Morgunblaðið - 04.09.2019, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. SEPTEMBER 2019
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Kennarasamband Íslands (KÍ) og
Samband íslenskra sveitarfélaga
hafa undirritað samkomulag um
endurskoðaða viðræðuáætlun vegna
komandi kjarasamninga og að form-
legum kjaraviðræðum verði frestað
fram í október.
Samkomulagið nær til fimm að-
ildarfélaga KÍ sem hafa staðið sam-
an í viðræðunum við sveitarfélögin
og fá félagsmenn þeirra í fullu starfi
105 þúsund króna eingreiðslu, sem
greidd verði út 1. nóvember.
Er eingreiðslan hugsuð sem hluti
af fyrirhuguðum launabreytingum á
gildistíma endurnýjaðra samninga
og er sagður vera sameiginlegur
skilningur viðsemjendanna á því að
eingreiðslan verði metin sem hluti
af kostnaðaráhrifum næstu samn-
inga að því er fram kemur á vefsíðu
KÍ. Upphæð eingreiðslunnar greið-
ist hlutfallslega miðað við starfstíma
og starfshlutfall félagsmanna.
Stefna að undirritun nýrra
kjarasamninga fyrir 30. nóv.
Í viðræðuáætluninni er nú stefnt
að undirritnun nýrra kjarasamninga
fyrir 30. nóvember.
Ástæða frestunarinnar er sú að
nú standa yfir viðræður milli félaga
opinberra starfs-
manna og sveit-
arfélaganna sem
hafa einsett sér
að ljúka þeim
fyrir miðjan sept-
ember og eru því
framar í röðinni í
viðræðunum við
sveitarfélögin.
„Þetta er bara
raunsætt mat á
stöðunni og hvernig samningavið-
ræðurnar ganga við þá sem eru á
undan í röðinni. Það er ekki raun-
hæft að viðræður við okkur komist
á skrið fyrr en í október,“ segir
Ragnar Þór Pétursson, formaður
KÍ. Hann bendir á máli sínu til
stuðnings að viðræðuáætlanir ann-
arra félaga en BHM við sveitar-
félögin renni út um miðjan sept-
ember.
Engin ró þrátt fyrir frestun
Samkvæmt upplýsingum Ragn-
ars Þórs hefur heilmikil undirbún-
ingsvinna vegna endurnýjunar
kjarasamninga farið fram í KÍ og
kennarafélögunum.
,,Nú eru aðildarfélögin að fara í
fyrsta skipti saman í viðræðurnar
og það er auðvitað heilmikil vinna
sem fylgir því. Það er engin ró yfir
þessum málum þó að viðræðurnar
við sveitarfélögin fari ekki af stað
aftur fyrr en í október,“ segir hann.
Kennarafélögin sem standa sam-
an í viðræðunum við samninganefnd
Sambands íslenskra sveitarfélaga
eru Félag grunnskólakennara, Fé-
lag leikskólakennara, Félag kenn-
ara og stjórnenda í tónlistarskólum,
Félag stjórnenda leikskóla og
Skólastjórafélag Íslands. Er við-
ræðunefnd KÍ skipuð formönnum
þessara félaga auk formanns KÍ og
hagfræðings sambandsins.
Yfirstandandi viðræður félaga op-
inberra starfsmanna og ASÍ-félaga
sem semja við ríki og sveitarfélög,
eru sagðar ganga hægt fyrir sig en
mjakist þó áfram. Vinnutímamál og
stytting vinnutíma hafa verið ofar-
lega á baugi í viðræðunum en
reynst hefur flókið að útfæra þær.
Launasetningin
er forgangsmál
Að sögn Ragnars Þórs hefur
stytting vinnutíma ekki verið eitt af
stóru forgangsmálum kennara í
kjaraviðræðunum enda störfin ólík
og aðstæðurnar mismunandi.
„Sameiginlega forgangsmálið er
launasetningin og svo er spurning
um hvers konar hvatar eru til stað-
ar í kerfinu, hvort það er hvati til að
taka að sér stjórnun og fleiri slík
framgangsmál eru til skoðunar.“
Fresta viðræðum
Samkomulag að viðræður KÍ og sveitarfélaga hefjist í
október Fá eingreiðslu „Raunsætt mat á stöðunni“
Ragnar Þór
Pétursson
Gervitunglasendum var skotið í sjö
hnúfubaka í Arnarfirði í fyrradag.
Nokkuð var af hnúfubak í firðinum
og segist Gísli Víkingsson, hvala-
sérfræðingur á Hafrannsóknastofn-
un, áætla að fjöldinn hafi að minnsta
kosti verið tvöfaldur fjöldi dýranna
sem merkt voru. Að sögn Gísla töldu
heimamenn að hvalirnir hefðu verið
að gæða sér á smásíld í firðinum.
Gísli segir að vel hafi gengið að
merkja dýrin og tók verkefnið um
sex tíma. Sendingar höfðu í gær bor-
ist í gegnum gervihnött um staðsetn-
ingu frá fjórum hvalanna og frá
tveimur höfðu borist merki án þess
að gefa upplýsingar um staðsetningu.
Merki höfðu ekki borist frá sjöunda
dýrinu.
Undanfarin ár hafa Norðmenn og
Íslendingar m.a. notað þessa aðferð
til að afla upplýsinga um ferðir
hnúfubaka. Hluti hnúfubaka á
norðurslóð heldur suður á bóginn er
líður á haustin og eru æxlunar-
stöðvar hnúfubaks í Karíbahafi og við
Grænhöfðaeyjar. Þá er hugsanlegt
að merktir hnúfubakar geti vísað á
loðnugöngur er líður á veturinn, en
talsvert hefur verið af hnúfubak á
loðnumiðum hér við land allan vetur-
inn. Að sögn Gísla er verkefnið öðr-
um þræði hluti af rannsóknaverkefni
um vistfræði loðnu. aij@mbl.is
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Merki Gervihnattasendir í hnúfu-
bak í Eyjafirði fyrir nokkrum árum.
Merktu sjö
hnúfubaka
í Arnarfirði
Gæti gefið upp-
lýsingar um loðnu
Líney Sigurðardóttir
Þórshöfn
„Við horfum á björtu hliðarnar og gleðjumst yf-
ir því að ónýtu heyrúllurnar okkar nýtast til að
græða upp landið,“ sagði Kristín Kristjánsdóttir
á Syðri-Brekkum þar sem mikið magn af heyi
hraktist á túnum í óþurrkatíð sumarsins.
Það voru á þriðja hundrað ónýtar heyrúllur
og voru þær fluttar frá Syðri-Brekknabæjunum
tveimur upp að Hófaskarði og munu þar græða
landið. Landgræðslufélag Svalbarðshrepps boð-
aði til landgræðsludags síðastliðinn laugardag,
en hugmyndir hafa í nokkurn tíma verið uppi
hjá félaginu um að hefja landbótaverkefni við
Hófaskarð. Þar kemur ónýta heyið að góðum
notum sem jarðvegsbætir og brýnt var einnig
að bjarga túnunum sem rúllurnar lágu á.
Eggert Stefánsson í Laxárdal í Þistilfirði er
formaður félagsins og sagði hann verkefnið
hefjast með styrk frá Svalbarðshreppi og
ákveðið hefði verið að ráðast strax í þetta verk
þegar fyrir lá að koma þyrfti ónýtu heyrúll-
unum af túnunum. „Með því að fá jarðveg ofan
á örfoka mela er hægt að horfa til þess að
rækta skjólbelti þarna upp frá. Þekkt er að
skjólbelti binda einnig snjó, svo að með tím-
anum gæti gróðurinn átt þátt í að laga veðurfar
og fækka ófærðardögunum á þjóðveginum við
Hófaskarðið,“ sagði Eggert og bætti við að ekki
væri eftir neinu að bíða því um næstu helgi
væru fyrstu göngur og bændur hefðu lítinn
tíma aflögu.
Bændur mættu með dráttarvélar í Hófa-
skarðið til að dreifa úr heyinu og var fólk hvatt
til að taka þátt í að vinna landinu sínu gagn
með því að mæta á svæðið og aðstoða við dreif-
ingu sem gæti orðið hið besta fjölskylduverk-
efni, því aldrei þessu vant skein sólin glatt
þennan laugardag.
Ónýtar heyrúllur fluttar upp í Hófaskarð í Svalbarðshreppi
Hrakið hey
græðir landið
Stjórnendur Landspítalans og
fulltrúar fjármála- og efnahagsráðu-
neytisins eru boðaðir á fund fjár-
laganefndar í dag
til að fara yfir
fjárhagsvanda
spítalans og
rekstrarhallann
sem safnast hefur
upp. Nefnd-
armenn í fjár-
laganefnd hafa að
undanförnu farið
ofan í fjárhags-
vanda spítalans
og kallað eftir upplýsingum en eins
og fram hefur komið hér í blaðinu
sýndi hálfsársuppgjör Landspítalans
umfangsmikinn rekstrarhalla í ár til
viðbótar við hallarekstur á seinasta
ári.
Willum Þór Þórsson, formaður
fjárlaganefndar, segir að nefndin hafi
hitt fulltrúa fjármálaráðuneytisins og
farið yfir 6 mánaða uppgjörið en
nefndin fékk það formlega í hendur í
vikunni sem leið. Á fundinum í dag
verður þessum málum fylgt eftir og
aflað upplýsinga frá fyrstu hendi um
til hvaða aðgerða hefur verið gripið,
hvað hafi brugðist í rekstrinum og
hverjar séu ástæður þess að spítalinn
er að fara þetta mikið fram úr fjár-
heimildum. Er framúrkeyrslan skv. 6
mánaða uppgjörinu meiri en gert var
ráð fyrir í þriggja mánaða uppgjöri
Landspítalans fyrr á árinu. Willum
segir að farið verði líka í saumana á
hverju boðaðar aðgerðir stjórnenda
Landspítalans muni skila og hvernig
menn sjái fyrir sér að hallanum verði
náð niður. omfr@mbl.is
Í saumana á hallanum
Willum Þór
Þórsson
Stjórnendur spítalans boðaðir á fund fjárlaganefndar
Morgunblaðið/Ómar
Sjúkrahús Mikill halli var á starf-
semi Landspítala á seinasta ári.
Karlmaður var í gær úrskurðaður
látinn á sjúkrahúsinu á Akureyri eft-
ir köfunarslys í Eyjafirði.
Tilkynning um slysið barst Neyð-
arlínu um klukkan 14. Samkvæmt
upplýsingum frá lögreglunni á Norð-
urlandi eystra hljóðaði sú tilkynning
á þá leið að verið væri að flytja slas-
aðan einstakling í land eftir köfunar-
slys. Voru lögregla, slökkvilið og
björgunarsveitir ræstar út auk þess
sem varðskipið Týr, sem þá var statt
nærri, hélt einnig til aðstoðar. Enn
var unnið á vettvangi í gærkvöldi en
samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglu var m.a. unnið að því að end-
urheimta köfunarbúnað hins látna.
Nánari upplýsingar um slysið feng-
ust ekki í gær.
Maður lést í
köfunarslysi