Morgunblaðið - 04.09.2019, Síða 27
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. SEPTEMBER 2019
Lopapeysa
í sveitina
Verið velkomin í nýja og glæsilega
verslun okkar okkar á Laugavegi 4-6
Álafossvegi 23, Laugavegi 4-6, alafoss.is
Þessi eina sanna sem verður bara betri
eftir því sem þú nota hana meira.
Arnar Birkir Hálfdánsson, Sveinn
Jóhannsson og samherjar hjá Sönder-
jyskE unnu Skjern 26:25 í 1. umferð
dönsku úrvalsdeildarinnar í handknatt-
leik. Sveinn skoraði sigurmarkið 40
sekúndum fyrir leikslok. Elvar Örn
Jónsson komst ekki á blað hjá Skjern
en hann og þjálfarinn Patrekur Jóhann-
esson tóku þátt í sínum fyrsta mótsleik
með Skjern. Björgvin Páll Gústavsson
varði tvö skot í markinu.
Georgíski landsliðsmaðurinn Giorgi
Dikhaminjia mun ekki leika með HK í
vetur, þar sem hann þótti ekki standa
undir væntingum. HK er nýliði í Ol-
ísdeildinni í handbolta eftir sigur á Vík-
ingi R. í umspili um sæti í deildinni á
síðustu leiktíð.
Handknattleiksdeild Aftureldingar
hefur gengið frá samningi við hina 24
ára gömlu Andreu Daidzic. Mun hún
spila með liðinu á komandi tímabili. Da-
idzic er króatískur línumaður sem und-
anfarið hefur spilað með Osijek í
heimalandinu. Afturelding
er nýliði í efstu deild.
Belgísku knatt-
spyrnumennirnir og
bræðurnir Eden og
Thorgan Hazard voru
í gær sendir heim til
félagsliða sinna og
úr belgíska lands-
liðshópnum sem
mætir San Mar-
ínó og Skot-
landi. Hazard-
bræðurnir
glíma við
meiðsli.
Eitt
ogannað
Ekki byrjuðu þrefaldir meistarar í
handknattleik kvenna 2019 nýja
handboltavertíð vel í gær. Valur
mætti þá Fram í Meistarakeppni
HSÍ en Fram hafnaði í 2. sæti á Ís-
landsmótinu í vor. Valur vann þá
úrslitarimmuna 3:0 en dæmið sner-
ist við í gær og Fram vann risa-
sigur 36:23 og fór leikurinn þar að
auki fram á Hlíðarenda, heimavelli
Vals.
Leikurinn var jafn framan af og
var staðan 7:7 þegar fyrri hálf-
leikur var hálfnaður. Þá hrökk
Fram í gang og skoraði sjö af
næstu átta mörkum og var staðan
að loknum fyrri hálfleik 19:11 fyrir
Fram.
Fram hélt áfram að bæta í for-
skotið allan seinni hálfleikinn og
Valskonur áttu engin svör.
Steinunn Björnsdóttir skoraði tíu
mörk fyrir Fram, Ragnheiður Júl-
íusdóttir gerði átta og þær Þórey
Rósa Stefánsdóttir og Perla Ruth
Albertsdóttir skoruðu fjögur mörk
hvor. Perla gekk í raðir Fram í
sumar frá Selfossi og styrkti liðið
væntanlega talsvert í vetur.
Ásdís Þóra Ágústsdóttir skoraði
tíu mörk fyrir Val og Arna Sif
Pálsdóttir fimm. Arna gekk í raðir
Vals í sumar frá ÍBV eftir eitt
keppnistímabil í Eyjum.
Fram burstaði meistarana
Fram skoraði 36 mörk gegn Val á Hlíðarenda í Meistarakeppni HSÍ
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Á Hlíðarenda Steinunn Björnsdóttir, fyrirliði Fram, með bikarinn sem liðið fékk fyrir sigurinn.
Svíþjóð vann sannfærandi 4:1-sigur
á Lettlandi á útivelli í fyrsta leik
liðanna í F-riðli, riðli Íslands, í und-
ankeppni EM kvenna í knattspyrnu.
Lettland komst óvænt yfir á 14.
mínútu er Olga Sevcova skoraði.
Tók það sænska liðið ekki nema
sextán mínútur að jafna og það
gerði Linda Sembrant og var stað-
an 1:0 að loknum fyrri hálfleik.
Sænska liðið var mun sterkara í
seinni hálfleik og Amanda Ilestedt
skoraði tvö mörk og Carlone Seger
eitt til að gulltryggja 4:1-sigur
bronsliðsins frá HM.
Sigur hjá Svíum
í riðli Íslands
AFP
Skoraði Linda Sembrant jafnaði
fyrir Svía gegn Lettum í gær.
Sigurbergur Sveinsson, leikmaður
ÍBV í úrvalsdeild karla í handkantt-
leik, verður fjarri góðu gamni þeg-
ar ÍBV tekur á móti Stjörnunni í
fyrstu umferð Olísdeildarinnar á
sunnudaginn kemur í Vest-
mannaeyjum en þetta staðfesti
hann í samtali við mbl.is í gær.
„Ég mun missa af fyrstu leikjum
tímabilsins, það er á hreinu. Ég var
í aðgerð á hné á dögunum þar sem
það þurfti aðeins að hreinsa til og
við þurfum svo bara að sjá til
hvernig endurhæfingin mun ganga
hjá mér,“ sagði Sigurbergur m.a.
Missir af fyrstu
leikjum ÍBV
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Stórskytta Sigurbergur fer ekki í
loftið alveg á næstunni.
Viggó Kristjánsson og samherjar hans hjá Leipzig fara vel
af stað í þýsku 1. deildinni í handknattleik Liðið er með
fullt hús stiga eftir þrjár umferðir, en liðið vann 31:28-
heimasigur á Stuttgart í gær.
Frábær byrjun á tímabilinu fyrir Viggó sem skoraði tvö
mörk fyrir Leipzig. Skyttan kom til félagsins frá West
Wien í Austurríki í sumar. Elvar Ásgeirsson lék með Stutt-
gart og skoraði eitt mark. Elvar er að taka sín fyrstu skref
í atvinnumennsku eftir góða spilamennsku með Aftureld-
ingu undanfarin ár. Stuttgart er án stiga en á leik til góða.
Rhein Neckar Löwen vann 30:24-heimasigur á Berg-
ischer í Íslendingaslag. Alexander Petersson skoraði ekki
fyrir Löwen, en Kristján Andrésson þjálfar nú liðið og tók við í sumar af
Nikolaj Jacobsen. Arnór Þór Gunnarsson skoraði fjögur mörk fyrir Berg-
ischer. Ragnar Jóhannsson komst ekki á blað.
Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði ekki fyrir Kiel í 30:27-heimasigri á Lud-
wigshafen. Kiel hefur unnið báða leiki sína til þessa. johanningi @mbl.is
Þriðji sigurinn hjá Viggó
Viggó
Kristjánsson
FH verður án Færeyingsins Brands Olsen og Halldórs
Orra Björnssonar er liðið mætir ÍBV á heimavelli í 20.
umferð Pepsi Max-deildar karla í knattspyrnu hinn 18.
september.
Fengu þeir báðir sína fjórðu áminningu í sumar í
leiknum við Stjörnuna í síðustu umferð.
Þorri Geir Rúnarsson verður ekki með Stjörnunni í
stórleiknum gegn Breiðabliki mánudaginn 16. sept-
ember. Hann fékk sína fjórðu áminningu í sama leik.
Valur verður svo án Svíans Sebastians Hedlunds er
liðið mætir KR 16. september á heimavelli, en KR getur
tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn með sigri. Hedlund
fékk sitt fimmta gula spjald á tímabilinu er Valur tapaði óvænt fyrir ÍBV í
síðustu umferð.
Íslandsmótið er farið að styttast í annan endann en þrjár umferðir eru
eftir í efstu deildum karla og kvenna. sport@mbl.is
Tveir í leikbanni hjá FH
Brandur
Olsen