Morgunblaðið - 04.09.2019, Síða 12
12 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. SEPTEMBER 2019
IB ehf | Fossnes A | 800 Selfoss | ib.is
Nánari upplýsingar ib.is
Ábyrgð og þjónusta fylgir öllum nýjum bílum frá IB
Bílar á lager
Sími 4 80 80 80
2019 Ford F-350 Platinum
Litur: Magma red, svartur að innan.
6,7L Diesel ,450 Hö, 925 ft of torque.
FX4 off-road pakki, upphituð/loftkæld sæti,
heithúðaður pallur, fjarstart, trappa í hlera, airbag í
belti í aftursæti
VERÐ
11.390.000 m.vsk
2019 Ram Limited 3500 35”
Nýtt útlit 2019! Litur: Granite Crystal
Nýr 6,7L Cummins Turbo Diesel, 400 hö, togar 1000
pund! Aisin sjálfskipting, upphitanleg og loftkæld sæti,
hiti í stýri, sóllúga, nýr towing technology pakki.
35” dekk.
VERÐ
11.395.000 m.vsk
2019 F-350 Limited 35” breyttur
Litur: Perluhvítur, “cocoa” að innan. 6,7L Diesel, 450
Hö, 925 ft of torque. Breyttur með 35” dekk, 20”
felgur og brettakanta. Með FX4 off-road pakka, top-
pljós (ekki á mynd), upphituð/loftkæld sæti, heithúð-
aðan pall, fjarstart, auka bakkmyndavél fyrir camper
eða trailer, trappa í hlera og airbag í belti í aftursæti.
VERÐ
12.490.000 m.vsk
2019 Chrysler Pacifica Hybrid
Limited
Glæsilegur 7 manna bíll. Einn með öllu, t.d. hita/
kæling í sætum, glerþak, leðursæti, bakkmyndavél,
Dvd spilari, Harman Kardon hljómflutningskerfi o.fl.
o.fl. 3,6 L Hybrid.
VERÐ
7.990.000 m.vsk
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Neðri deild breska þingsins sam-
þykkti í gærkvöldi tillögu um að gera
þinginu kleift að afgreiða frumvarp
sem kveður á um að Boris Johnson
forsætisráðherra þurfi að óska eftir
því að útgöngu Bretlands úr Evrópu-
sambandinu verði frestað um þrjá
mánuði ef ekki næst nýtt brexit-sam-
komulag á leiðtogafundi ESB-
ríkjanna 17. og 18. október. Tillagan
var samþykkt með 328 atkvæðum
gegn 301. Embættismenn stjórnar-
innar höfðu sagt að biði hún ósigur í
atkvæðagreiðslunni hygðist hún
leggja til í dag að boðað yrði til þing-
kosninga 14. október.
Gert er ráð fyrir því að neðri deild-
in greiði atkvæði um lagafrumvarpið í
dag. Verði frumvarpið samþykkt fer
það fyrir lávarðadeildina næstu daga.
Vilja binda hendur
forsætisráðherrans
Að sögn stjórnmálaskýranda
breska ríkisútvarpsins er markmiðið
með frumvarpinu að binda hendur
forsætisráðherrans og knýja hann til
að óska eftir því við leiðtoga ESB að
útgöngunni verði frestað til 31. jan-
úar náist ekki nýtt brexit-samkomu-
lag. Í frumvarpinu sé kveðið á um að
ef leiðtogaráð ESB leggi til aðra dag-
setningu beri forsætisráðherranum
að samþykkja hana innan tveggja
daga, nema neðri deild þingsins hafi
hafnað henni. Ákvörðunarvaldið í
málinu verði þannig í höndum þing-
deildarinnar en ekki stjórnarinnar.
Johnson hafði lofað því að Bretland
gengi úr Evrópusambandinu 31.
október, með eða án samnings, og gat
því ekki sætt sig við frumvarpið. Áður
hafði útgöngunni úr ESB verið frest-
að tvisvar.
Fyrir atkvæðagreiðsluna í gær-
kvöldi missti stjórn Íhaldsflokksins
meirihluta sinn í neðri deildinni þegar
einn þingmanna hans, Phillip Lee,
gekk til liðs við Frjálslynda demó-
krata sem eru hlynntir því að Bret-
land verði áfram í ESB. Af þeim þing-
mönnum sem greiða atkvæði í
deildinni eru nú 320 andvígir stjórn-
inni og 319 styðja hana, að meðtöld-
um tíu þingmönnum DUP, flokks
sambandsinna á Norður-Írlandi.
Stjórnin er þó ekki fallin því að til
þess þarf þingið að samþykkja form-
lega vantrauststillögu gegn henni.
Hópur þingmanna Íhaldsflokksins
greiddi atkvæði með frumvarpinu í
gærkvöldi þótt Johnson hefði hótað
að víkja þeim úr flokknum og sjá til
þess að þeir yrðu ekki í framboði fyrir
hann í næstu kosningum. Félög
Íhaldsflokksins höfðu áður valið
nokkra uppreisnarmannanna sem
frambjóðendur flokksins í kjördæm-
um þeirra.
Dagsetningunni breytt?
Tveir þriðju þingmanna neðri
deildarinnar þurfa að samþykkja til-
lögu forsætisráðherrans um að flýta
kosningum. Forystumenn Verka-
mannaflokksins hafa sagt síðustu
mánuði að þeir vilji að kosningum
verði flýtt en í gær virtust margir
þeirra vera tregir til að greiða at-
kvæði með stjórninni í málinu vegna
þess að þeir treysta ekki Johnson til
að standa við það að kosið verði 14.
október. Þeir óttast að hann fresti
kosningunum þar til eftir 31. október,
með það að markmiði að Bretland
gangi úr ESB áður en kosið verður,
og vilja að tryggt verði lagalega að
forsætisráðherrann geti ekki breytt
dagsetningu kosninganna eftir að
þingið samþykkir að flýta þeim. Tals-
maður þingliðs Skoska þjóðarflokks-
ins, Ian Blackford, sagði að hann vildi
kosningar en að hafa þyrfti stjórn-
arandstöðuna með í ráðum þegar
kjördagurinn væri ákveðinn. „Við vit-
um alveg hvað Boris Johnson er að
bralla,“ sagði hann.
Uppreisnarmennirnir í Íhalds-
flokknum leggjast gegn brexit-stefnu
Johnsons vegna þess að þeir telja út-
göngu án samnings stórskaða efna-
hag Bretlands. Johnson kveðst vilja
nýtt brexit-samkomulag en segir að
ekki verði hægt að knýja það fram án
þess að hóta útgöngu án samnings.
Fresti þingið útgöngunni í þriðja sinn
grafi það undan stjórninni í samn-
ingaviðræðunum, þannig að ógern-
ingur verði að knýja fram nýtt sam-
komulag.
Johnson sagði í fyrradag að líkurn-
ar á því að nýtt samkomulag næðist
hefðu aukist en andstæðingar hans
sögðu að hann hefði í raun ekki hafið
neinar samningaviðræður við leið-
toga ESB-ríkjanna. Talsmaður fram-
kvæmdastjórnar ESB sagði í gær að
stjórn Johnsons hefði ekki lagt fram
neinar „raunhæfar tillögur“ um
breytingar á brexit-samningnum sem
breska þingið hafnaði þrisvar.
Vilja hindra brexit án samnings
Neðri deild þingsins í Bretlandi samþykkti að taka fyrir tillögu um að útgöngu úr ESB yrði frestað
næðist ekki nýtt samkomulag um hana Stjórn Íhaldsflokksins missti meirihluta sinn á breska þinginu
AFP
Gegn brexit Andstæðingar útgöngu úr ESB án samnings mótmæltu brexit-
stefnu Boris Johnsons forsætisráðherra fyrir utan þinghúsið í London í gær.
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Fellibylurinn Dorian færðist í gær
mjög hægt í áttina að austurströnd
Bandaríkjanna eftir að hafa valdið
mikilli eyðileggingu á Bahamaeyjum.
Vindhraðinn minnkaði en fellibylur-
inn var enn talinn hættulegur. Hon-
um fylgdi mikil úrkoma sem olli flóð-
um víða á Bahamaeyjum og margir
íbúanna sendu út hjálparbeiðnir á
samfélagsmiðlum, þ.á m. fólk sem
flúði skelfingu lostið upp á þök húsa
og beið eftir björgun. Útvarpsstöð á
eyjunum sagðist hafa fengið meira en
2.000 skilaboð frá nauðstöddu fólki.
Mikil úrkoma var enn í gær á ham-
farasvæðunum nyrst á Bahamaeyj-
um. Gervihnattamyndir sýndu að stór
svæði voru undir vatni, m.a. alþjóða-
flugvöllur á eyjunni Grand Bahama
og bærinn Marsh Harbour á Abaco-
eyjum. Fréttavefur á Bahamaeyjum
sýndi myndskeið frá Freeport,
stærsta bæ Grand Bahama, þar sem
sjúkrahús var undir vatni og flytja
þurfti sjúklinga í burtu.
Talið er að um 60.000 manns þurfi á
matvælaaðstoð að halda á Bahama-
eyjum vegna óveðursins, að sögn
hjálparstofnana Sameinuðu þjóð-
anna. Vitað var um fimm manns sem
létu lífið í fellibylnum en óttast var að
manntjónið væri meira.
Ógnar strönd Bandaríkjanna
Fellibylurinn náði fimmta og hæsta
styrkleikaflokki þegar hann fór yfir
Abaco-eyjar á sunnudag og meðal-
vindhraðinn mældist þá allt að 82 m/s.
Dorian var skilgreindur sem annars
stigs fellibylur í gær og meðal-
vindhraðinn var um 49 m/s, að sögn
Fellibyljamiðstöðvar Bandaríkjanna.
Hún sagði að sjávarstaðan væri um 3-
4,5 metrar yfir meðallagi og að íbúum
Grand Bahama stafaði enn mikil
hætta af flóðum. Íbúar eyjunnar eru
um 50.000 og 17.000 manns búa á
Abaco-eyjum.
Dorian hafði í gær aðeins færst um
20 kílómetra á einum sólarhring, að
sögn Fellibyljamiðstöðvar Bandaríkj-
anna. Hún spáði því að vindhraðinn
myndi aukast aftur og sagði að felli-
bylurinn myndi færast í norður í dag
og „koma hættulega nálægt austur-
strönd Flórída“. Gert var ráð fyrir að
Dorian yrði mjög nálægt strönd
Georgíu og Suður-Karólínu í kvöld að
staðartíma. Talið var að fellibylurinn
yrði síðan nálægt eða yfir strönd
Norður-Karólínu seint annað kvöld
en að vindhraðinn yrði þá minni.
Miami
Abaco-
eyjar
Grand
Bahama
Gervihnattarmynd 17. ágúst
Eyðilegging á Bahamaeyjum
Heimildir: Copernicus (Sentinel-3), Global Human Settlement (Evrópusambandið)
FLÓRÍDA
Þéttbýlustu svæðin50 km
Ekki er vitað hversu mikið
manntjónið var
Sjávarhæð 3-5 m yfir
meðallagi
1. og 2. september:
Meðalvindhraði: 78 m/s
Vindhviður: Allt að 97 m/sUm 13.000 hús stór-
skemmd eða eyðilögð
Marsh
Harbour
A.m.k. 61.000manns
þurfa matvælaaðstoð
Skv. fréttum í gær:
Um 60.000 manns
þurfa matvælaaðstoð
Hætta stafar
enn af flóðum
AFP
Hjálparstarf undirbúið Gengið frá matargjöfum sem kirkja í Miami í Flór-
ída safnaði vegna fellibylsins Dorian sem ógnar strönd ríkisins.