Morgunblaðið - 04.09.2019, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 04.09.2019, Blaðsíða 19
MINNINGAR 19 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. SEPTEMBER 2019 ✝ Helga Alice Vil-hjálmsson fædd- ist 15. ágúst 1926 í Edinborg. Hún lést 15. ágúst 2019 á Landspítalanum í Fossvogi. Foreldrar hennar voru Guð- mundur Vilhjálms- son, f. 11. júní 1891, d. 1965, fram- kvæmdastjóri Eim- skipafélags Íslands, og Kristín Thors Vilhjálmsson, f. 16. febrúar 1899, d. 1972. Systkin Helgu eru Thor Vil- hjálmsson rithöfundur, f. 1925, d. 2011, Guðmundur W. Vil- hjálmsson lögfræðingur, f. 1928, Margrét Norland, f. 1929, d. 2018, og Hallgrímur Vil- hjálmsson, f. 1931, d. 1945. Hinn 9. september 1949 gift- ist Helga Alice Magnúsi Magn- ússyni, síðar prófessor í eðl- isfræði við Háskóla Íslands, f. 19. október 1926. Foreldrar hans voru Magnús Skaftfjeld Halldórsson, f. 23. maí 1893, d. Margrét Þorbjörg Magnús- dóttir, f. 23. mars 1957. Börn hennar eru Magnús Kjartan Gíslason, f. 7. desember 1976, og Helga Björk Brynjarsdóttir, f. 29. október 1992. Eiginkona Magnúsar er Christina, f. 19. desember 1975, og þau eiga tvo syni, Kjartan, f. 14. október 2009, og Kristján, f. 9. júlí 2012. Helga varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík 1946. Eftir stúdentspróf starf- aði hún í utanríkisráðuneytinu og í sendiráði Íslands í Wash- ington. Eftir giftingu fluttu Helga Alice og Magnús til Cambridge á Englandi, þar sem hann var við nám, og bjuggu þar til 1953. Síðan lá leiðin til Princeton í Bandaríkjunum og loks til Kaupmannahafnar áður en þau fluttu endanlega heim til Ís- lands árið 1960. Þau fluttu í Skeiðarvog fljótlega eftir heim- komu og bjuggu þar saman út hennar ævi. Helga starfaði á skrifstofu Myndlista- og handíðaskóla Ís- lands í 18 ár og eftir það starf- aði hún sem skrifstofustjóri Vís- indaráðs til 1994. Útför Helgu fer fram frá Langholtskirkju í dag, 4. sept- ember 2019, klukkan 13. 7. ágúst 1976, og k.h. Steinunn Kristjánsdóttir, f. 16. desember 1893, d. 18. júní 1984. Börn þeirra eru Kjartan Guð- mundur Magn- ússon, f. 20. mars 1952, d. 13. janúar 2006. Eiginkona Kjartans er María Hafsteinsdóttir, f. 7. september 1950. Dóttir þeirra er Erna, f. 22. ágúst 1977, og dætur henn- ar eru Sofia Lea, f. 18. ágúst 2004, og Alana Lourdes, f. 16. apríl 2011. Magnús Már Magnússon, f. 12. júlí 1954. Eiginkona hans er Karen Alice Young, f. 1. júlí 1952. Synir þeirra eru Magnús Robert, f. 1. ágúst 1991, og Jón Henry, f. 3. nóvember 1993. Eiginkona Magnúsar Roberts er Alexandra, f. 26. ágúst 1993. Unnusta Jóns Henry er Simona, f. 25. febrúar 1994. Ég kveð systur mína, Helgu Alice, með söknuði en þakk- látum huga fyrir nánd yndis- legrar systur. Bros hennar á kjölfestu í huga mínum og hjarta. Líf Helgu var markvisst bæði í einkalífi sem og í fjöl- breytilegum krefjandi störfum hér heima sem erlendis. Ég man enn hve rösklega hún gekk alltaf á leiðinni í menntaskól- ann snemma morguns, þegar við vorum samferða. Þar fór kona með markmið. Veturinn 1954 fram á vor 1955 vorum við hjónin, Lillý og ég, búsett í New York, þar sem ég var við vinnu. Helga og Magnús bjuggu í Princeton á Long Island, þar sem Magnús var við framhaldsnám í kjarn- orkuvísindum. Þó nokkur fjarlægð var milli heimila okkar þar sem við bjuggum yst við austurströnd Manhattan, tveggja lesta ferð hvora leið. Mikill samgangur var samt milli heimilanna, sem héldu sínum heimabrag. Helga var þó bráðkunnug bandarískum hefðum eftir starf í sendiráði Íslands í Wash- ington. Við áttum oft stefnumót í New York og fórum þar á tón- leika og í leikhús. Kjartan og Magnús Már voru þá fæddir synir þeirra til leiks við okkur. Hátíðir héldum við sameigin- lega á máta heimalandsins. Þetta samband okkar var okkur mikils virði. Magnús átti góðan bíl og keyrði hann okkur kynningar- ferðir vítt um, svo sem í Blue Ridge Mountains og skoðuðum við helli þar en Kjartan leitaði kardinála-fugla gegnum bíl- rúðu. Í Princeton fæddist hug- mynd okkar Magnúsar um stofnun Kammermúsíkklúbbs- ins heima. Næstu samfundir okkar voru í Kaupmannahöfn og þar var fjörug dóttirin, Margrét Þor- björg, mætt til leiks með bræðrum sínum. Fráfall Kjartans var mikið áfall sem snerti okkur öll djúpt, foreldra, maka og aðra nána aðstandendur því að hann var hugljúfi okkar allra. Helga mín, elsku systir mín, sem nú skilur við okkar svið. Blítt bros þitt mun áfram birt- ast og tengjast hugum okkar að okkar ákalli eða óvænt, mögu- lega með góðri ábendingu. Ég sendi Magnúsi mági mín- um og fjölskyldu hans og syst- ur minnar innilegar samúðar- kveðjur. Guðmundur W. Vilhjálmsson. Látin er Helga mín kær sem í Myndlista- og handíðaskóla Íslands var ævinlega nefnd Magnússon. Þar var starfsvett- vangur hennar í árafjöld sem skrifstofustjóri. Skólastjórar komu og fóru að loknum sínum ráðningartíma en Helga var an- keri og festa skólans sem kunni á öllu skil og leysti hvers manns vanda, nemenda, kenn- ara, gests og gangandi, ætíð með bros á vör. Yfir Helgu var reisn og virðuleiki en jafnframt var hún svo örugg og blátt áfram að allir báru fyrir henni ómælda virðingu. Og aldrei mun hafa fallið úr dagur að Helga væri ekki á sínum stað og allt í röð og reglu. Afburða starfsmaður sem unni stofnun- inni og vann henni allt er hún mátti. Hennar var sárt saknað þeg- ar hún hvarf þaðan til annarra starfa. Vegir okkar Helgu lágu sam- an á þrenna vegu, og þá framar öðru sem samstarfsaðilar við stofnunina MHÍ. En einnig hlupum við, sveigðum okkur og beygðum árum saman að starfsdegi loknum í tryggum og glöðum leikfimihópi Gígju Her- mannsdóttur er hélt vel saman. Ekki síst tengdumst við þó fjöl- skylduböndum og marga veisl- una sátum við saman þegar fagnað var viðburðum og áföng- um í lífi Thors bróður hennar og Margrétar konu hans, og sameiginlegra niðja okkar. Þá var sannarlega kátt á hjalla, samhugur og gneistandi lífs- fjör. Að leiðarlokum þökkum við Hjalti langa og ljúfa samfylgd og Magnúsi og fjölskyldunni færum við alúðarkveðjur. Edda Óskarsdóttir. Það var stutt úr Ljósheimum yfir í Skeiðarvoginn til Helgu og Magnúsar í te og ristað brauð, kannski 250 metrar. Teið oftast fullsterkt en þau þynntu það með mjólk, upp á enskan máta. Mjólkin fór fyrst í bollann, síðan teið, annað kom ekki til greina. Setið var við eldhúsborðið í dönsku hönnunarstólunum og skrafað um allt milli himins og jarðar. Tíminn leið hægar í þann tíð. Nú eru þær báðar horfnar yfir móðuna miklu heimasæt- urnar glæsilegu af æskuheimil- inu Bergstaðastræti 75. Móðir okkar, Margrét, lést í fyrra og nú kveðjum við systur hennar, Helgu frænku, eins og við ávallt kölluðum hana. Það var sterkt og ástríkt sambandið systkinanna fjögurra, Thors, Helgu, Guðmundar og Mar- grétar. Nú lifir Mundi þau þrjú og er hugur okkar hjá honum. Þegar Helga Alice var lítil stúlka í Edinborg og foreldrar hennar á gangi með hana í glæsilega Silver Cross-vagnin- um héldu nokkrir, sem litu inn í vagninn og sáu fallegu stúlkuna með þessa ótrúlegu hárlokka, að þarna hlyti að fara prins- essan Elísabet. Og Helga hélt vissulega áfram að vera falleg og hárið liðað. Bros hennar var geislandi og augun leiftruðu, hláturinn skammt undan. Kjól- arnir úr silki með fallegu munstri, fágunin henni eðlis- læg. Fjölskyldurnar tvær hafa ætíð verið nánar. Þrír krakkar á hvoru heimili og samgangur mikill. Allt einhvern veginn svo sjálfsagt og eðlilegt. Þannig er oft lífsins gangur en síðan kveður dauðinn dyra og allt hefur breyst. Það var mikið áfall fyrir Helgu að missa frumburð sinn, Kjartan, tæplega 54 ára gamlan í blóma lífsins. Hann varð vita- skuld öllum mikill harmdauði, þessi gáfaði og lífsglaði maður. Þegar Helga var komin á miðjan aldur hóf hún að starfa sem ritari í Myndlista- og handíðaskóla Íslands. Þar vann hún störf sín óaðfinnanlega og var virt jafnt af nemendum sem kennurum. Vinkona okkar, sem stundaði myndlistarnám við skólann á níunda áratug lið- innar aldar þegar Helga stóð þar í stafni, minnist hennar sem yndislegrar manneskju, fallegri jafnt að innan sem ut- an. Hún hafi verið sérlega hlý og góð við nemendur sem áttu við hana erindi, viljað leysa hvers manns vanda hver sem hann var. Greinilegt er að eðliskostir Helgu og reynsla hafa nýst vel í þessu starfi. Hún var greind kona, jafnlynd, iðjusöm og lít- illát. Kúlturmanneskja sem leið vel innan um kennara og nem- endur í þessum merkilega lista- skóla. Helga var konan hans Magn- úsar, það fór ekkert á milli mála. Hún var kletturinn í lífi hans. Síðustu árin sótti gigtin hart að Helgu, bakið bogið og fingur sömuleiðis. Ekki skrifað í genin að kvarta yfir slíku. En þá var Magnús sannarlega haukur í horni. Okkur eru skömmtuð orðin. Við getum því aðeins teiknað upp nokkrar smámyndir til að heiðra minningu hinnar ljúfu frænku okkar. Magnús, Mási og Magga! Missir ykkar er mikill en minningin um góða konu lifir. Kristín, Jón og Halla Norland. Þau slokkna nú eitt af öðru, ljósin sem lýstu upp veröld bernskunnar. Helga föðursystir mín hefur lokið sinni löngu, far- sælu og gjöfulu lífsgöngu. Hægt og bítandi þvarr henni þróttur þar til hún sleppti tak- inu og hélt inn í sumarlandið þar sem bíða hennar systir og tveir bræður og sonur sem fór alltof snemma. Þau voru fimm systkini, börn Guðmundar Vil- hjálmssonar og Kristínar Thors, fjögur komust á fullorð- insaldur og Helga var næstelst, fædd ári eftir föður minn, og þau voru samrýnd svo af bar, milli þeirra strengur sem aldrei trosnaði heldur styrktist eftir því sem árin liðu með tíðum heimsóknum og löngum símtöl- um. Örlögin höguðu því svo að systkinin fjögur rötuðu öll í Vogana á sjötta og sjöunda tug síðustu aldar með fjölskyldur sínar. Það var góður samgang- ur og kærleiksrík vinátta milli þessara heimila og reglulegir samfundir stórfjölskyldunnar á óðali afa og ömmu á Bergstaða- stræti; sem var í minningunni ógnarstór höll en reyndist held- ur minna í reyndinni þegar við frændsystkin tókum fyrir fáein- um árum hús á biskupnum sem þar býr nú. Helga kynntist Magnúsi þeg- ar lýðveldið var að fæðast og þau bæði við nám í Mennta- skólanum í Reykjavík, sam- ferða því Magnús var ári á und- an í skóla; þau felldu saman hugi og giftust svo í september fyrir sjötíu árum. Helga vann um tíma hjá móðurbróður sín- um, Thor Thors sendiherra í Bandaríkjunum, en fylgdi Magnúsi svo til margra helstu lærdómssetra fyrir vestan haf og austan, var honum stoð og stytta í sókn hans til frekari mennta og vísinda. Þegar börn- in þrjú voru komin vel á legg fór hún að vinna á skrifstofu Myndlista- og handíðaskólans með svila sínum, Herði Ágústs- syni listmálara og skólastjóra. Seinna vann hún um árabil hjá Vísindaráði: þangað kom maður stundum á námsárum til Helgu vongóður um að hafa fengið styrk. Og Helga var hjálpfús og skilningsrík, mætti mér þar og hverjum manni sem til hennar leitaði af eðlislægri hjálpsemi og greiðvikni. Helga var hógvær og hlé- dræg, örugg og styrk í mótlæti og sorg en lítt gefin fyrir að flíka sínum einkamálum. Hún var fróðleiksfús og víðlesin, gagnrýnin og umburðarlynd, kát á samfundum og létt í lund, stutt í smitandi hlátur. Nú hef- ur hún kvatt, ljósið slökkt en eftir lifa bjartar og góðar minn- ingar. Hugurinn er hjá Magn- úsi sem misst hefur sinn trygga lífsförunaut og vin; hann reynd- ist Helgu traustur klettur þeg- ar heilsu tók að hraka, um- hyggja hans og kærleikur átti engin takmörk. Við Margrét Þóra sendum honum, Magnúsi Má og Margréti Þorbjörgu, tengdabörnum og barnabörnum innilegar samúðarkveðjur. Örnólfur Thorsson. Helga Alice Vilhjálmsson Í dag kvaddi ég ég góða vinkonu, Geirþrúði Finn- bogadóttur. Þrúða hefði orðið 96 ára 17. júní sl. Ég kynntist Þrúðu þegar hún flutti í sama hús og við fjölskyldan árið 1983. Þá voru börnin hennar flutt að heiman nema yngsti son- ur hennar, hann Þormóður, sem bjó hjá henni fyrstu árin í Furu- grund. Synir okkar, Ingimundur og Viðar, báru út Morgunblaðið. Þeir höfðu það fyrir sið að fara með blaðið upp til hennar og setja það á hurðarhúninn hjá henni. Þeim var mjög hlýtt til Geirþrúðar. Þegar Þrúða var hætt að vinna fór hún eldsnemma í sund á hverj- um morgni. Á seinni árum Þrúðu fór sjónin að daprast og þá var hún mjög dugleg að hlusta á hljóðsnældur. Það var Þrúðu mik- ill missir þegar hún varð að hætta að keyra sökum versnandi sjónar. Ég fór upp til Þrúðu á hverju kvöldi til að gefa henni augndropa og voru það okkar gæðastundir. Ég vissi að Þrúða fór snemma í rúmið á kvöldin og beið hún eftir mér með kveikt ljós. Þegar ég læddist inn í herbergið spurði Þrúða, „er þetta Elín mín?“ og svo fékk ég að setjast á rúmstokk- inn hjá henni. Þá var byrjað að spjalla og hún sagði mér sögur af börnunum sínum. Jóhanna dóttir Þrúðu bjó í Ameríku, New York, með sínum manni og tveimur son- um. Þrúða fór á hverju sumri til New York og var hjá Jóhönnu og fjölskyldu. Þar naut hún sín vel. Á hverju morgni fór Þrúða með drengina í skólabílinn og beið svo eftir skólabílnum seinnipartinn til að taka á móti þeim. Jóhanna og Þrúða töluðu sam- an í síma á hverjum degi. Þegar drengirnir hennar Jóhönnu fóru í menntaskóla kom ekki annað til greina en að fara til Íslands í skóla og búa auðvitað hjá ömmu í Furugrund. Eins sagði Þrúða mér sögur af sinni æsku og drengjunum sínum sem hún átti með manninum sínum, Þormóði Geirþrúður Finn- bogadóttir Hjörvar ✝ GeirþrúðurFinnbogadóttir Hjörvar fæddist 17. júní 1923. Hún lést 6. júní 2019. Útför Geir- þrúðar fór fram 14. júní 2019. Hjörvarssyni. Hann féll frá alltof ungur. En Þrúða dó ekki ráðalaus. Hún dreif sig í Sjúkraliðaskóla Íslands og útskrif- aðist 1970. Hún sagði mér svo skemmtilegar sögur af börnunum sínum þegar þau voru lítil. Hún var líka ákaf- lega stolt af barna- börnunum sínum. Þessar sögustundir okkar Þrúðu gáfu mér mikið en hún var svo góð í því að segja frá. Hún hafði ferðast svo víða með sínum manni sem var loftsiglingafræð- ingur hjá Loftleiðum. Mikið hlóg- um við stundum saman þegar ég var að segja henni hvað ég hefði verið að gera að deginum. Hún vildi auðvitað fá að vita um Kára og syni mína. Þrúðu fannst alltaf jafn gaman að heyra að Viðar minn ætti fimm börn og öll nánast í röð. Ekki var hún minna glöð þegar ég sagði henni að Ingimundur minn væri fluttur til Stavanger með sína fjölskyldu. Þá fékk ég nú aldeilis sögurnar frá Þrúðu um Stavanger en þangað hafði hún mjög oft komið með manninum sínum þegar hann var að fljúga en bækistöðvar Loftleiða voru í Stavanger í þá daga. Þá voru stoppin lengri en í dag. Stundum var tekinn bíll á leigu og keyrt um sveitirnar. Við minnumst Geirþrúðar með söknuði og þakklæti fyrir sam- fylgdina. Við vottum fjölskyldu hennar samúð. Elín Sæunn, Kári, Ingimundur og Viðar. Sálm. 16.1-2 biblian.is Varðveit mig, Guð, því að hjá þér leita ég hælis. Ég segi við Drottin: „Þú ert Drottinn minn, ég á engin gæði nema þig.” Frímann & hálfdán Útfararþjónusta Frímann 897 2468 Hálfdán 898 5765 Ólöf 898 3075 Sími: 565 9775 www.uth.is uth@uth.is Cadillac 2017 Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, TRYGGVI BRANDR JÓHANNSSON, lést á HSN Húsavík aðfaranótt miðvikudags 28. ágúst. Útförin fer fram frá Húsavíkurkirkju 7. september klukkan 14. Guðlaug Sigmarsdóttir Sigmar, Guðrún, Ágústa tengdabörn og barnabörn Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota inn- sendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi lið- ur, „Senda inn minning- argrein,“ valinn úr felliglugg- anum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.