Morgunblaðið - 21.09.2019, Qupperneq 38
38 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER 2019
✝ Gunnar fædd-ist 23. maí 1951
í Reykjavík. Hann
andaðist á heimili
sínu í Reykjavík 10.
september 2019.
Foreldrar Gunn-
ars voru Jóhann
Sigurðsson, Vet-
leifsholti, f. 19.9.
1916, d. 7.8. 2001,
og Nanna Jónsdótt-
ir, Árbæ, f. 10.10.
1913, d. 18.3. 1979. Systkini
hans voru Guðni, f. 2.12. 1939, d.
22.12. 1940, Garðar, f. 24.11.
1941, d. 18.3. 1942, Kristín, f.
4.3. 1943, d. 26.9. 1995, Sigurður
Garðar, f. 26.7. 1946, og Jón
Ágúst, f. 25.4. 1948.
Eftirlifandi eiginkona Gunn-
ars er Vigdís Þórarinsdóttir,
Litlu-Tungu, f. 30.8. 1952, en
þau giftust 31. desember 1976.
Börn þeirra eru 1) Grétar Þór-
arinn, f. 26.2. 1973, maki hennar
er Guðríður Sigurðardóttir, f.
12.12. 1970, og börn þeirra Vig-
ársins 1986. Þeir bræður keyptu
Fóðurblönduna í Reykjavík
1984, settu hana á markað 1997
og rak Gunnar Fóðurblönduna
til ársins 2000 þegar hún var að
fullu seld. Þeir Garðar stofnuðu
jafnframt Kornax ásamt sænsk-
um bræðrum árið 1986 og seldu
þeir Kornax samhliða því er þeir
seldu Fóðurblönduna. Eftir það
kom hann að fjárfestingum,
stofnun og rekstri ýmissa fyr-
irtækja ásamt fjárfestingum í
fasteignum og vann hann við
rekstur þeirra allt til síðasta
dags. Þau Gunnar og Vigdís
keyptu Árbæ í Holtum 1978 og
fjölskyldan rekur þar hrossa-,
sauðfjár- og trjárækt. Gunnar
var formaður Veiðifélags Ytri-
Rangár og Vesturbakka Hólsár
til fjölda ára og lét af störfum
þar nú í ágúst. Hann sat í stjórn
ýmissa fyrirtækja og félaga-
samtaka og var virkur í Sjálf-
stæðisflokknum á fyrri hluta
ævinnar. Hann var félagsmaður
í Hestamannafélaginu Geysi og
síðar Hestamannafélaginu Fáki,
var framkvæmdastjóri Lands-
móts hestamanna og Fjórðungs-
móts hestamanna.
Útför Gunnars fer fram frá
Árbæjarkirkju, Holtum, í dag,
21. september 2019, klukkan 14.
dís Birna, f. 13.10.
2002, Andri Sveinn,
f. 1.7. 2004, og Arn-
ór Gunnar, f. 12.7.
2010. 2) Maríanna,
f. 11.11. 1975, sam-
býlismaður hennar
er Ólafur Örn
Ólafsson, f. 26.11.
1972, og dóttir hans
er Karen Ósk, f.
17.4. 1995. 3) Gunn-
ar Jóhann, f. 23.5.
1982, sambýliskona hans er Haf-
dís Svava Níelsdóttir, f. 17.8.
1987, og dóttir þeirra er Dag-
björt Hekla, f. 28.1. 2015.
Gunnar var alinn upp í Vog-
unum og gekk í Vogaskóla.
Hann fór eitt ár til Bretlands
eftir grunnskólanám að læra
ensku, hóf svo störf í Flugturn-
inum í Reykjavík og byrjaði að
læra flugumferðarstjórn. Hann
keypti Ásmundarstaði í Ása-
hreppi ásamt bræðrum sínum
árið 1969 og ráku þeir þar
svína-, eggja- og kjúklingabú til
Það er engin óskastaða að
sitja við og skrifa minningar-
grein um föður sem fallinn er
frá allt of snemma. Og þetta
sem varð honum að falli elskar
enginn okkar. Bara alls ekki
neitt. Árin sem framundan eru
áttu að vera góðu árin, árin til
að lifa og njóta og spilla barna-
börnunum smá og hjálpa þeim
líka og leiðbeina eins og hann
gerði með okkur systkinin. Að-
eins að jafna út alla vinnuna á
fyrri hluta ævinnar með fjöl-
skyldu og vinum á seinni hluta
ævinnar. En það verður ekki.
Og það er einhvern veginn al-
veg ómögulegt að hugsa til þess
að aldrei aftur komi símtal eða
bankað verði uppá til að spjalla
um allt og ekkert og hvað Messi
væri mikill yfirburðamaður í
fótbolta.
Það er gott að geta gripið til
allra góðu minninguna. Og þær
eru býsna margar og oftar en
ekki eru þær tengdar sveitinni,
hestaferðum, borgarferðum,
veiðiferðum og samverustund-
um með fjölskyldunni. Fjöl-
skyldan átti einmitt stóran sess
í lífi pabba og alltaf var hann
boðinn og búinn til að aðstoða
og njóta tíma með fjölskyldunni
og þá sérstaklega barnabörnun-
um. Líka gaman að rifja upp
hvað það voru ákveðnar skoð-
anir á mönnum og málefnum,
mjög góð tök á tölum og naskur
á að sjá hvar tækifærin liggja.
Þetta síðasta sumar var að
mörgu leyti gott. Sveitin dró
pabba til sín eins og alltaf á vor-
in. Veðrið lék við hvern sinn
fingur og líklega hefur sveita-
loftið og orkan sem því fylgir í
bland við góða vini fleytt honum
áfram gegnum erfiða hjalla í
baráttunni við meinið sem ekk-
ert okkar elskar. „Eftir bjartan
daginn kemur nótt“ segir í lag-
inu – og þetta sumar leið alltof
fljótt. Það hefur vofað yfir í
mörg ár að þessi dagur kæmi,
og mikið er gott að geta minnst
allra góðu stundanna en mikið
óskaplega er líka sárt að þetta
skuli hafa endað svona, allt of
fljótt. Að ganga beint til verks
og hafa marga bolta á lofti hent-
aði pabba vel. Það er eitthvað
svo óraunverulegt að hugsa til
þess núna hvernig boltunum
fækkaði þegar leið á sumarið og
meiri ró komst á. Og líklega
vissi pabbi í hvað stefndi betur
en nokkur annar því ekki fjölg-
aði boltunum aftur. Og endirinn
alveg eins og um var talað, í ró
og næði heima. Pabbi hafði rétt
fyrir þér í þessu eins og svo
mörgu öðru. Við vorum bara
ekki alveg búin að sjá það jafn
vel. Við pössum vel uppá
mömmu, hvíl í friði.
Grétar Þórarinn,
Maríanna,
Gunnar Jóhann.
Höfðingi er það fyrsta sem
kemur í huga mér þegar ég
hugsa til þín, ástkær tengdafað-
ir minn Gunnar Jóhannsson.
Allt frá því að Gunni bauð mér
austur í Árbæ til ykkar Vigdísar
og kynnti mig fyrir ykkur og
fram að dánarstund var hann
mér hlýr, traustur og rausnar-
legur. Þið Vigdís tókuð einstak-
lega vel á móti mér inn í fjöl-
skylduna og verð ég ykkur
ævinlega þakklát. Þetta voru
tæplega sjö ár sem ég fékk að
þekkja þig, læra af þér og skapa
með þér minningar og er ég
þakklát fyrir þennan tíma, þó
svo að ég hefði verið til í að árin
yrðu fleiri. En þessi veikindi,
sem þú barðist við af einstakri
þrautseigju og töluverðri
þrjósku, settu strik í reikning-
inn. Það komu oft holur í veginn
sem gerðu okkur hin í fjölskyld-
unni hrædd og sorgmædd en þú
tókst á við hvert verkefni eins
og sönn hetja og stóðst uppi
sem sigurvegari fram á síðustu
stund. Það var aðdáunarvert að
fylgjast með þér og heiður að fá
að fylgja þér seinasta spölinn.
Það er svo margt sem við höf-
um lært af þér og tökum með
okkur út í lífið. Þú studdir okk-
ur Gunna í öllu sem við tókum
okkur fyrir hendur. Þegar mað-
ur spurði þig álits eða ráða þá
sagðir þú hlutina eins og þeir
voru, varst ekki að draga úr
neinu né fegra hlutina að
óþörfu. Þú varst alltaf svo
hreinn og beinn og það er eitt af
því sem vert er að tileinka sér í
þína minningu.
Þú virðulegi hreinskilni höfð-
ingi hafðir samt mjúkar hliðar
sem barnabörnin voru fljót að
draga fram í þér. Þú varst góð-
ur afi og stoltur af öllum barna-
börnunum. Að sjá ykkur Dag-
björtu Heklu saman var alveg
einstakt. Þið áttuð svo fallegt
samband og fékk hún þig til að
gera með sér ótrúlegustu hluti.
Sem dæmi varst þú fljótur til að
fara út á gólf og dansa með
henni í ballett á foreldrasýningu
þegar hún var tveggja ára. Hún
vissi alltaf að þú værir með
henni í liði þegar hana langaði í
ís. Þá fór hún rakleiðis til þín og
samdi við þig og endaði það oft-
ar en ekki með því að hún borð-
aði sinn ís fyrst og svo deilduð
þið þínum ís. Þú varst stoltur af
sveitabarninu sem hún er og
fannst alltaf gaman að fá hana í
Árbæ. Þið áttuð ykkar venju, að
fara fyrst af öllum á fætur á
morgnana og þú eldaðir handa
ykkur hafragraut og svo lékuð
þið ykkur saman eða horfðuð á
teiknimyndir þangað til þú fórst
á „karlaflakk“ um sveitina og
niður í veiðihús eins og þið köll-
uðuð það. Þó svo að veikindin
væru farin að taka sinn toll um
miðjan ágúst síðastliðinn léstu
það ekki stoppa þig og mættir á
reiðsýningu hjá Dagbjörtu
Heklu sem var að ljúka reið-
námskeiði.
Mikið sem það er sárt að
þurfa að kveðja þig, elsku
Gunnar. Dagbjört Hekla saknar
þín sárt en við eigum sem betur
fer margar og góðar minningar
sem hlýja og hugga. Við nutum
þess að eyða tíma með þér í
Árbæ, í sumarfríi og rjúpnaveiði
á Ferjubakka, í Veiðivötnum,
paradísinni á ströndinni í Nap-
les og svo mætti lengi telja. Ég
vil þakka þér fyrir allt og
treysti því að þú sért búinn að
opna eins og eina Muga-flösku
til að skála í og takir góðan
skeiðsprett í draumalandinu.
Hvíldu í friði höfðingi.
Þín tengdadóttir,
Hafdís Svava Níelsdóttir.
Svo er því farið:
Sá er eftir lifir
deyr þeim sem deyr
en hinn dáni lifir
í hjarta og minni
manna er hans sakna.
Þeir eru himnarnir
honum yfir.
Þetta ljóð eftir Hannes Pét-
ursson kom fram í huga mér
þegar ég settist niður til þess að
skrifa eftirmæli um tengdaföður
minn Gunnar Andrés Jóhanns-
son sem er fallinn frá og skilur
eftir sig stórt skarð í samhentri
fjölskyldu.
Ég kom inn í fjölskylduna
fyrir 20 árum og þá kynntist ég
viðskiptamanninum Gunnari en
fljótlega áttaði ég mig á því að í
hjarta sér var hann bóndi og
hann naut sín best í sveitinni.
En eftir því sem árin hafa liðið
og barnabörnunum fjölgað er
Gunnar fyrir mér fyrst og
fremst fjölskyldumaður og ein-
stakur afi, hann naut þess að
vera umkringdur börnum og
barnabörnum.
Gunnar var margbrotinn og
stór persónuleiki og það er ekki
hægt að segja að við höfum allt-
af verið sammála. Oftar en ekki
gerðist það að öll fjölskyldan
var farin frá matarborðinu en
við Gunnar sátum lengi eftir og
rökræddum þjóðfélagsmál.
Aldrei skyggðu þær rökræður
þó á persónulegt samband okk-
ar og við áttum auðvelt með að
vera sammála um að vera ósam-
mála. Gunnar hafði í raun það
gaman af þessum rökræðum
okkar að hann átti það til að
setja fram einhverja fullyrðingu
sem hann vissi að ég væri ósam-
mála til þess eins að fá fram hjá
mér mótrök. Hann sagði oft að
þessar rökræður okkar væru
búnar að þjálfa mig í samskipt-
um við erfiða einstaklinga og
fyrir það er ég honum þakklát
því það er sjaldgæft að slík
þjálfun eigi sér stað með svo já-
kvæðum formerkjum.
Sannur höfðingi er horfinn af
sviðinu, sem skilur eftir sig góð-
ar og dýrmætar minningar.
Margir eiga honum mikið að
þakka enda kom hann víða við.
Hann gat verið ákveðinn og
fylginn sér en líka svo yndislega
ljúfur og góður og ég minnist
hans með virðingu og hlýhug.
Guðríður Sigurðardóttir.
Komdu sæll, þetta er Gunnar
á Ásmundarstöðum. Þannig
hófst símtal er sá er þessar lín-
ur ritar fékk fyrir nærri fjórum
áratugum. Þetta voru mín
fyrstu samskipti við Gunnar Jó-
hannsson. Erindið var að bjóða
mér starf, hvað ég þáði, hjá
Holtabúinu, fyrirtæki þeirra
Ásmundarstaðarbræðra.
Gunnar ólst upp í Reykjavík,
en var Rangæingur að ætt og
uppruna, foreldrar hans voru úr
því héraði. Á unga aldri hneigð-
ist hugur hans til viðskipta og
hann var enn á táningsaldri
þegar hann keypti ásamt
bræðrum sínum, Garðari og
Jóni, jörðina Ásmundarstaði í
Ásahreppi. Einhvern tíma
heyrði ég að faðir þeirra bræðra
hefði orðið að skrifa undir kaup-
samninginn fyrir hönd Gunnars,
þar sem sonurinn var ekki enn
fjárráða.
Það var í senn skemmtilegt
og gefandi að starfa hjá þeim
bræðrum. Þeir voru áræðnir og
framsæknir og byggðu á
skömmum tíma upp öflugt fyrir-
tæki sem hafði með höndum
eggjaframleiðslu, kjúklingaeldi
og um hríð svínarækt. Einnig
byggðu þeir sláturhús og útung-
unarstöð á Hellu. Gunnar var
framkvæmdastjóri fyrirtækisins
en bræður hans sáu um verk-
stjórn á búinu. Hann var farsæll
stjórnandi, duglegur og fylginn
sér. Hann var einhver hrein-
skiptasti maður sem í hef átt
samskipti við í gegn um tíðina.
Hann sagði sínar skoðanir um-
búðalaust og var ekkert að velta
því fyrir sér hvort viðmæland-
anum kynni að líka eða ekki. Ég
kunni þessum eiginleika vel en
lærði sennilega ekki almenni-
lega að meta hann fyrr en síðar
á lífsins leið er ég fékk að kynn-
ast hinu gagnstæða. Bræðurnir
seldu rekstur sinn seint á
níuunda áratugnum, en hann
var á þeim tíma orðinn einn sá
umsvifamesti hér í sýslu. Sneru
þeir sér þá alfarið að rekstri
Fóðurblöndunnar sem þeir
höfðu keypt nokkru áður. Mér
var boðið að starfa hjá þeim
áfram við þann rekstur en var
tregur til höfuðborgarinnar.
Skildu því leiðir að sinni. Rétt
um áratug síðar hugðist ég
skipta um starfsvettvang og sló
á þráðinn til Gunnars og spurði
hvort hann gæti gefið mér með-
mæli vegna starfsumsóknar.
Hann tók því vel og sagðist ætla
að vera í sambandi fljótt aftur.
Daginn eftir kom hann til mín
alvarlegur í bragði og sagðist
ekki ætla að gefa mér nein með-
mæli. Gunnar var gamansamur
maður og átti það til að vera
meinstríðinn. Þegar hann sá að
viðmælandanum var nokkuð
brugðið glotti hann og sagði
ástæðuna vera þá að hann vildi
að ég kæmi að vinna hjá sér í
Fóðurblöndunni. Í þetta sinnið
sló ég til og áttum við þar góð
ár saman.
Nokkur undanfarin ár höfum
við setið saman í stjórn Veiði-
félags Ytri-Rangár. Gunnar
settist í stjórnina um aldamótin
og sat í henni nær samfellt þar
til nú fyrir skömmu er hann dó
sig í hlé vegna heilsubrests.
Hann var formaður stjórnar á
árunum 2006-2008 og svo aftur
frá 2012. Mikil uppbygging hef-
ur átt sér stað hjá félaginu á
þessum tíma og þar lagði Gunn-
ar drjúga hönd á plóg. Hann
lagði á sig ómælda vinnu í þágu
félagsins og vildi aldrei þiggja
þóknun fyrir það. Við félagar
hans í stjórninni minntumst
stundum á að hann ætti að fá
greitt fyrir alla þessu vinnu.
Hann neitaði því jafnan, sagðist
hafa nóg fyrir sig og hefði gam-
an af þessu.
Fyrir hönd Veiðifélags Ytri
Rangár vil ég færa fjölskyldu
Gunnars sérstakar þakkir fyrir
allt það fórnfúsa starf sem hann
lagði á sig fyrir hönd félagsins.
Ungur að árum kynntist
Gunnar lífsförunauti sínum,
Vigdísi Þórarinsdóttur frá
Litlu-Tungu í Holtum. Þau töltu
saman götu lífsins og voru
einkar samhent í öllu sem þau
tóku sér fyrir hendur.
Nú við leiðarlok vil ég þakka
Gunnari fyrir áratuga samstarf
og vináttu sem aldrei bar
skugga á. Vigdísi og afkomend-
um þeirra hjóna votta ég samúð
og bið Guð að blessa minn-
inguna um góðan dreng.
Guðmundur Einarsson.
Nú hefur kaldur krapi heilsu-
brests lokið lífsgöngu vinar
míns Gunnars A. Jóhannssonar.
Í æsku vorum við villingar í
Vogunum og ekki alltaf til fyr-
irmyndar en við kynntumst
fyrst að marki síðar á lífsleið-
inni. Gunnar var ekki skinn-
sléttur skólasetumaður. Hann
hófst til vegs á eigin hönd af
ötulum vilja án mikillar skóla-
göngu; brautryðjandi á mörgum
sviðum, bóndi, forstjóri, hesta-
maður og heimsmaður. Á árun-
um í Olís, með öðrum vini, Óla
Kr. Sigurðssyni, varð vinátta
okkar traust og samferðin drjúg
þegar nepjan blés í bönkunum
og heillafylgjan brást á árbakka
í Borgarfirði. Komu þá vel í ljós
kostir Gunna Jó. Ekki var hann
gjarn til geðbrigða en úrræða-
góður, lundlipur og djarfur og
rausnarlegur þegar á reyndi.
Ævinlega heill vinur. Við áttum
langa samleið bæði vináttu og
viðskipta sem ekki bar skugga
á. Nú þegar leiðir skilja er gott
er að geta séð Gunnar fyrir sér,
grannvaxinn, söguglaðan, með
glettnisglampa í augum, bros á
vör og stór endalaus áform sem
gjarnan gengu eftir.
Við Hrafnhildur sendum Vig-
dísi, Grétari Þórarni, Gunnari
Jóhanni, (Tívolí-vini mínum) og
Maríönnu innilegar samúðar-
kveðjur frá fjarlægum strönd-
um.
Vor ævi stuttrar stundar
er stefnd til Drottins fundar,
…
(Einar Benediktsson)
Í Guðs friði.
Óskar Magnússon.
Kvaddur er í dag góður vin-
ur, Gunnar Andrés Jóhannsson.
Kynni mín af Gunnari hófust
fyrir rúmum 30 árum. Þau góðu
kynni hafa orðið nánari eftir því
sem árin hafa liðið. Hesta-
mennska hefur átt stóran þátt í
að efla þau tengsl. Skömmu eft-
ir síðustu aldamót eignuðumst
við, fimm fjölskyldur, jörðina
Hrútsholt í Eyja- og Mikla-
holtshreppi og voru Gunnar og
Vigdís þátttakendur í þessum
samhenta hópi.
Tilgangur kaupa á jörðinni
var að koma þar upp aðstöðu til
að sinna sameiginlegum áhuga á
útreiðum. Ráðist var í átak við
að bæta aðstöðuna, m.a. hvað
varðaði húsakost. Reyndist
Gunnar öflugur drifkraftur og
góður félagi sem tók að sér
verkstjórn þeirra framkvæmda.
Í gegnum þá samvinnu kynntist
ég enn betur starfsorku Gunn-
ars, glöggri yfirsýn hans yfir
framkvæmdir og útsjónarsemi.
Síðar átti ég eftir að starfa fyrir
hann að öðrum og stærri bygg-
ingarframkvæmdum, ávallt með
farsælli samvinnu og niður-
stöðu.
Ánægjustundir urðu margar í
hópi Hrútshyltinga hvort sem
riðið var á Löngufjörum eða á
heimaslóðum Gunnars og Vig-
dísar, Árbæ við Ytri-Rangá. Ein
eftirminnilegasta hestaferð sem
undirritaður hefur tekið þátt í
var farin frá heimili þeirra, upp
með Rangá og síðan um nyrðri
og syðri Landmannaleið, um-
hverfis Torfajökul, undir far-
sælli og glöggri leiðsögn Gunn-
ars. Í þeirri ferð varð það óvænt
hlutskipti Vigdísar að fylgja
hópnum í bíl, viðbeinsbrotin en
flytjandi kjarngóðan viður-
gjörning á áningarstaði. Á hug-
ann leita einnig bjartar minn-
ingar frá góðum stundum þegar
Gunnar og Vigdís tóku af mikl-
um höfðingsskap á móti vinum í
Árbænum og Gunnar grillaði
heila unggrísi á teini.
Vinnusemi, yfirsýn og hæfi-
leikar til forystu nýttust Gunn-
ari ekki aðeins í tengslum við
vini og hesta. Hann hafði ungur
ásamt bræðrum sínum skapað
fjölskyldunni góð efni með
rekstri á Holta-kjúklingabúinu
á Ásmundarstöðum. Síðan tóku
við aukin umsvif þeirra bræðra,
m.a. framleiðsla á fóðurvörum í
Fóðurblöndunni og hveitimölun
í Kornaxi.
Þegar Gunnar tók að sér við-
fangsefni var staðið að verki
með áræði, festu og útsjónar-
semi. Farsælum viðskiptaferli
Gunnar Andrés
Jóhannsson
Virðing,
reynsla
& þjónusta
Allan
sólarhringinn
571 8222
Svafar:
82o 3939
Hermann:
82o 3938
Ingibjörg:
82o 3937
www.kvedja.is
svafar & hermann
Davíð
útfararstjóri
551 3485 - www.udo.is
Óli Pétur
útfararstjóri