Morgunblaðið - 14.10.2019, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 14.10.2019, Blaðsíða 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. OKTÓBER 2019 Rafstilling ehf Dugguvogi 23, 104 Reykjavík, sími 581 4991, rafstilling@rafstilling.is Opið mán.-fim. 8-12 og 13-18, fös. 8-14 Hröð og góð þjónusta um allt land Áratug a reynsla Startar bíllinn ekki? Við hjá Rafstillingu leysum málið Renndu við hjá okkur í Tangarhöfða 13 Allar almennar bílaviðgerðir TANGARHÖFÐA 13 577 1313 - kistufell.com BIFREIÐAVERKSTÆÐIÐ Böðvar Páll Ásgeirsson bodvarpall@mbl.is Árni Grétar Jóhannesson, einnig þekktur undir listamannsnafninu Futuregrapher, fór í mars síðast- liðnum af stað með nýja plötuútgáfu, Móatún 7, sem gefur út smáskífur á vínylformi, þ.e. sjö tommu vínylplöt- ur. Árni stendur einn að útgáfunni, sem gefur út raftónlist í takt við þá sem Futuregrapher hefur látið frá sér. Árni stendur einnig að plötuútgáf- unni Möller Records ásamt fleirum. „Ég hafði gefið út nokkrar sjötomm- ur í gegnum Möller en ákvað að stofna nýja útgáfu sem gæfi ein- göngu út sjö tommu vínylplötur,“ segir Árni. Hann hafi því ákveðið í samráði við samstarfsmann sinn hjá Möller Records, Frosta Jónsson, að útgáfan myndi eingöngu einblína á lengri plötur í framhaldinu. „Margir erlendir vinir mínir vildu gefa út lög í gegnum Möller en útgáf- an var í rauninni einungis hugsuð fyr- ir Íslendinga, fyrir fólk sem vantaði aðstoð við að koma efninu sínu út. Ég ákvað þá að slá tvær flugur í einu höggi og leyfa erlendum vinum mín- um að vera með,“ segir Árni. Því séu flest verkin sem Móatún 7 hafi gefið út eftir erlenda tónlistarmenn. Fleiri hafa bæst við. „Það hafa stór nöfn samþykkt að vera með í þessu. Til að byrja með voru þetta bara vinir mínir en svo eru alltaf einhverjir sem finnst hugmyndin svöl,“ segir Árni og á þar við að Móatún 7 gefur út glærar vínylplötur. Árni nefnir til að mynda hljómsveitina Plaid og Ochre, sem hann segir stór nöfn í þessum bransa. Til að setjast niður með pípuna -Hvers konar tónlist gefur Móatún 7 út? „Fyrir mörgum árum bjó ég til orðið heiladans yfir þetta upp úr enska orðinu „braindance“. Þetta er raftónlist og þó að hún sé dansvæn er þetta ekki það sem til dæmis plötusnúðar spila. IDM er þetta kall- að úti. Þetta er svona raftónlist til að setjast niður með pípuna sína og hlusta á,“ segir Árni. Æskuheimilið -Hvaðan kemur nafnið á útgáf- unni? „Móatún 7 er æskuheimili mitt á Tálknafirði. Árið 1997 fékk ég að vera með lítið útibú Þrumunnar, sem var plötubúð í Reykjavík, í Móatúni 7 og af því að ég ákvað að gefa bara út sjö tommu plötur datt mér í hug að nota Móatún 7,“ segir Árni, sem fannst það viðeigandi nafn. Móatún 7 gefur aðeins út 20 til 30 plötur í hverri útgáfu og segir Árni þær allar hafa selst upp í forsölu hingað til. Þá kveðst hann selja þó nokkurt magn á tölvutæku formi. „Þetta áttu upphaflega að vera ein til tvær útgáfur á mánuði en áhug- inn hjá fólki, bæði að gefa út þarna og að kaupa íslenska raftónlist á ví- nyl, er það mikil að það selst alltaf upp.“ Vinyl.is sér um framleiðslu á plötunum og segir Árni möguleika á endurútgáfu á einhverjum þeirra. Hann segir u.þ.b. 90% kaupenda platnanna vera að utan. „Þetta eru miklir safnarar margir hverjir og það eru nokkrir sem eiga alla ser- íuna.“ Framtíðartónlistarmaður Þó að flestir tónlistarmenn sem gefi út undir nafni Móatúns 7 séu er- lendir leynast íslenskir listamenn þar líka. Sjálfur hefur Árni gefið út undir listamannsnafni sínu og nýver- ið kom út smáskífa frá Gugusar, 15 ára stúlku að nafni Guðlaug Sóley Höskuldsdóttir sem Árni segir fram- tíðartónlistarmann á sviðinu. „Möll- er Records hefur síðustu árin veitt rafheilaverðlaunin,“ segir Árni, en þau verðlaun eru veitt besta raftón- listarmanni Músíktilrauna á hverju ári. „Ég hef boðið upp á hljóðblöndun og tónjöfnun á þremur lögum fyrir þann sem hlýtur verðlaunin og í ár var það hún. Svo var ég að vinna þetta með henni og fannst þetta ótrúlega flott sjálfum.“ Árni bauð henni því að gefa lögin út hjá Móa- túni 7 og fá þannig útgefna vínyl- plötu í leiðinni. Enn önnur plötuútgáfa Árna, I- ntellitronic Bubble, hóf störf á árinu. Að henni stendur einnig Lee Ant- hony Norris, sem Árni segir goðsögn í bransanum. „Ég var búinn að gefa hann út hjá Móatúni 7 og hann var alltaf að spyrja mig hvort ég gæti gefið út stærri plötur, 10 eða 12 tommu,“ segir Árni og niðurstaðan var að stofna nýja plötuútgáfu sem gæfi út plötur í fullri lengd. „Þetta er dansvænni tónlist sem við gefum út þar. Þetta er stílað á electro- plötusnúða.“ Morgunblaðið/Hari Allar plötur uppseldar  Árni Grétar Jóhannesson stofnaði nýja plötuútgáfu í mars undir nafninu Móatún 7  Gefur út dansvæna raftónlist sem þó hentar vel til að hlusta á heima í sófanum Útgefandi „Þetta er svona raftónlist til að setjast niður með pípuna sína og hlusta á,“ segir Árni um tónlistina sem Móatún 7 gefur út. » Þau Woody Harrel-son, Emma Stone, Abigail Breslin og Jesse Eisenberg voru kát á rauða dreglinum fyrir helgi þegar uppvakn- ingagrínhasarmyndin Zombieland Double Tap var frumsýnd í Regency Village-kvikmyndahús- inu í Westwood í Kali- forníu. Sem fyrr segir af hópi fólks sem glíma þarf við hina lifandi dauðu sem eru engin lömb að leika sér við. Framhald Zombieland frumsýnt í Kaliforníu Prúðbúin Leikkonan og framleiðandinn Zoey Deutch á dreglinum. Hress Woody Harrelson, Emma Stone, Abigail Breslin og Jesse Eisenberg, aðalleikarar myndarinnar. AFP

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.