Morgunblaðið - 21.09.2019, Blaðsíða 1
Fjölmenni var á Austurvelli í gær þar sem ungt fólk hvatti stjórnvöld til aðgerða í loftslags-
málum. Gengið var frá Hallgrímskirkju niður Skólavörðustíg á fundarstað. Efnt var til verkfalls-
aðgerða sambærilegra þeim sem voru í Reykjavík á um 5.000 stöðum í yfir 150 löndum. »25
Morgunblaðið/Hari
Vilja aðgerðir í loftslagsmálum
Sér ekkieftir
neinu
Dansaði sigí gegnumhrunið
Björgvin Karl Guðmundsson hafði
aðeins stundað crossfit í rúm-
lega hálft ár þegar hann ákvað
að helga líf sitt greininni. Hann
sér ekki eftir þeirri ákvörðunenda verið í hópi 10 bestu í
heimi í crossfit síðustu árin oggetur í dag kallað sig þriðjahraustasta mann heims. 10
22. SEPTEMBER 2019SUNNUDAGUR
Nanna Jónsdóttirhjá DanceCenterReykjavík færtil sín virtandans-
höfund
í byrjunoktóber. 2
Q úr
Star Trek
Leikarinn og efahyggju-maðurinn John de Lancienotar frægðina til góðs ogfræðir ungt fólk umhúmanisma. 14
Veitinga-staðurinnMinilik nýturvinsælda. 22
Eþíópía á
diski á
Flúðum
L A U G A R D A G U R 2 1. S E P T E M B E R 2 0 1 9
Stofnað 1913 222. tölublað 107. árgangur
SÝNA VERK
VIRGINIU WOOLF
HAUSTIÐ 2020
HUNDAR
FRÁBÆRAR
FYRIRSÆTUR
ANNA SZABO 20BORGARLEIKHÚSSTJÓRI 49
Gísli Vilhjálmsson, tannlæknir og
sérfræðingur í tannréttingum, telur
að fagnefnd Sjúkratrygginga Ís-
lands sé á villigötum nú þegar hún
öðru sinni hefur hafnað því að SÍ taki
þátt í kostnaði vegna aðgerða á
börnum með skarð í gómi og/eða vör.
Gísli kveðst í samtali við Morg-
unblaðið hafa sent Svandísi Svav-
arsdóttur heilbrigðisráðherra ít-
arlega greinargerð um greiningu
sína á þörfum þeirra barna sem hann
hafi greint vegna skarðs í gómi.
Ekkert hafi heyrst frá ráðherra.
Gísli segir ráðherra ekki hafa
staðið við þau fyrirheit sem hún gaf
um réttindi ofangreindra barna á Al-
þingi og fagnefnd SÍ hafi hundsað
hennar vilja. »10
SÍ hundsi
vilja ráð-
herra
Segir að fagnefnd
SÍ sé á villigötum
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Sigurður Ingi Jóhannsson sam-
gönguráðherra segir mögulegt að
ljúka smíði Sundabrautar fyrir 2030.
Lágbrú sé fýsilegasti kosturinn en
mögulega verði hægt að áfanga-
skipta verkinu og hraða því. Áætlað
sé að lágbrúarleiðin kosti 60 millj-
arða og verkefnið í heild allt að 70
milljarða. Miðar hann þá við alla leið-
ina frá Kleppsvík að Kjalarnesi.
Sigurður Ingi segir hugmyndir
um að bjóða allt verkið út frá hönnun
til framkvæmda. Nú sé miðað við allt
að 8 metra háar brýr yfir voginum,
borið saman við 24 metra í fyrri til-
lögu. Gert sé ráð fyrir að fjármagna
verkefnið með veggjöldum.
Sigurður Ingi segi að þótt brúar-
smíðin þrengi að skipafélögunum sé
rétt að horfa áratugi fram í tímann.
Sundahöfn verði sennilega ekki aðal-
skipahöfnin eftir nokkra áratugi.
Ný samgönguáætlun
Næsta fimmtudag verður kynnt
samgönguáætlun fyrir höfuðborgar-
svæðið til næstu 15 ára.
Að sögn Rósu Guðbjartsdóttur,
formanns Samtaka sveitarfélaga á
höfuðborgarsvæðinu, SSH, felur
áætlunin í sér framkvæmdir við
stofnbrautir, almenningssamgöng-
ur, borgarlínuna, hjóla- og göngu-
stíga og umferðarstýringu. Þær
hefjist þegar á næsta ári og muni
bæta flæði umferðar innan fárra ára.
Rætt hefur verið um að uppbygg-
ingin geti kostað 120 milljarða og
borgarlínan þar af 50 milljarða.
Áformin um Sundabraut sæta tíð-
indum en borgin hefur samkvæmt
heimildum blaðsins ekki gert ráð
fyrir Sundabraut. Samkvæmt áætl-
un starfshóps kosta jarðgöng 74
milljarða en lágbrúin, eða lágbrýrn-
ar, 60 milljarða. Þannig hafa verið
unnin drög að tveimur lágbrúm sem
tengjast landfyllingu á miðri leið.
Síðan taka við göng í gegnum Gufu-
neshöfða. Lágbrúin og áðurnefnd
áætlun kosta alls 180 milljarða. »4
Ný samgönguáætlun til 15 ára
Útgjöld alls: 120 milljarðar króna samkvæmt heimildum blaðsins
Ýmis verkefni
20
milljarðar
Önnur umferðar-
mannvirki
50
milljarðar
Sunda-
braut 60 milljarðar
Borgarlína
50
milljarðar
SÉR-
VERKEFNI
Sundabraut verði tilbúin fyrir 2030
Ráðherra boðar lágbrú 120 milljarðar í samgönguáætlun
A
ct
av
is
91
10
13
Omeprazol
Actavis
20mg, 14 og 28 stk.
Magasýruþolin hörð hylki ætluð fullorðnum til
skammtímameðferðar við einkennum bakflæðis
(t.d. brjóstsviða og nábít). Gleypið hylkin í heilu
lagi með hálfu glasi af vatni fyrir mat eða á
fastandi maga. Lesið vandlega upplýsingar á
umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins.
Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á
frekari upplýsingum um áhættu og auka-
verkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á
www.serlyfjaskra.is
Fjárfest-
ar skoða
dróna
Hannaður sem fæla á
flugvöllum Gæti átt er-
indi í varnar- og öryggismál
Nokkrir fulltrúar úr bandarísku viðskiptalífi sem
voru hluti af fylgdarliði Mike Pence, varaforseta
Bandaríkjanna, sýndu íslensku sprotafyrirtæki sér-
staklega athygli á meðan þeir dvöldu hér á landi.
Nánar til tekið var það
dróni fyrirtækisins Flyg-
ildi sem er hannaður til
þess að hreyfa sig, fljúga
og líta út eins og lifandi
fugl sem vakti áhuga fjár-
festanna. Um er að ræða
þróunarverkefni frum-
kvöðulsins Hjalta Harðar-
sonar sem fék til liðs við
sig dr. Peter Höller fyrr á
þessu ári.
Hljóðlátur á flugi
Fuglinn er dróni sem
hagar flugi sínu þannig að
flug hans er einstaklega
hljóðlátt og hefur hann
hlotið nafngiftina „Silent
Flyer“. Er dróninn vel til
þess fallinn að sinna eftir-
liti og fæla fugla frá flug-
brautum og flugleiðum.
Bandarísku fjárfest-
arnir sáu hins vegar einn-
ig notagildi fyrir drónann
innan varnar- og öryggis-
mála.
Um er að ræða tækniþróun með hátt flækjustig þar
sem vélarbúnaður sem á að geta hreyft vængi eins og
lifandi dýr þarf að tengjast háþróuðum hugbúnaði
sem samhæfir hreyfingarnar. Höller, sem leiðir hug-
búnaðarþróunina, segir mikinn árangur hafa náðst á
þessu ári.
MDróni í fuglslíki vekur athygli »24
Kominn
langt á veg
» Tekist hefur að
koma fyrir flóknum
vélar- og hugbúnaði
í takmörkuðu rými.
» Vegur aðeins um
eitt kíló og með 1,2
metra vænghaf.
» Þegar frumgerðin
er fullprófuð verður
hægt að stækka
hana.
Dróninn Vekur athygli.
Morgunblaðið/Eggert