Morgunblaðið - 07.09.2019, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. SEPTEMBER 2019
Opið alla daga 13-17
www.borgarsogusafn.is
Komdu
að leika!
Kistuhyl
110 Reykjavík
Bílasmiðurinn hfBarnabílstólar í úrvali
Bíldshöfða 16, 110 Reykjavík - Sími: 567 2330 - www.bilasmidurinn.is
J
enný Dagbjört segir
dásamlegt að starfa með
börnum.
„Það er ótrúlega gef-
andi en jafnframt krefj-
andi. Því enginn er eins og öll
börn hafa sinn ákveðna sjarma.
Börn eru einlæg og heiðarleg og
ég er svo frjáls í návist þeirra.
Þeim finnst allt forvitnilegt og
skemmtilegt, sér í lagi það sem
þau eru að fást við hverju sinni.“
Hvað telur þú mikilvægast að
hafa í huga tengt barnauppeldi?
„Það er mjög margt en þó er
það allra mikilvægasta að vera til
staðar fyrir þau og leyfa þeim að
vera en ekki alltaf að vera að gera
eins og mér finnst vera svolítið hjá
foreldrum í dag. Eins að vera góð-
ur við börnin sín, það er lykil-
atriði. Það á að gera svo margt og
það á að vera svo gaman en svo er
bara nóg að vera til staðar og
leika og hafa skemmtilegt. Börn
eru að mínu mati mun hamingju-
samari með foreldra sem eru til
staðar en ekki þá sem eru stöðugt
á þeytingi að leita að einhverju
sem þeir finna ekki. Að horfa inn á
við og spyrja sig: Hvað hefði mig
langað í á þessum aldri, er einnig
hollt að mínu mati.“
Leikskólakennarar
gegna mikilvægu hlutverki
Jenný Dagbjört er á því að leik-
skólakennarar gegni lykilhlutverki
í lífi barnanna. „Þeir ættu að gefa
börnum tíma í það sem þau eru að
fást við og passa upp á að skipu-
lagið sé ekki þannig að allir séu að
flýta sér í næsta verkefni. Ég las
nýverið grein í The New York
Times þar er fjallað er um að
hraðinn í skólastarfinu sé orðinn
mikill og börn fá ekki einu sinni
orðið nægan tíma til þess að
borða.“
Hvað geta börn sem við áttum
okkur ekki á?
„Börn eru miklu klárari en við
höldum. Þau eru algjörar sugur á
allt sem er sagt og gert og muna
ótrúlegustu hluti, það er eiginlega
alveg magnað. Þau eru svo flink
að raða og flokka í huganum og
þau læra algjörlega það sem fyrir
þeim er haft t.d ef ég raða ekki
skónum mínum eða hengi ekki
úlpuna mína þá gera þau það ekki
heldur. Þau eru líka svo skapandi
því þau eru ekki með neinar radd-
ir í höfðinu um að þau séu að gera
eitthvað vitlaust. Þau eru svo
ómenguð ef svo má að orði kom-
ast. Svo ánægð með sig.“
Stingur að sjá foreldra
ungra barna í símanum
Hvað ættum við foreldrar að
leggja okkur fram um?
„Að vera góðar fyrirmyndir og
sinna börnunum okkar vel. Að
setja þarfir þeirra í fyrsta sæti, tel
ég vera afar mikilvægt. Sérstak-
lega í dag þegar hraðinn er mikill
og allir hafa svo mikið að gera.
Foreldrar eru orðnir svo upp-
teknir í dag. Satt að segja hef ég
áhyggjur af þessari þróun. Kvíði
og depurð virðist fara vaxandi hjá
ungmennum í landinu. Ég held að
meðal annars sé ástæðan þessi
óskaplegi hraði og þessir löngu
vinnudagar hjá foreldrum; það að
þurfa að komast yfir svona mikið.
Þegar skóladegi lýkur þá fara
börnin jafnvel í einhverjar frí-
stundir í stað þess að fara bara
heim og eiga gæðastund með for-
eldrum sínum. Börn í dag eru ör-
þreytt. Að mínu mati þurfa þau
tíma til að hvíla sig og að leika
sér.
Það sem mér finnst einnig vera
algjört lykilatriði er skjánotkun,
foreldra og barna. Ef mamma og/
eða pabbi hangir mikið í símanum,
þá vill barnið auðvitað gera það
líka.“
Hvað ættum við að forðast?
„Við ættum að forðast að vera
eingöngu komið frá fullorðnum.
Þau leyfa sér að leika. Í raun
elska börn að leika. Við fullorðna
fólkið ættum að leyfa okkur að
finna barnið í okkur og leika þann-
ig með börnunum okkar. Það er
mjög áhrifaríkt og nærandi fyrir
alla.“
Hvað er best að gera tengt
börnum í vanda? Vegna sjúkdóma
foreldra og þess háttar?
„Ef foreldrar eru að glíma við
sjúkdóma og þarna er alveg sama
hvort um er ræða t.d. krabbamein
eða fíknisjúkdóma og allt þar á
milli, þá er mjög mikilvægt að
börn fái að tjá sig við t.d. fagaðila.
Persóna sem kann að nálgast börn
getur fengið þau til að tjá sig. Það
tel ég mikilvægt því þau verða að
geta talað um það sem þau eru að
ganga í gegnum. Eins ættu þau að
fá útskýringar sem þau ráða við
miðað við aldur. Börn alveg eins
og fullorðnir geta þróað með sér
ótta, en sé tekist á við það þá má
„Börn eru miklu klárari
Jenný Dagbjört Gunnarsdóttir leikskóla-
kennari og markþjálfi fer með yfirumsjón yf-
ir leikskólamálum í Hafnafirði. Hún segir
okkur fullorðna fólkið geta lært heilmikið af
börnum. Þau sé skapandi og skemmtileg,
ómenguð og ánægð með sig.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
dómhörð við börnin okkar. Að fá
börn til að svara til saka er ekki
rétt að mínu mati. Auðvitað þurfa
börn að horfast í augu við ef þau
gera eitthvað misgott en ég tel að
það séu til svo margar betri að-
ferðir en að vera dæmandi.
En í sannleika sagt óttast ég
skjánotkun barna mest. Það
hryggir mig ekkert jafn mikið og
þegar ég sé foreldra lítilla barna
upptekin í símunum sínum. Þá
verða börnin afskipt og hætta á
tengslavanda getur skapast,
mögulegar málþroskaraskanir og
fleira í þeim dúrnum. Það stingur
mig í hjarta að sjá slíkt.“
Börn kunna að njóta lífsins
Hvað geta börn sem er áhuga-
vert að við foreldrar tileinkum
okkur?
„Þau kunna að vera frjáls og að
njóta lífsins. Þau eru ekki með
áhyggjur að óþörfu. Börn eru ekki
í samkeppni né samanburði það er
Jenný Dagbjört Gunnars-
dóttir er á því að það sé mik-
il sjálfsvirðing fólgin í því að
setja þarfir barnanna í land-
inu í öndvegi.