Morgunblaðið - 21.09.2019, Side 26

Morgunblaðið - 21.09.2019, Side 26
SVIÐSLJÓS Ragnhildur Þrastardóttir ragnhildur@mbl.is Ísland er í fyrsta sæti af 150þjóðum þegar litið er til ör-yggis á eftirlaunaárum. Þettakemur fram í nýrri rannsókn franska fjárfestingarbankans Natix- is sem gerir sömu rannsókn árlega. Árið 2013 var Ísland í 23. sæti listans og hefur því klifið listann hratt. Útreikningurinn byggist á fjár- hagsstöðu fólks við starfslok, heilsu, lífsgæðum og efnislegum gæðum. Þrátt fyrir að Ísland sé í fyrsta sæti og færist þannig upp um eitt sæti frá því í fyrra er heildareinkunn landsins örlítið lægri en í fyrra eða 83 af 100, í fyrra var hún 84 af hundrað. Það skýrist af því að einkunn Sviss, sem tróndi á toppnum í fyrra, er lægri en áður. Einkunnir Íslands í flokkum fjárhagsstöðu við starfslok og heilsu hækkuðu á milli ára en lækkuðu í flokki efnislegra gæða annars vegar og lífsgæða hins vegar. Ísland komst á topp tíu lista yfir umhverfislega þætti, loftgæði, ham- ingju eldri borgara og fjárhagsstöðu þeirra við starfslok. Samkvæmt rannsókninni skýra aukin fjárútlát til heilbrigðiskerfisins hærri ein- kunn Íslands í flokki heilsu. 10% sárafátækir Þórunn Sveinbjörnsdóttir, for- maður Landssambands eldri borg- ara segir að niðurstöðurnar komi henni ekki beint í opna skjöldu enda hafi fleiri rannsóknir sýnt fram á svipaðar niðurstöður. „Samt sem áður virðist ekki mælast að hér er hópur af eldri borgurum sem hefur það mjög slæmt. Í þessum könnunum sem hafa verið gerðar af fleiri en einni stofnun er meðaltalið það sem vegur þyngst en það segir ekki alla sög- una.“ Samband eldri borgara starfaði í nefnd á síðasta ári sem sendi frá sér skýrslu. „Sú skýrsla sýnir fram á að neðstu tíu prósentin af öldruðum búa við sára fátækt. Næstu 10 pró- sent þar fyrir ofan hafa það skítt,“ segir Þórunn. „Samfélagið í heild sinni er áfram lagskipt og efstu hóparnir hafa það mjög gott. Við þurfum virkilega að taka á gagnvart þessum hópi sem hefur það verst.“ Lífeyrisgreiðslur vega þungt Spurð hvort staðan hafi batnað jafn mikið á síðustu árum og rann- sókn Natixis gefur til kynna svarar Þórunn: „Mér finnst þetta dálítið rausnarlegt en auðvitað er styrkur lífeyrissjóðanna að koma betur og betur í ljós sem framfærsla. Þeir peningar sem koma úr lífeyrissjóð- unum eru tæplega 70% af því sem fólk lifir á í dag. Það segir okkur að þetta kerfi, sem var búið til 1970 á almenna vinnumarkaðnum, er raun- verulega farið að skila meiru.“ Þórunn tekur fram að eldri borgarar sem eru jafnframt ör- yrkjar og þeir sem hafa lítið verið á vinnumarkaði hafi það mun verra en aðrir. „Það þyrfti að vera einhver sérstök framfærsluuppbót eins og var til þess að styðja við þennan hóp sem ekki nær endum saman. Það má ekkert bjáta á. Ef eitthvað bilar þá er einfaldlega allt í vandræðum hjá þessu fólki. Við viljum að fólk geti lifað með reisn og þess vegna er enn ein nefndin komin í gang og þar eru þau að fara yfir þessi velferðarmál í heild sinni,“ segir Þórunn. Rannsókn segir best að eldast á Íslandi Lifsgæði og fjárhagsstaða eftirlaunaþega Staða Íslands miðað við samanburðarlönd á lista Natixis 2019 100% 80% 60% 40% 20% 0% H e im ild : N a ti xi s G lo b a l A ss e t M a n a g e m e n t Heildareinkun Heilsa Lífsgæði Efnisleg gæði Fjárhagsstaða við starfslok 1. sæti er staða Íslands á listanum 2019, var í 2. sæti í fyrra og 3. sæti 2017 83% er heildareinkun Íslands envar 84% 2018 og 82% 2017 Þórunn Sveinbjörnsdóttir 26 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER 2019 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Margt mábetur faraí íslensku skólakerfi. Talað er um skóla án að- greiningar, en spyrja má hvort kerfið standi undir þeirri skil- greiningu eins og staðan er. Undanfarna daga hefur birst greinaflokkur eftir Guðrúnu Hálfdánardóttur blaðamann í Morgunblaðinu og á mbl.is þar sem farið er ofan í saumana á grunnskólakerfinu, spurt hvað megi betur fara og skoðað hvernig megi bæta úr. Stærðfræðilæsi hefur farið hrakandi frá því það var fyrst metið í PISA-könnun 2003. Mikið hefur verið rætt um að textalæsi sé ábótavant og slá- andi að næstum 30% íslenskra drengja geti ekki lesið sér til gagns. Ragnar Þorsteinsson, sér- fræðingur í mennta- og menn- ingarmálaráðuneytinu, segir að þróunin hafi verið sú í grunn- skólanum að sífellt fleiri þurfi sérkennslu. Í almenna kerfinu séu um 75% nemenda en í sér- kerfinu um 25% nemenda. Eftir því sem betur sé gert í almenna kerfinu verði þörfin minni fyrir sérkennslu, en hér hafi stefnan verið að fara í hina áttina, að auka þátt sérkennslunnar. Hann segir að þetta sé ekki spurning um meira fjármagn, heldur hvernig peningunum sé ráðstafað. Athyglisvert er að hvergi í Evrópu eru greiningar jafn al- gengar á börnum og hér á landi, hvort sem litið er til drengja eða stúlkna. Almennt virðist börnum líða vel í grunnskóla en það er þó allt of algengt að börn treysti sér ekki í skólann vegna kvíða og þunglyndis og kemur fram í greinaflokknum að það eigi við um 1.000 börn, eða 2,2% grunnskólanemenda. Ekki er aðeins áhyggjuefni hvað greiningar eru algengar heldur einnig hve löng biðin eft- ir því að greining fari fram get- ur verið. Það getur tekið allt að eitt og hálft ár að komast að. Á meðan fær barnið ekki aðstoð og hætt er við að vandinn vaxi með þeim afleiðingum að erf- iðara verði að ráða bót á honum. Nú ætlar menntamálaráðu- neytið að hefja tilraunaverkefni þar sem fé verður í auknum mæli lagt til íhlutunar- og for- varnarstarfs án kröfu um grein- ingar. En vandinn snýr einnig að börnum sem eru bráðger. Í PISA-könnuninni kemur fram að afburðanemendum fækkar og nemendum með litla getu fjölgar. Fái bráðger börn ekki verkefni við sitt hæfi er hætta á að þau fái leið á skólanum og dagi uppi í skólanum. Í námskrá eru sett fram markmið sem geta verið óljós. Meyvant Þórólfsson, dósent við Háskóla Íslands, tekur undir gagnrýni, sem ýmsir viðmælendur í greinaflokknum setja fram, um að erfitt sé að átta sig á inntaki námskrárinnar og segir að inn- leiðing hennar hafi ekki gengið sem skyldi. „Þetta meinta ráða- leysi kom m.a. fram í afstöðu eins skólastjórnanda á mál- þingi sem við héldum í vor, þ.e. að námskráin virkaði frekar eins og ráðgáta en góður leiðar- vísir eða handbók til að fara eftir,“ segir Meyvant. Ein afleiðingin er að sögn Meyvants ósamræmi í einkunn- um, ekki bara milli skóla, heldur jafnvel innan skóla. Einkunnir úr grunnskóla skipta máli þegar sótt er um framhaldsskóla. Ef það er mis- jafnt eftir skólum hvað býr að baki tiltekinni einkunn er kom- in innbyggð skekkja, sem getur jafnvel haft í för með sér að nemendur komast ekki í skóla sem þeir hefðu átt greiðan að- gang að væri einkunnagjöfin samræmd. Í greinaflokknum er rætt við Lilju Alfreðsdóttur mennta- málaráðherra. Hún ætlar að leggja áherslu á að bæta læsi og stærðfræðikunnáttu. Verið sé að skoða námskrána og við- mið við námsmat. Hún vill bæta hlut kennara og gera grunn- skólamenntunina að samvinnu- verkefni alls samfélagsins. Það er gott að nú eigi að grípa til aðgerða í skólakerfinu. Gagnrýnin á námskrána og námsviðmiðin, sem hér hefur verið tæpt á, er ekki að koma fram núna fyrst. Hún kom fram þegar í upphafi. Yfirleitt er umræðan um skólakerfið í fjölmiðlum eins og bútasaumur. Eitt vandamál er tekið fyrir í einu. Í hinum viða- mikla greinaflokki Guðrúnar fæst hins vegar heildarsýn yfir sviðið – og líka baksviðs – og það er mikilvægt. Með yfirskriftinni skóli án aðgreiningar er ætlunin að leggja áherslu á rétt allra til náms. Gott skólakerfi er for- senda þess að öllum sé gefinn kostur á að njóta sín að verð- leikum í lífinu, að allir hafi sömu möguleika. Þess vegna er mikilvægt að tekið sé á vanda- málum í skólakerfinu án tafar vegna þess að þeir árgangar sem nú eru að fara í gegnum kerfið fá ekki aftur tækifærin sem þeir kunna að fara á mis við. Gott skólakerfi er forsenda þess að allir fái notið sín að verðleikum} Vandi grunnskólans og lausnir Þ ingfundastörf eru nú hafin af fullum krafti á Alþingi. Ég hlakka til vinn- unnar sem fram undan er í vetur. Þó að oft sé við ramman reip að draga þá finn ég að barátta Flokks fólksins er að bera ávöxt. Dropinn holar stein- inn. Rödd okkar skiptir máli í baráttunni gegn fátækt. Í liðinni viku fékk ég þau gleðitíðindi frá Tryggingastofnun að stofnunin muni greiða elli- lífeyrisþegum þá 5-6 fimm milljarða króna sem fólust í dómsúrskurða Landsréttar í vor. Flokk- ur fólksins stóð fyrir þeim málaferlum gegn Tryggingastofnun og unnum við fullnaðarsigur. Við Guðmundur Ingi höfum nú þegar mælt fyrir tveimur af fimm forgangsmálum Flokks fólksins sem við leggjum fram í haust. Hin þrjú málin eru tilbúin og verða lögð fyrir þing og þjóð á næstu dögum. Öll forgangsmálin okkar miða að því að útrýma fátækt. Við köllum þetta Velferðarpakka Flokks fólksins. Í vikunni mælti ég fyrir þingsályktunartillögu um að endurhæfingarlífeyrir og ellilífeyrir tryggi 300 þús. kr. lág- marksframfærslu á mánuði, skatta- og skerðingarlaust. Þetta verði gert fyrir lok nýhafins þings. Í greinargerð segir m.a.: „Lægstu mánaðarlegar greiðslur til lífeyrisþega, sem engar aðrar tekjur hafa, eru aðeins 212.000 kr. eftir skatt og 252.000 kr. ef viðkomandi hefur heimilisuppbót. Þeir sem búa við svo kröpp kjör eru festir í fátæktargildru. Á undanförnum árum hefur framfærslukostnaður stór- aukist, ekki síst húsnæðiskostnaður, en á sama tíma hafa greiðslur almannatrygginga ekki fylgt almennri launaþróun í landinu … Almannatryggingakerfið á að tryggja þeim sem á þurfa að halda grundvallarmannrétt- indi, þ.e. fæði, klæði, húsnæði og heilsu. Ríkis- valdið á ekki að dæma einstakling í ævilanga fátækt ef viðkomandi er svo ólánsamur að verða öryrki. Guðmundur Ingi Kristinsson mælti svo fyrir lagafrumvarpi um að örorkulífeyrisþegum verði heimilt að afla sér tekna í tvö ár án skerð- inga. Þó skal heimilt að skerða bótagreiðslur séu heildartekjur öryrkja hærri en meðallaun í viðkomandi starfsstétt samkvæmt upplýsing- um frá Hagstofu Íslands. Notast skal við nýj- ustu upplýsingar hverju sinni. Þetta er mikið þjóðþrifamál sem hjálpar fólki við að komast út á vinnumarkaðinn. Mik- ið hefur verið talað um fjölgun öryrkja og hvað við kostum ríkissjóð mikla peninga. Í Svíþjóð var svipuð leið farin og árangurinn var stórkostlegur. Ríflega 30% öryrkja sem nýttu sér úrræðið skiluðu sér ekki aftur inn á bótakerfið. Hugsið ykkur bara, ríkissjóður fær skatttekjur af þessum vannýtta mannauði. Hugsanlega fækkar öryrkjum líka um þriðjung sem eru á framfærslu kerfisins ef þetta geng- ur eins vel hjá okkur og Svíunum. Hér er um að ræða ein- falda skilvirka lausn sem felur í sér mannvirðingu og ríka hagsmuni fyrir okkur öll. Inga Sæland Pistill Við siglum seglum þöndum Höfundur er formaður Flokks fólksins. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen Í niðurstöðum rannsóknar- innar er einnig greint frá þremur atriðum sem ógna ör- yggi eldri borgara. Í fyrsta lagi eru það lágir vextir. Þeir eru veruleg hindr- un fyrir þá sem eru að spara fyrir starfslokum, samkvæmt niðurstöðunum. Hröð öldrun mannkynsins er ein stærsta ógnin sem steðjar að öryggi verðandi eldri borg- ara en heimsbyggðin eldist hratt og hlutfall eldri borgara vex með ári hverju. Það verður til þess að færri setja fjármuni inn í hagkerfið en taka fjár- muni út úr því. Í þriðja lagi ógna loftslags- breytingar öryggi eldri borg- ara, ekki einungis lífsgæðum þeirra og heilsu heldur einnig fjárhagsstöðu við starfslok. Í niðurstöðum rannsóknarinnar segir að þessi ógn sé áþreifan- leg áskorun í samtímanum þó gjarnan sé horft til loftslags- breytinga sem vandamáls framtíðarinnar. Þrennt ógnar öryggi fólks ÁSKORANIR ALDRAÐRA

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.