Morgunblaðið - 07.09.2019, Page 17
MÝKSTUR
5460HÁR
FYRIR
SPANGIR
TANNBURSTAR
FYRIR ALLA
FJÖLSKYLDUNA
FLEIRIHÁR = ÁHRÍFARÍKARI TANNBURSTUN
MÝKRIHÁR = FARA BETURMEÐTANNHOLDOGGLERUNG
0-5 ÁRA MJÚKUR
1560HÁR
MÝKRI
3960HÁR
5 ÁRA
OG ELDRI
Þ
órunn Antonía eignaðist dreng nýverið með Kára Viðarssyni
leikara. Fyrir á hún dótturina Freyju, sem er fjögurra ára.
Hún segir að gleðin og breiða brosið hennar sé ekki tilkomið
vegna áreynsluleysis í lífinu nema síður sé. Hún hefur upplifað
alls konar hluti og hefur tileinkað sér þrautseigju og þá
ákvörðun að vera glöð í lífinu.
„Ég hef ákveðið að sjá björtu og skemmtilegu hliðarnar í lífinu, þrátt
fyrir allt sem lífið leggur á okkur manneskjurnar.
Ég er á því að við séum öll með verkefni í lífinu en valið sé alltaf okkar.
Hvort við látum mótvindinn buga okkur eða breytum honum í meðvind.“
Eilífðarverkefni að ala sig upp
Þórunn Antonía er þekkt fyrir að segja hlutina eins og þeir eru.
„Mér finnst mikilvægt að vera einlæg, hvort heldur sem er við börnin
mín eða við mig sjálfa. Ég er með fullt af brestum og mér sýnist það
verða eilífðarverkefni að ala sjálfan sig upp. Það verður eitthvað svo
ótrúlega ljóst þegar maður er að ala upp börn sjálfur.“
Hvernig var að verða mamma í annað sinn?
„Það var lærdómsríkt og öðruvísi. Ég finn að ástin vex á degi hverjum.
Núna er sonur minn mánaðar gamall og ég elska hann meira og meira
með hverjum deginum. Ég upplifði auðvitað ást, undrun, þakklæti og alls
konar tilfinningar þegar ég fékk hann í fangið. Ég er hins vegar eins og
svo margar konur sem eru smitaðar af samfélagslegri hugsun um að
hlutirnir eiga að vera svona eða hinsegin á meðgöngu og í fæðingunni.
Líkt og með klisjuna að þegar þú færð barnið þitt í fangið í fyrsta skiptið
upplifirðu ást sem er engu öðru lík. Þetta er að sjálfsögðu rétt að mörgu
leyti, en ástin er sterkari núna eftir mánuð heldur en hún var fyrst. Eftir
þriggja daga fæðingarferli sem endaði í keisara tók við aðgerð vegna
samgróninga. Þegar ég fékk drenginn minn í fangið var ég þreytt og dof-
in.“
Hluti af mér vildi fæða barnið
Þórunn Antonía segir að hún hafi upplifað fæðinguna sem fallegt ferli.
„Ég fékk ekki meðgöngueitrun eins og á fyrri meðgöngunni. Við áttum
skipulagðan keisara 1. ágúst. En það var hluti af mér sem vildi missa
vatnið og að fæðingarferlið myndi hefjast og mig langaði að reyna að
fæða barnið sjálf. Ég missti vatnið 30. júlí og reyndi að fæða í tvo daga
með „drippi“ og hjálp. Ég fékk að fara í bað og að upplifa fleiri dásam-
lega hluti. En hjartsláttur litla mannsins var ekki að taka vel í hríðirnar
þannig að við ákváðum eftir allt saman að fara í keisara. Ég var hins veg-
ar mjög þakklát fyrir að fá að upplifa ferlið.“
Börnin eru mér allt
Hvaða þýðingu hafa börn og fjölskyldan í lífi þínu?
„Börnin mín eru mér allt. Það er einfaldlega þannig. Ég var ekkert
endilega manneskja sem hafði stór plön um barneignir áður en ég varð
mamma. Það var nokkuð sem ég planaði ekki fyrir fram. Ég er þakklát
fyrir þá þróun því ég er ekki týpan sem gerir plön eða er með ákveðna
framtíðarsýn. En móðurhlutverkið kom mér skemmtilega á óvart. Ég hef
alltaf verið mikil fjölskyldumanneskja og að verða mamma stækkaði auð-
vitað fjölskyldu mína, hjartað mitt og styrkti tengslin við alla í kringum
mig. Ég á fullt af systkinum og foreldrum og börnin mín eiga bestu ömm-
ur og afa sem hugsast getur og æðislega pabba. Barnæskan er heilög
fyrir mér. Öll börn eiga skilið bæði mömmu og pabba eða bara foreldra
sem elska þau skilyrðislaust hvernig sem sambandi þeirra er háttað.“
Hvað leggur þú þig fram um að gera daglega?
„Að fara með þakklætisbæn fyrir háttinn. Þá teljum við upp litla sem
stóra þætti í lífinu og þökkum fyrir þá. Til dæmis byrjar þakklætis bænin
oft svona: Takk fyrir sólina, takk fyrir lífið, takk fyrir ömmu, takk fyrir
afa. Svo tekur Freyja litla við og þakkar fyrir mömmu sína, fyrir lilla
bróður og stundum endar þetta í gríni og það er þakkað fyrir prumpið og
Söngkonan Þórunn Antonía eignaðist barn ný-
verið og ákvað að skipta á íbúðinni sinni í mið-
borginni fyrir hús í Hveragerði þar sem fjölskylda
hennar býr. Hún segir karma halda með henni og
á dásamlegt líf með börnum sínum tveimur í dag.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
„Ein-
stæðar
mömmur
geta allt“
SJÁ SÍÐU 18
LAUGARDAGUR 7. SEPTEMBER 2019 MORGUNBLAÐIÐ 17