Morgunblaðið - 21.09.2019, Page 37
MINNINGAR 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER 2019
✝ Séra EdwardBooth OP,
Geoffrey Thorn-
ton Booth, fæddist
16. ágúst 1928 í
Bretlandi. Hann
lést í Stykkis-
hólmi 28. ágúst
2019.
Foreldrar hans
voru Leonard
James Booth
prentari og Lydia
Booth. Eins og fjölskylda hans
var hann upphaflega í Ensku
biskupakirkjunni en tók kaþ-
ólska trú í Cambridge árið
1951. Hann ákvað að gerast
munkur í reglu heilags Dom-
iníkusar, vann lokaheitin árið
1956 og tók prestvígslu árið
1958.
Séra Edward stundaði prest-
nám í Cambridge, lauk BA-
prófi 1952, MA-prófi 1970 og
doktorsprófi í heimspeki 1975.
Hann gekk í reglu Dóminikana
29. september 1952 og hlaut
Untersuchungen zum Begriff
der Kategorialität im philo-
sophischen Denken“ í Festsc-
hrift für Klaus Hartmann
(1990) og „Gott und sein Bild –
Augustins De Trinitate“ í Spie-
gel der Neueren Forschung
(2000).
Séra Edward fluttist til Ís-
lands árið 2002 og vann mestan
tíma sem heimilisprestur systr-
anna í Stykkishólmi og þjónaði
auk þess kaþólska söfnuðinum
á Vesturlandi til ársins 2015.
Árið 2011 var honum veittur ís-
lenskur ríkisborgararéttur.
Hvern einasta dag ársins öll
þau ár flutti hann frumsamda
prédikun og er þar um mikið
safn að ræða.
Auk þeirra fræðiskrifa séra
Edwards, sem birst hafa í er-
lendum ritum, skrifaði hann
einnig greinar um margvísleg
málefni sem birtust í tímaritinu
Merki krossins á árunum 2005-
2009. Hann samdi einnig fjölda
kvæða, flest um trúarleg efni.
Sálumessa séra Edwards fór
fram í Dómkirkju Krists Kon-
ungs í Landakoti 4. september
2019.
prestvígslu 29.
september 1958.
Auk almennra
prestsstarfa stund-
aði séra Edward
bæði kennslu og rit-
störf. Hann fór víða,
var m.a. fyrirlesari
við Pontifical Beda
College 1978-1980
og Pontificial Uni-
versity of St. Thom-
as í Róm 1980-1988.
Út hafa komið tvær bækur eftir
séra Edward, Aristotelian
Aporetic Ontology in Islamic
and Christian Thinkers (1983)
og The Saint Augustine and the
Western Tradition of Self
Knowing: The Saint Augustine
Lecture 1986 (1989). Þá hafa
fjölmargar greinar og bóka-
dómar eftir hann birst í ýmsum
erlendum tímaritum, m.a. í The
New Grove Dictionary of Music
and Musicians (1980), greinin
„Kategorie und Kategorialität,
Historisch-Systematische
Ánægjuleg kynni hófust fyrir
hálfum öðrum áratug þegar mað-
ur nokkur hraðmæltur á enska
tungu hringdi í mig upp á Veð-
urstofu til að forvitnast um hafís.
Var þar kominn kaþólski prest-
urinn í Stykkishólmi. Eins og ég
átti eftir að venjast vatt séra
Edward sér beint að efninu.
Hann var lítt gefinn fyrir tafsamt
spjall um jarðbundna hluti sem
komu ekki málinu við þegar
strembin og spennandi verkefni
voru annars vegar. Mér lærðist
að byrja aldrei samtal í síma á
hefðbundinni setningu eins og
„How are you?“.
Séra Edward Booth var maður
margra hugmynda og leiftrandi
gáfna, sjófróður um nær allt milli
himins og jarðar, sífellt að svala
forvitni sinni sem fólst ekki ein-
ungis í því að leita fanga og
sökkva sér niður í annarra manna
skrif heldur bæta um betur með
eigin ritgerð um efnið. Þegar
hann átti fyrst erindi við mig var
hann að kynna sér ferðir Pýþeas-
ar landkönnuðar frá Massalíu
(Marseille) sem árið 325 f. Kr.
gerði út leiðangur norður fyrir
meginland Evrópu, sigldi með
vissu umhverfis Bretland en í
frægri ferðabók sinni segir hann
líka frá siglingu enn norðar til
eyjar sem kallaðist Þýle (Thule).
Norður fyrir þessa eyju siglir
hann og lendir í furðulegum að-
stæðum sem hann lýsir og minna
á þoku og þunna ísbreiðu yfir
kyrrum sjó. Séra Booth skrifaði
fræðilega grein um lýsingar Pý-
þeasar og seinni tíma handrit
sem styðjast við ferðasögu
Grikkjans.
Fræðimaðurinn í Stykkishólmi
hafði m.a. samband við háskóla-
bókasafn í Teheran í Íran en
grískir textar forðum voru þýdd-
ir á arabísku á niðurlægingartím-
um í kjölfar falls Rómaveldis
vestur í Evrópu. Síkvikur hugur
séra Edwards varð nefnilega til
þess að hann fylgdist með þróun
tölvutækni og netsins og var í
sambandi við bókasöfn og fræði-
menn út um allan heim. Merk
grein hans um Pýþeas birtist síð-
an í Merki krossins, tímariti kaþ-
ólsku kirkjunnar, í þýðingu Þor-
kels Arnar Ólasonar ritstjóra.
Þegar séra Edward hóf að
rannsaka rit Pýþeasar var hann
nýkominn til landsins. Annað við-
fangsefni hans sem tengdist Ís-
landi var Sæmundur fróði Sigfús-
son (1056-1133) í Odda á
Rangárvöllum. Þannig var mál
með vexti að ég var formaður
Oddafélagsins og barst það í tal
að Sæmundur var í fornum ritum
sagður hafa numið „í Frakk-
landi“. Það var eins og við mann-
inn mælt að guðfræðingurinn í
Stykkishólmi fékk óstöðvandi
áhuga á Sæmundi og kastaði sér
yfir spurninguna um hvar Frakk-
land Ara fróða hefði verið. Því
hafði nefnilega verið varpað fram
af fræðimönnum að það hefði í
rauninni verið Franconia í
Þýskalandi. Séra Edward varð í
skyndi harla fróður um málið og
tók síðan þátt í málþingi um Sæ-
mund fróða sem Oddafélagið hélt
í samvinnu við Árnastofnun og
Heimspekistofnun HÍ.
Margt fleira varð
Aristótelesarfræðingnum að
yrkisefni svo sem sést á umfjöll-
un í Merki krossins um Heilagan
Tómas og lögin í ritinu Summa
Theologiae. Hann hafði áhuga á
náttúruvísindum og fylgdist t.d.
dag frá degi með flugi sólarorku-
flugvélarinnar umhverfis jörðina
hér um árið.
Blessuð sé minning merks
manns og vinar, Edwards Booth.
Þór Jakobsson,
veðurfræðingur.
Látinn er í Stykkishólmi séra
Edward Booth, 91 árs að aldri, en
hann var lengi sóknarprestur
kaþólska safnaðarins þar í bæ.
Ég kynntist séra Edward vel en
ég fór fljótt að sækja messur í
kaþólsku kirkjunni á sunnudags-
morgnum eftir að ég fluttist í
Stykkishólm 2007, þó að ekki sé
ég kaþólskur. Séra Edward tók
mér líka afar vel og við urðum
góðir vinir. Það er því við hæfi að
ég minnist hans nokkrum síðbún-
um orðum að leiðarlokum.
Séra Edward var Englending-
ur að uppruna, fæddur í Eves-
ham í Worstershire 1928. Hann
gerðist kaþólskur um 13 ára ald-
ur og helgaði síðan kaþólsku
kirkjunni allt sitt líf. Hann gerð-
ist enn fremur mikill fræðimaður
og dvaldist lengi við fræðistörf í
Þýskalandi, m.a. í Tübingen, sem
hann hrósaði mjög sem háskóla-
borg. Síðan dvaldist hann um
skeið á Ítalíu. Hann var áhuga-
samur um íslensk fræði og samdi
m.a. ritgerð um Sæmund fróða
Sigfússon, sem uppi var á tólftu
öld og þjóðsagan sagði að hefði
lært fræði sín í Svartaskóla Í
Frakklandi og verið rammgöldr-
óttur. Hann hefði m.a. hvað eftir
annað att kappi við sjálfan
kölska, en ávallt haft betur vegna
kænsku sinnar. Séra Edward
færði rök að því aftur á móti eftir
ítarlegar rannsóknir að Sæmund-
ur hefði numið fræði sín í Þýska-
landi.
Séra Edward var einnig mjög
áhugasamur um heimsmálin ekki
síður en ég og kynnti sér þau sem
best með því að lesa ensku og am-
erísku stórblöðin í tölvunni sinni.
Oft ræddum við lengi um það sem
var efst á baugi í heimsmálunum
bæði í síma og yfir kaffi eftir
sunnudagsmessu auk þess sem
ég var vanur að heimsækja hann
eftir hádegi á fimmtudögum og
þá ræddum við heimsmálin af
kappi. Mér er í fersku minni eitt
sinn að kvöldlagi er ég var stadd-
ur á Akureyri að hann hringdi í
mig og sagði mér hvernig hann
vildi hafa nýja ríkisstjórn í
Þýskalandi en þá var þar stjórn-
arkreppa eftir nýafstaðnar kosn-
ingar. Séra Edward hafði þá
kynnt sér stöðuna þar í landi með
því að lesa Frankfurter Allge-
meine Zeitung þá um daginn, eitt
af þýsku stórblöðunum, en hann
var vel að sér í þýsku. Þá var
hann ekki síður vel að sér í
frönsku sem var sennilega hans
helsta erlenda tungumál.
En hann var vel að sér í kirkju-
legum fræðum, og heimspeki
bæði forn og ný var ekki síður
áhugamál hans. Hann átti það til
að skírskota til Platóns og Arist-
ótelesar, þó að viðmælendur hans
vissu þar lítil deili á, og sama máli
gegndi um síðari tíma hugsuði
eins og Hegel. Tómas Aquino og
Shakespeare voru honum einnig
hugleiknir og hann átti það til að
fara með setningar úr verkum
þess síðarnefnda við tækifæri.
Séra Edward samdi ræður sín-
ar á ensku en fékk þær þýddar á
íslensku og flutti þær þannig, auk
þess sem hann útbýtti þeim með-
al kirkjugesta. Er hann hætti
sem prestur í Stykkishólmi flutt-
ist hann á Grund, þá orðinn ís-
lenskur ríkisborgari. Þar man ég
eftir að hitta hann glaðan og reif-
an við að undirbúa jólin og færði
honum jólagjöf. Síðastliðinn vet-
ur fluttist hann aftur til Stykk-
ishólms og gerðist þá vistmaður á
heimili aldraðra þar í bæ. Þá var
nokkuð af honum dregið og hann
ferðaðist um í hjólastól. Þar lést
hann 18. ágúst síðastliðinn en út-
för hans fór fram í Kristskirkju í
Reykjavík. Blessuð sé minning
hans.
Magnús Sigurðsson.
Edward Booth
Sálm. 9.11
biblian.is
Þeir sem þekkja
nafn þitt treysta
þér því að þú,
Drottinn, bregst
ekki þeim sem til
þín leita.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
ÁGÚSTA GUÐRÚN SAMÚELSDÓTTIR
frá Stóru-Reykjum,
lést á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á
Akranesi fimmtudaginn 12. september.
Útförin fer fram frá Akraneskirkju föstudaginn 27. september
klukkan 13. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim
sem vilja minnast hinnar látnu er bent á Félag langveikra barna.
Sólveig S. Benjamínsdóttir Jens Pétur Jenssen
Anna Ragna Benjamínsdóttir
Guðbjörg G. Benjamínsdóttir Guðmundur Kristinsson
Jón Benjamínsson Anna María Jónsdóttir
Guðni Benjamínsson Kristín Gyða Hjartardóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginmaður minn og besti vinur,
faðir okkar, tengdafaðir, afi, tengdasonur,
bróðir, mágur og frændi,
ÞORSTEINN GRÉTAR EINARSSON,
Hraunholti 2, Garði,
lést í faðmi fjölskyldunnar
á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja mánudaginn 16. september.
Útförin fer fram frá Útskálakirkju föstudaginn 27. september
klukkan 15.
Erla Dögg Gunnarsdóttir
Sunna Rós Þorsteinsdóttir Svavar Ingi Lárusson
óskírður Svavarsson
Ásgeir Þorsteinsson
Árni Gunnar Þorsteinsson Olivia Anna Canete Apas
Gunnar E. Sigurbjörnsson
systkini og frændsystkini
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
RAGNAR HEIÐAR MAGNÚSSON
frá Hamri, Nauteyrarhreppi,
lést 17. september á Hjúkrunar- og
dvalarheimilinu Höfða, Akranesi.
Útförin fer fram frá Akraneskirkju fimmtudaginn 26. september
klukkan 13.
Kristín Anna Þórðardóttir Helgi Lárus Guðlaugsson
Júlía Björk Þórðardóttir Marinó Hákonarson
Jens Heiðar Ragnarsson Sonja Sveinsdóttir
Lilja Ósk Ragnarsdóttir Marías Hjálmar Guðmundsson
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær unnusti minn, faðir, sonur,
bróðir, tengdasonur, barnabarn og
barnabarnabarn,
HELGI ÞÓR HELGESON BERGSET,
Hamravík 20,
sem lést þriðjudaginn 17. september,
verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju
fimmtudaginn 26. september klukkan 13.
Thelma Hulda Símonardóttir
Ísold Vök Helgadóttir Bergset
Ásgerður Þóra Ásgeirsdóttir Haraldur Sævinsson
Daníel Andri, Magnea Kristín
Björg Jökulrós og Haraldur Ásgeir
Helge Bergset Grethe Akse
Kristense og Brage
Björg Óskarsdóttir
Elísabet Bergset Harald Bergset
Bergþóra Sigurbjörnsdóttir
og fjölskyldan á Íslandi og í Noregi
Okkar ástkæra móðir, tengdamóðir, amma
og langamma,
ÞÓRUNN ÓLAFSDÓTTIR,
lést á Hrafnistu, Bylgjuhrauni í Hafnarfirði,
þriðjudaginn 10. september.
Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju
mánudaginn 23. september klukkan 13.
Hörður Sigurgeirsson Matthildur Sonja Matthíasd.
Oddur Magnússon Methika Suwannarat
Ólafur Magnússon Vai Tipson
Magnea L. Magnúsdóttir Stefán Kjartan Kristjánsson
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær móðir okkar og tengdamóðir,
KRISTÍN GUÐJÓNSDÓTTIR,
fyrrverandi húsfreyja,
Alheimi í Flatey á Breiðafirði,
lést á hjúkrunarheimilinu Seljahlíð
fimmtudaginn 19. september.
Útför auglýst síðar.
Erla Sigurbergsdóttir Haukur Már Haraldsson
Margrét S. Sigurbergsdóttir Þór Ólafsson Vestmann
Guðjón Sigurbergsson
Okkar ástkæri
ATLI ÞÓR SÍMONARSON
lést miðvikudaginn 18. september.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Guðný Björk Atladóttir
Björgvin Atlason
Birta Lind Atladóttir
Edda Finnbogadóttir
Elín Símonardóttir