Morgunblaðið - 21.09.2019, Blaðsíða 44
VALUR
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Íris Björk Símonardóttir, mark-
vörður Vals í handknattleik, segir að
stemningin á Hlíðarenda fyrir vetr-
inum sé mjög góð. Valskonur voru
óstöðvandi á síðustu leiktíð og unnu
þrefalt en margir lykilmenn frá síð-
asta tímabili eru horfnir á braut.
Valskonum er spáð efsta sæti
deildarinnar í spá fyrirliða og þjálf-
ara deildarinnar.
„Það er góð stemning á Hlíðar-
enda og tímabilið leggst vel í okkur.
Við erum vissulega með mjög breytt
lið frá síðustu leiktíð og við erum
enn að spila okkur saman. Við erum
enn að læra hver inn á aðra en þetta
er allt að koma. Ef allt gengur upp
hjá okkur og við náum að stilla
strengina rétt er úrslitakeppnin
mjög raunhæft markmið fyrir
okkur. Að sama skapi eru gríðarlega
sterk lið í þessari deild og það þarf
allt að ganga upp, eins og alltaf, ef
við ætlum að ná alvöru árangri í
vetur.“
Nýtt lið á Hlíðarenda
Leikmannahópur liðsins er mikið
breyttur, en margir reynsluboltar
frá síðustu leiktíð hafa ekki enn gef-
ið það út hvort þær séu hættar
handboltaiðkun.
„Þetta small mjög vel saman hjá
okkur í fyrra og blandan í liðinu var
mjög góð. Þetta er í raun bara annað
lið sem við erum að tefla fram í ár.
Arna Sif kemur inn með gríðarlega
reynslu og Díana, Lovísa og Sandra
eru allar árinu eldri núna, sem er já-
kvætt. Það eru hins vegar ekki jafn
margir reynsluboltar í liðinu nú og í
fyrra en engar þeirra hafa hins veg-
ar gefið það út að þær séu hættar.
Ég held því í vonina um að þær snúi
aftur þegar líða fer á haustið.“
Ríkjandi Íslandsmeistarar ætla
sér að taka einn leik fyrir í einu, líkt
og á síðustu leiktíð.
„Við ætlum okkur að taka einn
leik fyrir í einu og erum ekki að ein-
blína á einhver langtíma markmið.
Það virkaði vel fyrir okkur á síðustu
leiktíð og þótt það sé klisja þá er
bara erfitt að hafa áhrif á eitthvað
sem mun gerast eftir fimm til sex
mánuði eða svo. Við ætlum okkur í
úrslitakeppnina en við höfum ekki
sett markið neitt hærra en það að
svo stöddu.“
Íris Björk var kölluð inn í íslenska
landsliðið fyrir leikina gegn Króatíu
og Frakklandi, dagana 25. septem-
ber og 29. september næstkomandi,
í undankeppni EM en nokkur ár eru
síðan hún gaf það út að hún væri
hætt að gefa kost á sér í íslenska
landsliðið.
„Ég kem inn í landsliðið til þess
að hjálpa til, þar sem aðrir mark-
menn eru að glíma við meiðsli. Ég
var hætt að gefa kost á mér í lands-
liðið af fjölskylduástæðum en þegar
ég er beðin um að koma inn og
hjálpa til segi ég ekki nei. Ég er
spennt fyrir komandi verkefni gegn
Frökkum og það eru spennandi
tímar fram undan hjá liðinu undir
stjórn Arnars Péturssonar. Hvort
ég spila fleiri leiki í undankeppni
EM þarf bara að koma í ljós en ég
stend við þá ákvörðun mína að ég sé
hætt að gefa kost á mér í íslenska
landsliðið.“
Meistararnir
ætla í úrslita-
keppnina
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Markahæst Hin nítján ára gamla Lovísa Thompson var markahæsti leik-
maður Valskvenna í fyrra og verður ekki síður í stóru hlutverki í vetur.
Íris Björk heldur enn í vonina um að
reynsluboltarnir snúi aftur í vetur
44 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER 2019
ÚTILJÓSADAGAR
afsláttur af völdum
útiljósum
50%
Rafvörumarkaðurinn við Fellsmúla | Sími: 585 2888
OPIÐ ALLA DAGA
Mán. til fös. kl. 9–18
Laugard. kl. 10–16
Sunnud. kl. 12–16
Ída Margrét Stefánsdóttir
Lovísa Thompson
Ólöf María Stefánsdóttir
Sandra Erlingsdóttir
Þjálfari: Ágúst Jóhannsson.
Aðstoðarþjálfarar: Óskar Bjarni
Óskarsson og Hlynur Morthens.
Árangur 2018-19: Íslands-, deild-
ar- og bikarmeistari.
Íslandsmeistari: 1962, 1964, 1965,
1966, 1967, 1968, 1969, 1971, 1972,
1973, 1974, 1983, 2010, 2011, 2012,
2014, 2019.
Bikarmeistari: 1988, 1993, 2000,
2012, 2013, 2014, 2019.
Valur sigraði HK 31:23 á úti-
velli í 1. umferð deildarinnar og
tekur á móti Aftureldingu í dag
kl. 18 á Hlíðarenda.
MARKVERÐIR:
Andrea Gunnlaugsdóttir
Íris Björk Símonardóttir
HORNAMENN:
Auður Ester Gestsdóttir
Elín Helga Lárusdóttir
Lilja Ágústsdóttir
Ragnhildur Edda Þórðardóttir
Vigdís Birna Þorsteinsdóttir
LÍNUMENN:
Arna Sif Pálsdóttir
Hildur Björnssdóttir
ÚTISPILARAR:
Ásdís Þóra Ágústsdóttir
Díana Dögg Magnúsdóttir
Elín Rósa Magnúsdóttir
Heiðrún Berg Sverrisdóttir
Lið Vals 2019-20
KOMNAR
Andrea Gunnlaugsdóttir frá ÍBV
Arna Sif Pálsdóttir frá ÍBV
Elín Rósa Magnúsdóttir frá Fylki
FARNAR
Alina Molkova í Diekirch (Lúxemb.)
Anna Úrsúla Guðmundsdóttir, óvíst
Chantal Pagel í Füchse Berlín
(Þýskalandi)
Emelía Sigmarsdóttir, óvíst
Gerður Arinbjarnar, óvíst
Íris Ásta Pétursdóttir, óvíst
Morgan Marie Þorkelsdóttir, óvíst
Breytingar á liði Vals
Valskonur verða í baráttunni um alla titla ef
lykilleikmenn haldast heilir.
Þær hafa misst reynslubolta sem getur verið
erfitt, sérstaklega fyrir varnarleikinn.
Lykilleikmenn eru ungir, en margar komnar
með mikla reynslu og hafa mikinn metnað.
Áhugavert: Hvort hjarta varnarinnar verður
mætt eftir áramótin.
Guðríður Guðjónsdóttir
um lið Vals
KNATTSPYRNA
Úrvalsdeild kvenna, Pepsi Max-deildin:
Origo-völlur: Valur – Keflavík ............. L14
Würth-völlur: Fylkir – Breiðablik....... L14
Samsung-völlur: Stjarnan – KR.......... L14
Jáverksvöllur: Selfoss – ÍBV ............... L14
Úrvalsdeild karla, Pepsi Max-deildin:
Meistaravellir: KR – FH ...................... S14
Mustad-völlur: Grindavík – Valur ....... S14
Kórinn: HK – ÍA.................................... S14
Víkingsvöllur: Víkingur R. – KA.......... S14
Würth-völlur: Fylkir – Stjarnan.......... S14
Hásteinsvöllur: ÍBV – Breiðablik ........ S14
1. deild karla, Inkasso-deildin:
Vivaldi-völlur: Grótta – Haukar .......... L14
Leiknisvöllur: Leiknir R. – Fram........ L14
Nettóvöllur: Keflavík – Fjölnir ........... L14
Eimskipsv.: Þróttur R. – Afturelding. L14
Ólafsvíkurv.: Víkingur Ó. – Njarðvík.. L14
Þórsvöllur: Þór – Magni....................... L14
2. deild karla:
Eskjuvöllur: Fjarðabyggð – Leiknir F
L14
Olísvöllur: Vestri – Tindastóll.............. L14
Akraneshöll: Kári – Selfoss ................. L14
Nesfiskvöllur: Víðir – Dalvík/Reynir .. L14
Húsavíkurv.: Völsungur – Þróttur V .. L14
Hertz-völlur: ÍR – KFG ....................... L14
3. deild karla:
Bessastaðav.: Álftanes – Augnablik.... L14
Vilhjálmsvöllur: Höttur/Huginn – KH L14
Fjölnisv.: Vængir Júpíters – Sindri .... L14
Europcarv.: Reynir S. – Skallagrímur L14
Framvöllur: Kórdrengir – KV............. L14
HANDKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild kvenna, Olísdeildin:
Framhús: Fram – ÍBV ......................... L14
Kórinn: HK – Haukar .......................... L16
Origo-höll: Valur – Afturelding ........... L18
TM-höllin: Stjarnan – Þór/KA ............. S16
Úrvalsdeild karla, Olísdeildin:
Origo-höll: Valur – Selfoss .............. L20.15
Dalhús: Fjölnir – KA............................. S17
Ásvellir: Haukar – Stjarnan............ S17.30
Varmá: Afturelding – Fram ............ S19.30
1. deild kvenna, Grill 66-deildin:
Austurberg: ÍR – Fjölnir ................ L15.30
Origo-höll: Valur U – FH................. S17.15
2. deild karla:
Ísafjörður: Hörður – Fram U.............. L15
FIMLEIKAR
Norður-Evrópumótið í áhaldafimleikum
fer fram í Versölum í Kópavogi í dag og á
morgun og hefst kl. 14 báða dagana. Sjö
þjóðir keppa í kvennaflokki og sex í karla-
flokki. Í dag er liðakeppni ásamt einstakl-
ingskeppni og á morgun keppa átta bestu
á hverju áhaldi fyrir sig til úrslita.
Enski boltinn á Síminn Sport
Leicester – Tottenham.................... L11.30
Everton – Sheffield United.................. L14
Newcastle – Brighton...................... L16.30
West Ham – Manchester United......... S13
Chelsea – Liverpool ......................... S15.30
UM HELGINA!