Morgunblaðið - 04.09.2019, Page 1

Morgunblaðið - 04.09.2019, Page 1
M I Ð V I K U D A G U R 4. S E P T E M B E R 2 0 1 9 Stofnað 1913  207. tölublað  107. árgangur  GERVIGREINDIN TIL ÞJÓNUSTU REIÐUBÚIN LIST Í KÖBEN BJARKI MÁR BJARTSÝNN FYRIR VETURINN MYNDLISTARKAUPSTEFNAN CHART 28 ÍÞRÓTTIR 24VIÐSKIPTAMOGGINN A ct av is 91 10 13 Omeprazol Actavis 20mg, 14 og 28 stk. Magasýruþolin hörð hylki ætluð fullorðnum til skammtímameðferðar við einkennum bakflæðis (t.d. brjóstsviða og nábít). Gleypið hylkin í heilu lagi með hálfu glasi af vatni fyrir mat eða á fastandi maga. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og auka- verkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is Varaforseti Bandaríkjanna, Mike Pence, kemur til landsins í dag. Dagskrá heimsóknarinnar var í gærkvöldi enn nokkuð óljós að öðru leyti en að Pence muni sækja málþing um viðskipti milli ríkjanna tveggja auk fundar með forseta Íslands og utanríkisráðherra, sem haldinn verður klukkan 14 í Höfða. Afar líklegt má telja að varaforsetinn muni einnig vilja ræða öryggis- og varnarmál við íslenska ráðamenn, en viðvera Bandaríkjahers hér við land hefur sl. vikur og mánuði aukist mjög. Þá mun Pence einnig hitta forsætisráðherra áður en hann heldur aftur af landi brott í kvöld. Munu þau hittast á öryggissvæði Landhelgisgæslu Ís- lands á Keflavíkurflugvelli. Greint hefur verið frá því í Morgunblaðinu að íslenska lögreglan og bandarískar öryggissveitir verða með gríðarlegan viðbúnað í tengslum við heimsóknina. Mun meiri en sést hefur hér á landi í langan tíma. Þannig munu vel á annað hundrað íslenskir lögreglumenn frá hinum ýmsu embætt- um sinna öryggisgæslu, þ.á m. öll sérsveit ríkis- lögreglustjóra. Þá munu einnig á þriðja hundrað Bandaríkjamenn, vopnaðir fulltrúar frá leyniþjón- ustustofnuninni US Secret Service, sem sér um öryggi forseta og varaforseta Bandaríkjanna, og hermenn vera í fylgdarliði Mikes Pence. Að auki mun bæði sprengjusveit og flugdeild Landhelgis- gæslunnar verða til taks. Ekki er talið ólíklegt að þyrla verði einnig nýtt til að fylgjast með aðgerð- um úr lofti. Ásgeir Þór Ásgeirsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segir götum víða í Reykjavík verða lokað vegna heimsóknar- innar, einkum í námunda við Höfða. Verður hluta Sæbrautar, Borgartúns, Kringlumýrarbrautar og Snorrabrautar lokað. „Þetta er mikið inngrip og það verða miklar tafir,“ segir hann og bendir á að lokað verði snemma og verði svo lengi dags. „Þetta er flókin aðgerð sem kallar á mikinn liðs- styrk frá öðrum lögregluembættum. Verkefnin eru mörg og öryggiskröfur miklar,“ segir Ásgeir Þór enn fremur við Morgunblaðið. Þá má einnig búast við talsverðu inngripi á Reykjanesbraut þegar fjölmenn bílalest varafor- seta Bandaríkjanna fer þar um. Víðtækar götulokanir og mikil öryggisgæsla  Varaforseti Bandaríkjanna kemur til landsins  Hundruð eru í öryggissveitum Morgunblaðið/Kristinn Magnússson Fundarstaðurinn Mike Pence, varaforseti Bandaríkjanna, mun hitta fyrir íslenska ráðamenn í Höfða. Mörgum götum verður lokað í nágrenninu. Öryggisbúnaður Sérbúin ökutæki sem flutt voru inn til landsins sjást hér bíða komu varaforsetans. M Íslandsheimsókn Mikes Pence »4 og 14 Neðri deild þingsins í Bretlandi samþykkti í gærkvöldi tillögu um að gera þinginu kleift að afgreiða lagafrumvarp sem kveður á um að Boris Johnson forsætisráðherra beri að óska eftir því að útgöngu landsins úr Evrópusambandinu verði frestað um þrjá mánuði ef ekki næst nýtt samkomulag um hana við leiðtoga ESB-ríkja. 21 þingmaður Íhaldsflokksins greiddi atkvæði með tillögunni. Embættis- menn stjórnar Johnsons höfðu sagt að biði hún ósigur í atkvæðagreiðsl- unni hygðist hún beita sér fyrir því að þingkosningar færu fram 14. október. Johnson staðfesti eftir at- kvæðagreiðsluna að hann hygðist leggja til að kosningum yrði flýtt ef neðri deild þingsins samþykkir frumvarpið í dag eins og stuðnings- menn þess stefna að. »12 Johnson beið ósigur AFP Kusu brexit Brexit-sinnar mótmæla frestun á brexit í London.  Birgir Þórarinsson, þingmaður Miðflokksins, var ræðukóngur Al- þingis á 149. löggjafarþinginu sem lauk á mánudag með afgreiðslu á þriðja orkupakkanum. Birgir flutti 168 ræður og gerði 698 athuga- semdir við ræður annarra þing- manna. Hann talaði alls í 41 klukku- stund. Þingmenn Miðflokksins verma fimm efstu sætin yfir ræðu- kónga síðasta þings og sjö komast inn á topp tíu. »9 Miðflokksmenn í fimm efstu sætum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.