Morgunblaðið - 14.10.2019, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 14.10.2019, Blaðsíða 25
ÍÞRÓTTIR 25 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. OKTÓBER 2019 V E R T Heilsutvenna uppfyllir daglega vítamín- og steinefnaþörf Íslendinga í tveimur perlum. - því að sumt virkar betur saman Stundum þarf tvo til Undankeppni EM U21 karla Svíþjóð – Ísland ........................................ 5:0 Staðan: Írland 4 3 1 0 7:1 10 Ísland 3 2 0 1 9:6 6 Ítalía 2 1 1 0 5:0 4 Svíþjóð 2 1 0 1 6:3 3 Armenía 2 0 0 2 1:7 0 Lúxemborg 3 0 0 3 0:11 0 Bandaríkin Utah Royals – Houston Dash ................. 2:1  Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir lék allan leikinn með Utah Royals sem endaði í 6. sæti og hefur lokið keppni. Portland Thorns – Washington Spirit .. 0:0  Dagný Brynjarsdóttir kom inn á á 64. mínútu hjá Portland sem endaði í 3. sæti og mætir Chicago Red Stars í undanúrslitum um meistaratitilinn næsta sunnudag. England Reading – Everton .................................. 3:2  Rakel Hönnudóttir kom inná hjá Read- ing á 71. mínútu. Þýskaland Duisburg – Leverkusen .......................... 2:1  Sandra María Jessen lék fyrstu 59 mín- úturnar með Leverkusen. Holland B-deild: Excelsior – Dordrecht ............................ 3:2  Elías Már Ómarsson lék allan leikinn með Excelsior. Portúgal Estoril Praia – SL Benfica...................... 0:7  Cloé Lacasse lék allan leikinn með Ben- fica og skoraði eitt mark. Svíþjóð Rosengård – Linköping .......................... 3:3  Glódís Perla Viggósdóttir lék allan leik- inn með Rosengård sem mistókst að tryggja sér meistaratitilinn.  Anna Rakel Pétursdóttir lék allan leik- inn með Linköping. Vittsjö – Kristianstad.............................. 2:0  Svava Rós Guðmundsdóttir lék allan leikinn með Kristianstad en Sif Atladóttir fór af velli á 51. mínútu. Elísabet Gunn- arsdóttir þjálfar liðið. Djurgården – Kungsbacka..................... 3:0  Ingibjörg Sigurðardóttir lék allan leik- inn með Djurgården en Guðrún Arnardótt- ir sat á varamannabekknum. KNATTSPYRNA EM 2020 Sindri Sverrisson sindris@mbl.is Íslendingar þurfa að gefa sér þær forsendur að Frakkland vinni Tyrk- land í kvöld og tryggi sér um leið sæti í lokakeppni EM karla í fót- bolta. Þá eru síðustu þrír leikir Ís- lands í undankeppninni afskaplega áhugaverðir og sá fyrsti af þeim er gegn „sérfræðingum í að pirra and- stæðinginn“, Andorramönnum, á Laugardalsvelli í kvöld. Það er ekki lengur neitt svigrúm til staðar fyrir íslenska liðið. Það þarf að vinna sína þrjá leiki til að eiga möguleika á að komast beint á EM. Andstæðingur kvöldsins er sá auðveldasti sem Ísland hefur mætt á heimavelli í undankeppni stórmóts síðasta áratuginn og allt annað en sigur Íslands myndi flokkast sem einhverjar mestu hamfarir í íþrótta- sögu þjóðarinnar, en það hefði einn- ig átt við hjá Tyrkjum sem lentu í meiriháttar vandræðum gegn An- dorramönnum í síðasta mánuði. Ís- lenska liðinu hefur í flestum til- fellum síðustu ár verið treystandi til að sýna andstæðingnum virðingu, forðast vanmat og vinna leiki gegn lakari andstæðingum, og svör Al- freðs Finnbogasonar á blaðamanna- fundi í gær gefa skýrt til kynna að sú sé einnig raunin nú. Andorra kemur hingað til lands eftir sinn fyrsta sigur í 57 tilraunum í undankeppni EM. Liðið er í 139. sæti styrkleikalista FIFA en marði 1:0-sigur gegn Moldóvum á slæmum gervigrasvelli sínum á föstudag, eft- ir að leikmaður Moldóvu var rekinn af velli snemma í seinni hálfleik. Tyrkland skoraði sigurmark á 89. mínútu gegn Andorra í síðasta mán- uði, á heimavelli sínum í Istanbúl, og Frakklandi gekk einnig ekkert sér- lega vel að brjóta niður varnarmúr Andorra í París en vann þó 3:0- sigur. Ísland hóf undankeppni EM í mars á því að vinna 2:0-sigur í An- dorra með mörkum Birkis Bjarna- sonar og Viðars Arnar Kjartans- sonar. Alfreð var í byrjunarliðinu í þeim leik: Mega ekki ná að pirra okkur „Við megum ekki láta þá komast í hausinn á okkur. Maður sá að Mol- dóvar misstu aðeins hausinn og fengu rautt spjald. Þeir eru sér- fræðingar í að pirra andstæðinginn, Andorra, eins og sást í útileiknum okkar við þá. Klippurnar sem við sáum í gær voru í raun þær sömu og fyrir leikinn í mars. Liðið hefur engu breytt í sínum leikstíl. Við þurfum að hafa ákveðið „cover“ til að verjast skyndisóknunum þeirra en annars breytist það ekki í fót- bolta að það er alltaf erfitt að mæta tíu manna blokk, sérstaklega ef þeir eru þéttir fyrir á teignum. Frakk- arnir og Tyrkirnir sáu að það getur verið mjög erfitt að brjóta þá upp. Að sama skapi gerum við þær kröf- ur að við séum með þannig gæði að við klárum svona leiki. Að þegar við getum komið boltanum inn í teig þá verðum við að koma boltanum inn í teig og reyna að toga þá aðeins út úr stöðum. Þetta verður þolinmæð- isverk en við höfum þá trú að við eigum að klára þetta hérna á heima- velli,“ sagði Alfreð á blaðamanna- fundi í gær. Þegar talið barst að stöðu Íslands í undankeppninni og möguleikanum á að komast á EM næsta sumar benti Alfreð á að ekki væri svo slæmt að þurfa að treysta á heims- meistara Frakka í kvöld. Ef Frakk- land vinnur Tyrkland í París tryggir liðið sig inn á EM og gefur Íslandi um leið örlögin aftur í sínar hendur, þar sem þá myndi duga Íslandi að vinna Andorra í kvöld og svo Tyrk- land og Moldóvu á útivöllum í næsta mánuði, til að ná beint á EM. Það er gerlegt, þó að ekki sé það einfalt. „Vonbrigðin voru mikil eftir Frakkaleikinn því leikmennirnir áttu meira skilið, en mér finnst þeir líka hungraðir í að vinna Andorra og vonast eftir góðum úrslitum í Frakklandi. Þannig verði það síð- ustu tveir leikirnir sem ráði því hverjir komast á EM,“ sagði Ham- rén. Svigrúmið er alveg farið  Ísland þarf að vinna „sérfræðinga í pirringi“ í kvöld og treysta á sigur Frakka  Andorra lakasti gestur Laugardalsvallar síðasta áratug en hrellti Tyrki illilega Morgunblaðið/Eggert Sótt til sigurs Kolbeinn Sigþórsson, Gylfi Þór Sigurðsson og félagar í íslenska landsliðinu þurfa sigur í kvöld. Erik Hamrén segir Kolbein tilbúinn í að spila í byrjunarliði í kvöld þrátt fyrir stutt hlé frá leiknum við Frakkland. Það má vera ljóst að Alfreð Finn- bogason komi inn í byrjunarlið Ís- lands gegn Andorra í kvöld og leiki þar með Kolbeini Sigþórssyni eða Jóni Daða Böðvarssyni í fremstu víglínu. Ísland býr nú við þann lúx- us í fyrsta sinn í langan tíma að þeir þrír séu heilir heilsu, líkt og gegn heimsmeisturum Frakka á föstu- dag, í undankeppni EM í fótbolta. Í ljósi meiðsla Rúnars Más Sigur- jónssonar og Jóhanns Bergs Guð- mundssonar var Aron Elís Þránd- arson kallaður inn í landsliðs- hópinn. Vegna meiðslanna opnast tvær stöður í byrjunarliðinu en Birkir Bjarnason, Kolbeinn Sig- þórsson og aðrir af hinum níu sem byrjuðu gegn Frökkum eiga að geta byrjað leikinn í kvöld. Ekki er ljóst í dag hvort Rúnar og Jóhann verða klárir í slaginn gegn Tyrk- landi og Moldóvu eftir mánuð og nú er tækifæri fyrir aðra til að sanna sig. Byrjunarlið Íslands gæti litið svona út í kvöld: Mark: Hannes Þór Halldórsson. Vörn: Guðlaugur Victor Pálsson, Kári Árnason, Ragnar Sigurðsson, Ari Freyr Skúlason. Miðja: Arnór Sigurðsson, Gylfi Þór Sigurðsson, Birkir Bjarnason, Arnór Ingvi Traustason. Sókn: Kolbeinn Sigþórsson, Al- freð Finnbogason. Jón Daði gæti þó hæglega komið inn í byrjunarliðið og eins er ekki útilokað að Kári Árnason fái hvíld eftir að hafa meiðst í síðustu landsleikjatörn. Jón Guðni Fjóluson eða Sverrir Ingi Ingason kæmi þá væntanlega inn í hans stað. Samúel Kári Friðjónsson æfði ekki í gær vegna veikinda en var þó að hressast, og aðrir ættu að vera klárir í slaginn. sindris@mbl.is Alfreð kemur inn í fremstu víglínu Morgunblaðið/Árni Sæberg Klár Alfreð Finnbogason missti af fjórum landsleikjum vegna meiðsla. KNATTSPYRNA Undankeppni EM karla: Laugardalsvöllur: Ísland – Andorra... 18.45 HANDKNATTLEIKUR Úrvalsdeild karla, Olísdeildin: Framhús: Fram – ÍR............................ 19.30 Í KVÖLD!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.