Morgunblaðið - 30.10.2019, Síða 20

Morgunblaðið - 30.10.2019, Síða 20
✝ HannesínaTyrfingsdóttir, Sísí, fæddist í Vestri-Tungu í Vestur-Landeyjum 6. maí 1930. Hún lést á Heilbrigð- isstofnun Suð- urnesja 9. október 2019. Foreldrar hennar voru Tyrf- ingur Einarsson og Þóranna Helga- dóttir. Systur Hannesínu voru Helga sem er látin og Anna. Hinn 12. desember 1953 gift- ist Hannesína eftirlifandi maka sínum Andrési Magnúsi Egg- ertssyni, fæddur 20.10. 1929. Andri Björn og barnabörn þeirra eru 4. Þóranna fædd 18.8. 6́2 Maki Halldór Reinhar- dtsson og börn þeirra eru Andrés Þór og Ragnheiður Ingibjörg, barnabörn þeirra eru 4. Tyrfingur, f. 22.11. 1963, maki Guðríður Kristjánsdóttir. Börn þeirra eru Hrafnhildur, Brynhildur, Elvar Þór og Sylvía Hanna. Barnabörn þeirra eru 8. Sísí og Andrés hófu sinn bú- skap í Reykjavík en bjuggu lengst af í Keflavík. Hannesína var mikil hann- yrðakona og stundaði á sínum yngri árum nám við Kvenna- skólann Hverabakka í Hvera- gerði. Hún vann svo sína starfs- ævi mest tengda fiskvinnslu og ræstingum. Útför Hannesínu fór fram í kyrrþey að hennar eigin ósk í Keflavíkurkirkju 22. október 2019. Börn þeirra eru Anna Ingunn, fædd 3. nóv. 1950 látin 2. okt 2001. Börn hennar eru Hann- esína, Svanur Már og Kristmundur, barnabörn hennar eru 9 og barna- barnabörn eru 3. Eggert Þór fæddur 7. júlí 1954 maki Guðrún Arthúrs- dóttir, börn þeirra eru Arna Vala, Andrés Magnús og Thelma Dís og barnabörn eru 6. Sæunn, fædd 30. júlí 1956, maki Tryggvi Einarsson, synir þeirra eru Einar, Hannes og Elsku yndislega mamma mín, vinkona og fyrirmynd í lífinu, mikið finnst mér erfitt að sitja hér við borðstofuborðið mitt og reyna að skrifa minningargrein um þig. Ég hef legið margar and- vökunæturnar og skrifað þér í huganum en kem því ekki niður á blað og mun ég ávallt halda áfram að skrifa þér. Ég veit að vel var tekið á móti þér í Sum- arlandinu bjarta. Þú varst einsök manneskja, mamma mín, góðhjörtuð, ósér- hlífin, einstaklega geðgóð og ljúf kona. Þú varst með besta hár sem ég hef komist í snert- ingu við, það alltaf eins og ný- lagt, alveg sama þó að þú værir búin að vera nánast rúmföst Hannesína Tyrfingsdóttir vikum saman. Það var svo gam- an að eiga við hárið á þér og þú alltaf svo þakklát, elsku mamma mín. Ég á svo ótal margar minn- ingar um þig og allar eru þær svo góðar. Mig langar að setja hérna brot úr textanum við lagið Móð- urást sem á svo mikið við þig, elsku mamma mín. Hið göfugasta í lífi okkar er ást er móðir ber til sinna barna hún fórnar, gefur helft af sjálfri sér og sækir styrk til lífsins dýpsta kjarna „hún veitir ljós sem ljómi bjartra stjarna“. (Árni Böðvarsson) Við hittumst svo síðar, elsku mamma mín, eins og um var tal- að á sjúkrahúsinu. Ég elska þig ávallt, elsku mamma, og sakna þín óskaplega mikið. Hvíl í friði. Elsku pabbi, systkini, makar og öll ömmubörnin, missir okk- ar allra er mikill. Minningin lifir um yndislega konu. Þín dóttir, Þóranna Andrésdóttir. 20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. OKTÓBER 2019 Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Félagsstarf eldri borgara Aflagrandi 40 - Opin vinnustofa kl.9:00-12:30, nóg pláss og allir vel- komnir - Hreyfisalurinn opinn kl.9:30-11:30, líkamsræktartæki, teygjur og lóð - Yoga 60+, með Grétu kl.12:15 & 13:30 - Söngstund við píanóið kl.13:45, allir velkomnir - Kaffi kl.14:30-15:00 - Bókaspjall með Hrafni kl.15:00. Árbæjarkirkja Kyrrðarstund í kirkjunni kl.12. Opið hús, félagsstarf fullorðinna í safnaðarheimili kirkjunnar kl.13 til 16. Sr. Petrína Mjöll sýnir okkur myndir frá Skotlandi, stólaleikfimi á sínum stað, kíkjum í blöðin og spjöllum. Kaffi og með því á eftir í boði kirkjunnar. Allir hjartanlega velkomnir. Árskógar Opin handavinnustofa kl. 9-12. Opin smíðastofa kl. 9-15. Stóladans með Þórey kl. 10. Spænskukennsla kl. 10.45-11.30. Bridge kl. 12. Bónusbíllinn, fer frá Árskógum 6-8 kl. 12.55. Opið hús, t.d. vist og bridge eða bíó. kl. 13-16. Opið fyrir innipútt. Hádegismatur kl. 11.40-12.50. Kaffisala kl. 14:45-15.30. Heitt á könnunni. Allir velkomnir. S. 535-2700. Boðinn Handavinnustofa opin frá 9:00-15:00. Harmonikkuspil og söngur kl. 13:30. Vatnsleikfimi kl. 14:30. Bólstaðarhlíð 43 Morgunleikfimi með Rás 1 09:45. Námskeið í tálgun 09:30-12:00. Opin handverksstofa 9-16. Morgunkaffi 10-10:30. Boccia 10:40-11:20. Spiladagur, frjáls spilamennska 12:30-15:50. Opið kaffihús 14:30-15:15. Breiðholtskirkja Félagsstarf eldri borgara kl. 13:15. Hefst með kyrrðarstund og léttum hádegisverði kl. 12:00. Bústaðakirkja Hádegistónleikar kl 12:05, Sigríður Thorlacius söngkona syngur og með henni eru Hjörtur Jóhannsson píanóleikari og Guðmundur Óskar Guðmundsson gítaleikari þau munu leika ljúfa tónlist. Súpa í safnaðarsal á eftir. eftir hádegið um kl 15:00 mun Gosp- elkór Bústaða og Árbæjarkirkju kom og syngja meðan kaffið er. Prest- ur verður með hugleiðingu og bæn. Félagsmiðstöðin Hvassaleiti 56-58 Lokadagur skráningar í haust- ferð Hvassaleitis. Morgunkaffi og spjall frá 8:30-10:30. Útvarpsleikfimi kl. 9:45. Hádegismatur alla virka daga kl. 11:30-12:20 og kaffi kl. 14:30- 15:30. Zumba með Carynu 12:30. Frjáls spilamennska 13:00. Handa- vinnuhópur 13:00-16:00. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffi, spjall og blöðin við hring- borðið kl. 8:50. Jóga kl. 9. Upplestrarhópur kl. 10-12. Línudans kl. 10. Hádegismatur kl. 11:30. Salatbar kl. 11:30-12:15. Miðvikufjör, kynning og leiðbeiningar á vefversluninni Heimkaup.is kl. 11:50-12:30. Zumba kl. 13. Tálgun hjá Valdóri kl. 13:30-16. Kraftganga kl. 14. Síðdegiskaffi kl. 14:30. Allir velkomnir óháð aldri. Nánari uppl. í síma 411-2790. Félagsmiðstöðin Vitatorgi Bókband kl. 9:00. Postulínsmálun kl. 9:00. Minigolf kl. 10:00. Tölvu- og snjallsímaaðstoð kl. 10:30. Bókband kl. 13:00. Myndlist kl. 13:30. Dans með Vitatorgsbandinu kl. 14:00. Frjáls spilamennska kl. 13:00-16:30. Söngur við undirleik kl. 15:00. Heitt á könnunni fyrir hádegi. Verið öll hjartanlega velkomin. Nánari upplýsingar í síma 411-9450. Garðabæ Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10:00. Bridge í Jónshúsi kl. 13:00. Vatnsleikf. kl.7:10/7:50/15:15. Kvennaleikf Ásg. kl.9:30. Kvennaleikf Sjál. kl. 10:30. Stólajóga í Jónshúsi kl. 11:00. Leirsmiðja Kirkjuh kl. 13:00. Zumba salur Ísafold. kl. 16:15. Gerðuberg 3-5 Opin Handavinnustofan kl. 08:30-16:00. Útskurður m/leiðbeinanda kl. 09:00-12:00. Qigong 10:00-11:00. Línudans kl. 11:00-12:00 Leikfimi Helgu Ben kl. 11:00-11:30. Útskurður / Pappa- módel m/leiðb. kl 13:00-16:00. Félagsvist kl. 13:00-16:00. Döff félag heyrnalausra 12:30-15:00. Allir velkomnir. Gjábakki Kl. 9.00 handavinna, kl. 9.00 boccia-opinn tími, kl. 9.30 glerlist, kl. 13.00 félagsvist FEBK, kl. 13.00 postulínsmálun. Gullsmára Myndlist kl 9.30. Postulínsmálun. Kvennabridge. Silfur- smíði kl. 13.00. Línudans fyrir lengra komna kl. 16.00 Hraunsel Ganga í Kaplakrika kl. 9.00-12.00. Bókmenntaklúbbur kl. 10.00 aðra hverja viku. Línudans kl 11.00 Bingó kl. 13.00. Handverk kl. 13.00 Gaflarakórinn kl. 16.00. Pútt í Hraunkoti kl. 10.00-11.30. Korpúlfar Gerlistanámskeið kl. 9 í Borgum, ganga kl. 10 frá Borgum og í Egilshöll. Félagsfundur Korpúlfa kl. 13 í dag í Borgum með áhugaverðri gleðidagskrá, Sigrún Huld Þorgrímsdóttir sérstakur gest- ur með erindi um nýja menningu í öldrunarþjónustu, Korpusystkin gleðja með söng, ljóðaflutningur, tónlistaflutningur myndasýning frá siglingu Korpúlfa sl. sumar og fleira gleðilegt. Qigong kl. 16:30 í Borgum. Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl.8.30, trésmiðja kl.9-12, opin listas- miðja, morgunleikfimi kl.9.45, viðtalstími hjúkrunarfræðings kl.10.30- 12, upplestur kl.11, félagsvist kl.13.30, bónusbíllinn kl.14.40, heimildar- myndasýning kl.16. Uppl í s. 4112760. Seltjarnarnes Gler og bræðsla á neðri hæð félagsheimilisins kl. 9 og 13. Leir Skólabraut kl. 9. Botsía Skólabraut kl 10. Kaffispjall í króknum kl. 10.30. Kyrrðarstund í kirkjunni kl. 12. Timburmenn Valhúsaskóla kl. 13. Handavinna, föndur og leiðsögn í salnum á Skólabraut kl. 13. Vatnsleikfimi kl. 18.30. Á morgun fimmtudag er haustferð. Flúðir, Hruni ofl. Lagt af stað frá Skólabraut kl. 10.30. Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10-16. Heitt á könnunni frá kl. 10-11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá kl. 11.30-12.15 og panta þarf matinn daginn áður. Handavinnuhópur hittist kl. 13.00. Kaffi og meðlæti er til sölu frá kl. 14.30-15.30. Allir vel- komnir. Síminn í Selinu er: 568-2586. Stangarhylur 4 Göngu-hrólfar ganga frá Ásgarði Stangarhyl 4, kl. 10.00 kaffi og rúnstykki eftir göngu. Enska-námskeið kl. 13.00, leið- beinandi Margrét. Bókmenntahópur FEB. Næsti tími verður fimmtu- daginn 31. okt. kl 13:00-15:00. Haldið verður áfram að lesa Lifandilífs- læk eftir Bergsvein Birgisson. Fylgst verður áfram með Magnúsi Árelíusi og úttekt hans á mannlífinu á Ströndum. Umræðum stýrir Jónína Guðmundsdóttir Raðauglýsingar Smáauglýsingar Vantar þig fagmann? FINNA.is Í ársbyrjun 1961 réðst ég til starfa á Hvanneyri. Þegar ég nýráð- inn kom í matsal skólastjóra- hússins gamla voru þar skóla- sveinar að vaska upp undir stjórn borðstofudömunnar. Þessi stúlka leit á mig og brosti án þess að truflast við störf. Skóla- sveinarnir fræddu mig fljótlega um kvennaval staðarins og þar var Rut í borðstofunni ofarlega á lista að kostum, en um það þyrfti ekki að tala, hún væri komin á fast. Við fjósamenn komum jafnan að verkalokum seinna í kvöld- mat en skólasveinarnir og töfð- um af því þá stúlku, sem að sín- um verkalokum var. Rut varð okkur uppáhald. Hún var allra kvenna umburð- Erna Ruth Konráðsdóttir ✝ Erna RuthKonráðsdóttir fæddist 11. mars 1941. Hún lést 15. október 2019. Útför Ernu Rut- har fór fram 24. október 2019. arlyndust þó að eitthvað bæri út af í tíma með starfslok dagsins. Auk þess að vera ósérhlífin og röskur starfskraftur var hún ófeimin við skoðanir sínar og lét ekki eiga hjá sér í orðaskiptum, en skammaði hvern þann sem henni maklegur þótti. Hún var sögð kommúnisti, en það var þá örugglega hin húm- aníska hlið þeirra hugsjóna. Þau Sigurgeir Ágústsson op- inberuðu trúlofun sína þennan vetur. Hann þótti að áræðni vaskleik og ráðum standa fram- arlega. Ættingja hans þekkti ég úr mínu heimahéraði Kollafirði og þá var einnig að finna í Geiradal og Djúpi og víðar þar um slóðir. Í þeim hópi barst í tal þessi trúlofun á Hvanneyri, ég hafði við orð að Geiri hefði náð í ákveðna og trausta konu. Dóm- ur ættingja var sá að honum hefði hreint ekki veitt af því, ráð hans hefðu jafnan verið laus í rásinni. Þetta kom mér á óvart. Þau réðust að námi loknu til starfa að Tilraunastöðinni á Reykhólum. Meðan þau voru þar hittumst við stundum og vorum kunningjar. Tímann þar man ég ekki, en frétti seinna af þeim í búskap í Eyjafirði. Þau eignuðust 4 börn en Geiri varð ekki langlífur. Það var svo fyrir fáum árum þegar ég var orðinn vistmaður á Barmahlíð að ég kom heim eftir nokkra burtveru, að þá var þar til vistar komin kona, vingjarn- leg og jafnan með fyrirbænir og guðsorð á vörum, en mikill sjúk- lingur, ráð hennar allt í molum. Ég nam nafn hennar: Rut, en það var ekki fyrr en eftir margra vikna samveru að ég áttaði mig á hver þetta var. Hún átti til að skammast með fúk- yrðum við þá sem voru að lið- sinna henni, en lengst af sat hún í sínum heimi, söng sálma eða fallegt kvæði. „Guð blessi þig“ var kveðjan sem hver og einn fékk og hún vildi halda í hönd viðmælanda síns þéttu og innilegu taki. „Sestu hérna hjá mér ástin mín“ var hennar uppáhaldsljóð. Hún nefndi manninn sinn og börnin sín og sagði mér tölu þeirra. Annað tal hennar var ekki bundið raunveruleikanum. En ég vil muna glæsilegu og rösku stúlkuna sem ég þekkti tvítuga. Guð blessi þig, Rut mín, og þá kveðju sendi ég hér með fólkinu hennar. Jóhannes Geir Gíslason. ✝ Tryggvi Gunn-arsson fæddist á Reykjum í Fnjóska- dal 19. desember, 1920. Hann lést á Öldrunarheimilinu Hlíð á Akureyri 17. október, 2019. Foreldrar hans voru Gunnar Jóna- tansson, bóndi á Reykjum, f. 1876, d. 1965, og kona hans Þóra Sigríður Guðmundsdóttir, húsfreyja, f. 1889, d. 1951. Systkini Tryggva voru Guðrún, f. 1916, d. 2009, og Guðmundur, f. 1924, d. 2008. og vann við byggingu Lax- árvirkjunar fyrsta árið. Þá vann hann í nokkur ár sem renni- smiður á húsgagnaverkstæðinu Valbjörk. Eftir það vann hann allan sinn starfsaldur á verk- smiðjum Sambandsins á Gler- áreyrum. Tryggvi bjó hjá systur sinni, Guðrúnu, og manni hennar, Steingrími Davíðssyni, í Ása- byggð 15 á Akureyri eftir flutn- inginn frá Reykjum og til ársins 2003. Þá keypti Tryggvi sér íbúð í Lindasíðu 4. Árið 2015 fluttist Tryggvi svo að Öldr- unarheimilinu Hlíð á Akureyri þar sem hann bjó til dánardags. Jarðarförin fer fram frá Ak- ureyrarkirkju í dag, 30. október 2019, klukkan 13.30. Tryggvi ólst upp á Reykjum og fékk heimafræðslu framan af og síðar gekk hann í far- andskóla í sveit- inni. Tryggvi stundaði síðar nám við Garð- yrkjuskóla ríkisins og vann síðar að tómata- og gúrku- rækt í gróðurhús- um á Reykjum. Árið 1951 tóku systkinin þrjú við búinu á Reykj- um af foreldrum sínum og stóð sú samvinna til ársins 1958. Þá fluttist Tryggvi til Akureyrar Föðurbróðir minn, Tryggvi Gunnarsson, lést snemma morg- uns hinn 17. október, sl. Tryggvi hefði í desember á þessu ári orðið 99 ára. Ég kynntist Tryggva fyrst sem smákrakki heima á Reykjum þegar hann kom í helgarheimsóknir ásamt Guðrúnu systur sinni og manni hennar, Steingrími. Ég minnist þess þegar þau komu svo oft í Reyki til að setja niður kartöflur og taka upp að hausti. Síðar komu þau margoft á sumrin þegar Guðrún og Steingrímur hófu að byggja sér lítinn sum- arbústað í Reykjaskógi. Þar lagði Tryggvi þeim ómælt lið, enda hagur mjög á hvers kyns smíðar. Þá var legið við í tjaldi og nesti útbúið til margra daga. Gaman þótti mér sem barni að hjóla suður í skóg til þeirra og dvelja þar dagpart. Tryggvi var hæglátur og hlédrægur maður. Hann talaði ekki af sér, hann frændi minn. Hann var vel les- inn, þekkti landakortið vel og ferðaðist mikið um Ísland. Hann tók sig gjarnan upp og ferðaðist einn til fjarlægra landa, þá gjarnan sólarstranda, og kom verulega sólbrúnn heim úr þeim ferðum. Hann hafði þá varið tíma sínum í endalausar gönguferðir um nærliggjandi svæði og sagði okkur svo sögur af ferðum sínum. Áhugamál Tryggva lágu á sviði bókbands og byggingar kirkjulíkana. Eftir hann liggja afar vandaðar bækur bundnar inn í geitaskinn og fjöldinn all- ur af kirkjulíkönum af hinum ýmsu kirkjum. Sumar kirkn- anna hannaði hann sjálfur og var handverkið afar fínlegt og vandað. Eftir að Tryggvi flutti í sína eigin íbúð og hætti að keyra bíl sökum aldurs, fóru samskipti okkar vaxandi. Hann þurfti að- stoð við að komast á milli staða, sjá um bankaviðskipti og inn- kaup og fara til læknis. Þær voru orðnar ófáar ferðirnar sem við Tryggvi frændi fórum í þessum erindagjörðum. Síðasta ferð okkar frændanna var svo í Fnjóskadalinn síðastliðið sumar þar sem Tryggvi leit í síðasta sinn sínar æskustöðvar. Þótti honum mikið til Vaðlaheiðar- ganga koma og þess hversu trjágróðurinn í Fnjóskadal hafði vaxið. Tryggvi var orðinn aldinn og lotinn. Hann var trúaður alla tíð og sennilega hefur gamli maðurinn kvatt þetta jarðlíf sáttur. Megi Tryggvi frændi minn hvíla í friði. Gunnar Magnús Guðmundsson. Tryggvi Gunnarsson Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber- ist áður en skilafrestur rennur út. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.