Morgunblaðið - 04.09.2019, Page 2

Morgunblaðið - 04.09.2019, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. SEPTEMBER 2019 Smiðjuvegur 68, Kópavogi | S. 587 1350 | bifreidaverkstaedi.is Höfum sérhæft okkur í Toyota viðgerðum síðan 1995 Fljót, örugg og persónuleg þjónusta Allar almennar bílaviðgerðir Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. „Frávísunin lýsir ekki hugrekki“  Meirihlutinn í borginni vísaði tillögu Sjálfstæðisflokksins um snjallvæðingu í umferðar- og ljósa- stýringu í höfuðborginni frá  Oddviti sjálfstæðismanna vill að samtök sveitarfélaga taki málið upp Tillögu borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um snjallvæðingu í umferðar- og ljósastýringu árið 2020 var vísað frá á fundi borgarstjórnar Reykjavíkur í gær. Eyþór Arnalds, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, segir frávísun á svona máli „ekki lýsa hugrekki“. Hann segir hins vegar að málinu sé hvernig nærri lokið. „Það er kominn tími á hana [tillöguna] og hún mun verða að veruleika þótt borgarstjóri hafi ekki haft metnað í að samþykkja hana þarna. Við munum beita okkur fyrir því að samtök sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu í heild taki þetta upp á sína arma,“ segir Eyþór. Talsverðar umræður sköpuðust um tillöguna og þurfti forseti borgarstjórnar Sabine Les- kopf að minna borgarfulltrúa reglulega á að frammíköll liðust ekki. Sterk krafa var frá minnihlutanum að undirbúa útboð vegna ljósa- stýringar og snjallvæðingar í umferðarstýr- ingu og að slíkt væri gert á fjögurra ára fresti. Spurður um af hverju meirihlutinn í borg- arstjórn ákvað að visa tillögunni frá fremur en að kjósa um hana, segir Eyþór að það sé vegna þess þau geta ekki kosið gegn henni. „Þessu er vísað frá vegna þess að þeim fannst óþægilegt að samþykkja þetta og það var engan veginn hægt að fella þetta. Þá er notuð þessi aðferð að vísa þessu frá og það lýsir ekki hugrekki,“ segir Eyþór. Bent var á að mikil hagræðing fælist í því að samræma ljósastýringu og þar með stytta tíma fólks í umferðinni. Fulltrúar Sjálf- stæðisflokks ítrekuðu að þetta væri tillaga sem flestir ættir að geta sameinast um. Örn Þórð- arson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks, hvatti fólk til að „hætta þessum skrípaleik“ og sam- þykkja tillöguna sem nýtist öllum. Hann sagði jafnframt að ef meirihlutinn tæki upp tillöguna lítið breytta og legði hana fram myndi hann þrátt fyrir það samþykkja hana. „Sífellt verið að uppfæra snjallhlutann“ „Það er mikill munur á skoðunum og stefnu í þessum málum,“ sagði Hjálmar Sveinsson, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar. Í máli Dags B. Eggertssonar borgarstjóra kom fram að sí- fellt væri verið að uppfæra snjallhlutann af ljósastýringunni og samhæfingunni. „Reykja- víkurborg hefur bætt í þennan hluta með ráðn- ingu sérstaks starfsmanns árið 2017,“ sagði Dagur. Spurð af hverju var ákveðið að kjósa ekki um tillöguna, segir Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, odd- viti Viðreisnar í Reykjavík, það vera vegna þess að þetta verkefni sé nú þegar í gangi. „Við erum fyrst og síðast að hugsa um að vera með nýjustu tækni í ljósastýringu og snjallvæðingu borgarinnar. Það verkefni er nú þegar búið að vera í gangi og hófst það ég best veit árið 2016, stendur yfir, mun halda áfram og er þegar fjár- magnað,“ segir Þórdís. Upplýsingastjóri Reykjavíkurborgar sendi fréttatilkynningu á fjölmiðla eftir að tillögu sjálfstæðismanna hafði verið vísað frá. Þar kom fram að á undanförnum árum hefði verið unnið að samtengingu umferðarljósa á höfuð- borgarsvæðinu. Spurður um þessa vinnu segir Eyþór að hann sé ósammála því að um sé að ræða sambærilega vinnu og það sem lagt var fram í gær. „Það er hugmynd um að tengja ljós en það er ekki snjallvæðing. Snjallvæðingin þarf að ganga miklu lengra. Í þeim pakka sem við vorum að leggja til eru radarar og hreyfi- skynjarar sem sjá fólk, hjól og bíla.“ mhj@mbl.is Morgunblaðið/Hari Borgarmál Eyþór Arnalds og Janus Arn Guðmundsson stinga saman nefjum. Katrín Jakobsdóttir forsætisráð- herra ávarpaði í gær ársþing nor- rænu verkalýðshreyfinganna í Malmö í Svíþjóð. Í ávarpi sínu fjallaði forsætisráðherra um aðgerð- ir ríkisstjórnarinnar í tengslum við svonefnda lífskjarasamninga „og nauðsyn þess að félagslegur og efnahagslegur stöðugleiki færi sam- an,“ að því er fram kemur á heima- síðu Stjórnarráðs Íslands. Þá fjallaði forsætisráðherra einn- ig um áskoranir tengdar loftslags- breytingum og nauðsyn þess að stjórnvöld vinni með verkalýðs- hreyfingunni að aðgerðum til að berjast gegn svokallaðri hamfara- hlýnun. Að lokum fjallaði Katrín einnig um kynjajafnrétti á vinnu- markaði og áhrif fjórðu iðnbyltingarinnar á starfsumhverfi okkar allra. Formaður BSRB setti þingið Katrín mun í dag funda með for- svarsmönnum norrænu verkalýðs- hreyfinganna. „Ísland leiðir norrænt samstarf hreyfinganna í ár og er það Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, sem er í forsvari fyrir hönd íslensku verkalýðshreyfingarinnar,“ segir á vef Stjórnarráðsins. Fram kemur í tilkynningu BSRB að Sonja Ýr hafi sett verkalýðs- þingið, en hún er jafnframt formað- ur verkalýðssambandsins. Þær Drífa Snædal, forseti ASÍ, og Þór- unn Sveinbjarnardóttir, formaður BHM, eru einnig fulltrúar á þinginu. Ræddi aðgerðir stjórnvalda varðandi lífskjarasamning  Forsætisráðherra ávarpaði verkalýðsþing í Malmö Ljósmynd/BSRB Þing Katrín Jakobsdóttir flytur ávarp sitt á þinginu í Malmö. Efnt var til móttöku í flugskýli Geirfugls í Fluggörðum á Reykjavíkurflugvelli í gær í tilefni eitt hundrað ára afmælis flugs á Íslandi. Meðal þeirra sem mættu á viðburðinn var Guðni Th. Jóhannesson forseti og flutti hann ávarp. Þá var einnig afhjúpað módel af Avro 504K, fyrstu vélinni sem flaug hér, en hún hóf sig til flugs árið 1919 og var þá tekið á loft frá Vatnsmýrinni. Morgunblaðið/Árni Sæberg Tímamót í íslenskri flugsögu

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.