Morgunblaðið - 21.09.2019, Qupperneq 40
40 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER 2019
Í dag er afmæl-
isdagur mömmu,
hún hefði orðið 87
ára í dag. Hún lést
22. maí síðastlið-
inn. Eitt er víst; maður und-
irbýr sig ekki fyrir að missa
þann sem hefur staðið manni
næst alla ævi. Ég er yngstur af
systkinunum og var því einn
með mömmu eftir að hin systk-
inin fóru að heiman. Við áttum
lengst af heima á Álfaskeiði í
Hafnarfirði. Mamma var orðin
fertug þegar hún ákvað að læra
til sjúkraliða og lauk því námi
með toppeinkunnum. Eftir
námið hóf hún störf á Borg-
arspítala þar sem hún vann þar
til hún fór á eftirlaun. Það var
mikið frelsi fyrir mömmu þegar
hún eignaðist sinn fyrsta bíl
1978, Toyota Corolla, rauðan að
lit. Hún hugsaði vel um bílinn,
hann var bónaður með sérstök-
um rafmagnsbóngræjum reglu-
lega.
Hennar besti tími var að
ferðast utan, helst til Spánar
þar sem hún kunni vel við hit-
ann. Ég var svo heppinn að
fara með henni í þrjár slíkar
ferðir.
Fyrsta ferðin var ferming-
arferð með fjölskyldunni og
þær seinni voru farnar þegar
ég var orðinn fullorðinn. Það
Sigurbjörg
Njálsdóttir
✝ SigurbjörgNjálsdóttir
fæddist 21. sept-
ember 1932. Hún
lést 22. maí 2019.
Útför hennar fór
fram 31. maí 2019.
var gaman að
fylgjast með því
hvað hún undirbjó
hverja ferð sem
hún fór í vel, tók
minnst hálfan mán-
uð. Það var allt
mögulegt sem hún
tíndi til svo sem
krydd, matur og
fleira sem henni
þótti nauðsynlegt
að hafa með.
Mamma var eins og amma;
höfðingi heim að sækja, og var
öllu tjaldað til þegar gestir
komu, rjómi þeyttur og vöfflur
bakaðar. Hún var einstaklega
hagsýn og lagði áherslu á að
maður ætti alltaf að vera heið-
arlegur í öllu því sem maður
gerði. Seinni árin átti mamma
heima á Móabarði þar sem
amma og afi áttu einnig heima.
Reyndist mamma ömmu og afa
sérstaklega vel og áttu þau
góðan tíma saman. Á Móabarði
undi hún hag sínum vel eftir að
hún hætti að vinna og naut
þess að ferðast utan og stjórna
fjölskyldunni.
Þegar hún veiktist og átti
orðið erfitt með að vera ein
flutti hún á Hrafnistu, þó svo
að hún hefði viljað vera lengur
á Móabarði. Á Hrafnistu fór vel
um hana og hún kynntist
mörgu góðu fólki, sérstaklega
starfsfólki, sem hún gat sagt til
hvernig átti að gera hlutina.
Hennar er sárt saknað, en ég
veit að hún er komin á góðan
stað með ömmu og afa.
Þinn Siggi litli.
Sigurður Gíslason.
✝ Sólveig GuðnýGunnarsdóttir
fæddist 26. október
1939. Hún lést á
líknardeild Land-
spítalans 6. sept-
ember 2019.
Foreldrar Sól-
veigar voru Gunn-
ar Ágúst Sigur-
finnsson, f. 8. ágúst
1895, d. 12. ágúst
1966, og kona hans
Sigrún Ólafsdóttir, f. 30. júní
1907, d. 16. maí 1986. Sólveig
var næstyngst systkina sinna,
en systkini hennar eru: Ásgeir
Sigurjón Gunnarsson, f. 2. nóv-
ember 1930, Ásta Óla Gunn-
arsdóttir, f. 20. nóvember 1936,
Jónína Gunnarsdóttir, f. 16.
september 1938, d. 22. nóvem-
ber 2013, og Sigurbjörg Jóna
Gunnarsdóttir, f. 8. maí 1946.
Sólveig giftist 13. apríl 1963
eftirlifandi eiginmanni sínum,
Antoni Kristinssyni húsasmið, f.
19. júlí 1941. Dóttir þeirra var
Linda Antonsdóttir, f. 11. des-
ember 1973, d. 10. febrúar
2018. Synir Lindu eru Andri
Már Helgason, f.
11. apríl 1994, og
er unnusta hans
Ragna Lind Rún-
arsdóttir, f. 11.
nóvember 1997, og
Ævar Þór Helga-
son, f. 18. desem-
ber 2000.
Sólveig ólst upp
í Keflavík þar sem
þau hjónin hófu bú-
skap. Fyrstu árin
bjuggu þau í leiguhúsnæði en
fluttu svo í hús sem þau byggðu
þar í bæ. Árið 1970 fluttu Sól-
veig og Anton til Reykjavíkur
og bjuggu í nokkur ár í Hraun-
bæ 20 eða þar til þau fluttu í
Fjarðarsel 17 í hús sem þau
byggðu. Árið 1994 fluttu þau
hjónin sig um set í nýtt hús sem
þau byggðu í Bollasmára 1,
Kópavogi. Síðast var heimili
Sólveigar og Antons í Baugakór
15-17, Kópavogi. Sólveig og
Anton fengu lóð árið 1991 í
landi Merkihvols í Landsveit.
Útför Sólveigar fór fram frá
Lindakirkju 16. september
2019.
Hún Sonný okkar er búin að
kveðja eftir harða baráttu við
hinn illvíga sjúkdóm krabba-
mein, sem hafði betur.
Hugurinn leitar rúm sextíu
ár aftur í tímann þegar ungar
stúlkur streymdu norður í
Eyjafjörð til að setjast á skóla-
bekk, það var í Húsmæðraskól-
ann á Laugalandi að haustlagi.
Við vorum tæplega fjörutíu
talsins. Komum alls staðar að,
nokkrar frá Akureyri, ein frá
Siglufirði, frá Austfjörðum,
Vestmannaeyjum, Suðurnesj-
um, Hafnarfirði, Reykjavík og
Snæfellsnesi. Föngulegur hóp-
ur sem var fljótur að hristast
saman. Nám var stundað eftir
bestu getu, en margt var brall-
að þar fyrir utan.
Hún Sonný okkar með fal-
lega brosið og ljúfu lundina
varð öllum kær. Allt lék í hönd-
unum á henni, sem sýndi sig
síðar á lífsleiðinni þegar hún
fór að mála á steina.
Steinarnir hennar Sonnýjar
bera af hvað smekkvísi og fal-
legt handbragð snertir.
Við höfum verið fastur kjarni
sem hefur hist einu sinni í mán-
uði um langt árabil.
Sonný var ein af hópnum,
sem hefur haldið vinaböndin í
gegnum öll þessi ár.
Hennar verður sárt saknað.
Við sendum Antoni og dótt-
ursonunum Andra Má og Æv-
ari Þór okkar innilegustu sam-
úðarkveðjur.
Fyrir hönd skólasystranna
frá Laugalandi 1959,
Jóhanna Þorkelsdóttir.
Sólveig Guðný
Gunnarsdóttir
Þegar ég heyrði
að amma mín hefði
dáið snögglega var
eins og heimurinn
stöðvaðist. Ég hafði ekki hitt
ömmu í langan tíma og var búinn
að skipuleggja að fara norður í
heimsókn og bað hana sérstak-
lega um að taka frá eitt herbergi
fyrir mig í gistiplássinu. Því mið-
Jóna Ingvars
Jónsdóttir
✝ Jóna IngvarsJónsdóttir
fæddist 28. júlí
1957. Hún lést 7.
september 2019.
Útför Jónu fór
fram 14. september
2019.
ur náðum við aldrei
þessum tíma saman
en ég veit að þú bíð-
ur eftir mér í Sum-
arlandinu og þá
mun ég áfram geta
heyrt þig segja mér
sögur, eins og þú
varst vön að gera.
Elsku amma,
minning þín lifir
áfram sem ljós í
mínu lífi og mun ég
alltaf geyma í hjarta mínu minn-
ingar um stundir okkar saman.
Þangað til ég sé þig næst: ég
elska þig.
Þinn
Hallgrímur.
Elsku Árný mín,
það er sárt að
kveðja þig í dag en
nú ert þú laus við
veikindin og líður vonandi bet-
ur. Þú varst alltaf hörkudugleg
og lést ekkert stoppa þig við
það sem þú tókst þér fyrir. Þú
elskaðir að prjóna og varst svo
dugleg að prjóna á stelpurnar
þínar. Þú elskaðir að fara í
ferðalög og sumarbústaði með
fjölskyldunni, man að við fjöl-
skyldan fórum svo oft í Ölfus-
Árný Rósa
Aðalsteinsdóttir
✝ Árný Rósa Að-alsteinsdóttir
fæddist 1. nóv-
ember 1955. Hún
lést 31. ágúst 2019.
Útför hennar fór
fram 5. september
2019.
borgir með ykkur
Jóa og stelpunum
þegar ég var
krakki, það var
skemmtilegur tími.
Við erum þakk-
lát fyrir þann tíma
sem við áttum með
þér og góðar minn-
ingar um skemmti-
legar samveru-
stundir munu ávallt
fylgja okkur.
Veit að Allý, amma, afi,
mamma og fleiri taka vel á móti
þér.
Elsku Jói, Hanna Gréta,
Guðný Lára, Anna Stefanía og
barnabörn, megi góður Guð
styrkja ykkur í þessari miklu
sorg.
Þín frænka
Ágústa Björk.
Við önnumst alla þætti undirbúnings og fram-
kvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin.
Við þjónum með virðingu og umhyggju að
leiðarljósi og af faglegum metnaði.
Við erum til staðar
þegar þú þarft á
okkur að halda
Lára Árnadóttir,
umsjón útfara
Útfararþjónusta
& lögfræðiþjónusta
Vesturhlíð 2, Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is
Með kærleik og virðingu
Útfararstofa Kirkjugarðanna
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur
samúð, vináttu og hlýhug við andlát og
útför elskulegs eiginmanns míns, föður
okkar, tengdaföður, afa og langafa,
FINNS KOLBEINSSONAR
lyfjafræðings,
Sóleyjarima 21.
Guðrún Pálsdóttir
Kolbeinn Finnsson Birna Guðmundsdóttir
Hólmfríður Erla Finnsdóttir Sigurður Kjartansson
barnabörn og barnabarnabarn
Þökkum öllum sem sýndu okkur samúð og
vinarhug við andlát og útför
SÍMONAR SIGURMONSSONAR
frá Görðum.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Brákarhlíðar
í Borgarnesi og HVE fyrir alúð og góða
umönnun.
Með kærleikskveðju,
Svava Svandís Guðmundsdóttir
og fjölskylda
Þökkum innilega auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför elskulegrar
móður okkar, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
ÁSU KRISTÍNAR HERMANNSDÓTTUR,
Stigahlíð 24.
Sérstakar þakkir til starfsfólks hjúkrunarheimilisins Skjóls.
Hermann Brynjólfsson Eygló Lilja Ásmundsdóttir
Reynir Brynjólfsson
Ólafur Helgason Linda Sunnanvader
Salína Helgadóttir Einar Long
Guðmundur Helgason Hildur Jósefsdóttir
Þröstur Helgason Gerður Jónsdóttir
ömmubörn og langömmubörn
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur
samúð, vináttu og hlýhug við andlát og
útför elskulegs eiginmanns míns, föður
okkar, tengdaföður, afa og langafa,
EINARS ÞORSTEINSSONAR,
héraðsráðunautar og bónda,
Sólheimahjáleigu í Mýrdal.
Eyrún Sæmundsdóttir
Áslaug Einarsdóttir Sigurður Hjálmarsson
Jóhanna Margrét Einarsd. Þórður Grétarsson
Jón Bragi Einarsson
Elín Einarsdóttir Jónas Marinósson
Unnur Björk Arnfjörð Páll K. Sæmundsson
barnabörn og barnabarnabörn
Þökkum innilega auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát elsku móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
GUÐRÚNAR BJARGAR
BJÖRNSDÓTTUR,
Gígju.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki
Brákarhlíðar í Borgarnesi fyrir frábæra
umönnun og elskulegt viðmót.
Rúnar Viktorsson Kristín Guðjónsdóttir
Jensína Waage
Hrafnhildur Waage
Ólafur Waage Gunnþórunn B. Gísladóttir
Kári Waage
Brynja Waage Ragnar H. Jónsson
barnabörn og barnabarnabörn
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og tengdaamma,
AUÐBJÖRG HLÍN PÁLSDÓTTIR,
Kambastíg 6, Sauðárkróki,
lést á heimili sínu laugardaginn
14. september. Útförin fer fram frá
Sauðárkrókskirkju fimmtudaginn 26. september klukkan 14.
Árni Indriðason
Kári Heiðar Árnason Margrét Helgadóttir
Hlynur Freyr Árnason
Thelma Rut, Þröstur, Viktor og Gunnhildur Dís.
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla
útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í
hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“
valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina
www.mbl.is/sendagrein
Minningargreinar