Morgunblaðið - 14.10.2019, Blaðsíða 26
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. OKTÓBER 2019
á heimasíðu Hreyfils:
hreyfill.is
eða í App Store
og Google Play
SÆKTU APPIÐ
Sæktu appið frítt á AppStore
eða Google Play
Hreyfils appið
Pantaðu leigubíl á einfaldan
og þægilegan hátt
Þú pantar bíl1
3 og færð SMS skilaboðað bíllinn sé kominn.
2 fylgist með bílnum í appinu
HANDBOLTI
Meistaradeild karla
A-RIÐILL:
Barcelona – Elverum .......................... 33:24
Aron Pálmarsson skoraði 3 mörk fyrir
Barcelona og Sigvaldi Björn Guðjónsson
eitt fyrir Elverum.
París SG – Celje Lasko ....................... 27:18
Guðjón Valur Sigurðsson skoraði eitt
mark fyrir PSG.
C-RIÐILL:
Tatran Presov – Sävehof.................... 23:28
Ágúst Elí Björgvinsson varði 12 skot í
marki Sävehof.
D-RIÐILL:
GOG – Wisla Plock .............................. 28:27
Arnar Freyr Arnarsson skoraði 3 mörk
fyrir GOG en Óðinn Ríkharðsson ekkert.
Viktor Gísli Hallgrímsson lék í markinu.
EHF-bikar karla
2. umferð, seinni leikur:
Skjern – Alpla Hard ............................ 25:26
Björgvin Páll Gústavsson lék í marki
Skjern en Elvar Örn Jónsson var ekki með
vegna meiðsla. Patrekur Jóhannesson
þjálfar liðið sem féll út í vítakeppni eftir
51:51 samanlagt.
Meistaradeild kvenna
B-RIÐILL:
Perla Lublin – Esbjerg ....................... 22:28
Rut Jónsdóttir skoraði eitt mark fyrir
Esbjerg.
EHF-bikar kvenna
2. umferð, fyrri leikur:
DVSC Schäffler – Leverkusen .......... 35:27
Hildigunnur Einarsdóttir skoraði 5
mörk fyrir Leverkusen.
Zvezda Zvenigorod – Skuru .............. 29:22
Eva Björk Davíðsdóttir skoraði 2 mörk
fyrir Skuru.
Þýskaland
Füchse Berlín – Bergischer ............... 27:24
Arnór Þór Gunnarsson skoraði 3 mörk
fyrir Bergischer og Ragnar Jóhannsson 1.
Danmörk
Ribe-Esbjerg – Bjerringbro/Silk ...... 30:26
Rúnar Kárason skoraði 9 mörk fyrir
Ribe-Esbjerg, Gunnar Steinn Jónsson 5 og
Daníel Ingason 3 en Þráinn Orri Jónsson
skoraði ekki fyrir Bjerringbro/Silkeborg.
Frakkland
Bourg-de-Péage – Toulon .................. 26:26
Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir skor-
aði eitt mark fyrir Bourg-de-Péage en
Mariam Eradze ekkert fyrir Toulon.
Noregur
Oppsal – Aker ...................................... 22:21
Thea Imani Sturludóttir skoraði 4 mörk
fyrir Oppsal.
Austurríki
West Wien – Aon Fivers...................... 25:29
Guðmundur Hólmar Helgason skoraði 3
mörk fyrir West Wien.
áttu stórskyttur liðsins slakan leik,
skotin þeirra voru léleg, og Íris
Björk í marki Valsara tók þær al-
gjörlega úr jafnvægi.
Valskonur þurfa framlag frá fleiri
leikmönnum ef liðið ætlar sér að
skáka Frömurum í baráttunni um Ís-
landsmeistaratitilinn. Það voru ekki
margir leikmenn Vals fullkomlega
tilbúnir í alvörutoppslag og það sást
best þegar Ágúst Jóhannesson, þjálf-
ari Vals, fór að reyna hreyfa við sínu
liði. Fram er með betur mannað lið
en Valskonur en svo virðist vera sem
margir leikmenn Framara séu hrein-
lega hræddir við að mæta Valsliðinu
og varnarleiknum sem liðið spilar.
Samt sem áður er jákvætt hjá Fram
að eiga ævintýralega slakan leik en
hanga samt inni í leiknum, allan tím-
ann.
Stjarnan er með fullt hús stiga
eins og Valur eftir sigur á Aftureld-
ingu, 27:16. Stjarnan gerði aðeins
fimm mörk í fyrri hálfleik, Aftureld-
ing var 8:5 yfir að honum loknum, en
Garðabæjarkonur tóku öll völd í
seinni hálfleik. Þórey Anna Ásgeirs-
dóttir, Dagný Huld Birgisdóttir og
Stefanía Theodórsdóttir gerðu 5
mörk hver fyrir Stjörnuna en Ana-
maria Gugic skoraði 6 mörk fyrir
Aftureldingu og Roberta Iv-
anauskaite 4.
KA/Þór er í fjórða sæti eftir sig-
ur á Haukum á Ásvöllum, 25:23, en
Haukakonur sitja stigalausar á botn-
inum við hlið Aftureldingar. Ásdís
Sigurðardóttir skoraði 5 mörk fyrir
Akureyringa, Martha Hermanns-
dóttir, Martina Corkovic og Hulda
Bryndís Tryggvadóttir 4 mörk hver.
Berta Rut Harðardóttir skoraði 9
mörk fyrir Hauka og Guðrún Erla
Bjarnadóttir 5.
HK og ÍBV skildu jöfn, 29:29, í
spennuleik í Kórnum þar sem Eyja-
konur voru yfir í hálfleik, 17:14. Val-
gerður Ýr Þorsteinsdóttir og Jó-
hanna Margrét Sigurðardóttir
skoruðu 5 mörk hvor fyrir HK en
Ester Óskarsdóttir gerði 10 mörk
fyrir ÍBV.
Meistararnir tóku
Fram úr sambandi
Stjarnan og Valur með fullt hús stiga
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Garðabær Anamaria Gugic hjá Aftureldingu reynir að komast fram hjá
Stjörnukonunni Stefaníu Theodórsdóttur í leiknum á laugardag.
Á HLÍÐARENDA
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Valskonur tylltu sér á toppinn í úr-
valsdeild kvenna í handknattleik, Ol-
ísdeildinni, þegar liðið vann eins
marks sigur gegn Fram í toppslag
deildarinnar í Origo-höllinni á Hlíð-
arenda í fjórðu umferð deildarinnar á
laugardaginn. Leiknum lauk með
19:18-sigri Vals í háspennuleik en
staðan í hálfleik var jöfn, 10:10.
Valskonur voru hvergi bangnar og
mættu af fullum krafti inn í leikinn.
Þær spiluðu afar þéttan varnarleik
og Íris Björk Símonardóttir var
mögnuð á milli stanganna en Íris
varði 18 skot í leiknum, þar af eitt
vítakast. Valskonur fengu ekki fram-
lag frá mörgum sóknarlega á laug-
ardaginn, aðeins fjórir leikmenn
komust á markalistann, en það slapp
til þegar flautað var til leiksloka.
Framarar voru ólíkir sjálfum sér
og liðið gerði hver sóknarmistökin á
fætur öðrum. Liðið kastaði boltanum
frá sér villt og galið undir restina og
það var stundum eins og liðið vildi
einfaldlega ekki vinna leikinn. Þá
Frækinni framgöngu færeyska
handboltaliðsins H71, undir stjórn
Einars Jónssonar, í Áskorenda-
bikar Evrópu í karlaflokki lauk í
gærkvöld. H71 frá Hoyvík vann
óvæntan sigur á Maribor Branik frá
Slóveníu, 25:24, í fyrri viðureign
liðanna í Höllinni á Hálsi í Þórshöfn
á föstudagskvöldið. H71 náði um
tíma sjö marka forystu í leiknum.
Báðir leikirnir fóru fram í Fær-
eyjum en í þeim seinni í gærkvöld
tóku Slóvenarnir af skarið, voru yf-
ir í hálfleik, 17:10, og sigldu örugg-
um sigri í höfn, 31:24. vs@mbl.is
Færeyska æv-
intýrinu lokið
Ljósmynd/Þórir Tryggvason
Færeyjar Einar Jónsson og hans
menn í H71 komu á óvart.
Skammt er stórra högga á milli í
maraþonheiminum en eftir ótrúlegt
hlaup Eliud Kipchoge, sem hljóp
maraþon á undir tveimur tímum á
laugardag, eins og sagt er frá á
næstu síðu, sló Brigid Kosgei 16 ára
gamalt heimsmet í maraþoni
kvenna í gær. Kosgei, sem er einnig
frá Keníu, hljóp til sigurs í Chicago-
maraþoninu á 2 klukkutímum, 14
mínútum og 4 sekúndum. Þar með
bætti hún heimsmet hinnar bresku
Paulu Radcliffe um 1 mínútu og 21
sekúndu, en það met setti hún í
Lundúnamaraþoninu árið 2003.
Kosgei sló sextán
ára heimsmet
AFP
Heimsmet Brigid Kosgei kemur í
mark í hlaupinu í Chicago.
Haukar eru áfram ósigraðir í úr-
valsdeild karla í handknattleik,
Olísdeildinni, eftir dramatískan sig-
ur gegn Val, 25:24, á Hlíðarenda í
sjöttu umferðinni á laugardaginn.
Tjörvi Þorgeirsson fór mikinn í liði
Hafnfirðinga og skoraði níu mörk
en Magnús Óli Magnússon skoraði
sjö mörk fyrir Val.
Valsmenn voru með frumkvæðið
í leiknum lengst af, en köstuðu sigr-
inum frá sér á síðustu fjórum mín-
útunum. Vandræði Valsmanna
halda áfram en liðið hefur nú tapað
þremur leikjum í röð. Haukar eru
hins vegar á miklu skriði og líta vel
út eftir ósannfærandi spilamennsku
í upphafi móts.
Stjarnan lagði HK í uppgjöri
liðanna sem voru í neðstu sætunum
fyrir umferðina, 26:22, í Garðabæ,
eftir að staðan var 13:13 í hálfleik.
HK situr því eitt eftir á botninum,
án stiga. Leó Snær Pétursson og
Ari Magnús Þorgeirsson gerðu 6
mörk hvor fyrir Stjörnuna en Pétur
Árni Hauksson skoraði 8 mörk fyr-
ir HK. bjarnih@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hlíðarendi Alexander Örn Júlíusson stöðvar Atla Má Báruson.
Haukar léku Vals-
menn grátt í lokin