Morgunblaðið - 21.09.2019, Síða 10

Morgunblaðið - 21.09.2019, Síða 10
SVIÐSLJÓS Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Gísli Vilhjálmsson, tannlæknir og sérfræðingur í tannréttingum, er sérfræðingurinn sem veitti foreldr- um barnanna þriggja með skarð í gómi greiningu, sem Morgunblaðið fjallaði um á miðvikudag, vegna synjunar Sjúkratrygginga Íslands um kostnaðar- þátttöku, vegna tannaðgerða sem börnin hafa þurft að gangast undir. María Heimis- dóttir, forstjóri Sjúkratrygginga Íslands sagði í Morgunblaðinu á fimmtudag, að breytt reglugerð heilbrigðisráðherra tæki ekki til allra tilvika barna með skarð í gómi og/eða vör. Gísli hefur í kjölfar annarrar synj- unar SÍ sent Svandísi Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra ítarlega greinar- gerð um stöðu þessara barna og nauðsyn þess að þau undirgangist ákveðnar foraðgerðir, til þess að auka lífsgæði þeirra, en hann hefur engin svör fengið frá ráðherranum, ekki frekar en foreldrar umræddra barna. Gísli var í gær spurður hvað hann segði um þessa seinni synjun Sjúkra- trygginga: „Ég tel að fagnefnd Sjúkratrygginga sé hvorki að fara að vilja löggjafans né heilbrigðisráð- herra með því að neita þessum börn- um um þeirra sjálfsögðu réttindi,“ sagði Gísli. Þvert á við það sem tíðkast „Svo tel ég einnig að greining þeirra í fagnefnd Sjúkratrygginga Íslands á vanda þessara barna með skarð í góm sé þvert á það sem tíðk- ast í sambærilegum málum tannrétt- inga og tannlækninga um allan heim. Þessi börn njóta þess réttar að sjúkratryggingar taki fullan þátt í kostnaði vegna forvarna á Norður- löndunum,“ sagði Gísli. Gísli er með áratuga reynslu af tannréttingum og lauk sérfræði- námi, meistaragráðu, á því sviði í Bandaríkjunum á níunda áratug lið- innar aldar. Hann kveðst hafa leitað álits innlendra og erlendra sérfræð- inga á þessu sviði, þegar hann vann að greiningu vanda barnanna fyrir foreldrana, vegna umsókna þeirra um kostnaðarþátttöku Sjúkratrygg- inga og þeir sem hann leitaði til hafi allir verið honum sammála í grein- ingum hans. Um sé að ræða börn á aldrinum sex til níu ára, sem þurfi á foraðgerðum að ræða. „Börnin læknast ekki fullkomlega af foraðgerðunum, en aðgerðirnar auka í flestum tilfellum lífsgæði þeirra töluvert og ég tel að ekki eigi að gera lítið úr slíkum ávinningi. Ég hef gert fagnefnd SÍ skilmerkilega grein fyrir því, en fagnefndin vill ekki taka undir það sjónarmið mitt. Fagnefnd Sjúkratrygginga hundsar þannig vilja ráðherra, og fer ekki heldur að tilmælum fagaðila um það hvað gera skuli fyrir þessi börn, “ sagði Gísli. Ráðherra ekki staðið við orð sín Spurður hvort heilbrigðisráð- herra hafi ekki gefið fyrirheit á Al- þingi um að öll börn sem væru með skarð í gómi og/eða vör ættu að sitja við sama borð, sagði Gísli: „Ég horfði á Svandísi svara fyrir þetta á Alþingi og orð hennar gat ég ekki betur skilið en svo að hún myndi taka málið upp og leysa það með þeim hætti í sínu ráðuneyti að þessi börn sem um ræðir fengju þessi réttindi til kostnaðarþátttöku sjúkratrygginga, en ég tel að Svan- dís Svavarsdóttir heilbrigðisráð- herra hafi ekki staðið við þau orð. Hún hefur ekki klárað málið þannig að þessi börn njóti þessara sjálf- sögðu réttinda, án sífelldrar og erf- iðrar baráttu við kerfið.“ Fagnefnd SÍ hundsar vilja ráðherra  Sérfræðingur í tannréttingum telur að heilbrigðisráðherra hafi ekki staðið við fyrirheit sín um að öll börn með skarð í vör/og eða gómi sætu við sama borð  Börn á Norðurlöndum njóti fulls réttar Morgunblaðið/Árni Sæberg Erfitt Gísli Vilhjálmsson, sérfræðingur í tannréttingum, segir fagnefnd Sjúkratrygginga á villigötum Gísli Vilhjálmsson 10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER 2019 Hægara er að styðja en reisa Sjávarútvegsdagurinn 2019 Sjávarútvegsdagurinn, í samstarfi Deloitte, Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi og Samtaka atvinnulífsins, verður haldinn í Silfurbergi í Hörpu, miðvikudaginn 25. september kl. 08:00 til 10:00. Farið verður yfir afkomu sjávarútvegsfyrirtækja á árinu 2018 og rýnt í stöðu og horfur í greininni á komandimisserum. Dagskrá hefst á léttummorgunverði kl 8:00 en fundur hefst klukkan8:30. Setning Heiðrún LindMarteinsdóttir, framkvæmdastjóri SFS Afkomasjávarútvegsfyrirtækja árið 2018 Jónas Gestur Jónasson, löggiltur endurskoðandi hjá Deloitte Hvert stefnir fiskvinnslan? Friðrik Gunnarsson, hagfræðingur SFS Seðlabankinnog sjávarútvegur Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri Fundarstjóri er Edda Hermannsdóttir, markaðs- og samskiptastjóri Íslandsbanka Skráning á skraning@deloitte.is | Aðgangur 3.500 kr.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.