Morgunblaðið - 14.10.2019, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 14.10.2019, Blaðsíða 22
22 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. OKTÓBER 2019 Norðlingabraut 8 110 Reykjavík S: 530-2005 Bíldshöfði 16 110 Reykjavík S: 530-2002 Tryggvabraut 24 600 Akureyri S: 461-4800 &530 2000 www.wurth.is Verkfæri – Festingar – Fatnaður – Persónuhlífar – Efnavara – Bílaperur – Rafmagnsvörur Tracker úlpa • Stærðir S–4XL • Hentar báðum kynjum • Vatnsþolin, þykk og hlý úlpa • 100% pólýester ytra efni • Má þvo og hengja upp • Hægt er að losa hettu og kraga af • Tveir innanverðir vasar og 8 að utanverðu Vnr: 1899 448 8XX Verð: 15.990 kr. 40 ára Jón Karl er fæddur og uppalinn á Höfn í Hornafirði en býr í Reykjavík. Hann er grunnskólakennari að mennt og kennir hönn- un og smíði í Langholts- skóla. Hann er mikill tónlistaráhugamaður og var aðalsprautan í hljómsveitinni Parket fyrir austan. Maki: Karen Ösp Birgisdóttir, f. 1987, framhaldsskólakennaranemi og vinnur í Borgarholtsskóla. Börn: Embla Mekkín, f. 2013, og Emil Muninn, f. 2016. Foreldrar: Jón Sigurgeir Karlsson, f. 1946, og Hólmfríður Traustadóttir, f. 1951, bæði komin á eftirlaun og eru bús. á Höfn. Jón Karl Jónsson Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þú ert meira en tilbúin/n til að synda á móti straumnum til að upplifa það sem fáir upplifa. Hafðu þitt á hreinu ef þú vilt verða tekin/n alvarlega. 20. apríl - 20. maí  Naut Þér hefur tekist bærilega til á árinu og ert fullfær um að stjórna þínum málum áfram. Best væri ef allir á heim- ilinu hefðu sín föstu verkefni. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þú hefur lengi reynt að fá kunningja þinn til að skila ákveðnum hlut. Ef þú ýtir of mikið á aðra er líkleg- ast að þeir ýti á móti. Þú ert með húm- orinn í lagi. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þú getur aðeins sjálfum/sjálfri þér um kennt ef verkefnin eru að vaxa þér yfir höfuð. Hættu að spara hlutina þangað til seinna - lífið er núna. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þér er órótt því þér finnst þú ekki vita allan sannleikann. Ekki vera hrædd/ ur við að leggja fram tillögur um bætt verklag í vinnunni. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þótt þú fylgir þínum lífsreglum ertu það þroskaður/þroskuð að þú skilur að sömu reglurnar henta ekki öllum. Ekki eyða peningum ef þú átt þá ekki. 23. sept. - 22. okt.  Vog Nú er ráð að einbeita sér að heimili, fjölskyldu og öllu sem henni tengist á næstunni. Einhver býður þér út að borða. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þú vilt gjarnan halda í gamla hluti. Létt lund þín smitar út frá sér. Ekki er allt gull sem glóir. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Að morgni dregurðu eina ályktun, en um kvöldið kemstu að allt annarri niðurstöðu. Þú ert miklu meiri listamaður en þú heldur. 22. des. - 19. janúar Steingeit Aðgát skal höfð í nærveru sál- ar. Bjóddu fram aðstoð þína ef þú heldur að hún hjálpi. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þú stendur fast við skoðanir þínar í dag. Samræður við vini einkenn- ast af bjartsýni og hressleika. Einhver gamall vinur skýtur upp kollinum. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þú munt líklega heyra spennandi fréttir af ástamálum annarra í dag. Láttu ekki leika á þig. fimm saman árið 2017 niður austur- strönd Grænlands sem var um 1.300 km leið. Síðasta vetur átti ég brýnt erindi norður til Akureyrar til að hitta vin minn heitinn, Ágúst Þór Árnason. Þar sem spáð var stífri sunnanátt lét ég slag standa og komst niður í Eyjafjarðarbotn frá Vatnsfelli skammt sunnan við Þór- isvatn á tveimur dögum. Þetta hefði þó ekki gengið upp ef Einar K. Stef- ánsson, félagi minn, hefði ekki komið mér af stað og Júlíus Björnsson náð í mig inn í botn. Ég er alinn upp hjá móður minni við að fara í fjallgöngur og stunda útiveru og það þróaðist síðan í áhuga á gönguskíðum og fjallaskíðum, kletta- og ísklifri. Síðasta dellan ef svo má að orði komast er að nota vindinn til að ferðast yfir snjó og líka til að leika sér á sjónum og þá á bretti.“ Skúli er þessa dagana staddur í Oxford, en hann er í námsleyfi frá héraðsdómi. „Ég er að nota þetta tækifæri til að rifja upp réttar- sand á tveimur dögum með hjálp kraftflugdreka. „Við erum nokkrir félagar sem höfum verið að fara í lengri ferðir á flugdrekum og fórum S kúli Magnússon fæddist 14. október 1969 í Reykjavík og ólst upp í gamla Vesturbænum. „Ég var sendur í sveit til ömmubróður míns, Hákonar Magn- ússonar, í Nýlendu á Hvalsnesi, og var þar tvö sumur og síðar hjá ömmusystur minni, Eygló Hall- grímsdóttur, og fjölskyldu á Gerðum í Landeyjum.“ Skúli gekk í Vesturbæjarskóla og Hagaskóla og fór á náttúrufræði- braut í Menntaskólanum við Hamra- hlíð. Skúli hóf nám við lagadeild HÍ 1990 eftir stúdentsprófið og lauk kandídatsprófi árið 1995. Hann lauk magistersgráðu í lögum frá Oxford- háskóla árið 1998. Skúli var stundakennari við laga- deild HÍ frá 1998, lektor frá 2000 og hefur verið dósent frá 2003. Hann var skipaður héraðsdómari í Reykja- vík árið 2004 og hélt þá áfram stöðu dósents í hlutastarfi. „Bæði laga- deildin og ég töldum eðlilegt að ég héldi áfram sem dósent í hlutastarfi og ef það er eitthvert aukastarf sem samræmist dómarastarfinu þá er það kennsla og fræðimennska.“ Grunnfög Skúla í kennslunni eru réttarheimspeki og skyldar greinar. „Ég hef hins vegar neyðst til að kenna einnig Evrópurétt og ýmsar praktískari greinar.“ Skúli var ritari EFTA-dómstólsins frá 2007-2012 og var þá í leyfi frá stöðu héraðsdóm- ara. Skúli var formaður Dómarafélags Íslands 2014-2018 og hefur gegnt ýmsum trúnaðarstörfum. Hann var t.d. kosinn af Alþingi í stjórnlaga- nefnd 2010-2011 og skipaður í stjórnarskrárnefnd af forsætisráð- herra 2014. Hann var nýverið skip- aður af grænlenska þinginu til að vera einn þriggja sérfræðinga til ráðgjafar við samningu nýrrar stjórnarskrár. Eftir Skúla liggja nokkrar bækur á sviði lögfræði auk fjölda greina, í bæði fræðilegum tímaritum og dagblöðum. Skúli var virkur félagi í Flug- björgunarsveitinni í Reykjavík 1999- 2004 og er mikill áhugamaður um skíðamennsku, „kite-surfing“ og ferðamennsku. Hann skíðaði t.d. síð- astliðinn vetur einn yfir Sprengi- heimspekina og leggja grunn að frekari fræðistörfum. Er kominn í minn gamla „college“ hér í Oxford sem hefur tekið mér afskaplega vel. Þar áður var ég í mánuð í Þýska- landi að kynna mér starfsemi þýskra dómstóla. Það er hægt að lesa um þýskt réttarfar í bókum en það er þó hvergi nærri eins lærdómsríkt og að sjá það í framkvæmd, ekki síst fyrir íslenska dómara sem vinna sam- kvæmt reglum sem eru um margt eins orðaðar en framkvæmdar með mjög ólíkum hætti.“ Skúli fær yngstu dóttur sína, móð- ur og vin hennar, Þorstein Helga- son, í heimsókn til Oxford og heldur upp á afmælið með þeim. Fjölskylda Eiginkona Skúla er Helene Magn- ússon, f. 10.4. 1969, prjónahönnuður. Foreldrar hennar eru Françoise Al- quier kennari og Jean-François Fouques, verkfræðingur í franska sjóhernum. Börn Skúla og Helene eru Sylvía Skúli Magnússon, héraðsdómari og dósent við Háskóla Íslands – 50 ára Fjölskyldan Skúli og Helene ásamt dætrum sínum við Frostastaðavatn á Landmannaafrétti. Fór yfir Sprengisand á skíðadreka Morgunblaðið/Hari Afmælisbarnið Skúli Magnússon. 30 ára Vilmar fæddist í Reykjavík og ólst þar upp en býr í Vest- mannaeyjum. Hann er nýtekinn við sem fram- kvæmdastjóri hand- knattleiksdeildar ÍBV. Hann hefur verið kynn- ir á flestum leikjum í handboltanum og verið í handknattleiksráði síðustu þrjú tímabil. Maki: Þóra Sif Kristinsdóttir, f. 1989, stuðningsfulltrúi í Hamarsskóla. Börn: Theresa Lilja, f. 2010, og Óliver Atl- as, f. 2012. Foreldrar: Bjarni Bjarnason, f. 1963, sjálf- stætt starfandi múrarameistari, og Hrefna Björk Pedersen, f. 1964, þroskaþjálfi í Klettaskóla. Þau eru búsett í Reykjavík. Vilmar Þór Bjarnason Til hamingju með daginn Börn og brúðhjón Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.