Morgunblaðið - 21.09.2019, Síða 8

Morgunblaðið - 21.09.2019, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER 2019 Viðskiptablaðið fjallar um lög-reglumál í pistli Óðins í vik- unni og segir að ríkislögreglu- stjóri hafi „látið þá skoðun sína í ljós að yfirmannakerfið innan lögregl- unnar sé of dýrt og rétt sé að ein- falda það“. Undir þetta hafi nýskip- aður dóms- málaráðherra tekið. Þá segir Við- skiptablaðið „afar ánægjulegt að heyra forstöðumann hjá ríkinu benda á leiðir til sparnaðar og skilvirkari stjórnunar og að ráð- herra taki undir þær. Þetta ger- ist sjaldan. Nánast aldrei“.    Og Viðskiptablaðið helduráfram: „Viðbrögðin við þessu hafa helst verið þau að lögreglu- stjórar hringinn í kringum landið hafa setið á þrotlausum neyðar- fundum. Því slíkar hugmyndir fela í sér, án nokkurs vafa, að þeir missi flestir starf sitt eða að minnsta kosti spón úr aski sínum.“    Enn fremur segir blaðið: „Umhvað snýst gagnrýnin á ríkislögreglustjóra. Jú, um bíla og einkennisföt. Og hver leiðir gagnrýni á ríkislögreglustjóra? Formaður Lögreglufélags Reykjavíkur. Hver er formaður félagsins? Maður sem ríkislög- reglustjóri þurfti að víkja tíma- bundið úr starfi meðan rann- sakað var meint brot hans í opinberu starfi.“    Fátt ef nokkuð er mikilvægaraen að ríkið haldi uppi lögum og rétti í landinu. Þess vegna verðskulda málefni lögreglunnar umræðu. En þau verðskulda líka að umræðan sé yfirveguð, snúist um aðalatriði en ekki sérhags- muni og sé án upphlaupa. Lögreglumál þurfa vandaða umræðu STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Þingmenn fjögurra flokka hafa lagt fram þingsályktunartillögu þess efnis að ríkisstjórn verði falið að leggja fram frumvörp um fullan, lagalegan og fjár- hagslegan aðskilnað ríkis og kirkju. Skuli frumvarp lagt fram eigi síðar en á vorþingi 2021 og kveða á um aðskiln- að eigi síðar en við árslok 2034, eftir fimmtán ár. Að frumvarpinu stendur allur þing- flokkur Viðreisnar, en auk þeirra eru tveir þingmenn úr hverjum flokki Pír- ata, Samfylkingar og Vinstri grænna. Fyrsti flutningsmaður er Jón Steindór Valdimarsson, þingmaður Viðreisnar. Í greinargerð með tillögunni segir að ríki og kirkja eigi sér langa og sam- ofna sögu. Hún hafi í senn trúarlegt, menningarlegt og samfélagslegt hlut- verk og það beri að virða og viður- kenna. Á síðustu árum hafi hins vegar orðið miklar breytingar á viðhorfi til trúar og hlutverki hennar í nútíma- samfélagi. Mikilvægt sé að jafnræði gæti milli trúfélaga, lífsskoðunarfélaga og þeirra sem kjósa að standa utan slíkra félaga. Bent er á mikla fækkun sóknar- barna þjóðkirkjunnar síðustu ár og að fátt bendi til að sú þróun muni breyt- ast á komandi árum. „Nálægt 100% landsmanna voru skráðir í þjóðkirkj- una á sínum tíma sú staða er nú en gjörbreytt. Samkvæmt gögnum Hag- stofunnar voru um 90% landsmanna í þjóðkirkjunni árið 1998 en 65% um næstliðin áramót. Þá hefur fólki innan þjóðkirkjunnar beinlínis fækkað allar götur frá árinu 2010. Árið 1998 voru 244.893 skráðir í þjóðkirkjuna en 232.591 um síðustu áramót. Utan þjóð- kirkjunnar voru á sama tíma 124.400 manns. “ Eftir sem áður sé þjóðkirkjan stærsta einstaka trúfélagið og ætti að sama skapi að vera best í stakk búin til að standa á eigin fótum af öllum trú- og lífsskoðunarfélögum. Leiðir ríkis og kirkju skilji 2034  Þingsályktunartillaga fjögurra flokka um aðskilnað ríkis og kirkju lögð fram Píanóleikarinn og hljómsveitarstjórinn Gerrit Schuil er lát- inn. Hann andaðist á líknardeild Landspít- ala í Reykjavík hinn 18. september eftir skamma sjúkdóms- legu. Hann fæddist í Vlaardingen í Hol- landi 27. mars 1950 og vakti barnungur þjóð- arathygli fyrir tónlist- argáfu sína. Að loknu námi við Tónlistar- háskólann í Rotter- dam hélt hann til framhaldsnáms í London hjá John Lill og Gerald Moore, og síðar í París hjá Vlado Perlemuter. Einn- ig nam hann í nokkur ár hljóm- sveitarstjórn hjá rússneska meist- aranum Kirill Kondrashin. Árið 1979 réðst Gerrit til Sinfóníu- hljómsveitar hollenska ríkis- útvarpsins sem þá var aðal- hljómsveit hollensku ríkis- óperunnar í Amsterdam og starfaði þar sem stjórnandi um árabil. Einnig stjórnaði hann hljómsveitum víða í Evrópu og Bandaríkjunum, bæði í óperuhúsi og tónleikasal, og hélt tónleika víða í Evrópu, Asíu og í Banda- ríkjunum. Gerrit Schuil fluttist til Íslands árið 1993 með þáver- andi eiginmanni sín- um, Jóni Þorsteins- syni óperusöngvara, lærði íslensku á skömmum tíma og gerðist brátt áhrifa- maður í listalífi þjóð- arinnar. Hann skipu- lagði og efndi til fjölda tónleika og merkra tónlistar- hátíða, m.a. í sam- starfi við Listahátíð í Reykjavík, að ógleymdum rómuðum tónlistarhátíðum í Garðabæ, þeirri fyrstu á 200 ára afmæli Schuberts 1997. Þá bauð hann heimsfrægum erlendum listamönnum til samstarfs hér á landi, m.a. löndum sínum Robert Holl og Elly Ameling, og vann alla tíð ötullega með íslensku tónlistarfólki, söngvurum og hljóðfæraleikurum. Um skamma hríð leiddi hann listrænt starf Ís- lensku óperunnar og stjórnaði nokkrum sinnum Sinfóníu- hljómsveit Íslands. Einnig liggja eftir hann nokkrir hljómdiskar þar sem hann leikur með ýmsum fremstu tónlistarmönnum Íslend- inga. Árið 2010 hlaut Gerrit Schuil Íslensku tónlistarverð- launin fyrir list sína. Andlát Gerrit Schuil Einstakur möguleiki á að fá einkafund með talsmanni EBK, Anders Ingemann Jensen, um uppsetningu á EBK sumarhúsum á Íslandi. Á fundinum verður farið yfir byggingarferlið, kost- naðaráætlanir og allt það sem viðkemur því, að fá nýtt EBK sumarhús byggt á íslandi. Fimmtudaginn 26. sept. og föstudaginn 27. sept. 2019 – Báða dagana frá kl. 10-17 Fundarstaður og stund: Stepp ehf., Ármúla 32, 108 Reykjavík Nauðsynlegt er að panta fundartíma gegnum netfangið aj@ebk.dk, í síma +45 4020 3238 eða á vefnum ebk-hus.is. Anders talar dönsku og ensku. EBK HUSE A/S hefur meira en 43 ára reynslu í uppsetningu á sumarhúsum, þar sem dönsk hönnun og gæði eru í fyrrirúmi. EBK hús eru meðal hinna leiðandi á markaðinum með 4 deildum í Danmörku, 3 í Þýskalandi, 1 í Noregi og 1 í Svíþjóð. Við höfum líka margra ára reynslu í að byggja á Íslandi, í Þýskalandi, Færeyjum, Svíþjóð og Noregi. Bókið fund með EBK í Reykjavík, sérsniðin að ykkar óskum EBK HUSE A/S, Skovsøvej 15, DK-4200 Slagelse Anders Ingemann Jensen, Sími +45 4020 3238, Netfang: aj@ebk.dk 19 28 6 Hefur þú hug á að byggja nýtt sumarhús? WWW.EBK-HUS.IS DÖNSK HÖNNUN OG ARKITEKTÚR

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.