Morgunblaðið - 21.09.2019, Side 48
48 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER 2019
Leikkonan María Pálsdóttir, sem rekur Hælið – setur um
sögu berklanna, skoraði á Facebook í vikunni á fyrirtæki
á Akureyri að bjóða öllum nemendum í fjórða bekk grunn-
skóla bæjarins í leikhús. Sjálf reið hún á vaðið og bauð,
fyrir hönd Hælisins, fjórða bekk Hrafnagilsskóla, Þela-
merkurskóla og Valsárskóla á nýja fjölskyldusýningu,
Galdragáttin og þjóðsagan sem gleymdist, sem frumsýnd
verður í Samkomuhúsinu 5. október. „Ég fékk strax frá-
bær viðbrögð. Nú þegar hafa Bústólpi, Lemon, Hamborg-
arafabrikkan, Grandþvottur, Áveitan og Túnþökusalan
Nesbræður rokið til og boðið skólum sem þýðir að bara
einn og hálfur skóli er eftir. Ég er alveg viss um að það
tekst, ekki spurning. Ég sé þetta fyrir mér sem bolta sem byrjar að rúlla og í
grunninn finnst mér þetta ekki snúast um leikhús heldur eitthvað meira og
fallegra og það í hvernig samfélagi við viljum búa. Að við hugsum hvert um
annað en ekki bara ég um mig frá mér til mín,“ segir María og tekur fram að
ósk hennar sé að öll börn á Akureyri geti farið árlega í leikhús. „Það er líka
svo mikil stemning að fara með skólanum sínum.“
Fyrirtæki bjóða nemendum í leikhús
Fallegt María í Gall-
steinum afa Gissa.
Eliza Reid gerðist í vikunni verndari
Ungsveitar Sinfóníuhljómsveitar Ís-
lands, en sveitin fagnar 10 ára af-
mæli með hátíðartónleikum í Eld-
borg Hörpu á morgun kl. 17 þar sem
Níunda sinfónía Beethovens er flutt
undir stjórn Daniels Raiskins.
„Það er mér sérstök ánægja að
vera verndari Ungsveitar Sinfóníu-
hljómsveitar Íslands á 10 ára afmæli
hennar. Mikilvægt er að reyndir tón-
listarmenn miðli af þekkingu sinni
og reynslu og því er Ungsveitin
marktækur þáttur í starfsemi Sin-
fóníuhljómsveitarinnar. Hundruð
ungmenna hafa á liðnum árum hlot-
ið þjálfun innan Ungsveitarinnar og
einhver þeirra eru nú komin til liðs
við Sinfóníuhljómsveitina sem full-
gildir hljóðfæraleikarar,“ segir
Eliza Reid forsetafrú í tilkynningu.
„Stuðningur Elizu er dýrmæt viður-
kenning og hvatning til okkar frá-
bæra unga listafólks sem með elju
og dugnaði tekur þátt í starfsemi
Ungsveitarinnar. Ungsveitin er ekki
eingöngu mikilvæg fyrir þá sem
taka þátt hverju sinni og fyrir fram-
tíð tónlistarlífs á Íslandi. Ungsveitin
er líka fyrirmynd og hvatning til alls
ungs fólks, “ segir Lára Sóley
Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri
Sinfóníuhljómsveitarinnar (SÍ).
Glöð Eliza Reid á æfingu með Ungsveitinni.
Eliza Reid verndari Ungsveitar SÍ
Sævar Karl opnar einkasýninguna Mál-
verk í Listasal Mosfellsbæjar í dag milli kl.
14 og 16. „Sævar Karl hefur stundað
myndlistarnám við ýmsa listaháskóla hér-
lendis og í Þýskalandi og Austurríki. Hann
hefur sýnt víða um heim, m.a. í Þýskalandi,
Frakklandi, Ítalíu og Englandi. Þetta er í
annað sinn sem Sævar Karl sýnir í Listasal
Mosfellsbæjar. Málverk Sævars eru marg-
laga og full af litadýrð og orku. Þau eru
innblásin af náttúrunni bæði hér á Íslandi
og í München þar sem listamaðurinn dvel-
ur hluta af árinu og er með vinnustofu,“
segir í tilkynningu.
Síðasti sýningardagur er 18. október. Sýningin er opin á virkum dögum kl.
12-18 og á laugardögum kl. 12-16. Aðgangur er ókeypis.
Litríkt Eitt verka Sævars Karls.
Sævar Karl opnar sýningu í Listasal
tækifæri til að láta ljós sitt skína.
Hún er að stýra á mjög mildan og
fallegan hátt. Þær eru í samfélagi, en
samt fær hver og ein sína rödd,“
segir Diljá sem í Skálholti í dag,
laugardag, heldur erindi um Isabellu
Leonördu (1620-1700), Francescu
Caccini (1587-1640) og Halldóru
Guðbrandsdóttur (1574-1658).
Vekja heim Halldóru
Erindi Diljár hefst í dag kl. 13.30 í
Skálholtskirkju og er fyrsti viðburð-
ur dagsins af þremur. Klukkan 14
verður boðið upp á tónleikhús þar
sem bréf Halldóru eru í forgrunni,
en flytjendur eru auk Reykjavík-
Barokk Skálholtskórinn, sönghóp-
urinn Kordía, Hildigunnur Einars-
dóttir altsöngkona og Þórey Sig-
þórsdóttir leikkona. „Þar látum við
brot úr óperu Francescu Caccini
kallast á við sálma úr messusöngbók
Guðbrands Þorlákssonar biskups,
sem var faðir Halldóru, til að reyna
að vekja heiminn hennar. Inn í þetta
fléttast síðan nýjar raftónmyndir
eftir Kristínu Lárusdóttur,“ segir
Diljá og tekur fram að verkið hafi
fyrst verið flutt á Hólum og í Hjalla-
kirkju í fyrra við góðar viðtökur.
„Það er nú ekki leiðinlegt að flytja
Halldóru Guðbrandsdóttur að Skál-
holti að þessu sinni, að norðlenska
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Markmið þessarar hátíðar er að
vekja athygli á tjáningu og tónsmíð-
um kvenna á fyrri öldum. Þetta er
þannig innlegg inn í kvennabarátt-
una,“ segir Diljá Sigursveinsdóttir,
fiðluleikari og annar af tveimur hug-
myndasmiðum og listrænum stjórn-
endum kammerhópsins Reykjavík-
Barokk, sem stendur fyrir tónlistar-
hátíð í Skálholtskirkju og Seltjarn-
arneskirkju sem ber yfirskriftina
Kona – Forntónlistarhátíð. Hinn
hugmyndasmiður og listrænn
stjórnandi hópsins er Guðný Einars-
dóttir organisti.
„Það voru til konur fyrr á öldum
sem fengu tækifæri til að hugsa,
mennta sig og tjá sig bæði af öryggi
og styrk,“ segir Diljá og nefnir í því
samhengi bréf sem Halldóra Guð-
brandsdóttir skrifaði konungi Dana
á sínum tíma. „Við munum flytja
þætti úr óperunni La liberazione di
Ruggiero dall’isola d’Alcina eða
Frelsun Ruggieros frá eyjunni Alc-
ina eftir Francescu Caccini frá 1625
sem er talin vera fyrsta óperan eftir
kventónskáld. Það hefur ekki mikið
varðveist eftir hana, frekar en eftir
önnur kventónskáld, en þessi ópera
hefur varðveist í heild sinni,“ segir
Diljá og tekur fram að sú hugmynd
hafi komið upp að ReykjavíkBarokk
flytji óperuna í heild sinni þegar
hópurinn fagnar tíu ára starfsafmæli
sínu eftir tvö ár.
Stýrir á mildan og fallegan hátt
„Svo látum við líka hljóma sónötur
úr safni eftir Isabellu Leonördu, sem
frá unga aldri var nunna á Ítalíu og
komst til metorða sem tónskáld, tón-
listarkennari og abbadís. Það er ekki
víst að sónötur hennar hafi hljómað
utan veggja klaustursins á líftíma
hennar en nokkrar þeirra birtast í
söfnum annarra tónskálda og þær
voru prentaðar,“ segir Diljá og
bendir á að sónöturnar bera vott um
bjartsýni. „Mér finnst maður heyra
það að hún er að skrifa fyrir sam-
systur sínar þar sem öll hljóðfærin fá
biskupsdóttirin fái að fara suður í
hinn stólinn,“ segir Diljá og tekur
fram að verkið verði endurtekið í
Seltjarnarneskirkju annað kvöld kl.
20. „Í Skálholti verða miðar seldir
við innganginn en aðgangur er
ókeypis í Seltjarnarneskirkju,“ segir
Diljá og bendir á að það megi þakka
stórhug Listvinafélags Seltjarnar-
neskirkju sem bjóði áheyrendum.
Tileinkað verndara tónlistar
Þriðji og síðasti viðburðurinn í
Skálholtskirkju í dag er kl. 16 í formi
hátíðartónleika í flutningi Reykja-
víkBarokk og Kordía. „Þá ætlum við
að flytja verk eftir Henry Purcell
sem er tileinkað verndara tónlistar-
innar sem er heilög Sesselja. Við
ætlum að bjóða hana velkomna til
okkar áður en tónar Isabellu Leo-
nördu fá að hljóma. Laufey Jens-
dóttir fiðluleikari, sem er konsert-
meistari hátíðarinnar, mun leika
einleik í fiðlusónötu nr. 12 eftir Isa-
bellu Leonördu, sem er þekktasta
sónata hennar og jafnframt sú síð-
asta í safninu hennar sem er elsta
safn af útgefnum hljóðfærasónötum
eftir kventónskáld og nefnist Sonata
duodecima.“ Allar nánari upplýs-
ingar má nálgast á reykjavikbar-
okk.com og facebook.com/-
reykjavikbarokk/.
Undirbúningur Þórey Sigþórsdóttir ásamt sönghópnum Kordíu.
Tjáning og tónsmíðar
Þrjár konur í brennidepli á Forntónlistarhátíð sem haldin
er í Skálholtskirkju og Seltjarnarneskirkju um helgina
Kvikmyndaframleiðslufyrirtækið
Join Motion Pictures hefur hafið
undirbúning að gerð heimildar-
myndar í fullri lengd um tónskáldið
Jóhann Jóhannsson undir vinnu-
heitinu 123 Forever: Jóhann Jó-
hannsson. Höfundar og leikstjórar
myndarinnar eru Kira Kira, Orri
Jónsson og Davíð Hörgdal Stefáns-
son. Jóhann lést í fyrra og hefði
orðið fimmtugur 19. september síð-
astliðinn, í fyrradag. Myndin er
gerð í fullu samráði við fjölskyldu,
vini og samstarfsfélaga Jóhanns, að
því er fram kemur í tilkynningu og
segir þar að ferill Jóhanns hafi ver-
ið langur og einstakur, þegar kem-
ur að hans eigin tónlistarsköpun,
kvikmyndagerð og ótal samstarfs-
verkefnum um allan heim. „Það er
ætlun okkar að gera ferli hans ítar-
leg og metnaðarfull skil og varpa
skapandi ljósi á vinnubrögð og
heimspeki þessa magnaða lista-
manns,“ segir þar.
Umfangsmikil heimildasöfnun
stendur nú yfir og þess óskað að all-
ar ábendingar um efni berist til
123forever@jmp.is.
Heimildarmynd um Jóhann í pípunum
Merkur Jóhann Jóhannsson þótti merki-
legur listamaður. Hann lést í fyrra.
Almar Steinn Atlason opnar sýn-
inguna Þorsti & loforð í Gallery
Porti á Laugavegi 23b í dag kl. 16.
Er það fyrsta málverkasýning Al-
mars eftir að hann útskrifaðist úr
Listaháskóla Íslands í fyrra en
hann hefur að mestu einbeitt sér
að innsetningum og gjörningum.
Um sýninguna í Porti segir hann
m.a.: „Hestar í landslagi var uppi-
staðan í íslensku málverki í um það
bil 80 ár. Á sýningunni skoðar
listamaðurinn þorstann og þrána
sem keyrir fólk á fætur dag eftir
dag í von án vonar. Vonina sem
knýr málarann
til þess að mála
áttunda mál-
verkið í röð af
ónefndu hrossi
eða hryssu í
ljósaskiptunum
við hraunfoss.“
Almar vakti
mikla athygli ár-
ið 2015 þegar
hann dvaldi í
heila viku í glerkassa og var hægt
að fylgjast með honum í beinni á
netinu.
Fyrsta málverkasýning Almars
Almar Steinn
Atlason