlækningar, sál- fræði sem og andleg og trúarleg málefni honum mest hugleikin. Eftir kandídatsárið flutti hann til Linköping í Svíþjóð, lauk sér- fræðinámi í geðlækningum árið 1988 og hóf störf í kjölfarið á Geð- deild Borgarspítalans og síðar Landspítalans. Hann varð farsæll geðlæknir og reyndist skjólstæð- ingum sínum afar vel. Sigurður Bogi var vinamargur og hélt góðum tengslum við sam- ferðamenn sína. Hann kunni vel þá list að rækta vináttuna og átti stóran þátt í að koma á reglu- bundum fundum á kaffihúsum borgarinnar. Þar hittust gamlir bekkjarfélagar úr Melaskóla ann- ars vegar og Menntaskólanum í Reykjavík hins vegar og gera enn. Sigurður Bogi var einna iðnastur við að mæta á þessa mánaðarlegu fundi og var minnugastur allra þegar rifja átti upp atburði liðinna tíma. Auk þess hafði hann mikil og góð tengsl við árganginn sinn úr læknadeildinni. Siguður Bogi hafði útlit og fas sem gerði hann á margan hátt að sérstökum „karakter“. Fram- koman var lágstemmd, hógvær og kurteis, en einnig glettin. Eitt sem einkenndi lífsstíl Sigurðar Boga var aðhaldssemi og virðing fyrir nýtilegum gömlum hlutum. Fyrir örfáum árum var hann enn að notast við VHS-vídeotæki og kassettur og ók um á japönskum smábíl sem sennilega var kominn á fertugsaldurinn. Um jól skipt- umst við iðulega á gjöfum en pakkar frá honum gátu innihaldið heildarútgáfu af tímaritum sem hann hafði samviskusamlega haldið til haga, eins og unglinga- tímaritið „Nútíminn“ og menn- ingarritið „Teningur“. Megi minning um góðan dreng lifa. Við vottum systur hans og fjölskyldu okkar dýpstu samúð. Erna og Ísleifur. Sigurður Bogi, félagi okkar úr læknadeildinni, er dáinn fyrir ald- ur fram, þetta var óvænt og sorg- legt. Hann var gull af manni, skemmtilegur, orðheppinn og með einstaka frásagnargáfu. Hann var duglegur og góðum gáf- um gæddur. Við minnumst hans með mikilli gleði enda var hann gjarnan hrók- ur alls fagnaðar. Partíin á skóla- árunum voru lífleg og Bogi steig dansinn af innlifun og hafði ein- stakt lag á því að þyrla upp gleðinni. Hann rifjaði gjarnan upp gamlar minningar og oft var Liverpool-ferðin rifjuð upp sem og Taílandsferðin okkar eftir lokaprófið sem einnig var ógleym- anleg. Bogi var búinn að undirbúa sig vel fyrir ferðirnar og gat frætt okkur hin um hið ýmsa og tók eft- ir öllu mögulegu í kringum sig. Hann var grúskari og fróðleiksfús og hjá honum kom maður ekki að tómum kofanum. Eftir námið í læknadeild fór hópurinn dálítið sitt í hverja átt- ina í sérnám og Bogi valdi geð- lækningar og fór til náms í Sví- þjóð. Hann varð góður geðlæknir og reyndist sjúklingum sínum af- ar vel. Eftir að flestir höfðu skilað sér til Íslands aftur hélt hópurinn vel saman og fór saman í utanlands- ferðir en í seinni tíð hafði heilsu Boga hrakað það mikð að hann treyti sér ekki með en hitti okkur gjarnan á mannamótum hér heima fyrir. Nú er aftur hoggið stórt skarð í árganginn okkar sem útskrifuð- umst 1982. Við kveðjum einstakan öðling og góðan vin. Þínar vinkonur, Einfríður og Vilhelmína. Elskulegur vinur, Siggi Bogi, er fallinn frá, alltof snemma. Ég á eftir að sakna samverustundanna þar sem við ræddum geðheil- brigði og dulræn málefni. Hann hafði lúmskt gaman af uppátækj- um okkar hjóna og hafði húmor fyrir þeim. Hann var einstaklega tryggur og góður vinur vina sinna og hafði gaman af að rækta vina- sambönd hvort sem þau voru hér- lendis eða erlendis. Ég fann fallegt ljóð sem segir allt sem segja þarf: Þó sólin nú skíni á grænni grundu er hjarta mitt þungt sem blý, því burt varst þú kallaður á örskammri stundu í huganum hrannast upp sorgarský. Fyrir mér varst þú ímynd hins göfuga og góða svo fallegur, einlægur og hlýr en örlög þín ráðin – mig setur hljóða við hittumst ei aftur á ný. Megi algóður Guð þína sálu nú geyma gæta að sorgmæddum, græða djúp sár þó kominn sért yfir í aðra heima mun minning þín lifa um ókomin ár. (Höf. ók.) Hafðu þökk fyrir allt, elsku Bogi. Rögnu og börnum hennar votta ég mína dýpstu samúð og bið Guð að gefa þeim styrk í sorginni. Elinóra Inga Sigurðardóttir. Ég kynntist Sigurði Boga fyrst á geðdeild Borgarspítala haustið 1991. Þá var hann ungur geðlækn- ir með stórt innlagnarteymi á A-2, tiltölulega nýkominn úr sérnámi í Svíþjóð og ég kandídat hans í þrjá mánuði. Hann var 35 ára á þeim tíma, ættaður úr Kelduhverfinu í N-Þingeyjarsýslu, víðlesinn og unni móðurmálinu. Þá hófst morgunninn jafnan á langri yfir- ferð um hvern sjúkling fyrir stofugang. Sigurður Bogi hafði gaman af að spjalla og tengja við bókmenntir og listir þannig að þessir morgunfundir gátu orðið býsna langir áður en sjálfur stofu- gangurinn hófst. Hann var virkur í Guðspekifélaginu á þessum tíma og lengi síðar. Tvisvar í viku var hann með slökun fyrir starfsfólk- ið. Þar naut yfirvegun hans og skýr rödd sín vel. Hann las jafnan mikið og deildi stundum gullmol- um úr heimsbókmenntunum með nemum og samstarfsmönnum. Síðar höguðu örlögin því þannig að ég var yfirmaður hans um ára- bil eftir að ég sneri heim úr sér- námi. Sigurður Bogi var einstaklega heilsteyptur, greindur og traust- ur starfsmaður og lagði sig sér- staklega fram um að sinna með- ferðarþörfum sjúklinga með alvarlegar lyndisraskanir. Hann var sannkallaður öðlingur í sam- starfi og umgengni og hafði öðlast mikinn innri styrk og æðruleysi með reglulegri hugleiðslu, ekki síst eftir heilsubrest sem ógnaði endurtekið lífi hans hin síðari ár. Engu að síður var jafnan stutt í lágstemmdan og fágaðan húmor hjá Sigurði Boga í dagsins önn. Ég hitti hann síðast á gjörgæslu fjórum dögum fyrir andlátið og það var ljóst að hann var undir það búinn að þurfa ef til vill að kveðja þennan heim innan skamms. Raunar fékk nær ekkert raskað jafnaðargeði hans í krefj- andi starfi á móttökugeðdeildum A-2 og 32A/33A í þá þrjá áratugi sem hann starfaði þar sem geð- læknir. Hann var einstaklega reglufastur, skyldurækinn og heiðarlegur maður sem lagði ekki í vana sinn að hallmæla nokkrum manni. Hann kom jafnan til vinnu fyrir átta og hélt heim rétt fyrir fjögur. Bjó einn í Rauðagerði, var afar nýtinn og fór vel með allt sem hann átti eða honum var trúað fyrir. Lengst af ók hann smábíl af gerðinni Daihatsu Charade sem hann átti í ein 17 ár. Farsímar ent- ust honum einnig lengur en öðr- um og voru ávallt eins og nýir að sjá. Fáir glöddust meira þegar nemar á deild kvöddu með heima- bakstri eftir námsdvöl. Hann tók virkan þátt í fundum á vegum Geðlæknafélags Íslands í gegnum árin og sat um hríð í stjórn félagsins. Sigurður Bogi lagði í vana sinn að skrifa hjá sér afmælisdaga og árna þá sam- starfsfólki innilega heilla munn- lega eða skriflega. Trúmál voru honum hugleikin þótt hann bland- aði þeim ekki inn í sín daglegu samskipti við sjúklinga eða sam- starfsfólk. Hann tók kaþólska trú árið 2009 eftir nokkra íhugun og heimsótti síðan reglulega nunnur Karmelítureglunnar í klaustri þeirra í Hafnarfirði. Að endingu ber að þakka vel unnin störf hans í þágu geðsjúkra og traust sam- starf sem aldrei bar skugga á á löngum starfsferli. Ég votta ætt- ingjum samúð nú þegar hann er fallinn frá. Minningin um góðan og vandaðan mann lifir. Engilbert Sigurðsson. Við kveðjum okkar kæra sam- starfsmann Sigurð Boga með þakklæti í hjarta. Við fráfall hans er skarð höggvið í okkar raðir sem erfitt verður að fylla. Sigurður Bogi var einstakur maður sem kenndi okkur margt. Honum var lagið að takast á við verkefni lífs- ins af stakri ró og æðruleysi sem fáum öðrum er gefið. Hann sinnti starfi sínu af mikilli samviskusemi þrátt fyrir að glíma við langvinn og erfið veikindi. Á sama tíma var alltaf stutt í glettni og hann hafði einstakt lag á að segja skemmti- lega frá. Hann var hluti af deild- inni og okkur fannst alltaf eitt- hvað vanta þegar hann var ekki á staðnum. Við erum þakklát fyrir að hafa orðið þess aðnjótandi að hafa fengið að kynnast og starfa með Sigurði Boga. Við geymum góðar minningar um kynni okkar, samstarf og samverustundir. Hvíl í friði. Minning þín er mér ei gleymd; mína sál þú gladdir; innst í hjarta hún er geymd, þú heilsaðir mér og kvaddir. (Káinn) Fyrir hönd starfsfólks móttöku geðdeildar á Landspítala, Ína Rós Jóhannesdóttir deildarstj., Júlíus Ingólfur Schopka læknir, Lára Björgvinsdóttir yfirlæknir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.