Morgunblaðið - 30.10.2019, Side 18
18 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. OKTÓBER 2019
✝ Súsanna MartaVilhjálmsdóttir
(fædd Nelke) fædd-
ist 7. október 1927
í Berlín. Hún lést á
Dvalarheimilinu
Ási í Hveragerði
15. október 2019.
Systir Súsönnu
er Thea Walles, f.
28. ágúst 1924, bú-
sett í Potsdam.
Sonur hennar er
Jürgen Walles, f. 23. desember
1947. Foreldrar þeirra voru
Olga Nelke, f. 15. júní 1895, d.
4. júlí 1962, og Willi Nelke, f.
23. júní 1893, d. 5. júlí 1966.
Þann 3. júlí 1967 giftist Sús-
Ásgeir Ástþórsson, f. 18. mars
1970.
Súsanna nam ljósmyndun í
Berlín á árunum 1942-1945.
Hún lærði til sjúkranuddara í
Berlín á árunum 1948-1951.
Súsanna kom fyrst til Íslands
1961. Súsanna og Einar kynnt-
ust í Grímsey, fluttu síðan á
Akureyri þar sem þau giftust
og hófu búskap. Þau fluttu árið
1968 til Hveragerðis, þar sem
Súsanna hóf störf sem sjúkra-
nuddari við Heilsustofnun
NLFÍ. Hún starfaði þar fram
til ársins 1993. Eftir að hún
hætti vinnu hélt hún sjálf heim-
ili þar til hún fluttist að Bæj-
arási – heimili á vegum Dval-
arheimilisins Áss, árið 2012.
Þar bjó hún síðustu æviárin og
lést þar.
Útför Súsönnu fer fram frá
Hveragerðiskirkju í dag, 30.
október 2019, og hefst athöfnin
klukkan 13.
anna Einari Ein-
arssyni djákna, f.
5. ágúst 1902, d.
17. júní 1993. Syn-
ir Súsönnu og Ein-
ars eru 1) Gunnar
Nelke, f. 9. júní
1966, maki Guðrún
Helgadóttir, f. 5.
apríl 1970. Börn
þeirra eru a) Eva
Björk, f. 1993,
maki Aðalgeir
Bjarki Þorsteinsson, b) Eyrún
Nelke, f. 2006, c) Helgi Steinar,
f. 2007. Fyrir átti Gunnar
Agnesi Ósk, f. 1988, maki Tóm-
as Pétur Heiðarsson. 2) Grétar,
f. 23. ágúst 1969, maki Óskar
Mig langar til að minnast
tengdamóður minnar í fáeinum
orðum. Súsí eins og hún var alltaf
kölluð var stórbrotin kona, með
sterkar skoðanir og mikinn húmor
fyrir lífinu í kringum sig.
Við kynntumst fyrst í hesthús-
unum, þar sem við vorum daglegir
gestir en hestarnir voru hennar
yndi alla tíð. Hún vissi fátt
skemmtilegra en að bregða sér á
bak og taka á sprett með vindinn í
fangið. Ekki skulum við heldur
gleyma öllum hinum dýrunum
sem hún hændi að sér og bar
mikla umhyggju fyrir. Hundurinn
Perla og kötturinn Múllý voru
hennar síðustu heimilisdýr.
Eftir að við Gunnar, sonur
hennar, rugluðum saman reytum
kynntist ég henni betur. Hún var
engin venjuleg kona, hafði lifað
tímana tvenna. Það var enginn
leikur að vera unglingur á stríðs-
árunum í Berlín. En til Íslands
kom hún og fann lífshamingjuna
hér. Hún var mikill Íslendingur í
sér og hafði brennandi áhuga á
þjóðlífinu. Hún fylgdist með
íþróttum, hvort sem það var HM
eða aðrar íþróttir, fram á síðasta
dag.
Hún hafði mikinn áhuga á
klassískri tónlist og því var það
henni gleðiefni að fylgjast með
tónlistarnámi barnabarnanna.
Við Súsí vorum alla tíð vinkon-
ur, þrátt fyrir að við værum ekki
alltaf sammála vorum við samt
sammála um það að það væri í lagi
að vera ósammála.
Hún setti lit á líf okkar allra og
við munum sakna hennar mikið.
Mig langar fyrst og fremst til að
þakka henni fyrir allt það sem hún
gerði fyrir mig og mína og það
sem við náðum að upplifa saman.
Ég veit að Einar tekur fagn-
andi á móti henni eftir langan að-
skilnað.
Guðrún
Helgadóttir.
Okkur systkinin langar að
minnast ömmu okkar og þakka
henni fyrir allt það góða sem hún
gerði fyrir okkur.
Amma var sérstök kona sem
fór sínar eigin leiðir í lífinu. Hún
hafði gengið í gegnum margt,
bæði gott og slæmt sem mótaði
hana og gerði hana jafnframt að
mjög sterkri og ógleymanlegri
persónu. Hún var mikill dýravinur
og hafði átt bæði hunda og kisur í
gegnum tíðina en íslenski hestur-
inn var eftirlæti hennar. Við minn-
umst hennar með öll dýrin sín í
kringum sig og hversu góð hún
var alltaf við þau.
Þrátt fyrir að hún væri orðin
mjög fullorðin þegar við kynnt-
umst henni var mikill kraftur í
henni og áhugi fyrir því sem í
kringum hana var. Við minnumst
hennar líka fyrir það hvað hún var
alltaf glöð og kát þegar við heim-
sóttum hana og hvað hún var stolt
af öllu því sem við gerðum. Hún
hafði mjög mikinn áhuga á klass-
ískri tónlist og kannski þess vegna
hafði hún svo gaman af því þegar
við yngri systurnar spiluðum á
fiðlu fyrir hana. Við erum þakklát
að hafa átt hana fyrir ömmu og
minnumst hennar sem einstakrar
konu með sterkar skoðanir á lífinu
og tilverunni. Við vitum að nú er
hún komin til afa sem hún hafði
saknað svo mjög.
Elsku amma, við þökkum þér
fyrir allar samverustundirnar.
Blessuð sé minning þín.
Agnes Ósk, Eva Björk, Eyrún
Nelke og Helgi Steinar.
Hvar fæðumst við og hvar er-
um við þegar lífinu lýkur? Mæt
kona er nú kvödd sem fæddist í
heimsborginni Berlín 7. október
1927 og í sama mánuði 2019 lauk
hún tilvistinni 92 ára í Hveragerði.
Árin okkar Súsíar voru mörg á
sama vinnustað, Heilsuhælinu
sem nú heitir Heilsustofnun
NLFÍ. Hún var menntuð sjúkra-
nuddkona og stafaði þar sem for-
stöðukona sjúkranuddsdeildar-
innar. Starfsfólk deildarinnar kom
flest frá Þýskalandi því þessi
menntun var ekki kennd á Íslandi
en þeir Íslendingar sem fóru til
náms bættust í hópinn. Hún sá al-
farið um að ráða starfsfólk og aug-
lýsa stöður í fagtímaritum í
Þýskalandi og svo kom það í minn
hlut að sækja um atvinnu- og dval-
arleyfin.
Þarna mynduðust mörg vina-
bönd milli landanna og heimsókn-
ir sem við Súsí fengum báðar að
njóta.
Trúmennska Súsíar var mikil
við vinnustaðinn og fylgdist hún
vel með starfsgreininni með við-
bótarþekkingu. Við upplifðum
báðar breytingar þar en vorum
líka stoltar af að hafa unnið lengi
við Heilsustofnun NLFÍ.
Okkur var vel til vina og áttum
trúnað hvor annarrar sem reynd-
ist mér og minni fjölskyldu vel
sem gott er að minnast og þakka
fyrir. Ef litið er til heimssögunnar
var ekki greið leið fyrir Súsí að
halda sambandi við fjölskylduna
meðan Berlín var bútuð í austur
og vestur, en hún lagði mikið á sig
til þess að halda sambandi við
fólkið sitt sem bjó austan megin.
Súsí var stór kona í orðsins fyllstu
merkingu og lét ekkert buga sig.
Hún átti góðan mann, hann
Einar, og þau áttu tvo yndislega
stráka, Gunnar og Grétar, sem
hún var stolt af. Tengdamömmu-
og ömmuhlutverk var gleði og
auður í hennar huga.
Dýravinur var hún og margir
kettir, hundar, hrafnar og fleiri
fengu hjá henni aukabita. Súsí var
líka hestakona og átti góða hesta
sem hún unni og fór margar
hestaferðir um landið. Þær voru
henni yndisstundir.
Heimskonan frá Berlín unni
tónlist og góðum bókum sem gam-
an var að ræða um. Ég á margt að
þakka, að hafa verið svo lánsöm að
vera samferða henni hér í Hvera-
gerði og með kveðju þessari minn-
ist ég mætrar konu og bið Guð að
blessa afkomendum hennar fram-
tíðina í minningu hennar.
Jóna Einarsdóttir.
Súsanna Marta
Vilhjálmsdóttir
Elsku Lilla.
Þetta er ekki
hinsta kveðja því við
munum hittast aftur.
Mín góða vina, Guðs í eilífð bjarta
þú gengin ert á æðra lífsins stig.
Mig skortir orð um ástarþökk míns
hjarta,
Sigurlaug Ágústa
Guðlaugsdóttir
✝ SigurlaugÁgústa Guð-
laugsdóttir fæddist
22. september
1945. Hún lést 17.
júní 2019.
Útförin fór fram
27. júní 2019.
er á ég hinzta sinni að
kveðja þig!
Þitt hjarta geymdi gullið
dýra og sanna,
að gleðja og hjálpa
stærst þín unun var.
Því hlauzt þú hylli Guðs
og góðra manna,
og göfugt líf þitt fagran
ávöxt bar.
(Ingibjörg
Sigurðardóttir)
Innilegar samúðarkveðjur til
Aðalsteins og sona og fjölskyldna
þeirra.
Erla og fjölskylda.
Frímann & hálfdán
Útfararþjónusta
Frímann
897 2468
Hálfdán
898 5765
Ólöf
898 3075
Sími: 565 9775
www.uth.is
uth@uth.is
Cadillac 2017
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
JÓNAS ÁSMUNDSSON
fv. aðalbókari Háskóla Íslands,
lést í faðmi fjölskyldunnar á dvalarheimilinu
Grund aðfaranótt 19. október.
Jarðsungið verður frá Digraneskirkju fimmtudaginn
31. október klukkan 13.
Guðrún Jóna Jónasdóttir Ingi Halldór Árnason
Ásmundur Jónasson Guðrún Vignisdóttir
Gylfi Jónasson Ásdís Kristmundsdóttir
Helgi Þór Jónasson Kristín Pétursdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
RANNVEIG ÍSFJÖRÐ
Grænumörk 2, Selfossi,
lést á Landspítalanum í Fossvogi
sunnudaginn 27. október.
Jarðarför auglýst síðar.
Gunnþóra H. Önundardóttir Þorkell Ingimarsson
Edda Björk Ragnarsdóttir
Hallur Ægir Sigurðsson
Kristveig Ósk Jónsdóttir Oddur Haraldsson
Kristín Rut Jónsdóttir Agnar Þorláksson
Íris Jónsdóttir Guðmundur Sigurðsson
Einar Magni Jónsson Magnea Svava Guðmundsd.
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginkona mín, mamma okkar,
tengdamamma, amma og langamma,
BIRNA VALGERÐUR
JÓHANNESDÓTTIR
frá Kirkjulundi, Vestmannaeyjum,
lést á dvalarheimilinu Hraunbúðum
22. október. Útförin fer fram frá Landakirkju Vestmannaeyjum
föstudaginn 1. nóvember klukkan 11.
Jóhann Ingi Einarsson
Alda Jóhanna Jóhannsdóttir Óskar Ólafsson
Erna Sigríður Jóhannsdóttir Eggert Gottskálksson
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
EVA KRISTJÁNSDÓTTIR
Skíðabraut 9,
lést á Dvalarheimilinu Dalbæ á Dalvík
2. október. Útförin hefur farið fram
í kyrrþey. Þakkir til starfsfólks Dalbæjar fyrir umönnun og alúð
undanfarin ár.
Rúnar K. Rósmundsson
Kristjana Rósmundsdóttir, Karl Sigtryggsson
Snjólaug St. Rósmundsdóttir
barnabörn, makar þeirra og langömmubörn
Elsku móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
GUÐMUNDA SIGURÐARDÓTTIR
hjúkrunarfræðingur,
Kópavogsbraut 1b, Kópavogi,
lést á Landspítalanum föstudaginn
25. október. Útför hennar fer fram frá Kópavogskirkju
föstudaginn 1. nóvember klukkan 11.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á hjúkrunarheimilið
Sunnuhlíð í Kópavogi.
Tryggvi Jónsson Ingveldur Bragadóttir
Sigurður Helgi Jónsson Liv Kari Tyvand
Jón Viðar Jónsson Þorbjörg Hróarsdóttir
Hreinn Jónsson Aðalheiður Þorsteinsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og besti vinur,
LÁRUS GRÍMSSON
skipstjóri,
Dalprýði 6, Garðabæ,
lést á krabbameinsdeild 11E í faðmi
stelpnanna sinna 23. október.
Útför hans fer fram frá Hallgrímskirkju föstudaginn 1. nóvember
klukkan 13. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim
sem vildu minnast hans er bent á samtökin Einstök börn.
Jóhanna Daðey Kristmundsdóttir
Þórdís Harpa Lárusdóttir Hákon Bergmann Óttarsson
Gerða Kristín Lárusdóttir Andri Már Kristinsson
Karen Ýr Lárusdóttir Guðmundur Hafþórsson
Hanna Heiða Lárusdóttir Steindór Sigurgeirsson
og barnabörn
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma
UNNUR STEFÁNSDÓTTIR
Ægisgötu 16,
Akureyri,
lést fimmtudaginn 24. október á
Sjúkrahúsinu á Akureyri.
Jarðarförin fer fram frá Akureyrarkirkju þriðjudaginn
5. nóvember klukkan 13.30.
Björn Snæbjörnsson Magga Kristín Björnsdóttir
Sigurbjörg Snæbjörnsdóttir
Stefán Sigurður Snæbjörns. Randi Aarseth
Kristinn Snæbjörnsson Kristín Sigurbjörg Jóhannsd.
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
STEINUNN GÍSLADÓTTIR
til heimilis á hjúkrunarheimilinu
Sunnuhlíð,
áður Gullsmára 7,
lést í faðmi fjölskyldunnar 23. október.
Jarðsungið verður frá Kópavogskirkju mánudaginn 4. nóvember
klukkan 13. Blóm og kransar afþakkaðir, þeim sem vilja minnast
hennar er bent á Sunnuhlíð og Alzheimersamtökin.
Hulda Leifsdóttir Bjarni Pálsson
Hafdís Leifsdóttir Sigurbjörn Sigurðsson
Ingibergur Sigurðsson Ingibjörg Magnúsdóttir
barnabörn og langömmubörn