Morgunblaðið - 14.10.2019, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 14.10.2019, Qupperneq 32
Kynntu þér vöruúrvalið og þjónustuna VANDAÐUR vinnufatnaður frá Þjóðleikhúsið, í samstarfi við Vonarstræt- isleikhúsið, minnist Jóhanns Sig- urjónssonar á hátíðarkvöldi á Stóra sviði Þjóðleikhússins í kvöld kl. 19.30, en í haust voru lið- in 100 ár frá andláti skáldsins. Meðal þeirra sem fram koma eru Hilmir Snær Guðnason, Jóhanna Vigdís Arnardóttir, Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, Anna Kristín Arn- grímsdóttir, Arnar Jónsson, Lára Jóhanna Jónsdóttir, Kristján Frank- lín Magnús, Eyjólfur Eyjólfsson, Sveinn Einarsson og Sveinn Yngvi Egilsson. Aðgangur er ókeypis. Minnast Jóhanns Sigurjónssonar skálds MÁNUDAGUR 14. OKTÓBER 287. DAGUR ÁRSINS 2019 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 670 kr. Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr. PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr. Íslendingar þurfa að gefa sér þær forsendur að Frakkland vinni Tyrkland í kvöld og tryggi sér um leið sæti í loka- keppni EM karla í fótbolta. Þá eru síðustu þrír leikir Íslands í undankeppninni afskaplega áhugaverðir og sá fyrsti af þeim er gegn „sérfræðingum í að pirra andstæðinginn“, Andorra- mönnum, á Laugardalsvelli í kvöld. »25 ÍÞRÓTTIR MENNING Simone Biles frá Bandaríkjunum er orðin sigursælust allra frá upphafi á heimsmeistaramótum í fimleikum eftir að hún lauk keppni á HM í Stuttgart í gær með tvennum gull- verðlaunum. Biles hefur nú fengið 25 verðlaun á HM og þar af 19 gull- verðlaun. Hún hefur þar með slegið við Vitaly Scherbo frá Hvíta- Rúss- landi sem hlaut verð- laun í 23 skipti á heimsmeist- aramótum. »24 Simone Biles er sú sigursælasta í sögunni Englands í kjölfarið og stofnað hljómsveitina Change með Birgi Hrafnssyni og Sigurði Karlssyni. Róðurinn hafi þyngst eftir því sem fjölgað hafi í bandinu og eitt hafi leitt af öðru. Hann hafi unnið með Gunn- ari Þórðarsyni að ýmsum verkefnum um tíma og dúettinn Þú og ég hafi orðið til 1979. „Platan okkar „Ljúfa líf“ gekk mjög vel og við vöktum at- hygli erlendis, ekki síst í Japan.“ Tónlistarheimurinn var allur á iði um miðjan sjöunda áratuginn. „Þetta voru rosalega spennandi tímar,“ segir Jóhann. „Bítlaæðið skall með miklum þunga á heims- byggðina, tískan sem fylgdi snerti alla og ástandið var í raun einstakt. Þetta var allt okkar unglinganna, allt var nýtt, hljómsveitir spruttu upp í hverju horni og tónlistin var alls staðar.“ Jóhann segir ekki hægt að bera gamla sviðið saman við nútímann. „Eflaust er netið spennandi fyrir ungt tónlistarfólk sem er að hasla sér völl. Allir geta tekið upp efni og sett á netið fyrir allan heiminn til þess að hlusta. Það er mjög áhuga- vert en ég sakna þess að plöturnar hafi að mestu dottið út. Það var svo spennandi að kaupa plötu, setja hana á fóninn, skoða umslagið og finna lyktina. Það var ákveðin upplifun, en hver kynslóð elst upp við sitt og við rifjum upp það sem liðið er í Hörpu.“ Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is „Ástin og lífið“ er yfirskrift 70 ára afmælistónleika Jóhanns Helgason- ar í Hörpu næstkomandi laugardag, 19. október. „Þetta er tilvalið tæki- færi til þess að rifja upp gömlu, góðu tímana,“ segir tónlistarmaðurinn. Jóhann hefur verið afkastamikill lagahöfundur og samið jafnt fyrir sig og aðra. „Ég er þakklátur fyrir að hafa náð að semja lög sem hafa fallið í góðan jarðveg og lifað með hlust- endum,“ segir hann. Félagarnir Jóhann og Magnús Þór Sigmundsson hafa sungið saman í áratugi og þeir taka lög saman á tónleikunum. Eins hafa Jóhann og Helga Möller komið lengi fram sem dúett undir nafninu Þú og ég og þau verða saman á sviðinu í Eldborg. Auk þess syngja Stefán Hilmarsson, Jóhanna Guðrún, Daníel Ágúst, Bjarni Arason og Stefán Jakobsson nokkur lög hvert um sig undir stjórn Jóns Ólafssonar hljómsveitarstjóra. Plöturnar mikilvægar Mörg laga Jóhanns eru lands- þekkt. Lög eins og Söknuður, Sail On, Karen, Mary Jane og Í Reykja- víkurborg verða flutt á tónleikunum. „Við tökum öll þekktustu lögin í bland við lög, sem Jóni þótti eiga heima í dagskránni,“ útskýrir Jó- hann. Nefnir í því sambandi lög eins og Poker og I’m free. „Það verður líka spennandi að heyra Stefán Jak- obsson úr hljómsveitinni Dimmu syngja lagið Martröð, sem ég samdi fyrir Vilhjálm Vilhjálmsson fyrir plötuna „Hana nú“.“ Jóhann byrjaði að spila á gítar á unglingsárunum og fyrsta hljóm- sveitin var Rofar 1965. Leið Jóhanns og Magnúsar lá síðan saman í Nes- mönnum skömmu síðar. Þeir tóku samstarfið föstum tökum um 1970 og fyrsta plata þeirra, „Magnús og Jó- hann“, kom út 1972. „Þá tókum við þá ákvörðun að segja upp störfum okkar og einbeita okkur að tónlist- inni,“ rifjar Jóhann upp. Þeim hafi verið boðinn samningur, þeir flutt til Sígild lög Jóhanns í sviðsljósinu í Hörpu  „Ástin og lífið“ er yfirskrift 70 ára afmælistónleikanna Morgunblaðið/RAX Tónlist Jóhann Helgason er ánægður með afraksturinn. Mæta Andorra á Laug- ardalsvellinum í kvöld

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.