Morgunblaðið - 04.09.2019, Side 15
15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. SEPTEMBER 2019
Ójöfnuður Minningarsjóðurinn Öruggt skjól efndi til mótmælastöðu við Ráðhús Reykjavíkur í gær í von um að vekja athygli á bágri stöðu heimilislausra, en hátt í 80 manns mættu.
Hari
Fæstir stjórnmála-
manna eru hugsuðir í
eðli sínu. Þeir byggja
viðhorf sín fremur á
einföldum grunnhug-
myndum en djúpri
hugmyndafræðilegri
sannfæringu. Aðrir eru
hreinir teknókratar,
uppteknir af því að
smíða þjóðfélagsmódel,
lög og reglur um alla
mannlega hegðun. Enn aðrir haga
seglum eftir vindum.
Óhætt er að halda því fram að
sæmileg sátt sé á Íslandi um grunn-
hlutverk ríkisins. Ríkið á að vernda
borgarana gegn utanaðkomandi of-
beldi jafnt og ofbeldi innanlands,
tryggja eignaréttinn, setja og fram-
fylgja almennum leikreglum, tryggja
að börn og unglingar hljóti almenna
góða menntun og sjúklingum sé veitt
góð heilbrigðisþjónusta óháð efna-
hag. Við höfum einnig sameinast um
að hjálpa þeim sem minna mega sín
til sjálfshjálpar og tryggja að þeir
sem ekki geta, hafi til hnífs og skeið-
ar og eigi mannsæmandi líf.
Ágreiningurinn verður djúpstæð-
ari þegar tekist er á um hvort og
hvernig ríkið eigi að sinna öðrum
verkefnum. Raunar er einnig tekist á
um það með hvaða hætti ríkisvaldið
uppfyllir grunnskyldur
sínar. Þetta á t.d. við um
heilbrigðisþjónustu, þar
sem ríkishyggjan hefur
grafið undan einka-
rekstri og þarfir kerf-
isins eru oft settar ofar
réttindum okkar allra
sem erum sjúkratryggð.
Jafnvel varðstaðan um
eignarréttinn getur
brostið enda gera rót-
tækir vinstrimenn atlögu
að eignarréttinum þegar
færi gefst. Orðræða um
vannýtt tekjutækifæri og vannýtta
tekjustofna, þegar reynt er að koma
böndum á skattagleði hins opinbera,
á rætur í hugmyndafræði þar sem
eignarrétturinn er virtur að vettugi.
Þokukenndar hugmyndir
Ég óttast að skilgreining á ríkis-
valdinu og hlutverki þess verði stöð-
ugt óskýrari – fremur þokukennd
hugmynd. Fyrir marga hentar þró-
unin vel – hagsmunum þeirra er bet-
ur borgið. Eftir því sem markmiðin,
skyldurnar og verkefnin eru óljósari
því greiðari er leiðin að ríkishyggju.
Mörkin milli ríkisins og einstak-
lingsins, milli ríkisrekstrar og einka-
rekstrar, þurrkast hægt og bítandi
út. Í þokunni þenst ríkið út, stofnanir
og ríkisfyrirtæki fara að vasast í
verkefnum sem þau eiga ekki að
koma nálægt.
Ohf-væðing ríkisfyrirtækja hefur
reynst meiri skaðvaldur en nokkurn
gat órað fyrir. Í stað þess að auka
gagnsæi í rekstri og gera ákvörðun-
artöku markvissari hafa opinberu
hlutafélögin fremur orðið eins og lok-
uð einkafyrirtæki. Þau lúta ekki valdi
eigenda sinna líkt og almenn hluta-
félög. Oft virðast engin bönd halda
ríkisfyrirtækjum, ekki síst þeim sem
starfa í skjóli ohf. Skipulega og í
auknum mæli seilast þau inn á verk-
svið einkafyrirtækja – stunda sam-
keppni þar sem aldrei getur ríkt
jafnræði eða sanngirni.
Verst af öllu: Þeim stjórnmála-
mönnum fer fækkandi sem spyrja
hvað í fja. ríkið sé alltaf að vasast í
hlutum sem koma því ekkert við. Af
hverju ríkisfyrirtæki telja sig hafa
rétt til að gera strandhögg hjá einka-
fyrirtækjum er spurning sem flestir
eru hættir að spyrja.
Spurningarnar eru hættar að
heyrast og þess vegna eru litlar at-
hugasemdir gerðar við að ríkið hasli
sér völl í samkeppni við sjálfstæða
atvinnurekendur með rekstri sendi-
bílaþjónustu. Allt í einu eru vöru-
dreifing, sendlaþjónusta, vöruhýsing
og prentþjónusta á verksviði ríkisins.
Með sama hætti er sjálfsagt að ríkið
sé stærsti smásali snyrtivara á Ís-
landi og umfangsmikill leikfangasali.
Athugasemdir við ríkisrekna sæl-
gætissölu eru afgreiddar sem öfgar.
Í skjóli Fríhafnarinnar á Keflavík-
urflugvelli keppir „Undirfataverslun
ríkisins“ við einkareknar verslanir
sem ólíkt Fríhöfninni þurfa að
standa skil á virðisaukaskatti og toll-
um.
Ríkishyggjan festir rætur
Fyrir marga er það martraðar-
kennd tilhugsun að ríkið dragi sig út
úr smásölu, hætti rekstri fríhafnar
og selji rekstur Flugstöðvar Leifs
Eiríkssonar. Þeir sofa betur í þeirri
fullvissu að tugir milljarða séu
bundnir í flugstöð en ekki í nauðsyn-
legum samfélagslegum innviðum.
Þegar gerð er athugasemd við að
ríkið skuli á 21. öld standa í rekstri
fjölmiðlafyrirtækis er brugðist hart
við. Meirihluti stjórnmálamanna er
sannfærður um nauðsyn þess að rík-
ið taki virkan þátt í rekstri fjölmiðla
og sé í harðri samkeppni við einka-
rekna miðla. Tilvist Ríkisútvarpsins
er mikilvægari en að sæmilegt jafn-
ræði sé á fjölmiðlamarkaði þannig að
einkareknir fjölmiðlar fái að dafna.
Í janúar á liðnu ári sagðist ég vona
„að ægivald ríkisrekins fjölmiðils sé
ekki orðið svo mikið að stjórn-
málamenn treysti sér ekki til að
breyta leikreglunum. Veigri sér við
að jafna stöðu sjálfstæðra og ríkis-
rekinna fjölmiðla“. Fátt bendir til að
pólitískur vilji sé fyrir hendi að skil-
greina hlutverk, skyldur og umsvif
Ríkisútvarpsins með þeim hætti að
einkareknir fjölmiðlar fái þrifist. Ég
óttast að von mín sé reist á sandi.
Ríkishyggjan hefur náð að skjóta
sterkum rótum í íslensku samfélagi
og því miður í öllum stjórnmála-
flokkum. Það er þægilegra að setja
hugmyndafræðina ofan í skúffu og
telja sjálfum sér trú um að hægt sé
að leysa hvers manns vanda á grunni
ríkishyggju. Hægt og bítandi miss-
um við því sjónar á hlutverki og
skyldum ríkisins sem heldur áfram
að selja ilmvötn og auglýsingar. Og
þá rennur kannski upp fyrir ein-
hverjum hvað Ronald Reagan, fyrr-
verandi Bandaríkjaforseti, átti við
þegar hann lýsti hugmyndafræði
vinstrimanna:
„Ef það hreyfist, skattleggðu það.
Ef það heldur áfram að hreyfast,
settu lög. Ef það stoppar, settu það á
ríkisstyrk.“
Eftir Óla Björn
Kárason »Ríkishyggjan hefur
náð að skjóta sterk-
um rótum í íslensku
samfélagi – í öllum
stjórnmálaflokkum.
Það er þægilegra
að geyma hugmynda-
fræðina í skúffu.
Óli Björn Kárason
Höfundur er alþingismaður
Sjálfstæðisflokksins.
Á ríkið að selja ilmvötn og auglýsingar?