Morgunblaðið - 21.09.2019, Qupperneq 47

Morgunblaðið - 21.09.2019, Qupperneq 47
ÍÞRÓTTIR 47 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER 2019 Sími: 411 5000 • www.itr.is Fyrir líkama og sál Laugarnar í Reykjavík Frá morgnifyrir alla fjölskylduna í þínu hverfi t i l kvölds HANDBOLTI Grill 66 deild karla Þróttur – Fjölnir U............................... 36:29 FH U – Þór Ak...................................... 27:29 Haukar U – Grótta ............................... 26:19 Stjarnan U – Valur U........................... 21:31 KA U – Víkingur................................... 26:24 Grill 66 deild kvenna Fylkir – HK U....................................... 17:24 Víkingur – Selfoss ................................ 19:25 Þýskaland B-deild: Bietigheim – Eisenach........................ 25:25  Hannes Jón Jónsson þjálfar Bietigheim. Gummersbach – Hamburg................. 29:26  Aron Rafn Eðvarðsson varði 9 skot í marki Hamburg. Danmörk Skjern – Fredericia............................. 29:25  Elvar Örn Jónsson skoraði 1 mark fyrir Skjern og Björgvin Páll Gústavsson sat á varamannabekknum. Patrekur Jóhannes- son þjálfar liðið. Kolding – Lemvig................................ 23:23  Árni Bragi Eyjólfsson skoraði ekki fyrir Kolding og Ólafur Gústafsson lék ekki með. Nordsjælland – SönderjyskE............. 23:29  Arnar Birkir Hálfdánsson skoraði 2 mörk fyrir SönderjyskE og Sveinn Jó- hannsson 1. Frakkland Nice – Bourg-de-Péage ...................... 25:17  Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir skor- aði 1 mark fyrir Bourg-de-Péage. Svíþjóð Önnered – Sävehof...............................21:23  Ágúst Elí Björgvinsson er markvörður Sävehof. Pólland Lech Poznan – Jagiellonia ..................... 1:1  Böðvar Böðvarsson var á varamanna- bekk Jagiellonia. Danmörk OB – AGF.................................................. 1:2  Jón Dagur Þorsteinsson lék fyrstu 57 mínúturnar og lagði upp mark fyrir AGF. B-deild: Breda – Excelsior .................................... 2:1  Elías Már Ómarsson kom inn á sem varamaður á 75. mínútu hjá Excelsior og skoraði aðeins mínútu síðar. Svíþjóð B-deild: Örgryte – Brage ...................................... 3:2  Bjarni Mark Antonsson lék allan leikinn fyrir Örgryte. Belgía B-deild: Lokeren – Roeselare ............................... 2:0  Arnar Grétarsson þjálfar Roeselare.  FH tryggði sér í gærkvöldi sæti í úr- valsdeild kvenna í knattspyrnu á næsta ári með 1:0-útisigri á Aftur- eldingu í lokaumferð Inkasso- deildarinnar. Margrét Sif Magnús- dóttir skoraði sigurmark FH á 76. mínútu og sá til þess að FH hafnaði í öðru sæti með 39 stig, sex stigum á eftir Þrótti og tveimur stigum á und- an Tindastóli. FH fer því rakleiðis upp í úrvals- deildina á ný eftir eins árs veru í næstefstu deild. FH lék í efstu deild 2016-2018 en á árunum á undan flakkaði liðið nokkuð á milli deild- anna. Var það í næstefstu deild 2015 en í efstu deild 2012-2014. Karlalið félagsins var í svipaðri stöðu seint á síðustu öld og næsta verkefni hjá FH-ingum er að kvennaliðið nái að festa sig einnig í sessi í efstu deild. Tindastóll hafði betur gegn ÍA, 4:1, og tryggði sér í leiðinni þriðja sætið. Eva María Jónsdóttir kom ÍA yfir á 63. mínútu en Bryndís Rut Haraldsdóttir jafnaði á 78. mínútu, áður en Murielle Tiernan skoraði tvö mörk á þremur mínútum. Fjórða mark Tindastóls var sjálfsmark. Skagfirðingar hafa leikið vel í sumar og verður áhugavert að sjá hvort Tindastóll gerir aðra atlögu að sæti í efstu deild á næsta keppnistímabili. Topplið Þróttar kórónaði glæsi- legt tímabil með 9:0-sigri á föllnu liði Grindavíkur. Lauren Wade skoraði fimm mörk fyrir Þrótt og þær Mar- grét Sveinsdóttir og Linda Líf Boama skoruðu tvö mörk hvor. Haukar enda í fjórða sæti með 36 stig. Haukakonur höfðu betur gegn botnliði ÍR á heimavelli 3:2. ÍR-ingar höfðu ekki heppnina með sér og skoruðu tvö sjálfsmörk en Vienna Behnke skoraði einnig fyrir Hauka. Sigrún Erla Lárusdóttir og Linda Eshun skoruðu mörk ÍR. Þá gerðu Augnablik og Fjölnir markalaust jafntefli í Kópavogi og enda bæði lið um miðja deild með 20 stig. sport@mbl.is FH upp í efstu deild á ný  Fylgir Þrótti upp  Tindastóll var ekki langt frá því að ná 2. sæti Morgunblaðið/Hari Takmarki náð Hafnfirðingar gleðjast í Mosfellsbænum í gær enda sæti í efstu deild í höfn. Valdís Þóra Jónsdóttir komst í gegnum niðurskurðinn á opna La- coste Ladies Open-mótinu í golfi í Frakklandi með frábærri spila- mennsku í gær. Mótið er hluti af LET-Evrópumótaröðinni, þeirri sterkustu í Evrópu. Valdís Þóra var í erfiðum málum eftir fyrsta hring en lék á 66 högg- um í gær, fimm höggum undir pari, og bætti sig um þrettán högg á milli hringja. Valdís fékk sex fugla, einn skolla og ellefu pör. Hún er í 36. sæti ásamt nokkrum öðrum kylf- ingum á þremur höggum yfir pari. Frábær hringur hjá Valdísi Ljósmynd/GSÍ 66 Valdís Þóra Jónsdóttir skilaði inn glæsilegu skori í gær. Skautafélag Akureyrar fékk skell í fyrsta leik sínum í 1. umferð Evr- ópukeppni félagsliða í íshokkíi í Ist- anbúl í gær. Íslandsmeistararnir máttu þá þola 1:6-tap fyrir Rauðu stjörnunni frá Serbíu. Fyrir fram var Rauða stjarnan talin sterkasta liðið í riðlinum en auk SA og Rauðu stjörnunnar eru Irbis-Skate Sofia frá Búlgaríu og Zeytinburnu frá Tyrklandi einnig í riðlinum. Einar Kristján Grant skoraði mark SA á 18. mínútu er hann minnkaði muninn í 2:1. Sigurður Þorsteinsson átti stoðsendinguna. Rauða stjarnan númeri of stór Ljósmynd/Kjartan Stoðsending Sigurður Freyr Þor- steinsson lagði upp mark SA. 0:1 Arna Sif Ásgrímsdóttir 41. I Gul spjöldArna Eiríksdóttir (HK/Víkingi) I Rauð spjöldEngin Dómari Guðni Þór Þórsson, 7. Áhorfendur: 90. HK/VÍKINGUR – ÞÓR/KA 0:1 M Audrey Baldwin (HK/Víkingi) Tinna Óðinsdóttir (HK/Víkingi) Eva Rut Ástþórsdóttir (HK/ Víkingi) Eygló Þorsteinsdóttir (HK/ Víkingi) Arna Sif Ásgrímsdóttir (HK/ Víkingi) Bianca Sierra (Þór/KA) Stephany Mayor (Þór/KA) Hulda Ósk Jónsdóttir (Þór/KA) Andrea Mist Pálsdóttir (Þór/KA) nánast allan fyrri hálfleikinn og átti tæplega 20 skot að marki. Boltinn fór þrisvar í stöngina og einu sinni í slána á marki HK/ Víkings og svo varði Audrey Baldwin oft á tíðum glæsilega. Tímabilið er búið að vera von- brigði fyrir bæði lið. Þór/KA verður 20 stigum frá Íslandsmeistaratitlinum og HK/ Víkingur vann aðeins tvo leiki í allt sumar. Liðið hefur aðeins skorað tólf mörk í deildinni og miðað við sóknarleikinn í gær kemur það ekki á óvart. Stórsókn Þórs/KA skil- aði sigri á botnliðinu Í KÓRNUM Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is Þór/KA hafði betur gegn HK/ Víkingi á útivelli í fyrsta leik átjándu og síðustu umferðar Pepsi Max-deildar kvenna í fót- bolta í gær, 1:0. Arna Sif Ás- grímsdóttir skoraði sigurmarkið með skalla skömmu fyrir leikhlé. Það var með hreinum ólíkindum að markið kom ekki fyrr, því Þór/KA var í algjörri stórsókn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.