Morgunblaðið - 07.09.2019, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 07.09.2019, Qupperneq 20
20 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. SEPTEMBER 2019 Ármúli 34 s. 551-1411 www.minimo.is S tella segir að hún hafi litið á það sem bónus að eiginmaður hennar hafi átt börn úr fyrri sam- böndum. Í dag er Stella móðir Freyju Ránar og stolt stjúp- móðir þriggja barna á öllum aldri. Stella er þakklát fyrir að hafa fengið það hlutverk að verða stjúp- mamma en hennar reynsla sé sú að allar þær stjúpmömmur sem hún hafi kynnst hafi viljað reyna sitt besta. „Það fara allir inn í fjölskylduna og reyna sitt allra besta. Það sama átti við um mig. Ég vildi ekki gera mistök en maður lærir fljótt að það eiga sér stað mistök alveg eins og í kjarnafjölskyldum. Það er eins og maður setji á sig auka pressu því maður vill svo innilega að allt gangi vel. Sú pressa getur reynst erfið til lengdar og það eina sem er þörf á er að stjúpforeldrar reyni sitt besta. Það er aldrei hægt að vera fullkominn. Þegar maður reynir það býr maður til spennu og það gerir hlutina erfiðari þegar þeir koma upp. Pressan getur gert það að verk- um að hlutir sem eðlilegt er að tak- ast á við í lífinu fá ekki svigrúm. Því það er þessi pressa að allt þurfi að vera í góðu, alltaf. En raunin er að tengslin styrkjast bara þegar við göngum í gegnum hluti saman og mun eðlilegra en að allt sé alltaf í glans.“ Hvernig var þetta hjá þér til að byrja með? „Þetta var bara pínu skrítið í fyrstu en ég var bara 22 ára og það voru voða fáir í kringum mig sem voru í stjúpfjölskyldu. Flestar vin- konur mínar voru einnig barn- lausar svo ég gat ekki alveg tengt við þetta, komandi sjálf úr kjarna- fjölskyldu. Þetta er smá eins og Valgerður Halldórsdóttir ráðgjafi hjá Stjúpfjölskyldum orðaði það; eins og að koma inn í leikrit þar „Þetta var mitt val en ekki barnanna“ Stella Björg Kristinsdóttir er bæði móðir og stjúp- móðir. Hún og eiginmaður hennar, Orri Hermanns- son, kynntust þegar hún var 22 ára og hann 34 ára. Þá átti hann þrjú börn úr fyrri samböndum. Hún segir mikilvægt að stjúpmömmur móti hlut- verk sitt sjálfar og taki ábyrgð á vali sínu. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is Stella Björg og Orri ásamt börnum sínum fjórum. Þeim Freyju Rán, Dagný Lilju, Alexander og Eirnýju Ósk.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.