Morgunblaðið - 04.09.2019, Síða 4

Morgunblaðið - 04.09.2019, Síða 4
Kvikmyndin Hvítur, hvítur dagur, eftir leikstjórann Hlyn Pálmason, var sýnd á sérstakri hátíðarforsýningu í Háskólabíói í gær. Ingvar E. Sigurðsson, aðalleikari myndarinnar, Ída Mekkín Hlynsdóttir og Hlynur Pálmason leikstjóri mættu að sjálfsögðu á sýninguna. Myndin fékk standandi lófaklapp frá gestum, en hún hefur þegar hlotið nokkur verðlaun, m.a. á kvik- myndahátíðinni Critics’ Week í Cannes. Hátíðarforsýning á Hvítum, hvítum degi Ljósmynd/Elsa Katrín Ólafsdóttir Hlaut standandi lófaklapp frá viðstöddum 4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. SEPTEMBER 2019 PON Pétur O. Nikulásson ehf. Melabraut 21, 220 Hafnarfjörður | Sími: 580 0110 | pon.is skotbómulyftara AG línan frá Manitou býður meðal annars upp á nýtt ökumannshús með góðu aðgengi og útsýni. HANNAÐUR TIL AÐ VINNA VERKIN NÝ KYNSLÓÐ • DSB stjórntakkar • JSM stýripinni í fjaðrandi armi • Stýrð stjórnun og hraði á öllum glussahreyfingum • Virk dempun á bómu Brautarholti 24 • 105 Reykjavík • S.: 562 6464 • henson@henson.is SENNILEGA FJÖLHÆFASTA FATAFRAMLEIÐSLUFYRIRTÆKI ÍSLANDS OG ÞÓ AÐ VÍÐAR VÆRI LEITAÐ! • FLOTTUSTU BÚNINGARNIR. • ÞÍNAR SÉR ÓSKIR UM FJÖLBREYTTA FRAMLEIÐSLU EÐA MERKINGAR. • 846 BLS BÆKLINGUR Á HEIMASÍÐUNNI HENSON.IS TIL MERKINGA EÐA EKKI. SÍÐAN 1969 Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Mike Pence, varaforseti Bandaríkj- anna, kemur til Íslands í dag. Gríðarlegur öryggisviðbúnaður er vegna komu varaforsetans og hafa herflutningavélar og þyrlur sést á sveimi í Keflavík og víðar undan- farna daga. Sérsmíðuð og brynvarin ökutæki hafa verið flutt til landsins til að aka Pence og hans fylgdarliði á milli staða og fyllsta öryggis verð- ur gætt. Talið er að um 280 manns verði í fylgdarliði varaforsetans, þar með taldir hermenn og útsend- arar US Secret Service. Á annað hundrað íslenskir löggæslumenn verða til taks. Mikið verður um götulokanir í Reykjavík í dag vegna ferða Pence. Dagskrá heimsóknarinnar lá ekki fyrir í gær að öðru leyti en að Pence muni sækja málþing um við- skipti milli ríkjanna tveggja auk funda með Guðlaugi Þór Þórðarsyni utanríkisráðherra, sem líklegt er talið að verði í Höfða, og Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra í Keflavík í kvöld. Ræða varnarmál og viðskipti „Það er mjög ánægjulegt að varaforseti Bandaríkjanna heim- sæki Ísland,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisherra í samtali við Morgunblaðið. Hann segir að viðskiptaþing sem hann og Mike Pence muni sækja ásamt banda- rískum og íslenskum kaupsýslu- mönnum hafi verið í undirbúningi að undanförnu. Á fundi hans og Mike Pompeo, utanríkisáðherra Bandaríkjanna, snemma árs hafi þeir ákveðið að fara í efnahags- samráð og embættismenn frá lönd- unum tveimur hafi síðan hist í júní og haldið undirbúningi áfram. „Við vonumst til að ná góðum ár- angri í slíku samráði. Þetta er allt gert til að styrkja samkeppnisstöðu þjóðarinnar,“ segir Guðlaugur Þór og vísar til þess að það sé í stjórn- arsáttmálanum að styrkja fríversl- un. Bandaríkin séu stærsti einstaki markaðurinn sem Ísland skipti við. „Ég hef unnið að því frá því ég tók við að styrkja þessi tengsl og efla fríverslun við Bandaríkin og önnur lönd,“ segir ráðherrann. Guðlaugur Þór var spurður hvort staða varnarmála og viðvera Bandaríkjamanna hér kæmi ekki til tals á fundi hans og Mike Pence. „Við munum örugglega ræða ým- is mál, þar á meðal þessi,“ segir ut- anríkisráðherra. Hann segir heimsókn Mike Pence ekki tengjast framkvæmdum bandaríska hersins hér á næstu misserum. Segir Guðlaugur Þór að umræddar framkvæmdir séu gerð- ar á grundvelli fyrirliggjandi samn- inga. „Þessi mannvirki og önnur þarfn- ast viðhalds. Tæknin breytist og uppfæra þarf búnað. Umræddar framkvæmdir bandaríska hersins tengjast ekki heimsókninni enda var gengið frá þeim fyrir nokkru.“ Kastljósið á Ísland Hverju skilar heimsókn sem þessi? „Það er enginn vafi á því að það að fá erlenda þjóðarleiðtoga í heim- sókn hjálpar í samskiptum viðkom- andi ríkja. Það hjálpar til að auka skilning á þeirri stöðu sem Ísland er í. Sjón er sögu ríkari. Það er mjög eftirsóknarvert að fá heimsókn sem þessa, það eitt og sér er mjög jákvætt. Það er sömuleiðis gott að fá kastljósið á Ísland í tengslum við viðskipti. Það mun örugglega opna einhver tækifæri. Slíkt er auðvitað ekki auðvelt að mæla en athyglin opnar örugglega einhverja möguleika. Mikill öryggisviðbúnaður Guðlaugur Þór segir aðspurður að það séu alltaf miklar ráðstafanir þegar erlendir leiðtogar og ráða- menn koma hingað. Því sé hins veg- ar ekki að neita að heimsókn Pence kalli á meira umfang öryggisgæslu en alla jafna. „Öryggisviðbúnaðurinn er mun meiri þegar kemur að varaforseta Bandaríkjanna en flestum öðrum. Hlutir verða fyrir vikið flóknari í framkvæmd.“ Hjálpar í samskiptum ríkjanna  Guðlaugur Þór Þórðarson fagnar komu Mike Pence, varaforseta Banda- ríkjanna, hingað til lands  Gríðarleg öryggisgæsla vegna heimsóknarinnar AFP Á ferðinni Mike Pence fundaði með forsætisráðherra Írlands í gærdag. Hergögn fl utt til landsins Í fylgdarliði varaforsetans verða um 280 manns, þar með taldir hermennog fulltrúar frá US Secret Service Á annað hundrað íslenskir lögreglumenn, þar með talin öll sérsveit Ríkislögreglustjóra og fulltrúar úr sprengjusveit Landhelgis- gæslunnar verður sömuleiðis á vaktinni 400 manns gæta öryggis Mike Pence meðan á heimsókn hans stendurAlls munu því um Northrop B-2 Spirit C-130 Hercules Mikill viðbúnaður er vegna heimsóknar Mike Pence og síðustu daga hafa herfl utninga- vélar og herþyrlur sést á sveimi í Kefl avík og víðar Lockheed C-5 Galaxy Vitað er að þessar vélar hafa komið hingað að undanförnu MV-22 Osprey Sikorsky UH-60 Vélin sem fl ytur varaforsetann er af gerðinni Boeing C-32A Sérsmíðaðir brynvarðir bílar fylgja Mike Pence hvert sem hann fer

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.