Morgunblaðið - 21.09.2019, Qupperneq 46
46 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER 2019
Verið velkomin í verslun okkar
Opið virka daga kl. 8:30–17:00
Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is
fastus.is
FIGGJO LEIRTAU FYRIR
MÖTUNEYTI OG SKÓLA
Figgjo er norskt hágæða merki í borðbúnaði
Pepsi Max-deild kvenna
HK/Víkingur – Þór/KA............................ 0:1
Staðan:
Valur 17 15 2 0 62:10 47
Breiðablik 17 14 3 0 49:14 45
Selfoss 17 10 1 6 22:17 31
Þór/KA 18 8 4 6 29:27 28
Fylkir 17 7 1 9 21:34 22
Stjarnan 17 6 2 9 18:31 20
KR 17 6 1 10 23:32 19
ÍBV 17 6 0 11 29:42 18
Keflavík 17 4 1 12 28:38 13
HK/Víkingur 18 2 1 15 12:48 7
Keflavík og HK/Víkingur eru fallin.
Inkasso-deild kvenna
Afturelding – FH ..................................... 0:1
Margrét Sif Magnúsdóttir 76.
Tindastóll – ÍA ......................................... 4:1
Murielle Tiernan 80. 82., Bryndís Rut Har-
aldsdóttir 78., sjálfsmark 88. – Eva María
Jónsdóttir 63.
Þróttur R. – Grindavík............................ 9:0
Lauren Wade 24., 28., 37., 88. 90., Linda Líf
Boama 9., 57., Margrét Sveinsdóttir 14., 17.
Augnablik – Fjölnir ................................. 0:0
Haukar – ÍR.............................................. 3:2
Sjálfsmark 8., 84., Vienna Behnke 78. – Sig-
rún Erla Lárusdóttir 26., Linda Eshun 90.
Lokastaðan:
Þróttur R. 18 15 0 3 74:13 45
FH 18 12 3 3 48:24 39
Tindastóll 18 12 1 5 48:34 37
Haukar 18 12 0 6 35:21 36
Afturelding 18 6 3 9 27:25 21
Augnablik 18 5 5 8 16:26 20
Fjölnir 18 5 5 8 21:34 20
ÍA 18 5 4 9 19:30 19
Grindavík 18 3 6 9 19:40 15
ÍR 18 1 1 16 6:66 4
Þróttur R. og FH leika í úrvalsdeild 2020.
Grindavík og ÍR falla í 2. deild en upp koma
Völsungur og Grótta.
3. deild karla
Einherji – KF ........................................... 1:2
Staðan:
Kórdrengir 21 17 3 1 60:23 54
KF 22 16 3 3 58:26 51
KV 21 13 2 6 52:26 41
Vængir Júpiters 21 13 2 6 40:28 41
Reynir S. 21 10 5 6 39:39 35
Höttur/Huginn 21 7 6 8 38:33 27
Einherji 22 6 6 10 27:35 24
Álftanes 21 6 4 11 37:40 22
Sindri 21 6 3 12 42:61 21
KH 21 6 2 13 29:50 20
Augnablik 21 5 4 12 32:42 19
Skallagrímur 21 2 0 19 23:74 6
Kórdrengir og KF leika í 2. deild 2020.
Skallagrímur er fallinn í 4. deild en upp í 3.
deild koma Ægir og Elliði.
England
Southampton – Bournemouth................. 1:3
Þýskaland
B-deild:
Heidenheim – Darmstadt ....................... 1:0
Guðlaugur Victor Pálsson lék fyrstu 68
mínúturnar hjá Darmstadt.
KNATTSPYRNA
1. DEILDIN
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Bergsveinn Ólafsson, fyrirliði
Fjölnis í 1. deild karla í knatt-
spyrnu, þurfti að finna sér nýja
hvatningu í fótboltanum þegar
Fjölnir féll úr úrvalsdeildinni síð-
asta sumar. Fjölnismenn stoppuðu
ekki lengi í Inkasso-deildinni en lið-
ið tryggði sér sæti í deild þeirra
bestu á nýjan leik um síðustu helgi
og getur í dag tryggt sér meist-
aratitil deildarinnar í lokaumferð-
inni.
„Fyrsta markmiðinu og því mikil-
vægasta er náð því við ætluðum
okkur ekki að stoppa lengi í 1. deild-
inni. Það var mjög gott fyrir félagið
að ná að svara strax fyrir fallið úr
efstu deild í fyrra og mér finnst við
hafa gert það mjög vel. Það hefur
gengið mjög vel hjá okkur í sumar
og þetta hefur verið virkilega
skemmtilegt tímabil. Við vorum
búnir að vera að hiksta aðeins áður
en við fengum skell á móti Víkingi
Ólafsvík um miðjan júní. Eftir þann
leik settumst við niður saman sem
lið, endurstilltum okkur aðeins, og
við höfum í raun bara verið á beinu
brautinni síðan.“
Fann nýjan tilgang í boltanum
Bergsveinn viðurkennir að útlitið
í Grafarvoginum hafi ekki verið
neitt sérstakt í nóvember en margir
lykilmenn úr liðinu frá sumrinu
2018 voru horfnir á braut.
„Í sannleika sagt hefur það komið
mér á óvart hversu gott lið okkur
hefur tekist að mynda. Mér leist
ekkert sérstaklega vel á þetta í
nóvember/desember og það er afrek
hjá þjálfarateyminu að hafa tekist
að búa til þessa öflugu liðsheild. Ég,
Guðmundur Karl og Hans Viktor
vorum einu leikmennirnir sem voru
eftir frá fastamönnum liðsins á síð-
ustu leiktíð og þess vegna kom það
mér á óvart hversu sterkir við vor-
um í raun og veru. Leikmenn eins
og Albert Ingason og Rasmus
Christiansen komu virkilega vel inn
og þá komu ungir leikmenn Fjölnis
líka mjög sterkir inn. Okkur tókst
að mynda alvöruliðsheild og það
kom mér í raun mest á óvart.“
Fyrirliðinn var afar niðurlútur
þegar Fjölnismenn féllu í fyrra.
Hann dreymdi meðal annars um at-
vinnumennsku og segir að fall
Fjölnis hafi vakið sig og hjálpað sér
að finna nýjan tilgang í fótboltanum.
Draumurinn dó með fallinu
„Þetta var ákveðinn lágpunktur
hjá mér þegar við féllum um deild.
Ég varð Íslandsmeistari með FH,
tveimur árum áður, og þetta var erf-
iður tími fyrir mig. Ég spilaði undir
getu að mínu mati, bæði árið sem
við féllum og síðasta árið mitt með
FH, og ég þurfti aðeins að endur-
skipuleggja mig sem knattspyrnu-
maður. Það sem hafði haldið mér
gangandi í boltanum lengi var
draumurinn um atvinnumennskuna
en svo áttaði ég mig á því að það
væru aðrir mikilvægir hlutir í lífinu
en fótbolti. Ég þurfti þess vegna að
finna einhverja aðra hvatningu og
ég fór að einbeita mér meira að því
að vera leiðtogi innan sem utan vall-
ar. Ég fór að leggja meiri áherslu á
að hjálpa liðsfélögum mínum og
vera meiri liðsmaður. Ég er þess
vegna mjög sáttur við þá ákvörðun
mína að hafa verið áfram í Fjölni og
ég er bæði stoltur af mér, liðinu og
klúbbnum.“
Allir ferskir á Seltjarnarnesi
Ekkert lið hefur komið jafn mikið
á óvart í sumar eins og fyrstu-
deildarlið Gróttu sem getur tryggt
sér sæti í efstu deild í fyrsta sinn í
sögu félagsins þegar liðið fær
Hauka í heimsókn í dag. Sigurvin
Reynisson, fyrirliði Gróttu og einn
elsti leikmaður liðsins, 24 ára gam-
all, er tilbúinn í slaginn og ítrekar að
það verði ekki spilað upp á jafntefli
á Nesinu.
„Það eru allir ferskir og tilbúnir í
slaginn á Seltjarnarnesi. Við höfum
farið í alla heimaleiki í sumar til
þess að vinna þá og það breytist
ekki á morgun (í dag).“
Grótta var nýliði í 1. deildinni í
sumar og áttu flestir von á að stopp-
ið yrði stutt í fyrstu deildinni.
Fylgja leikskipulagi þjálfarans
„Ég væri að ljúga ef ég segði að
gengi okkar í sumar hafi ekkert
komið mér á óvart. Vissulega erum
við ungir en við höfum alltaf litið svo
á að ef við erum nægilega góðir til
þess að spila í 1. deildinni þá hljót-
um við að vera nógu gamlir líka
þannig að aldur á ekki að skipta
neinu máli í þessu. Við höfum líka
sýnt það í allt sumar að okkur hefur
gengið vel að höndla pressuna sem
fylgir því að vera í toppbaráttu.“
Uppgangurinn á Seltjarnarnesi
hefur verið mikill frá því að Óskar
Hrafn Þorvaldsson tók við liðinu í
október 2017.
„Við féllum niður í 2. deild haustið
2017 og þá kemur Óskar inn í þetta.
Hann er á sínu öðru tímabili með
liðið og við erum klárlega að græða
mikið á því. Hann er frábær þjálfari
og frá því að hann tekur við liðinu
hefur hann gert okkur alla að betri
knattspyrnumönnum. Hann er með
sinn stíl sem þjálfari og við fylgjum
að sjálfsögðu hans leikskipulagi.“
Besti árangur Gróttu frá stofnun
félagsins 1976 er 10. sæti í B-deild
og því ljóst að liðið hefur stórbætt
þann árangur í sumar.
„Í sumar höfum við í raun bara
verið að skrifa nýjan kafla í sögu fé-
lagsins enda árangurinn aldrei verið
jafn góður. Það getur enginn tekið
það af okkur sem við höfum afrekað
í sumar. Það er ennþá einn leikur
eftir en það að fara upp í efstu deild
myndi ekki bara gera mikið fyrir
okkur leikmennina. Þetta myndi
hafa gríðarlega mikla þýðingu fyrir
alla sem búa á Seltjarnarnesi, sem
og alla sem tengjast félaginu.“
Fjölnismenn
á beinu braut-
inni á ný
Gróttumenn staðráðnir í að skrifa
nýjan kafla í sögunni og fara upp í dag
Morgunblaðið/Hari
Fjölnir Bergsveinn Ólafsson og félagar hans í Grafarvogsliðinu eru komnir
strax aftur í hóp þeirra bestu eftir eitt ár í fyrstu deildinni.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Grótta Seltirningar hafa komið gríðarlega á óvart sem nýliðar í ár og nú
blasir við þeim sæti í efstu deild í fyrsta skipti í sögu félagsins.
Helmingur liðanna í 1. deild karla í knattspyrnu, Inkasso-deildinni, verður
í baráttu um að komast upp í úrvalsdeild eða að forðast fall niður í 2. deild í
lokaumferðinni í dag þar sem allir leikirnir hefjast klukkan 14. Fyrir ligg-
ur að Fjölnir leikur í úrvalsdeildinni árið 2020 og Njarðvík er fallin í 2.
deild.
Fjölnir er með 42 stig og kominn upp en þarf jafntefli í Keflavík til að
tryggja sér efsta sæti deildarinnar.
Grótta er með 40 stig og nægir jafntefli á heimavelli gegn Haukum til að
komast upp í úrvalsdeild í fyrsta skipti í sögunni.
Leiknir í Reykjavík er með 37 stig og þarf að sigra Fram á heimavelli og
treysta á að Grótta tapi fyrir Haukum til að komast upp í úrvalsdeildina.
Haukar eru með 22 stig og nægir jafntefli á útivelli gegn Gróttu til að
halda sæti sínu í 1. deildinni. Haukar sleppa með tap ef annað hvort
Magni eða Þróttur tapar sínum leik, eða ef Afturelding tapar stærra.
Afturelding er með 22 stig og nægir jafntefli gegn Þrótti á útivelli til að
halda sér uppi. Afturelding má annars tapa ef Magni tapar eða ef Hauk-
ar tapa með meiri mun.
Magni er með 22 stig og nægir jafntefli gegn Þór á útivelli til að halda
sér uppi. Magni má tapa leiknum ef Þróttarar tapa gegn Aftureldingu.
Þróttur er með 21 stig og fellur með tapi gegn Aftureldingu. Jafntefli
dugar Þrótti ef annaðhvort Magni eða Hauka tapar sínum leik.
Hvað er í húfi í lokaumferðinni?