Morgunblaðið - 14.10.2019, Blaðsíða 24
24 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. OKTÓBER 2019
Undankeppni EM karla
C-RIÐILL:
Hvíta-Rússland – Holland....................... 1:2
Eistland – Þýskaland ............................... 0:3
Staðan:
Þýskaland 6 5 0 1 20:6 15
Holland 6 5 0 1 19:7 15
Norður-Írland 6 4 0 2 8:7 12
Hvíta-Rússland 7 1 1 5 4:12 4
Eistland 7 0 1 6 2:21 1
D-RIÐILL:
Georgía – Írland ....................................... 0:0
Danmörk – Sviss....................................... 1:0
Staðan:
Danmörk 6 3 3 0 16:5 12
Írland 6 3 3 0 6:2 12
Sviss 5 2 2 1 10:5 8
Georgía 6 1 2 3 4:8 5
Gíbraltar 5 0 0 5 0:16 0
E-RIÐILL:
Ungverjaland – Aserbaídsjan ................. 1:0
Wales – Króatía ........................................ 1:1
Staðan:
Króatía 7 4 2 1 14:6 14
Ungverjaland 7 4 0 3 8:9 12
Slóvakía 6 3 1 2 10:8 10
Wales 6 2 2 2 6:6 8
Aserbaídsjan 6 0 1 5 5:14 1
F-RIÐILL:
Færeyjar – Rúmenía................................ 0:3
Noregur – Spánn...................................... 1:1
Malta – Svíþjóð ......................................... 0:4
Staðan:
Spánn 7 6 1 0 18:4 19
Svíþjóð 7 4 2 1 17:8 14
Rúmenía 7 4 1 2 16:7 13
Noregur 7 2 4 1 12:9 10
Malta 7 1 0 6 2:17 3
Færeyjar 7 0 0 7 3:23 0
G-RIÐILL:
Slóvenía – Austurríki ............................... 0:1
Pólland – Norður-Makedónía ................. 2:0
Staðan:
Pólland 8 6 1 1 13:2 19
Austurríki 8 5 1 2 17:7 16
Slóvenía 8 3 2 3 13:8 11
N-Makedónía 8 3 2 3 10:11 11
Ísrael 7 2 2 3 12:14 8
Lettland 7 0 0 7 1:24 0
I-RIÐILL:
Kasakstan – Belgía................................... 0:2
Skotland – San Marínó ............................ 6:0
Kýpur – Rússland..................................... 0:5
Staðan:
Belgía 8 8 0 0 30:1 24
Rússland 8 7 0 1 27:4 21
Kýpur 8 3 1 4 13:12 10
Skotland 8 3 0 5 11:17 9
Kasakstan 8 2 1 5 9:13 7
San Marínó 8 0 0 8 0:43 0
J-RIÐILL:
Liechtenstein – Armenía ........................ 1:1
Helgi Kolviðsson þjálfar Liechtenstein.
Bosnía – Finnland .................................... 4:1
Ítalía – Grikkland ..................................... 2:0
Staðan:
Ítalía 7 7 0 0 20:3 21
Finnland 7 4 0 3 9:8 12
Bosnía 7 3 1 3 16:12 10
Armenía 7 3 1 3 13:12 10
Grikkland 7 1 2 4 7:12 5
Liechtenstein 7 0 2 5 2:20 2
KNATTSPYRNA
HM Í FIMLEIKUM
Sindri Sverrisson
sindris@mbl.is
Simone Biles getur nú státað af því
að vera fremsta fimleikastjarna sög-
unnar. Alla vega er auðvelt að færa
fyrir því rök hjá þessari 22 ára
Bandaríkjakonu sem átti svo sann-
arlega sviðið á HM í áhaldafim-
leikum í Stuttgart sem lauk í gær.
Biles vann fimm af sex gull-
verðlaunum sem í boði voru fyrir
hana á mótinu og er nú komin með 25
verðlaun á heimsmeistaramótum,
þar af 19 gullverðlaun. Hún vann sín
fyrstu HM-gull árið 2013, þá aðeins
sextán ára gömul, og hefur verið nær
ósigrandi síðan þá. Það eru því ekki
aðeins ótrúlegar, „ómannlegar“ listir
Biles sem gera hana að þeirri bestu
frá upphafi í huga flestra, verðlauna-
skápurinn rennir enn frekari stoðum
undir það.
Það var með æfingum sínum á
jafnvægisslá í gær sem Biles tryggði
sér 24. HM-verðlaunin og komst upp
fyrir hinn hvítrússneska Vitaly
Scherbo sem vann 23 HM-verðlaun á
sínum ferli. Hafa ber í huga að
Scherbo átti möguleika á 8 verðlaun-
um á hverju heimsmeistaramóti en í
kvennaflokki bjóðast aðeins 6 á
hverju móti. Þá má hafa í huga að
Scherbo vann „aðeins“ 12 gull og Bi-
les er því búin að stinga algjörlega af
í þeim efnum.
Biles fékk 15,066 í einkunn á jafn-
vægisslá og var 0,633 á undan Liu
Tingting frá Kína. Í lokagrein móts-
ins, gólfæfingum, fékk Biles svo
15,133 og var 1 heilum á undan
Sunisa Lee, löndu sinni, sem fékk
silfur. Áður hafði Biles tryggt sér
sigur í fjölþraut og unnið liðakeppn-
ina með bandaríska liðinu, sem og
stökk, en á tvíslá sem verið hefur
hennar lakasta grein endaði hún í 5.
sæti, aðeins 0,1 frá bronssæti.
Biles er ekki hætt því hún er stað-
ráðin í að raka til sín verðlaunum á
Ólympíuleikunum í Tókýó næsta
sumar, rétt eins og í Ríó 2016 þegar
hún vann fern gullverðlaun auk
bronsverðlauna á jafnvægisslá.
Íþróttasagnfræðingar virðast alltaf
geta fundið ný met til þess að slá og í
Tókýó getur Biles slegið Scherbo við
að nýju, því hann á metið yfir mestan
samanlagða fjölda verðlauna af
heimsmeistaramótum og Ólympíu-
leikum. Hann vann til 33 slíkra verð-
launa en Biles er komin með 30 og á
nú þegar fleiri gull en Scherbo.
Hinn 22 ára gamli Rússi Nikita
Nagornij var sigursælastur karla í
Stuttgart en hann vann fjölþraut og
stökk auk þess að vinna liðakeppnina
með rússneska liðinu. Bretar unnu til
tvennra gullverðlauna og urðu í 3.
sæti yfir flest verðlaun á mótinu.
Betur skreytt
en nokkur í
sögu fimleika
Biles með 19 HM-gull í sínu safni
AFP
Meistari Simone Biles með gullverðlaunin sín eftir HM í Stuttgart.
Glódís Perla Viggósdóttir og sam-
herjar hennar í Rosengård eru einu
stigi frá sænska meistaratitlinum í
knattspyrnu þegar tveimur um-
ferðum er ólokið. Þeim mistókst að
tryggja sér hann í gær þegar þær
gerðu jafntefli, 3:3, á heimavelli við
Önnu Rakel Pétursdóttur og félaga
hennar í Linköping. Segja má þó að
Rosengård hafi náð í stig því liðið
var 1:3 undir þegar skammt var eft-
ir. Rosengård er sex stigum á und-
an Gautaborg og getur klárað
dæmið í heimaleik gegn Vittsjö á
sunnudaginn kemur. vs@mbl.is
Glódís stigi frá
meistaratitlinum
Morgunblaðið/Eggert
Rosengård Glódís Perla Viggósdótt-
ir er í lykilhlutverki í vörn liðsins.
„Við erum stoltir af okkar fótbolta,
íslenska liðið spilar sinn fótbolta og
við spilum okkar. Við erum smá-
þjóð og við erum stoltir af því
hvernig við spilum. Við mætum
með sjálfstraust inn í leikinn eftir
góðan sigur gegn Moldóvu en við
gerum okkur grein fyrir því að við
erum að fara mæta mjög öflugu liði
sem tapaði naumlega fyrir Frakk-
landi,“ sagði Ildefons Lima, fyrir-
liði Andorra, á fréttamannafundi á
Laugardalsvelli í gærkvöld, fyrir
leik Íslands og Andorra í undan-
keppni EM. Nánar á mbl.is/sport.
Erum stoltir af
okkar fótbolta
AFP
Fyrirliði Ildefons Lima hefur leikið
125 landsleiki fyrir Andorra.
Grannþjóðirnar Rússar og Pólverjar
urðu í gær næstar á eftir Belgum og
Ítölum til að tryggja sér keppnisrétt í
lokakeppni EM karla í fótbolta árið
2020.
Rússar gerðu það á afar sannfær-
andi hátt því þeir sigruðu Kýpur,
eina liðið sem átti enn möguleika á að
ná þeim í I-riðli keppninnar, 5:0 á úti-
velli. Denis Tsjerishev átti stórleik en
hann skoraði fyrsta og síðasta mark-
ið og lagði upp tvö önnur.
Pólverjar lögðu Norður-
Makedóníu 2:0 þar sem Przemyslaw
Frankowski og Arkadiusz Milik skor-
uðu seint í leiknum.
Ítalir gulltryggðu sig áfram í
fyrrakvöld þegar þeir unnu Grikki,
2:0, með mörkum frá Jorginho og Fe-
derico Bernardeschi.
Georginio Wijnaldum skoraði
bæði mörk Hollendinga sem standa
vel að vígi í C-riðli eftir 2:1 útisigur
gegn Hvít-Rússum.
Þjóðverjar styrktu stöðu sína í
sama riðli með 3:0 sigri á Eistum í
Tallinn, þó að þeir misstu Emre Can
af velli með rautt spjald á 14. mínútu.
Ilkay Gündogan skoraði tvö mörk í
seinni hálfleik og Timo Werner eitt.
Króatar eru efstir í E-riðli og
einu stigi frá EM eftir 1:1 jafntefli í
Wales. Nikola Vlasic kom þeim yfir
en Gareth Bale jafnaði fyrir Wales.
AFP
Varsjá Pólverjar fögnuðu vel þegar þeir lögðu Norður-Makedóníu.
Grannþjóðirnar á EM